Morgunblaðið - 20.05.1989, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
Hafrannsóknastofiiun:
Farið verður í
þijá rann-
sóknaleiðangra
ÁRNI Friðriksson, skip Ha-
frannsóknastofnunar, fór í
rækjuleit í gær, föstudag, en
tveir rækjuleiðangrar höfðu
verið felldir niður vegna verk-
fallsins, að sögn Jakobs Jakobs-
sonar forstjóra stofhunarinnar.
Farið var í humarrannsóknale-
iðangur á Smmtudag en humar-
rannsóknir áttu að heQast 9.
maí síðastliðinn. Bjarni Sæ-
mundsson fer í vorleiðangur
næstkomandi mánudag en sá
leiðangur átti að hefjast siðast-
liðinn þriðjudag.
Fimm menn, sem unnið hafa
við hvalarannsóknir, fóru á
fímmtudaginn til Bandaríkjanna
til að sitja þar fund vísindanefndar
Alþjóða hvalveiðiráðsins sem hefst
í dag, laugardag, að sögn Jakobs.
„Það er ekki búið að ákveða
hvort hér verður unnin yfirvinna
vegna verkfallsins," sagði Jakob
Jakobsson.
Morgunbiaðið/Emilía
Ingvar Birgir Friðleifsson, forstöðumaður Jarðhitaskólans, ásamt nokkrum nemendum skólans.
Jarðhitaskólinn:
Kennslan lá ekki niðrí í verkfallinu
„KENNSLA við Jarðhitaskóla
Sameinuðu þjóðanna lá ekki
niðri vegna verkfallsins en
nokkrir fyrirlesarar voru i
verkfalli," sagði Jakob Björns-
son orkumálastjóri. Náttúru-
fræðingar hófu kennslu við
Jarðhitaskólann í gær, föstu-
dag, að sögn Ingvars Birgis
Friðleifssonar forstöðumanns
skólans.
Jakob Bjömsson sagði að
kennslutilhögun við Jarðhitaskól-
ann hefði verið breytt svolítið
vegna verkfallsins og þeir kennar-
ar, sem ekki voru í verkfalli, hefðu
haldið fyrirlestra í skólanum að
undanfömu. „Við eigum eftir að
íhuga hvort unnin verður yfir-
vinna vegna verkfallsins en reyn-
um að vinna upp þá töf sem orðið
hefur á rannsóknum," sagði Jakob
Bjömsson.
„Erfítt að meta stöðuna“
Um 2500 skjöl bíða þinglýsingar:
„Líklega gripið til yfirvinnu“
- segir Sigurður Sveinsson borgarfógeti
„ÞAÐ er lítið um þetta að segja
annað en að fólkið er komíð og
vinna er hafin. Þetta er mikill
bunki og ekki gott að segja hvað
það tekur langan tima að grynnka
á honum. Mér skilst að það hafi
hlaðist upp eitthvað um 2500 skjöl
til þinglýsingar og búast má við
að það verði að grípa til einhverr-
ar yfirvinnu til að klára þetta,“
sagði Sigurður Sveinsson borgar-
fógeti í samtali við Morgunblaðið.
Aðspurður hvort að til greina
kæmi að taka fyrir móttöku nýrra
skjala uns jafnvægi væri náð á nýjan
leik svaraði Sigurður að slíkt myndi
embættið ekki gera ótilneytt, hér
væri um nauðsynlega þjónustu að
ræða, en fólk yrði að gera sér Ijóst,
að óhjákvæmilegar tafír gætu orðið
á afgreiðslu skjala fyrst um sinn.
„Skjölin eru misjafnlega tímafrek og
það tekur allt sinn tíma,“ sagði Sig-
urður. Sigurður sagði að ekki væri
væri fráleit að ætla að það tæki
mánuð að vinna úr bunkanum og
bætti við að það gæti seinkað af-
greiðslui að á meðan að verkfallið
stóð yfir voru afgreidd veðbókarvott-
orð fyrirvara.
og allir lúnir. Það er hins vegar
erfitt að meta það á þessari stundu
hvað það tekur langan tíma að
koma hér öllu í fyrra horf,“ sagði
Vigdís Magnúsdóttir hjúkrunar-
forstjóri á Landsspítalanum í sam-
tali við Morgunblaðið.
Vigdís sagði jafnframt, að í gær
hefði verið unnið að því að opna all-
ar þær deildir sem opnar voru fyrir
verkfall að tveimur undanskildum,
en þær myndu opna strax eftir helgi.
„Það er föstudagur, þannig að þetta
byijar ekki með neinum krafti, rann-
sóknir og aðgerðir eru ekki mikið í
brennidepli á föstudögum, en strax
eftir helgi fer allt á fulla ferð,“ sagði
Vigdís. Hún sagði að sjúklingar, sem
færðir voru til í hagræðingarskini,
færu nú á sínar fyrri deildir. Enginn
langlegusjúklingur hefði verið sendur
heim vegna verkfallsins.
„Þetta er hátíðsdagur þjá okk-
ur, þetta var orðið langt verkfall
Morgunblaðið/Þorkell
Starfsfólk borgarfógetans byijuðu að grynnka á bunkunum í gær-
morgun.
Bið eftir hjarta-
aðgerðum lengist
Verkfall BHMR hafði þau áhrif
á framkvæmd þjartaaðgerða þjá
Rikisspítölum, að þeim stórfækk-
aði og um 30 sjúklingar bættust á
biðlistann . Biðtími eftir aðgerðum
lengist nú um að minnsta kosti
heilan mánuð eftir þvi sem Þórður
Harðarson yfirlæknir lyflæknis-
deildar Landsspítalans sagði í
samtali við Morgunblaðið.
„Ég hef nú ekki tölumar nákvæm-
lega hér við hlið mína, en við höfum
gert allt að 15 aðgerðir á viku. Með
því að gera um það bil 10 aðgerðir
á viku höfum við getað haldið í horf-
inu, en meðan að verkfallið stóð yfir
gerðum við aðeins tvær á viku að
meðaltali og aðeins bráðatilfelli.
Starfsemi RALA
endurskipulögð
„VIÐ ERUM að vinna að því
að endurskipuleggja starf-
semina,“ sagði Þorsteinn
Tómasson forstjóri Rann-
sóknastofnunar landbúnað-
arins.
Þorsteinn sagði að í sumum
verkefnum þyrfti að vinna yfir-
vinnu vegna verkfallsins. Hann
sagði að komræktartilraunir
yrðu til dæmis minni en til stóð.
„Oll starfsemin líður fyrir svona
langt og erfitt verkfall," sagði
Þorsteinn.
Blóðbankinn:
Starfsemin
eðlileg í
næstu viku
„VIÐ REIKNUM MEÐ að starf-
semi bankans verði komin i
eðlilegt horf í næstu viku,“
sagði Ólafiir Jensson yfirlæknir
Blóðbankans.
Ólafur sagði að vegna verk-
fallsins væri ströng vinnulota
framundan í bankanum. Mikið
álag yrði í daglegum störfum og
einhver yfirvinna. Hann sagði að
ein hjartaaðgerð hefði verið fram-
kvæmd á fimmtudaginn og reikn-
að væri með að þijár slíkar yrðu
framkvæmdar í næstu viku.
Morgunblaðið/Þorkell
16 náttúrufræðingar í Blóðbankanum voru í verkfalli en í bankan-
um vinna rúmlega 40 manns, að sögn Ólafs Jenssonar yfirlæknis.
Myndin var tekin í Blóðbankanum í gær, föstudag.
Rannsóknastofíiun
fískiðnaðarins:
Töluverð
yfírvinna
vegna verk-
fallsins
„ÉG á von á því að við þurfurn
að vinna töluverða yfirvinnu
vegma verkfallsins,“ sagði
Grímur Þór Valdimarsson for-
stjóri Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins.
Grímur Þór sagði að sýni hefðu
safnast upp meðan á verkfallinu
stóð og mikið lægi á að rannsaka
sum þeirra. Vegna verkfallsins
hefðu til dæmis legið niðri mæling-
ar á vítamínum, þungmálmum, lag-
metissýnum og ferskleika fisks.
Fossvogsdeilan:
Bókanir í
bæjarráði
Kópavogs
MEIRIHLUTI bæjarráðs Kópa-
vogs mótmælti harðlega á fimdi
sínum sl. fimmtudag ályktun
stjórnar Samtaka sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu varðandi
deilu Kópavogs og Reykjavíkur
um nýtingu Fossvogsdals. í
ályktuninni segir að lagst sé
með eindregnum hætti á sveif
með Reykjavíkurborg í þessu
viðkvæma deilumáli, en Kópa-
vogsbær víttur fyrir að „rifta
einhliða" samkomulagi, sem
gert hafði verið milli sveitarfé-
laganna fyrir 15 árum. Bæjar-
ráðsfulltrúar Sjálfstæðisfiokks-
ins, sem er í minnihluta, segja
að ályktun meirihlutans lýsi vel
þeirri almennu taugaveiklun,
sem gripið hefði um sig hjá
meirihlutamönnum.
„Hvergi er í ályktun stjómar
SSH minnst á fyrirvaralausa upp-
sögn Reykjavíkurborgar á samn-
ingi um losun sorps í Gufunesi
nýverið og vandséð hvemig stjóm-
in gat komist hjá að gagnrýna
borgarstjóm fyrir þá aðför að ör-
yggi 15.500 Kópavogsbúa,“ segir
í ályktun meirihlutans.
Bæjarráð mótmælir harðlega
þeirri málsmeðferð, sem höfð var
í stjórn SSH og harmar að þeir
sveitarstjómarmenn, sem sæti
eiga í stjóm SSH og greiddu fyrr-
nefndri ályktun atkvæði sitt, skuli
ekki hafa næmari skilning á réttf
sveitarfélaga til að skipuleggja og
nýta eigið land, segir m.a. í álykt-
un bæjarráðs.
í bókun minnihlutans kemur
fram að þetta sé ekki í fyrsta sinn
sem ágreiningsmál milli sveitarfé-
laga komi til kasta SSH. „Við tök-
um ekki undir mótmæli meirihluta
bæjarráðs við ályktun stjómar
SSH enda er það skilningur okkar
að stjómin hafi ekki tekið afstöðu
með öðmm deiluaðila. Niðurstaða
samþykktar bæjarstjómar Kópa-
vogs frá 27. maí 1977 var að hún
taldi sig ekki bundna af niðurstöð-
um könnunar um Fossvogsbraut,
þar sem forsendum skipulags hefði
verið breytt, í þeirri samþykkt fólst
ekki einhliða riftun.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins vömðu eindregið við af-
leiðingum af einhliða riftun samn-
ings 25. apríl sl. og lögðu ávallt
til að samningar væm reyndir til
þrautar. Það er ennþá eindregin
skoðun okkar að reynt sé að leiða
deilu þessa til lykta á friðsamlegan
hátt hið allra, fyrsta, núverandi
ástand er ekki sæmandi tveimur
stærstu sveitarfélögum landsins,"
segir m.a. í bókun minnihlutans.
Hjón
slösuðust
í árekstri
Hjón slösuðust I hörðum
árekstri þriggja bila á Arn-
arneshæð um klukkan níu á
fimmtudagskvöld. Meiðsli
þeirra voru ekki talin alvar-
leg, að sögn lögreglu.
Hjónin vora á leið frá Arn-
amesi og óku austur yfir
Hafnarfjarðarveg á hæðinni.
Þar er stöðvunarskylda. Bíll
þeirra lenti í veg fyrir tvo bíla
sem vora samhliða á leið norð-
ur aðalbrautina Hafnarfjarð-
arveg. Bíll hjónanna og annar
hinna era taldir ónýtir en sá
þriðji virðist minna skemmdur.