Morgunblaðið - 20.05.1989, Page 56
56
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1989
Landsvirkjun:
31 tillaga að útilista-
verki við stjórnstöð
HAFSTEINN Austmann listmálari hlaut 1. verðlaun, kr. 300 þús. í
samkeppni um útilistaverk, sem reist verður við stjórnstöð Landsvirkj-
unnar við Bústaðarveg. 2. verðlaun, kr. 200 þús. hlaut Öm Þorsteins-
son og 3. verðlaun kr. 150 þús., sem skipt er milli tveggja hlutu Jó-
hann Þórðardóttir og Kristinn E. Hrafiisson. Alls barst 31 tillaga í
samkeppnina frá 29 höfundum.
Hafsteinn Austmann myndlistamaður við verðlaunaverk sitt.
Jóhannes Nordal stjómarformað-
ur Landsvirkjunnar, afhenti verð-
launin og sagði hann við það tæki-
færi, að stefna fyrirtækisins frá
upphafi hefði verið að koma upp
listaverkum við öll þau rnannvirki
sem Landsvirkjun byggði. í umsögn
dómnefndar um verðlaunatilöguna
segir: „Einstæð tillaga og sú athygl-
isverðasta að mati dómnefndar. Höf-
undur hefur valið afar einfalda
lausn, sem ber áræði hans og
smekkvísi fagurt vitni. Þá má glögg-
lega sjá af meðfylgjandi greinargerð
að listamaðurinn hefur hugað að
öllu, stóru sem smáu. Af því má
ætla að hann sé fyllilega í stakk
búinn til að útfæra hugmynd sína
og velja til þess markvísustu leið.
Að auki rímar þessi látlausa en
snjalla tillaga afar vel við hús og
umhverfi. Hún er sláandi án þess
að vera yfirþyrmandi. Slík naum-
hugul lausn á útilistaverki mundi
vissulega marka tímamót hér á
landi."
Steinullarverksmiðjan tapaði
77,5 milljónum króna í fyrra
Á aðalfundi Steinullarverksmiðjunnar hf. á Sauðárkróki á þriðju-
daginn, kom fram að tap verksmiðjunnar á árinu 1988 nam 77,5
miHjónum króna. Munar þar mestu um nettó Qármagnsgjöld sem
jukust um 85,1 milljón króna frá árinu 1987 þrátt fyrir óbreyttan
lánastofii. Að sögn Einars Einarssonar framkvæmdastjóra Steinullar-
verksmiðjunnar var veltufé af rekstri í fyrsta sinn jákvætt, eða 10,8
inilljónir, árið 1988, en árið 1987 voru 14 milljónir króna greiddar
í reksturinn. Hann segir að utanaðkomandi aðstæður einar valdi því
að tap verksmiðjunnar er jafii mikið og raun ber vitni.
Sala Steinullarverksmiðjunnar á
síðastliðnu ári nam 4.324 tonnum
og jókst hún um 18% frá 1987. Þar
af voru 3.174 tonn seld á innan-
landsmarkaði og 1.150 tonn seld
til útlanda, sem er nærri því helm-
ingsaukning frá fyrra ári.
Rekstrartekjur ársins voru 209,3
milljónir króna og jukust þær um
38,4% frá 1987. Rekstrargjöld voru
158,7 milljónir króna. Hagnaður
varð því 50,6 milljónir króna sem
er um 28,1% aukning frá 1987.
Afskriftir voru 58,9 milljónir og
Úr myndinni „Nico“.
Steinar gefa
út 11 mynd-
bönd í maí
STEINAR HF. gefa út alls 11
^kiyndbandatitla í maímánuði.
Áberandi í útgáfunni eru myndir
sem frumsýndar eru með mynd-
bandaútgáfiinni á íslandi. Má þar
nefna myndirnar „World Gone
Wild“, „Indiscreet“, „Conrack",
„Kiss The Night“, „Jesse" og
„Sharing Richard".
Einnig er að finna myndir sem
notið hafa vinsælda í kvikmynda-
húsum þ.e. „Nico“, en þessi mynd
var sýnd undir nafninu „Above The
Law“ á kvikmyndasýningum og
„Less Than Zero“. Fyrirtækið held-
ur áfram þeirri stefnu sinni að end-
úrútgefa eldri myndir sem ekki
hafa verið fáanlegar á íslandi með
íslenskum texta. Þijár slíkar líta
dagsins ljós í maímánuði, þ.e.
„Comes A Horseman", „Porkys II:
The Next Day“ og „The House
Where Evil Dwells“. Myndefnið sem
útgáfan spannar er fjölbreytt og
hefur að geyma sýnishorn af flest-
um gerðum kvikmynda.
(Úr fréttatilkynningu.)
jukust þær sem svarar breytingu á
vísitölu.
Nettó fjármagnsgjöld voru 69,8
milljónir og nemur aukningin milli
ára 85,1 milljón króna. Tap fyrir-
tækisins varð því 77,5 milljónir
króna.
Einar Einarsson sagði að þessi
fjármagnskostnaður væri af svo til
óbreyttum lánastofni því engin ný
lán voru tekin frá árinu 1987.
Eignir Steinullarverksmiðjunnar
eru 672,9 milljónir króna og skuld-
ir 533,7 milljónir. Eigið fé er 139,2
milljónir króna og hefur rýrnað um
49,3 milljónir. Hlutfall þess lækkaði
úr 29% 1987 í 20,7% 1988.
Langtímalán verksmiðjunnar
nema um 493 milljónum króna í
árslok. Af þeim eru 38% í banda-
ríkjadölum, 31% í þýskum mörkum,
16% í fmnskum mörkum. 5,2 í
ECU, 3,4 í SDR og 6,2 í íslenskum
krónum.
„í fyrsta sinn var veltufé jákvætt
sem nemur 10,8 milljónum króna,
en í fyrra voru 14 milljónir greiddar
í reksturinn," sagði Einar.
„Þetta sýnir að afkoman 1987
var jákvæð vegna fastgengisstefn-
unnar. Afkoman 1988 er hins vegar
neikvæð vegna gengisbreytinga, að
mestu leyti vegna hækkunar doll-
ars. Hver gengisbreytingarprósenta
kostar okkur nú 5 milljónir króna.
Þótt rekstrarkostnaður hafi stað-
ið í stað á milli ára í 30% verðbólgu
og við höfum getað ríflega tvöfald-
að rekstrarafgang, hefur fjár-
magnskostnaður á sama tíma
hækkað um 85 milljónir króna.
Rekstur verksmiðjunnar hefur í
raun gengið mun betur en 1987.
Það eru því einvörðungu utanað-
komandi aðstæður sem valda því
að tapið verður jafn mikið og raun
ber vitni. Það er Ijóst að ef svona
heldur áfram í mörg ár í röð, þolir
verksmiðjan það ekki og sjálfsagt
ekkert fyrirtæki í landinu," sagði
Einar.
Halldór Kristjánsson er áfram
formaður stjómar Steinullarverk-
smiðjunnar hf., en hann er fulltrúi
iðnaðarráðherra í stjóminni. Ámi
Guðmundsson framkvæmdastjóri
Skjaldar hf. er varaformaður, Ólaf-
ur Friðriksson framkvæmdastjóri
verslunardeildar Sambandsins er
ritari. Aðrir stjómarmenn em Stef-
án Guðmundsson alþingismaður,
Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri
á Sauðárkróki, Bragi Skúlason full-
trúi fjármálaráðherra og Kaj West-
eren fulltrúi fmnskra eigenda.
Úr stjóminni gengu Lára M.
Ragnarsdóttir og Snorri Egilsson.
Morgunblaðið/Sigrún Sigfusdóttir
Mæðgurnar Margrét Ásgeirs-
dóttir og Ásta Sóley Sölvadóttir
í hlutverkum bakaranna í barna-
leikritinu Dýrin í Hálsaskógi.
Hveragerði:
Leikfélagið
fer til Noregs
Hveragerði.
LEIKFÉLAG Hveragerðis vinnur
nú af kappi við undirbúning að
leikför til Noregs. Leikfélagið hef-
ur á undanfömum vikum haldið
22 sýningar á hinu vinsæla baraa-
leikriti Thorbjöras Egners Dýrin
í Hálsaskógi.
Metaðsókn hefur verið að sýning-
unum. Félagið heimsótti nýlega
Hafnarfjörð og hélt þar fjórar sýn-
ingar og verður sýnt þar aftur laug-
ardaginn 20. og sunnudaginn 21.
maí nk.. Leikstjóri sýninganna er
Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson.
Leikfélagið hélt nýlega aðalfúnd
og kom þar m.a. fram að fjárhagsleg
afkoma félagsins hefur stórlega
batnað á síðasta leikári, en hún hef-
ur oft verið erfið á undanfömum
árum, má það þakka komu Dýranna
í Hálsaskógi.
Á aðalfundinum var kosin ný
stjóm en hana skipa þessir menn:
Gísli Garðarsson formaður, Valdimar
Ingi Guðmundsson gjaldkeri, Edda
Wíum ritari og meðstjómendur Berg-
lind Elvarsdóttir og Ágústa Ævars-
dóttir.
Að sögn formannsins er þetta sér-
lega góður og sarnheldinn hópur og
þó aldursmunurinn sé 48 ár á yngsta
og elsta þátttakandanum er ekkert
kynslóðabil. í leikfélaginu geta allir
fundið eitthvað við sitt hæfi.
» — Sigrún
Skuldir Álafoss lækkaðar úr
tveimur milljörðum í einn
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Álafoss hf.:
„Fjárhagsstaða Álafoss hf.,
stærstu ullarvörufyrirtækis þjóðar-
innar, hefur verið endurreist í kjölfar
einna umfangsmestu aðgerða sem
framkvæmdar hafa verið á fjár-
hagsstöðu innlends fyrirtækis. Með
hlutafláraukningu, skuldbreytingum,
sölu fasteigna, lánalengingum og
fleiri samræmdum fjárhagslegum
aðgerðum, hefur skuldum að upphæð
um 1000 milljónir króna verið létt
af fyrirtækinu, en heildarskuldir voru
orðnar um 2000 milljónir króna fyrir
breytingu.
Nýi Álafoss hf. var stofnaður um
áramótin 1987 og 1988 með samruna
Iðnaðardeildar sambandsins og
gamla Álafoss hf., en fyrirtækið
starfrækir verksmiðjur á Akureyri, í
Mosfellsbæ og Hveragerði og veitir
um 500 manns atvinnu. Eigendur
Álafoss hf. eru Framkvæmdasjóður
og Samband ísl. samvinnufélaga.
Samruninn fylgdi í kjölfar fram-
leiðslu- og markaðserfiðleika gömlu
ullarvörufyrirtækjanna, þegar ljóst
var orðið að annað hvort legðist ullar-
vöruframleiðsia niður hérlendis eða
nauðsynlegt væri að styrkja undir-
stöðurnar með umtalsverðri rekstrar-
hagræðingu og stækkun framleiðslu-
eininga. Við stofnun hins nýja fyrir-
tækis hófst vel skipulögð endurskipu-
lagning á öllum rekstri, með samriina
framleiðsludeilda, fækkun starfs-
fólks, aukinni hagræðingu og mark-
vissri enduruppbyggingu sölu- og
markaðsmála á hefðbundnum mörk-
uðum í Austur- og Vestur-Evrópu,
Bandaríkjunum og Japan.
Þegar líða tók á sl. ár, varð stjórn
og forráðamönnum Álafoss hf. ljóst
að enduruppbygging hins nýja fyrir-
tækis myndi steyta á skeri fjárskulda
þess, sem rekja mátti að langmestu
leyti til gömlu fyrirtækjanna og
þeirrar staðreyndar að erfitt reyndist
að selja ýmsar eignir félagsins með
þeim hætti sem ráð var fyrir gert í
byrjun. Skuldimar voru orðnar of
viðamiklar og ef ekki tækist með
einhverjum aðgerðum að minnka þær
umtalsvert stefndi í greiðsluþrot fyr-
irtækisins, með ófyrirsjáanlegum af-
leiðingum fyrir ullariðnaðinn. Það
var álit þeirra aðila, sem hér eiga
hlut að máli, að fyrirtækið gæti ráð-
ið við um 100 milljón króna skulda-
stöðu, en heildarskuldir voru um
2.000 millj. kr. Augljóslega þurfti
að finna leiðir til að helminga skuld-
irnar, en slíkt gat því aðeins gerst
að eigendur og lánardrottnar legðust
á eitt við að koma fjárhagsstöðunni
í viðunandi horf. Lánardrottnar ósk-
uðu eftir tillögum og samræmdu
átaki í þessu efni.
Um sl. áramót hafði bankastjóm
Landsbanka íslands fmmkvæði að
því að skipaður var þriggja manna
starfshópur á vegum lánardrottna til
að kanna alla valkosti og koma með
tillögur til lausnar vandanum. í
vinnuhópnum em Jón Atli Krist-
jánsson fyrir Landsbankann, Guð-
mundur Tómasson, fyrir Iðnþróunar-
sjóð og Stefán Melsteð fýrir Iðn-
lánasjóð. Umræddir fulltrúar, sem
unnu mjög náið með forsvarsmönn-
um Álafoss hf., lögðu í lok janúar
sl. fram tillögur, er miðuðu að því
að minnka greiðslubyrðina með, eins
og fyrr getur, aukningu hlutafjár,
sölu fasteigna og annarra eigna,
lánalengingum og breytingu lausa-
skulda í löng lán.
Lánardrottnar tóku vel þeim hug-
myndum, sem fram em settar í að-
gerðaáætluninni, en þær hafa verið
mótaðar í samvinnu við Álafoss og
em í stærstum dráttum, sem hér
segir:
A. Skuldir skyldu lækkaðar um því
næst .............. 1.000 m.kr.
1. Hlutafé aukiðum ..... 300 m.kr.
2. Eigendur leystu til sín eignir í
eigu félagsins ...... 220 m.kr.
3. Seldar yrðu eignir með samræmdu
átaki eigenda og
lánasjóða ........... 450 m.kr.
B. Lausaskuldum yrði komið í skil
með skuldbreytingu fyrir tilstilli
Atvinnutryggingasjóðs og við-
skiptabanka.
C. Lánasjóðir skuldbreyttu lánum
sínum og lengdu þau sem kostur
væri.
D. Ríkissjóður skapaði sömu skilyrði
til handa ullariðnaði og annar
útflutningsiðnaður hefur, ásamt
því að styðja við bakið á markaðs-
starfsemi erlendis.
Ofangreindar aðgerðir og tillögur
hafa verið samþykktar af öllum hlut-
aðeigandi aðilum. Ef þessar breyt-
ingar á fjárhagsstöðunni hefðu ekki
náð fram að ganga, má fullvíst telja
að loka hefði þurft fyrirtækinu og
fjöldi fólks, sem vinnur hjá Álafossi
hf. og öðrum aðilum sem þjóna ulla-
riðnaðinum, misst atvinnu sína. Sú
fjárhagslega endurskipulagning, sem
hér um ræðir, tryggir rekstur fyrir-
tækisins og samhliða framtíð íslensk
ullariðnaðar. Með tilkomu umræddr-
ar endurskipulagningar, geta forr-
áðamenn Álafoss hf., ásamt starfs-
fólki fyrirtækisins, einbeitt sér enn
betur að framleiðslu og markaðsmál-
um, sem liðið hafa fyrir óvissuástand
undanfarins árs.
Mikil vinna hefur verið lögð í þetta
verk af öllum aðilum og hafa Qöl-
margir lagt hönd á plóginn. Meðal
þeirra sem hafa lagt málinu ómælda
Iiðveislu er Jón Sigurðsson, iðnaðar-
ráðherra, bankastjórar Landsbanka
Islands, stjórnir sjóða iðnaðarins og
atvinnutiyggingasjóðs. “