Morgunblaðið - 20.05.1989, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
41
Ýmsar nýjungar koma fram a
hverri sýningu og nú var það
stórt hestabað með færibandi i
gólfinu þannig að hægt er að
Iáta hesta æfa sundtökin í bað-
inu. Yfir er svo solarium lampi
til þurrka hestinn að loknu baði.
um ágæti Equitana til kynningar á
íslandi. Niðurstaða þessa óformlega
fundar var áskorun til útflutnings-
ráðs, markaðsnefndar landbúnaðar-
ins, Flugleiða og annarra aðila sem
telja sig geta haft hag af þátttöku
í Equitana að sameinast nú um að
hlutur íslands verði stóraukin á
næstu sýningu. Þeir fiska sem róa
og á Equitana eru auðug mið.
Einn af hápunktum Equitana er
„Hop Top Show“ þar sem fram
koma bestu sýningaratriðin frá því
fyrr um daginn. Alls voru haldnar
sex slíkar sýningar og voru íslensku
hestarnir ávallt þar síðast á dag-
skrá sem þýðir að þeir voru vinsæl-
asta atriðið.
Þar áttu stóran hlut að máli
Nonni og Manni sem tvímenntu á
gráum gæðaklár í broddi fylkingar
og hentu til aðdáenda bláum leik-
fangahestum með rautt fax við
mikinn fögnuð. Aðeins einn íslend-
ingur Reynir Aðalsteinsson tók nú
þátt í sýningunni auk Nonna og
Manna og mætti gjarnan auka hlut
íslendinga þar. Ýmsir vildu að
framvegis yrði lögð áhersla á að
við leggðum til eitthvað af hestum
í sýninguna sem síðan yrðu seldir.
Skeiðið er tvímælalaust það sýn-
ingaratrið sem fær best viðbrögð
sýningargesta og eftirminnileg var
síðasta sýningin þegar knapamir
framlengdu sýninguna á eigin spýt-
ur og enduðu með því að bjóða
snjöllum spænskum Andal-
úsíuknöpum á bak í lokin.
„Equitana -heimssýning hest-
anna“ ber svo sannarlega nafn með
rentu. Þar gefur að líta allt milli
himins og jarðar í heimi hesta-
mennskunnar og gott betur. Það
fer kannski vel á því að enda þessa
grein með þeim orðum þetta sé við-
burður sem allir hestamenn ættu
að sjá í það minnsta einu sinni á
ævinni.
bandið athugaði möguleika á að
veita íslendingum 200 þúsund
marka styrk til þátttöku eða 5,6
milljónir íslenskra króna. Yrði það
þó með þeim skilyrðum að íslend-
ingar leggðu fram í það minnsta
sömu upphæð á móti.
Gundlach var nú eins og undan-
farin ár með bás á sýningunni þar
sem hann kynnti hnakka sem hann
hefur hannað og eru kenndir við
hann og búgarðinum Rexhof þar
sem hann rekur tamningastöð og
reiðskóla. Lét hann vel af sýning-
unni og sagðist hafa selt yfir 40
hnakka. Aðspurður um það hvað
væri að frétta af gæðingnum Skolla
sem hann gerði garðinn frægan á
sagði Gundlach að h'ann yrði sýndur
á heimsmeistaramótinu í Danmörku
og yrði honum þar beitt fyrir létti-
kerru (sulki). Sagðist hann stjórna
honum að mestu leyti með hljóð-
merkjum fyrir kerrunni. Þá sagðist
hann nota Skolla 2 til 3 klukku-
stundir í viku í reiðkennslu fyrir
mjög góða reiðmenn.
EF ÞU TEKUR UPP RUSL
AVEGI ÞINUM
VERÐUR BORGIN ÞÍN HREIN!
Öll þekkjum við þá vellíðan sem fylgir hreinu og snyrtilegu umhverfi innan dyra.
Sama lögmál ræðurlíka á götum úti!
Þegar þú beygir þig.eftir rusli á förnum vegi sýnir þú sjálfum þér og öðrum Reykvíkingum
tillitssemi - og leggur þitt af mörkum til betra mannlífs í borginni okkar!
HREIN BORG, BETRI BÖRGÍ
ARGUS/SiA