Morgunblaðið - 02.06.1989, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989
25
Argentína:
Sultaróeirð-
ir veikja
Alfonsin
í sessi
Buenos Aires, Reuter.
ARGENTÍNSK stjórnvöld fóru
fram á það í gær, að fólk gæfi
matvöru til fátæklinga í von um
að slíkar gjafir geti stöðvað götu-
óeirðir og gripdeildir í stórversl-
unum fátækrahverfa víða um
landið. Að minnsta kosti 14 manns
liggja í valnum eftir óeirðirnar,
sem staðið hafa undanfarna fjóra
daga.
I fátækrahverfum borgarinnar
fóru borgaryfírvöld fram á það við
verslunareigendur að þeir gæfu vöru
sína heldur en að hætta á frekara
ofbeldi.
Alda sprengjutilræða, gripdeilda
og óeirða vegna matarskorts, sem
dunið hefur yfir Argentínu undan-
fama fjóra daga, lægði nokkuð á
miðvikudag, en enn berast þó fréttir
af dauðsföllum. Óttast er að ofbeldið
kunni að blossa upp af fullum krafti
á nýjan leik verði fátæklingarnir
ekki mettaðir.
Juan Carlos Pugliesi, innanríkis-
ráðherra, hefur sakað vinstrimenn
um að efna til óeirðanna, en hann
tók þó skýrt fram að stjómvöld
myndu ekki notfæra sér neyðar-
ástand það, sem lýst var yfir á mánu-
dag, til þess að ná sér niður á vinstri-
mönnum.
Óeirðimar hafa orðið til þess að
auka þrýsting á Raul Alfonsin Arg-
entínuforseta um að segja af sér og
láta nýkjörið forsetaefni perónista,
Carlos Menem, taka þegar við emb-
ætti. Kjörtímabil Menems hefst ekki
lögum samkvæmt fyrr en 10. desem-
ber.
Coleman fellihýsi
Vegna mikilla vinsælda tókum
viö nokkur Coleman Columbia
fellihýsi með
í síðustu
sendingu
og eru þau til
sýnis og sölu
íArmúla 16.
Sýningídagkl. 10-19
Lnugardagkl. 10-16
Ármúla 16, símar 686204 & 686337
Kaiwi þú nýja símanúmerid
Steindór Sendibfiar
r
m v0r í Vönum mönnum
liraulryöjnidur ú flrslum sviúum
MÁMIR M€Mh
'ViiltCL'l -UJtfjAX & WHtd/UZÁCt6tfltt
LAUGAVEGI 39 • SÍMI 11388
Þeir sem eiga ekki
Rolls Royce nota Chipie
Chipie gallabuxumar fengu 5 stjörnur í gallabuxnakönnun
breska tímaritsins For Him. einfaldlega af þvi.að þær eru Rolls
Royce-inn i gallabuxum i dag. Efnið er i hæsta gæðaflokki.
sniðiö ómótstæðilega aðlaöandi og frágangurinn á Chipie
gallabuxunum fær Parisarlærða klæðskera til að roðna af
aðdáun. Allt frá því að efnið er lagt á sníðaborðið til þess að
koparhnapparnir eru festir á. er hvert handtak miðaö við að úr
verði Rolls Royce-inn i gallabuxum handa þér - hjá Vönum
mönnum. 5 stjörnu Chipie gallabuxur við Laugaveginn.
Achile