Morgunblaðið - 02.06.1989, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Viðbyggingin við golfskálann er 180 fermetrar að flatarmáli og með
henni er komin glæsileg félagsaðstaða hjá golfurum í Eyjum.
V estmannaeyjar:
Yiðbygging við golf-
skálann tekin í notkun
Vestmannaeyjum.
GOLFARAR í Vestmannaeyjum tóku fyrir skömmu formlega í notkun
viðbyggingu við golfskála sinn. Viðbygging þessi er 180 fermetrar að
flatarmáli og með henni er komin glæsileg félagsaðstaða hjá golfurum
í Eyjum.
Félagar í Golfklúbbi Vestmanna-
eyja ákváðu í lok síðasta árs að ráð-
ast í byggingu þessa. Þórður Svans-
son var ráðinn byggingarmeistari
og var húsið, sem er timburhús, reist
upp á nokkrum vikum. Verktakar
skiluðu húsinu frágengnu að utan í
byijun apríl en þá tóku félagar í
Golfklúbbnum við og gengu frá allri
vinnu innanhúss í sjálfboðavinnu.
Húsnæðið er nú fullfrágengið að
utan sem innan og hefur skapað
golfurum í Eyjum skemmtilega að-
stÖðu. I húsinu er veitingasalur með
útsýni yfir golfvöllinn, Hetjólfsdal
og vestur fyrir Eyjar.
í gamla hluta skálans verður sett
upp verslun með golftæki og þar
mun einnig verða eldhús fyrir húsið.
Kostnaður við byggingu hússins
hefur verið mikill og hafa félagar
verið duglegir við að leggja fram
vinnu og afla fjár til byggingarinn-
ar. Þá hafa þeir borgað árgjöld nokk-
ur ár fram í tímann til þess að hjálpa
til við að ná endum saman.
Golfarar í Eyjum eru fyrir löngu
komnir á fulla ferð í æfingum og
keppni, enda völlurinn í góðu ásig-
komulagi. Nokkur mót hafa verið
haldin og framundan er hið árlega
Faxamót, sem haldið verður um
hvítasunnuna.
Grímur
Átaksverkefiii í
V-Húnavatnssýslu
Sveitarfélög og fyrirtæki í
Vestur-Húnavatnssýslu eru að
stofna með sér félag til eflingar
atvinnulífí byggðarlagsins undir
nafhinu „Ataksverkefni í Vest-
ur-Húnavatnssýslu“. Helstu aðil-
ar að verkefninu eru Hvamms-
tangahreppur, Iðnþróunarfélag
Norðurlands vestra og Verka-
lýðsfélagið Hvöt. Væntanlegir
þátttakendur eru m.a. sveitarfé-
lögin í V-Húnavatnssýslu ásamt
héraðsnefnd sýslunnar og Kaup-
félagi V-Húnavatnssýslu. Kynn-
ingarfundur var haldinn í félags-
heimilinu á Hvammstanga föstu-
daginn 19. maí. Yfír eitthundrað
manns komu á fundinn. Nú hefur
vderið ráðinn verkefinisstjóri,
Karl Sigurgeirsson.
Hugmyndir að átaksverkefninu
komu fram á sl. vori og komu þá
á fund heimamanna iðnráðgjafi
Austurlands og verkefnisstjóri
átaksverkefnis sem unnið er að á
Egjlsstöðum og Seyðisfirði.
1 apríl sl. var málinu hrundið af
stað með framlagi frá Verkalýðs-
félaginu Hvöt að upphæð 500.000
krónur. Með þátttöku annarra aðila
verður tryggt ijármagn til eins árs,
en gera má ráð fyrir að verkefnið
standi í tvö ár.
I stefnuyfirlýsingu segir m.a.:
„Tilgangur átaksverkefnis Vestur-
Húnavatnssýslu er að auðga og
styrkja atvinnulíf í héraðinu og
treysta með því búsetu og bæta
mannlíf í byggðarlaginu.“
Við framkvæmd verkefnisins er
gert ráð fyrir að stuðst verði við
fyrirmynd sem notuð var á Austurl-
andi og er þar enn í framkvæmd
en laga hana að aðstæðum og taka
mið af reynslu Austfirðinga.
Kosin hefur verið bráðabirgða-
stjórn og er Helgi S. ólafsson for-
maður en hann er formaður at-
vinnumálanefndar Hvammstanga-
hrepps.
A kynningarfundinum voru
ræddar alvarlegar horfur atvinnu-
lífs í héraðinu.
Þórður Skúlason sveitarstjóri
rakti íbúaþróun í héraðinu. Arið
1970 var 361 íbúi á Hvammstanga,
1.028 íbúar í sveitum Vestur-Húna-
vatnssýslu eða samtals 1.389 íbúar.
Árið 1988 voru tölurnar
676 + 811, samtals 1.487 íbúar.
Um atvinnumál sagði Þórður m.a.:
„Skráðir atvinnuleysisdagar á
Hvammstanga á árunum 1982-
1987 voru 1.500 til 2.000. Árið
1988 voru skráðir 5.084 atvinnu-
leysisdagar og í janúar-apríl 1989
var talan komin í 3.859 daga. Hann
benti einnig á að meðallaun í hérað-
inu hefðu verið lág og árið 1986
hefði vantað 13% upp á að þau
næðu meðaltali landstekna.
Gunnar Sæmundsson, formaður
Búnaðarsambands V-Húnavatns-
sýslu, ræddi stöðu landbúnaðarins
í héraðinu. Fækkun sauðfjár næmi
um 25% á 10 árum, styrkir hefðu
stórlækkað og jafnvel verið felldir
niður og erfiðleikar væru í sölumál-
um. Mjólkurframleiðslan væri í
betra jafnvægi.
Þórarinn Þorvaldsson á Þórodds-
stöðum ræddi um markaðsmál land-
búnaðarvara. Einnig hvernig ein-
stakir rekstrarliðir landbúnaðarins
skiptust milli heimahéraðs og ann-
arra svæða, t.d. Reykjavíkur.
Kristófer Oliversson frá Byggða-
stofnun sagði m.a. frá árangri
átaksverkefnis á Austurlandi. Fyrir
tilstilli þess hafa heimaaðilar hrund-
ið af stað ýmsum verkefnum og
smáfyrirtækjum.
Herbjört Pétursdóttir á Melstað
ræddi áhrif byggðaröskunar á
mannlífið og líkti henni við sjálfsvíg.
Hvort tveggja væri siðferðilega
rangt. Fólksfækkun í einstökum
byggðarlögum hefði slæm áhrif á
byggðina og oft gengi hægt að fylla
í skörðin sem myndast hefðu.
Helgi S. Ólafsson undirstrikaði
að árangur þessa verkefnis væri
fyrst og fremst undir íbúunum sjálf-
um kominn. Ekki væri hægt að
búast við utanaðkomandi aðstoð
nema viljinn væri til staðar í héraði.
Aðrir ræðumenn lýstu ánægju
með að slíku verkefni væri nú
hrundið af stað og hvöttu til dáða.
Leitarráðstefna, nokkurs konar
stofnun hugmyndabanka, verður
haldin 23.-24. júní.
- Karl
Birna Kristjáns-
dóttir — Minning
Fædd 25. október 1921
Dáin 26. maí 1989
Mér er margt í huga þegar ég
sest niður til þess að skrifa nokkur
minningarorð um Birnu frænku.
Frænka er búin að vera hluti af lífí
mínu frá því að ég fór að muna
eftir mér og ég er eiginlega ekki
búin að átta mig á því að þeim
kafla lífsins sé nú lokið.
Ein af mínum fyrstu minningum
tengist því þegar ég kom til frænku
þá fjögurra ára til þess að vera hjá
henni og manni henni vetrarlangt
meðan foreldrar mínir voru bundin
við nám og störf. Mér leið þar eins
og blóma í eggi og æ síðan hef ég
kallað þau frænda og frænku. Það
segir sína sögu að það gerði líka
fjölskylda mín, eiginmaður og börn
þegar stundir liðu fram.
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Tjaldsamkoma við Laugarnes-
skóla kl. 20.30.
®FERÐAFÉUG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMARlim og 19533.
2.-4. júní: Helgarferð til
Þórsmerkur
Gist í Skagfjörðsskála/Langadal.
Gönguferðir með fararstjóra um
Mörkina. Brottför kl. 20.00,
föstudag.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu F.Í., Öldugötu 3.
Ferðafélag íslands.
Frænka og frændi áttu ekki börn
saman en frændi, Héðinn Friðriks-
son, átti soninn Jóhann Örn, frá
fyrra hjónabandi, sem fluttist síðar
til þeirra og ólst upp hjá þeim fram
á unglingsár. Mér fannst oft á
barnsárunum að Jóhann væri nokk-
urs konar eldri bróðir, þar sem ég
fékk oft að skreppa í helgarheim-
sóknir til þeirra frænku og frænda
og frá þeim á ég margar af mínum
Ijúfustu minningum frá barnæsku.
Þegar ég síðan varð fullorðin og
eignaðist fjölskyldu þá færðist
væntumþykja frænku og frænda
einnig yfir á hana. Þau réttu okkur
hjónunum oft hjálparhönd m.a. við
barnapössun. Til dæmis passaði
frænka fyrir okkur elsta barnið
heilan vetur meðan ég var í námi.
Mörgum árum seinna þegar hún
var búin að vera ekkja í nokkur ár
m útivist
Helgarferðir 2.-4. júní
A. Eyjafjallajökull-Seljavalla-
laug. Dagsganga úr Pórsmörk
yfir jökulínn að Seljavallalaug.
Stórskemmtileg jökulganga.
Fararstjóri: Reynir Sigurðsson.
B. Þórsmörk-Goðaland. Nú fer
Mörkin að lifna við. Útivistarferð-
ir þangað eru ávallt við allra
hæfi og gistingin í Útivistarskál-
unum Básum er með tilkomu
nýja eldhússins orðin eins og
best gerist í óbyggðum.
Við minnum hópa á að panta
tímanlega fyrir sumarið, enn-
fremur er minnt á að sumar-
leyfi í Básum er ekki sfðra en
dvöl á sólarströndu. Gerist Úti-
vistarfélagar. Uppl. og farm. á
skrifstofunni, Grófinni 1, símar:
14606 og 23732. Sjáumst.
Útivist, ferðafélag.
passaði hún einnig barn númer tvö.
Frænka kom oftast í heimsókn til
okkar um hveija helgi og þá var
hún ekki fyrr komin inn úr dyrunum
en hún fór að leika sér við börnin
eða að strauja þvottinn minn eða
að taka tii hendinni á annan hátt.
Árið 1986 lengdist á milli okkar
þegar ég og fjölskylda mín fluttum
út á land og settumst að í Djúpuvík
í Strandasýslu. Þetta þótti okkur
báðum erfitt, en við héldum þó
góðu sambandi í gegnum síma og
varla leið sá dagur að ég kæmi
ekki til hennar ef ég skrapp suður.
Við áttum saman yndislegan
tíma hér í Djúpuvík á síðasta sumri
og ég var að vona að hægt yrði að
endurtaka hann á þessu sumri sem
virðist nú loksins fara í hönd eftir
erfiðan vetur. Sú ósk byggðist að
sjálfsögðu á minni eigingirni, þvi
ég vissi sem var að stundaglasið
hennar frænku var að tæmast.
Eg þakka elsku frænku minni
fyrir þann hluta lífs míns sem hún
fyllti. Nú veit ég að hún er búin
að hitta frænda aftur og aðra ást-
vini sem horfnir eru. Það er eina
huggun mín.
Bestu samúðarkveðjur til þín og
fjölskyldu þinnar, Jóhann minn.
Eva og fjölskylda,
Diúpuvík,
Þessi minningarorð áttu að birt-
ast í blaðinu í gær er útför Birnu
fór fram. Vegna mistaka fórst það
fyrir. Eru þeir sem hlut eiga að
máli beðnir afsökunar á því.
í dag, 1. júní, verður jarðsett
vinkona okkar Birna Kristjánsdótt-
ir. Hún lést á Grensásdeild 26. maí
sl. Hún var búin að beijast hetju-
lega við illvígan sjúkdóm og tókst
á við hann með aðdáunarverðu
æðruleysi.
Hún hverfur frá okkur núna í
gróandanum, en vorið var einmitt
hennar uppáhalds árstími. Þá naut
hún þess að fylgjast með blómunum
sínum og vinna í garðinum.
Nú hefur hún verið kölluð til
annarra starfa, þar hlýtur Héðinn
að bíða eftir henni og saman munu
þau halda áfram að rækta sinn
verðlaunagarð eins og þegar þau
bjuggu í Goðatúninu.
Það er erfitt að átta sig á því
að Birna sé ekki lengur á meðal
okkar. Hún verður ekki oftar með
okkur í saumaklúbb. Þar var hún
ætíð hrókur alls fagnaðar og smit-
aði okkur allar með sínum dillandi
hlátri.
Það var einmitt á afmælisdaginn
hennar í haust, sem hún var með
okkur í síðastá sinn. Hún var að
fara á spítala daginn eftir. Við sáum
allar að hún var sárþjáð, en þrátt
fyrir það var hún kát og hress að
vanda.
Samfylgd okkar í saumaklúbbn-
um spannar nú yfir hálfan fjórða
tug ára. Allar höfum við þekkst frá
því að við vorum stelpur, allar fædd-
ar og uppaldar í Svarfaðardal. Þó
leiðir skildu um tíma rofnuðu vin-
áttuböndin aldrei. Þannig höfum
við fylgst að í gegnum árin og reynt
að styðja hver aðra ef eitthvað hef-
ur bjátað á, enginn kemst alveg
áfallalaust í gegnum lífið.
Birna var gift Héðni Friðrikssyni
frá Akureyri. Hann var sérlega
elskulegur og góður maður og voru
þau afar samrýnd og samhent.
Enda varð það mikið áfall fyrir
Birnu er hann lést snögglega fyrir
14 árum. Söknuðurinn var mikill,
hún sýndi stillingu, bognaði en
brotnaði ekki og þegar frá leið náði
hún reisn sinni og glaðværð að
nýju. Birna og Héðinn voru ákaf-
lega glæsileg hjón, bæði voru vel
greind, lásu mikið og það var gam-
an að ræða við þau á góðri stund
um gátur lífsins. Það má segja að
þau hjón hafi verið miklir fagurker-
ar, heimili þeirra var ákaflega
smekklegt og fallegt, allir hlutir
valdir af kostgæfni. Snyrtimennsk-
an var einstök, úti sem inni. Þau
unnu tónlist og söng, enda spilaði
Héðinn mjög vel á píanó.
Birna og Héðinn áttu ekki börn
saman, en Héðinn átti son frá fyrra
hjónabandi, Jóhann Örn. Það er
óhætt að segja að þó hann væri
ekki sonur Birnu, er það vafasamt
mjög, að hennar eigin sonur hefði
reynst henni betur en Jóhann hefur
gert. Slík umhyggja og elska sem
hann hefur veitt henni er einstök.
Birna dáði Jóhann Örn sem eigin
son.
Þá var henni mjög annt um syst-
urbörn sín og voru mörg þeirra
henni handgengin. Einnig fylgdist
hún vel með hvemig bömum okkar
og barnabörnum vegnaði.
Bima var virkur meðlimur í
Svarfdælingasamtökunum frá upp-
hafi, sótti flesta fundi og samkomur
sem hún gat. í þeirri keðju hefur
nú einn hlekkur brostið.
Að leiðarlokum kveðjum við kæra
vinkonu og þökkum samfylgd sem
aldrei bar skugga á.
Öllum aðstandendum sendum við
samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friðar Guðs þig blessi,
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Gaði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðar hnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Blessuð sé minning hennar.
Saumaklúbburínn
Þessi minningarorð áttu að
birtast í blaðinu í gær, er útför
Birnu Kristjánsdóttur fór íram.
Það fórst fyrir og eru þeir sem
hlut eiga að máli beðnir afsökun-
ar.
s m á ouglýsingor
¥ ÉLAGSLÍF