Morgunblaðið - 02.06.1989, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 2. JUNI 1989
17
Úrslit í vali vígslubiskups liggja fyrir í mánaðarlok:
Þrír gefa sérstaklega
kost á sér til embættisins
Morgunblaðið/Sverrir
Styttu Thorvaldsens af Merkúr hefúr verið komið fyrir í aðaland-
dyri Verzlunarskólans.
Atkvæðaseðlar fyrir tilne&i-
ingar í embætti vfgslubiskups í
Skálholtsbiskupsdæmi hafa nú
verið sendir út og eiga allar til-
nefningar að hafa skilað sér fyr-
ir 24. júní. Þrír menn hafa sér-
staklega gefið kost á sér til
embættisins, þeir sr. Sigurður
Sigurðarson, sóknarprestur á
Selfossi, sr. Sváfnir Sveinbjarn-
arson, prófastur á Breiðaból-
stað, og sr. Jónas Gíslason, próf-
essor við guðfræðideild Háskóla
V erzlunarskólinn:
Merkúrsstytta eftir Thor-
valdsen gefin skólanum
VIÐ brautskráningu stúdenta frá
Verzlunarskóla Islands fyrir
nokkru var skólanum afhent
marmarastytta af guðinum
Merkúr, eftir Bertel Thorvaldsen
myndhöggvara. Thorvaldsen átti
íslenzkan fóður,_ en starfaði í
Danmörku og á Italíu.
Styttan kemur að sögn Þorvarðar
Elíassonar, skólastjóra Verzlunar-
skólans, frá dönskum kaupsýslu-
manni, sem ekki vill láta nafns síns
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson:
Stór rækja fannst
í Rósagarðinum
RANNSÓKNASKIPIÐ Árni Friðriksson fór í rækjuleiðangur 19.
mai síðastliðinn og hefur fiindið stóra rækju í Rósagarðinum, frá
90 milum suðvestur af landinu að miðlinunni á milli íslands og
Færeyja, að sögn Sólmundar Einarssonar Ieiðangursstjóra.
Sólmundur sagði í samtali við Sólmundur sagði að í leiðangrin-
Morgunblaðið að í leiðangrinum um hefðu fengist 100 kíló af rækju
hefðu fengist mest 70 kíló af rækju
á togtíma í Rósagarðinum. Þessi
rækja hefði verið hrognalaus og
100 stykki hefðu verið að meðal-
tali í kílói. „Rælqan var í skelskipt-
um og því ekki hæf til vinnslu í
dýrar pakkningar á Japansmark-
að,“ sagði Sólmundur. Hann sagði
að rækjan gæti verið búin að hafa
skelskipti eftir nokkrar vikur.
á togtíma í Lónsdýpi og yfir 200
kíló á togtíma í Berufjarðarál. Sú
rækja hefði verið með hrognum
og búin að hafa skelskipti en hún
hefði verið minni en rækjan í Rósa-
garðinum, éða 130 til 150 stykki
í kílói.
Hann sagðist reikna með að
Ámi Friðriksson kæmi aftur til
Reykjavíkur á laugardagsmorgun.
Gylfi Þ. Gíslason hlýtur heið-
ursverðlaun Letterstedt
GYLFA Þ. Gíslasyni hefiir verið veitt heiðursviðurkenning Jacob
Lettersted-stofimnarinnar í Svíþjóð fyrir framlag til menningar-
og stjórnmálastarfs á Norðurlöndum. Þetta er í niunda skipti
sem þessi viðurkenning er veitt og er Sigurður Bjarnason frá
Vigur eini íslendingurinn sem áður hefur verið heiðraður með
þessum hætti. Gustav Petrén formaður stjórnar sjóðsins kemur
hingað til lands seinni hluta júnimánaðar og mun Guðrún Helga-
dóttir, forseti Sameinaðs þings, þá afhenda Gylfa verðlaunin,
sem eru silfúrpeningur.
Gylfi Þ. Gíslason sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að þessi
viðurkenning hefði komið sér á
óvart. Hann sagðist þekkja vel
til Letterstedt-stofnunarinnar,
sem kunnust væri fyrir styrkveit-
ingar til vísinda- og námsmanna
auk þess að gefa út tímarit, Nor-
disk Tidskrift, þar sem fjallað
væri um stjórnmál og efnahags-
mál á Norðurlöndum. Hann sagð-
ist hafa skrifað undanfarin ár í
Nordisk Tidskrift en að öðru leyti
hefði hann ekki kynnst starfi á
vegum Lettersted-stofnunarinn-
ar af eigin raun.
Auk Gylfa Þ. Gíslasonar og
Sigurðar Bjamasonar hafa Franz
Wendt frá Danmörku, Karl-
August Fagerholm frá Finnlandi,
Helge Seip frá Norgei, Ame F.
Andersson frá Svíþjóð, Per Olof
Sundman frá Svíþjóð, Vivica
Bandler frá Flnnlandi og Erling
Nielsen frá Danmörku hlotið hin
norrænu þjónustuverðlaun Jacob
Letterstedt.
Gylfi Þ. Gíslason.
íslands. í raun eru þó allir kenni-
menn kirkjunnar í biskups-
dæminu í kjöri.
Skálholtsbiskupsdæmi nær allt
frá Ströndum suður um land og
að Langanesi. Hólabiskupsdæmi
nær hins vegar aðeins yfir Norð-
lendingafjórðung. Rúmlega 100
manns eru á kjörskrá. Allir þjón-
andi sóknarprestar í biskups-
dæminu hafa kosningarétt, og
einnig fastir kennarar við guð-
fræðideildina. Guðfræðideildar-
kennaramir hafa ekki kosningar-
étt þegar vígslubiskup Hólabisk-
upsdæmis er valinn, enda er Há-
skólinn í Skálholtsbiskupsdæmi.
Aðstoðarprestar og óprestvigðir
guðfræðingar hafa ekki kosningar-
étt, að sögn Magnúsar Guðjónsson-
ar, starfsmanns biskupsstofu.
Sá, sem flestar tilnefningar hlýt-
ur, verður skipaður vígslubiskup.
Hreinn meirihluti er ekki nauðsyn-
legur eins og í kjöri biskups ís-
lands.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur sr. Heimir Steins-
son, sem gaf kost á sér til biskups-
kjörs, ekki hug á embætti vígslu-
biskups.
getið. Milligöngu um afhendingu
styttunnar hefur hins vegar Ólafur
Egilsson, fyrrverandi sendiherra,
haft. Hann er gamall nemandi
skólans og hefur beitt sér fyrir því
að styttan yrði sett upp í skólanum
til minningar um dr. Jón Gíslason,
fyrrverandi skólastjóra. „Dr. Jón
var mikill húmanisti og aðdáandi
klassískrar menningar," sagði Þor-
varður.
Merkúr var verzlunarguð Róm-
vetja, hliðstæður hinum gríska
Hermesi. Gyðjan Maía var talin
móðir beggja, og Merkúr og Maía
voru bæði dýrkuð sérstaklega í
maímánuði (mánuði Maíu). 15. maí
var því löngum hátíðisdagur verzl-
unarmanna. í rómverskri list er
Merkúr yfirleitt sýndur standandi,
oft nakinn. Á fomum myndum held-
ur hann oft á buddu, sem er tákn-
rænt fyrir viðskiptavafstur hans.
Rómverskir listamenn fengu einnig
ýmislegt lánað frá hinum gríska
Hermesi og þess vegna klæðist
Merkúr oft vængjuðum sandölum
og hefur vængjaða húfu á höfði
eins og stytta Thorvaldsens. Sumar
Merkúrsstyttur bera slöngustafinn,
sem Verzlunarskólinn hefur í merki
sínu, en Merkúr Thorvaldsens er
að draga sverð úr slíðrum með
hægri hendi og heldur á panflautu
í þeirri vinstri.
e>
INNLENT
Afmæli Sjálfstæð-
isflokksins:
Kveðja barst
frá Albert
Á afmælishátíö Sjálfstæðis-
flokksins á Hótel íslandi í
síðustu viku var lesið upp
skeyti sem þangað barst frá
Albert Guðmundssyni, sendi-
herra í París. Skeytið var svo-
hljóðandi:
Sjálfstæðisflokkurinn
Þorsteinn Pálsson, formaður,
Valhöll, Háaleitisbraut 1,
Reykjavík.
Sendi Sjálfstæðisflokknum og
Sjálfstæðisfólki innilegar ham-
ingjuóskir í tilefni 60 ára af-
mælisins. Gæfa fylgi störfum
ykkar.
Albert Guðmundsson.
Alþýðubandalagið:
Tveir miðstj ómarmenn
segja sig úr flokknum
TVEIR miðstjórnarmenn í Al-
þýðubandalaginu, þau Anna
Hildur Hildibrandsdóttir og
Gísli Þór Guðmundsson, hafa
sagt sig úr flokknum vegna
óánægju með stefnu flokksforys-
tunnar. Gengu þau úr flokknum
skömmu eftir átakafúnd mið-
stjómarinnar 5. apríl síðastlið-
inn.
Anna Hildur og Gísli hafa verið
í forystu Æskulýðsfylkingar Al-
þýðubandalagsins. Anna Hildur
hafði ásamt fleirum forgöngu um
að boðað var í skyndi til miðstjóm-
arfundar við upphaf verkfalls
Bandalags háskólamenntaðra
ríkissstarfsmanna. Þá var mjög
mikil óánægja innan flokksins
vegna afstöðu Ólafs Ragnars
Grímssonar, flokksformanns, til
yfírstandandi kjarasamninga og
þeirrar ákvörðunar hans að greiða
ríkisstarfsmönnum laun sín ekki
fyrirfram.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur verið nokkuð um
að fólk segi sig úr Alþýöubanda-
laginu undanfarið vegna óánægju
með flokksforystuna og mun
frammistaða flokksformannsins í
kjarasamningum við opinbera
starfsmenn ráða þar miklu.
Þjóðviljinn
hækkar áskrífit
ÞJÓÐVILJINN hækkaði áskrift-
argjöld sín nú um mánaðarmótin,
eitt dagblaða. Kostar áskriftín
nú 1000 kr. á mánuði. Verð Þjóð-
viljans í lausasölu verður 90 kr.
og verð Nýs helgarblaðs verður
140 kr. eftír hækkunina.
Hallur Páll Jónsson fram-
kvæmdastjóri Þjóðviljans segir að
það hafi verið venjan að dagblöðin
hækkuðu áskriftargjöld sín tvisvar
á ári. Ástæðan fyrir því að Þjóðvilj-
inn hækkar áskrift sín nú er slæm
rekstrarstaða blaðsins. „Það hefiir
ekki verið neitt launungarmál að
rekstur Þjóðviljans hefur verið erf-
iður. Við bregðumst við því meðal
annars með þessu,“ segir Hallur
Páll Jónsson.
Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson:
Sjávarhiti svipað-
ur og í meðalári
SJÁVARHITI við Miðnorðurland er nú svipaður og í meðalári, eða
3,5 gráður, að sögn Svend-Aage Malmberg leiðangursstjóra á rann-
sóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni en skipið fór í vorleiðangur 23.
maí síðastliðinn. „Almennt er ástand sjávar betra en við bjugg-
umst við,“ sagði Svend-Aage i samtali við Morgunblaðið.
Svend Aage sagði að sjávarhit-
inn við Miðnorðurland væri nú
einni gráðu hærri en á sama tíma
í fyrra og selta sjávar væri tölu-
vert meiri en þá. Hann sagði að
ætlunin væri að kanna í þessum
leiðangri hvort síld úr norsk-í
slenska stofninum væri norðaustur
af landinu. Reiknað væri með að
Bjarni Sæmundsson kæmi aftur
úr leiðangrinum í síðasta lagi 16.
júní.