Morgunblaðið - 02.06.1989, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐÆ) IÞROTTIR röSTUDAGUH 2. JÚNÍ 1989
51
KORFUKNATTLEIKUR
Pálmar tekur aftur
við þjálfun Hauka
ívar Webster leikur að nýju með liðinu næsta vetur
PALMAR Sigurðsson hefur
verið ráðinn þjálfari Hauka í í
körfuknattleik. Pálmar þjálfaði
liðið veturinn 1987-88 og gerði
liðið þá að íslandsmeisturum.
Hann tekur við liðinu úr hönd-
um Einars Bollasonar sem hef-
ur ákveðið að hætta þjálfun.
Þá hafa Haukar endurheimt
ívar Webster eftir eins árs dvöl
hjá KR og hafa í hyggju að
bæta bandarískum leikmanni í
hópinn.
H
aukar urðu íslandsmeistarar
fyrir tveimur árum, en lentu
KNATTSPYRNA
Víkverjar
sterkari í
framlengingu
Víkveijar voru sterkari en Ár-
menningar í framlengingu í
bikarkeppninni í gærkvöldi og sigr-
uðu 7:4. Ármenningar voru yfir,
2:4, en Víkveijar náðu að jafna,
4:4, fyrir leikslok. Svavar Hilmars-
son skoraði jöfnunarmarkið þegar
venjulegur leiktími var úti. Áður
höfðu þeir Sigurður Bjömsson,
Borgþór Magnússon og Níels Guð-
mundsson skorað fyrir Víkveija, en
Gústaf Alfreðsson, þijú mörk, og
Smári Jósafatsson fyrir Ármann.
Magnús Magnússon og Níels
skomðu, 6:4, fyrir Víkveijar strax
í byijun framlengingar og síðan
bætti Albert Jónsson marki, 7:4,
við úr vítaspymu. Víkveiji mætir
Árvakur í annari umferð.
Þróttur Nes. vann Austra, 2:0,
með mörkum Guðbjartar Magna-
sonar og Þorlás Árnasonar. Þróttur
N. leikur gegn Hugin í 2. umferð.
Guðlaugur Jónsson, Aðalsteinn
Ingólfsson og Páll Björnsson skor-
uðu fyrir Grindavík, sem vann
Hveragerði, 3:1. Ólafur Vignisson
skoraði mark gestanna. Grindavík
leikur gegn Breiðablik í 2. umferð.
1.D. KVENNA
Öruggt hjá
KR-stúlkum
í Kópavogi
KR sigraði Breiðablik örugg-
lega, 4:0, í 1. deild kvenna í
knattspyrnu í gærkvöldi.
Blikastúlkumar léku á heima-
velli en það dugði ekki að þessu
sinni. Guðrún Jóna Krisijánsdóttir
kom Vesturbæjardömunum á sporið
tneð marki á 17. mín. og Helena
Ólafsdóttir og Arna Steinsen gerðu
hvor sitt markið fyrir hlé. Undir lok
leiksins skoraði Hrafnhildur Hreins-
dóttir flórða mark KR.
1.DEILD
Þór-KA á morgun
Akureyrarliðin Þór og KA mæt-
ast í 1. deildinni í knattspymu
á malarvelli Þórs á morgun, laugar-
daginn 3. júní kl. 14.00. Skv. móta-
skrá átti leikurinn að fara fram í
kvöld, en félögin höfðu fengið vil-
yrði um að honum yrði frestað þar
til hægt yrði að leika á grasi á
Akureyri. Af því verður hins vegar
ekki.
nokkuð óvænt í 6. sæti síðasta vet-
ur. „Ég held að þetta verði gott hjá
pkkur í vetur. Við höfum fengið
ívar Webster og það er hugur í lið-
inu. Það verður vissulega erfitt að
standa sig í deildinni en við emm
bjartsýnir," sagði Pálmar.
Aðstoðarmaður Pálmars verður
Ingvar Jónsson, körfuknattleiks-
frömuðurinn í Hafnarfirði, og Einar
Bollason mun einnig verða þeim
innan handar. „Ég mun þó ekkert
þjálfa. Ég er alveg hættur því og
nú meina ég það (!),“ sagði Einar
Bollason.
ívar Webster kemur aftur til
Hauka, en hann lék með KR í fyrra.
Hann var mikilvægur hlekkur í vörn
Hauka og tók iðulega rúman helm-
ing frákasta liðsins. „Það er gott
að koma aftur heim. Mér leið þó
alls ekki illa hjá KR, en ég var allt-
af með heimþrá,“ sagði Ivar.
„Við erum með sama lið og þeg-
ar við urðum Islandsmeistarar og
við það bætist líklega einn Banda-
ríkjamaður. Við leitum að góðum
framheija og ef við fáum hann
ættum við að vera með gott lið.
Stefnan er komast í úrslitakeppnina
og helst að ná titlinum aftur,“ sagði
Pálmar.
Pálmar Sigurðsson.
FRJALSARIÞROTTIR / KRINGLUKAST
. Vésteinn bætti
Islandsmetið um
ruma ivo mocra
VÉSTEIIMN Hafsteinsson
bætti sitt eigið íslandsmet í
kringlukasti um rúmatvo
metraífyrrakvöld; kastaði
67,64 m á kastmóti sem fram
fór á Selfossi. Þetta kast Vé-
steins er sennilega þriðji
besti árangurinn í heiminum
í kringlukasti á árinu, en Þjóð-
verjinn Woifgang Schmith
hefur kastað 68,10 m og
Bandaríkjamaðurinn Mike
Buncic 67,78 m.
Vésteinn hefur að undanfömu
dvalist við æfmgar og keppni
í Kalifomíu og æft þar með þekkt-
um kringlukösturunum, þar á
meðal þeim Schmith og Buncic.
„Ég er í sjöunda himni yfir að
hafa bætt metið. Undanfama
mánuði hef ég ekki gert annað
en að kasta kringlu, þannig að
þessi árangur kom mér ekki sér-
Vósteinn Hafsteinsson.
lega á vart,“ sagði Vésteinn í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
„Það var orðið timabært að ég
kastaði svona langt, eftir að ég
kastaði 67,20 í Svíþjóð fyrir
tveimur árum, en það kast var
dæmt ógilt vegna halla á vellin-
um.“
Vésteinn sagðist hafa keppt á
fimm mótum úti í Bandaríkjunum
á þessu ári og sagði hann árang-
urinn hafa lofað góðu. „Á öðm
mótinu kastaði ég t.d. yfír 65
metra en það var dæmt ógilt. Það
var því einungis tímaspursmál í
mínum huga hvenær ég bætti
þetta met,“ sagði Vésteinn.
Framundan hjá Vésteini er
þátttaka á Grand Prix mótunum,
og sagðist hann vonast til að verða
með á mótinu í Helsinki í lok júni.
Þá sagðist hann einnig keppa á
mótum hér heima á næstunni, og
kvaðst hann jafnframt vera að
vinna að því að fá hingað til
keppni þá Bancic og Schmith, en
þeir væm báðir fúsir til að koma
hingað og keppa.
FRJÁLSIÞROTTIR / EOP-MOTIÐ
Hannes vann
minningarhlaupið
SNOKER
Það er skemmtilegt að KR-ingur
vann minningarhlaupið um
Svavar Markússon," sagði Sigurður
Björnsson, stjórnarmaður í KR, eft-
ir að KR-ingurinn Hannes Hrafn-
kelsson varð sigurvegari í 1500 m
hlaupi á EÓP-mótinu á Valbjamar-
velli í Laugardal í gærkvöldi.
Tólf hlauparar tóku þátt í hlaup-
inu, sem var skemmtilegt. Hannes
og FH-ingurinn Steinn Jóhannsson
skiptust á að hafa forustu, en Hann-
es var starkari á síðustu hundrað
metranum í þessu mikla átaka-
hlaupi. Hann kom í mark á 4:03.3
mín, en Steinn á 4:03.8 mín. Finn-
bogi Gylfason, FH, varð þriðji á
4:05.1 mín.
Súsanna Helgadóttir, FH, vann
Helgu Halldórsdóttir, KR, í 100 m
hlaupi - kom í mark á 12.4 sek.,
en Helga á 12.6 sek.
Sigurvegarar í einstökum grein-
um urðu: 110 m grindahlaup: 15.3
Kúluvarp karla: 18.38
Langstökk karla: Einar Kristjánsson, FH
6.38
Kringlukast kvenna: Halla Heimisdóttir, Armanni 35.90
100 m hlaup karla: Einar Þ. Einarsson, Ármanni 11.3
Hástökk kvenna: Þóra Einarsdóttir, UMSE ..1.65
400 m hlaup karla: Bjöm Traustason, FH 52.2
Árngrímur Guðmundsson, UDN 52.7
400 m hlaup kvenna: Svanhildur Kristjónsdóttir, UBK 58.1
Spjótkast karla: Þórsteinn Þórsson, ÍR 54.10
Stangarstökk: Sigurður T. Sigurðsson, FH 4.90
Kristján Gissurarson, KR 4.50
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
húm
FOLK
■ LUZERN, lið Sigurðar Grét-
arsson, leikur síðasta leik sinn í
svissneksu 1. deildinni, miðviku-
daginn 14. júní, um leið og ísland
og Austurríki mæt-
ast í Laugardal.
Liðið getur verið
búið að tryggja sér
meistaratitilinn í
næst síðasta leiknum — og ef svo
verður kemur Sigurður öragglega
í landsleikinn. Rætt var um að hann
færi þá strax eftir landsleikinn í
einkaflugvél frá Reylgavík til Sviss
— til að fagna fyrsta meistaratitli
Luzern frá upphafi!
■ ÍSLENSKU landsliðsmenn-
imir í knattspymu „tolleraðu"
Siegfried Held, landsliðsþjálfara,
inni í búningsklefa eftir leikinn
gegn Sovétmönnum í Moskvu á
miðvikudaginn og höfðu þeir á orði
að Held kæmi ekki niður fyrr en í
dag, föstudag — þegar hann lendir
í Dusseldorf, en þangað flýgur
hann heim á leið frá Kaupmanna-
höfn. Held kemur svo aftur til Is-
lands 8. júní.
■ AUSTURRÍKISMENN töp-
uðu í vináttulandsleik í knattspymu
gegn Norðmönnum í Osló í fyrra-
kvöld, 1:4. Halda mætti að aust-
urríska liðið væri slakt miðað við
þessi úrslit, en Bjarni Sigurðsson
og Gunnar Gíslason, sem leikið
hafa í Noregi, sögðu báðir að ekk-
ert væri að marka úrslit í svona
vináttuleikjum. Það er því ljóst að
íslensku leikmennimir verða ekki
öraggir með sig fyrir leikinn í
Laugardalnum 14. þessa mánaðar.
■ FRANSKIR sjónvarpstöku-
menn hafa verið í Sovétrílq'unum
að undanförnu til að gera þátt um
sovéska knattspymu. Þeir vora á
Lenín leikvanginum í fyrrakvöld,
og fengu að fara inn í búningsklefa
íslenska liðsins að leik loknum til
að mynda fagnaðarlæti landslið-
spiltanna.
Stórsigur
Belgíumanna
Marc Van der Linde skoraði
flögur mörk fyrir Belgíu-
menn þegar þeir unnu, 5:0, Luxem-
borgarmenn í heimsmeistarakeppn-
inni í gærkvöldi. Luxemborg lék
heimaleik sinn í Lille í Frakklandi,
þar sem ekki nægilega traustur
leikvöllur er til í Luxemborg. 10
þús. áhorfendur sáu Van der Linde
skora mörkin fjögur og Patrick
Vervoort bætti því fímmta við.
Atli gerði
það gott
Heimsmeistaramót unglinga í
knattborðsleik - snóker, hófst
í íþróttahúsinu í Hafnarfírði í gær.
Atli M. Bjarnason lék vel þegar
hann vann Ástralann Preilly, sem
er mjög sterkur spilari.
Keppt er í fjóram riðlum og urðu
úrslit þessi:
A-RIÐILL:
Ásgeir Guðbjartsson - Ragnar Ómarsson ....4:1
S. Lynskey, Engl. - W. Andries, Belg....4:0
W. Trupin, Ástralía - Kristján Þ. Finnsson...4:2
B-RIÐILL:
Preilly, Ástral. - Atli M. Bjamason.....3:4
L. Grant, Engl. - A. Cock, Belg .......4:0
Sumarliði Gústafss. - Jóhannes Jóhanness...l:4
C-RIÐILL:
O. King, Engl. - J. Ellul, Ást.......4:0
S. Lemmens, Belg. - P. Rodgerson, Belg..4:3
B. Karim, Frakkl. - Jóhannes Jónsson....4:1
D-RIÐILL:
Rudy Van, Belgía - Eðvard Matthíasson...4:3
T. Shaw, Engl. - R. V. Her, Holl........4:0
S. Mifsud, Ást. - Halldór M. Sverrisson.4:2
Keppnin heldur áfram í dag kl. 16.