Morgunblaðið - 20.05.1989, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAI 1989
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 árdegis. Sr. Ólafur
Jens Sigurðsson messar. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Ath. breyttan messutíma. Sr.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Organisti Sigríð-
ur Jónsdóttir. Þriðjudag: Bæna-
guðsþjónusta kl. 18.15. Sr. Gísli
Jónasson.
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Aðalsafnaðarfundur
eftir messu. Félagsstarf aldraðra
miðvikudag kl. 13.30-17. Eldri
borgarar á Seldarnarnesi koma
í heimsókn. Sr. Olafur Skúlason.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Jónas Þórir. Sr. Hjalti Guðmunds-
son.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Grímur
Grímsson predikar og þjónar fyr-
iraltari. Félag fyrrverandi sóknar-
presta.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónustan fellur niður vegna
ferðalags starfsfólks kirkjunnar.
Sóknarprestar.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Pavel Smid. Sr. Cecil Haralds-
son.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Þriðjudag: Biblíu-
lestur fyrir aldraða kl. 14. Sam-
verustund með kaffi og meðlæti
á eftir. Fimmtudag: Almenn sam-
koma hjá ungu fólki með hlutverk
kl. 20.30. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Matur seldur eftir
messu. Þriðjudag: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
Prestarnir.
Guðspjall dagsins:
Jóh. 3.:
Kristur og
Nikódemus
KÓPAVOGSKIRKJA: Messa í
Kópavogskirkju kl. 11. (Altaris-
ganga.) Næstkomandi þriðju-
dagskvöld verður samvera sam-
starfshópsins um Sorg og sorg-
arviðbrögð í safnaðarheimilinu
Borgum kl. 20-22. Allir velkomn-
ir. Sr. Árni Pálsson.
LANGHOLTSKIKRJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. Hestamenn koma á
gæðingum sínum til messunnar.
Ræðu flytur Þorgeir Ingvason,
frkvstj. Fáks. Lesarar: Gunnar
Eyjólfsson og Klemens Jónsson,
leikarar. Listamenn úr röðum
hestamenna sjá um tónlistar-
flutning ásamt kór Langholts-
kirkju. Prestur Sigurður Haukur
Guðjónsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Máltíð hestamanna að
messu lokinni. Sóknarnefndin.
LAUGARNESSÓKN: Kirkjan er
lokuð vegna viðgerða. Safnaðar-
fólki er bent á helgihaldið í Ás-
kirkju. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Messa kl. 11. Fé-
lagar í Æskulýðsfélagi Neskirkju
taka þátt í messunni og selja létt-
ar kaffiveitingar að henni lokinni.
Orgel- og kórstjórn Reynir Jónas-
son. Sr. Ólafur Jóhannsson. Mið-
vikudag: Bænaguðsþjónusta kl.
18.20. Sr. Ólafur Jóhannsson.
Þriðjudag og fimmtudag: Opið
hús fyrir aldraða kl. 13-17. Ferð
í Skálholt 28. maí. Nánari upplýs-
ingar og innritun hjá kirkjuverði
í síðasta lagi 23. maí.
SEUAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Sveinbjörn Bjarnason frá
Skotlandi predikar. Organisti
Kjartan Sigurjónsson. Aðalsafn-
aðarfundur Seljasafnaðar er að
lokinni guðsþjónustu. Sóknar-
prestur.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Sighvat-
ur Jónasson. Prestur Solveig
Lára Guðmundsdóttir.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Þessi messa er stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14, rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18 nema á laugar-
dögum, þá kl. 14. Á laugardögum
er ensk messa kl. 20. I maímán-
uði er lesin Rósakransbæn fyrir
lágmessuna kl. 18.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Lág-
messa kl. 11. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18.
HVÍTASUNNUKIRKJÁN Fíad-
elfía: Safnaðarguðsþjónusta kl.
14. Ræðumaður Hafliði Kristins-
son. Almenn guðsþjónusta kl.
20. Ræðumaður Sam Daniel
Glad.
KFUM OG KFUIC Samkoma á
Amtmannsstíg kl. 16.30. — Fjöl-
skyldusamkoma — uppskeru-
hátíð deildarstarfsins. Ræðu-
maður Friðrik Hilmarsson.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Útisamkoma kl.
16 á Lækjartorgi ef veður leyfir.
Hermannasamkoma kl. 17.30.
Vakningarsamkoma kl. 20.30.
Major Njáll Djurhuus frá Noregi
talar Hersöngsveitin syngur.
NÝJA Postulakirkjan: Messa kl.
11 að Háaleitisbraut 58.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Messa á Mosfelii kl. 11. Sr. Birg-
ir A<;npirQQnn
GARÐAKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11 sem er í tengslum
við fræðsluátak safnaðarins á
dagvistunarstofnunum. Fræðslu-
stjóri kirkjunnar, sr. Bernharður
Guðmundsson, flytur ávarp. Hel-
len Helgadóttir flytur frásögn og
leiðir börn í söng. Foreldrar og
börn þeirra eru sérstaklega boð-
in velkomin. Prestarnir.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
H AFN ARFJARÐARKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Ath. breytt-
an tíma. Organisti Helgi Braga-
son. Sr. Gunnþór Ingason.
KAPELLAN St. Jósefsspítala:
Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga
daga messa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl 8
GRINDAVÍKURKIRKJA: Messa
kl. 11. Ath. breyttan tíma. Mess-
an verður tekin upp af Útvarpinu
og verður send út síðar. Alla
þriðjudaga er bænasamkoma kl.
20.30.
KAPELLAN Hafnargötu 71,
Keflavík: Messur sunnudaga kl.
16.
AKRANESKIRKJA: Messa kl. 14.
Eldri borgarar úr Kópavogi koma
í heimsókn. Mánud. 21. jan.: Fyr-
irbænaguðsþjónusta kl. 18.30,
beðið fyrir sjúkum. Organisti Jón
Ólafur Halldórsson.
SVIPMYNDIR UR BORGIIMIMI / ólafur ormsson
„Mínnir mig stundum
á sápuóperumar“
Menn og dýr og fuglar himins
bíða þess að senn taki gróður jarð-
ar að skarta sínu fegursta að lokn-
um löngum vetri, snjóþungum og
erfiðum í bæjum og sveitum lands-
ins. Augnabliks hundslappadrífa
með tilheyrandi snjókomu eða
slyddu af og til breytir því ekki að
samkvæmt almanakinu er nú komið
sumar.
' Og líkt og farfuglarnir færa sig
um set og fjölmenna frá meginlandi
Evrópu hingað á norðlægar slóðir
þar sem allra veðra er von, þá er
hreyfing á mannfólkinu. Karl J.
Lillendhal klæðskeri lætur ekki
augnabliks erfíðleika hefta för, er
að flytja starfsemi sína yfir í Kópa-
voginn og Kjölur sf. sem lengi hef-
ur verið til húsa á homi Klapp-
arstígs og Hverfisgötu hefur fundið
framtíðarsetur í Armúla 30, enda
mun ekki af veita í vaxandi umsvif-
um og aukinni þjónustu við við-
skiptavini, þar er allt til sem þarf
á nútímaheimilið, heimilistæki,
þvottavélar, ísskápar, eldhúsinn-
réttingar.
Ég drakk kaffi um daginn í Nýja
kökuhúsinu með félaga sem þá var
einmitt í verkfalli. Hann er meðlim-
ur í BHMR, Bandalagi háskóla-
menntaðra ríkisstarfsmanna.
Mér er nokkuð sama um kjara-
bætur og aukinn kaupmátt. Ég vil
aftur vera viss um að ég fái gott
sumar, sagði hann og hrærði sykri
út í kaffið.
BHMR gerir svo miklar kröfur,
sýnist mér um bætt lífskjör og allan
aðbúnað, að ekki kæmi mér á óvart
að inni í þeirra kröfugerð væri einn-
ig krafa um að ríkið gangi svo frá
málum að félagar í bandalaginu fái
að minnsta sólskin annan hvem dag
í sumar, sagði ég og hellti kaffi í
bolla.
Þeir eru nú í svolítið erfíðri stöðu
félagarnir á jarðskjálftadeild Veð-
urstofunnar. Það gengur tæplega
að heimta mun meira en aðrir fá.
Ögmundur og félagar sætta sig við
níu til tíu prósent kauphækkun á
samningstímabilinu, sagði félagi
minn og sötraði úr kaffibolla.
Nú. Hveijir em þessir félagar á
jarðskjálftadeild Veðurstofunnar?
spurði ég og þóttist ekki hafa hug-
mynd um hvað maðurinn var að
fara.
Kjarabaráttu háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna er stjórnað frá
þeim bækistöðvum. „Ragnar
skjálfti" er hugmyndafræðingurinn
og Páll Halldórsson formaður er
vopnabróðir hans úr samtökum
troskyista á íslandi. Það kann ekki
góðri lukku að stýra að hafa svo
hreinræktaða byltingarmenn við
stjórnborðið, sagði kunningi minn,
félagi í Bandalagi háskólamennt-
aðra ríkisstarfsmanna, og þegar
hann var kominn inn á þessa bylgju-
lengd þá taldi ég réttast að skipta
snarlega um umræðuefni, félagi
minn er nefnilega einn þeirra sem
missir næstum stjórn á sér þegar
talið berst að þeim róttæku og bylt-
ingarsinnuðu í þjóðfélaginu og
kommúnista hatar hann meira en
pestina. Þá gekk líka um húsakynni
Nýja kökuhússins Halldór Blöndal
alþingismaður. Kom frá bókabúð
ísafoldar og gekk yfir í Nýja köku-
húsið í ljósum sumarfrakka, gekk
sperrtur um sali eins og sá sem
veit að Flokkurinn verður ekki mik-
ið lengur úti í kuldanum og að senn
vorar í íslenskum stjórnmálum.
Ekki að vita nema Halldór Blöndal
hefði blandað sér í umræðurnar
hefði hann heyrt félaga minn tjá
sig um kommúnistana í verkalýðs-
hreyfingunni. Og þegar Halldór lok-
aði á eftir sér útidyrahurðinni og
hélt yfir Austurvöll að Landsíma-
húsinu, þá var félagi minn allt í
einu kominn yfir í annað umræðu-
efni.
í alvöru talað, Ólafur, íslenskt
þjóðfélag minnir mig stundum á
sápuóperurnar í sjónvarpinu og á
Stöð 2.
Hvað segirðu? Það er nú varla
svo djúpt sokkið að það minni þig
á sápuóperurnar, sagði ég og sótti
handa okkur báðum að afgreiðslu-
borðinu tvö rúnstykki með smjöri
og osti.
Þetta er allt saman fært upp í
eins konar farsa í fréttatímum sjón-
varpsstöðvanna og allt meira eða
minna á neikvæðan hátt. Þarna
koma þeir fram í misstórum hlut-
verkum, mest áberandi auðvitað
alþingismenn og ráðherrar og nú
forystumenn launþegasamtakanna.
Maður opnar ekki svo fyrir fréttirn-
ar á Stöð 2 eða í ríkissjónvarpinu
að þeir séu ekki að glenna sig yfir
skerminn, sagði kunningi minn þeg-
ar ég kom aftur að börðinu með
rúnstykkin, ostinn og smjörið.
Þú hefur greinilega allt á hornum
þér. Hvað hefurðu verið lengi í verk-
falli? spurði ég.
Síðan á fimmtudaginn í síðustu
viku, fjóra daga og er orðinn hund-
leiður, sagði kunningi minn og
smurði vandlega rúnstykkið.
Og engar horfur eru á því að
verkfallið sé að leysast? spurði ég.
Það gæti komið fram sáttatillaga
fyrir helgi sem myndi þá höggva á
hnútinn og maður fær þá kannski
lyst á helgarsteikinni, annars ekki,
svaraði kunningi minn, félagi í
Bandalagi háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna og bætti síðan við þeg-
ar hann hafði sett ostinn á rún-
stykkið.
Ég ætla bara að vona það, ég
ætla ekki að fara að leggja það
fyrir mig að hanga inná kaffihúsum
alla daga. Það getið þið, skáldin,
sem þurfið aldrei að dýfa hendi í
kalt vatn. Nei, það þýðir ekki að
bjóða mér svoleiðis nokkuð, nei
ekki manni með fjögurra ára há-
skólanám að baki, auk þess hef ég
ekki efni á því að vera I löngu verk-
falli. Er að kaupa fimm herbergja
íbúð á besta stað í bænum, undirrit-
aði kaupsamninginn í gærdag og
má engan veginn við því að lenda
í verkfalli dögum saman. Aldrei að
vita hvað því dettur í hug þessu
fólki sem hefur gengið í skóla Leons
Trotskys, sá skóli getur héðan af
ekki útskrifað nemendur við
íslenskar aðstæður á ofanverðri
tuttugustu öldinni, sagði hann og
hámaði síðan I sig rúnstykkið líkt
og hann hefði ekki bragðað matar-
bita vikum saman ...
20%
VERÐIÆKKUN
Eldhúsinnréttingar
Baðherbergisinnréttingai
Fataskápar
Sýningarsalur opinn:
Mánudaga-föstudaga frá kl. 09.00-12.30 og 13.30-18.00
Laugardaga frá kl. 11.00-16.00
Sunnudaga frá kl. 13.00-16.00
Innréttingar 2000 hf.,
Síðumúla 32, sími 680624.