Morgunblaðið - 20.05.1989, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
23
Tillaga íslenskrar konu í Montana:
Islendingar erlendis sameinist í
baráttu gegn gróðurauðn á íslandi
Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Mbl. í Flórída
INGA Larsen, íslensk kona sem
býr í Billings í Montana í Banda-
ríkjunum, hefur lagt til að allir
Islendingar í Bandaríkjunum og
hvar sem þeir búa annars staðar
fjarri ættlandi sínu, taki höndum
saman og hjálpi til við að stöðva
gróðureyðingu og uppblástur á
Islandi.
íslandi. Það var áður en greinin um
uppblásturinn birtist í News From
Iceland. Nú vill hún leggja meira
af mörkum og hvetur aðra til að
gera það líka. Hún skorar á samtök
Islendinga að senda fjárframlög
milliliðalaust til Landvemdar.
Inga Larsen er gift manni af
dönskum ættum. Þau bjuggu fyrst
í Los Angeles en fluttust til Mont-
ana fyrir um 20 ámm og una þar
vel hag sínum. Hún saknar þess
helst, að hitta sjaldan íslendinga,
en þrátt fyrir æfingarleysi var varla
hægt að heyra hreim í málfari henn-
ar.
ULTRA
Bílabón sém endist
langt umfram hefð-
bundnar tegundir.
Utsölustaöir:
stöövarnar.
Tillaga Ingu er á þá leið að á
öllum 17. júní-samkomum íslend-
inga erlendis verði efnt til samskota
til að vinna að þessu verkefni. Inga
hafði samband við undirritaðan eft-
ir að hafa lesið samtal við Ingva
Þorsteinsson í News From Iceland
um landeyðingu á íslandi. Hún
kvaðst hafa kynnst því þegar hún
og aðrir Montana-búar horfðu á
stór svæði í Yellowstone-þjóðgarð-
inum brenna, hvílíkum Grettistök-
um almenn samtök gætu lyft: „Ég
veit ekki hvernig þetta hefði farið
ef ekki hefði komið hingað skari
sjálfboðaliða til að taka þátt í
slökkvi- og björgunarstörfum. Og
enn munar mest um verk sjálf-
boðaliða, sem koma hingað til gróð-
ursetningar, en aðrir styrkja upp-
bygginguna með fjárframlögum og
trjágjöfum. Bandaríska þjóðin met-
ur réttilega þann dýrgrip, sem
Yellowstone-þjóðgarðurinn er og
vill leggja eitthvað af mörkum til
endurreisnar hans og varðveislu.
Allir, sem eru af íslenzkum upp-
runa, vilja áreiðanlega gera hið
sama fyrir landið sitt,“ sagði Inga.
Inga kvaðst nýlega hafa ritað
forseta íslands bréf og lagt í það
smáfjárupphæð til skógræktar á
Hafsteinn Austmann
Hafsteinn
Austmann
í Nýhöfii
HAFSTEINN Austmann opnar
málverkasýningu í listasalnum
Nýhöfti í Haftiarstræti 18 í
Reykjavík klukkan 14 laugar-
daginn 20. maí. A sýningunni
verða málverk og vatnslita-
myndir sem málaðar hafa verið
á síðustu tveimur árum. Sýning-
in er sölusýning og verður opin
virka daga frá klukkan 10 til
18 og um helgar frá klukkan
14 til 18. Henni lýkur 7. júní.
Sýningin er tólfta einkasýning
Hafsteins Austmanns en hann
hefur einnig tekið þátt í fjölda
samsýninga hér heima og erlendis.
Hafsteinn fæddist árið 1934 á
LjótsStöðum í Vopnafirði. Hann
innritaðist í Myndlistaskólann í
Reykjavík árið 1951 og á árunum
1952 til 1954 stundaði hann nám
við Handíða- og myndlistaskólann.
Að því loknu fór Hafsteinn í fram-
haldsnám við Academie de la
Grande Chaumier í París þar sem
hann dvaldi í eitt ár, segir í frétta-
tilkynningu.
EIMSK P
liih '• , *
'íí' ’ - ’
Fyrst flutningafyrirtækja býður
EIMSKIP upp á greiðslukorta-
þjónustu. Þar með opnast einstakl-
ingum og fyrirtækjum ný leið til að
greiða flutningskostnað sinn.
Nú er meðal annars hægt að borga
flutning á búslóð, bíl og öðrum
vörum með raðgreiðslum VISA eða
Eurokredit kjörum.
Einfalt og þægilegt!
Hjá EIMSKIP nýtur þú nýjunga
í þjónustu.
EIMSKIP
FYRSTIR MEÐ
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTU
í SJÓFLUTNINGUM!