Morgunblaðið - 02.06.1989, Qupperneq 52
EINKAfíEIKNINGUR Þ/NN
í LANDSBANKANUM m
__________________Mk
SJÓVÁ ALMENNAR
FELAG FOLKSINS
FOSTUDAGUR 2. JUNI 1989
VERÐ I LAUSASOLU 80 KR.
15% hækk-
un á lyfja-
og læknis-
þjónustu
í DAG tekur gildi 15% hækkun
á lyfla- og læknisþjónustu. Hækk-
unin sem um ræðir nær til þess
hluta sem sjúklingur greiðir fyrir
móttökugjald hjá lækni og hluta
sjúklings í lyQakostnaði.
Að sögn Finns Ingólfssonar, að-
stoðarmanns heilbrigðisráðherra, er
um að ræða hækkanir, sem hafa
átt að taka verðlagsbreytingum, en
á verðstöðvunartímanum hefði það
ekki gerst og engin hækkun hefði
orðið frá því á miðju ári í fyrra.
Hann sagði að hækkunin hefði þurft
að vera 22-24% til að halda í við
verðlag.
Arnarflug:
Starfsfólki
fækkað um 20
ÁKVEÐIÐ var á stjómarfundi
Arnarflugs hf. á miðvikudag að
fækka starfsfólki um 20 manns á
næstunni, miðað við þann fjölda
sem vann þjá fyrirtækinu í vet-
ur. Það verður gert bæði með
uppsögnum og að ekki verður
ráðið í stöður þeirra sem hætta,
að sögn Kristins Sigtryggssonar
framkvæmdastj óra.
Eftir að þessir 20 hafa hætt,
verða um 80 manns starfandi hjá
fyrirtækinii, nokkuð mismunandi
þó eftir árstímum. Kristinn segir
að dregið verði saman í öllum deild-
um og að ástæður fækkunarinnar
séu, að fyrirsjáanlegur sé samdrátt-
ur í umsvifum félagsins á næstu
mánuðum.
„Við sjáum fram á áframhald-
andi dapurt ástand í þjóðfélaginu
og viljum búa okkur undir það og
vinna á sem lægstum kostnaði á
meðan það ástand varir,“ sagði
Kristinn Sigtryggsson.
Morgunblaðinu tókst ekki í gær-
kvöldi að fá álit starfsmannafélags-
ins á þessari ákvörðun stjómarinn-
Flóð og vatnskuldi hamla stangaveiði
Stangaveiði fyrir lax hófst í þremur ám í gær, Norðurá, Þverá og
Laxá á Asum. Allar áttu ámar það sameiginlegt að vera flæðandi
yfir bakka sína og allt annað en tærar á lit. Þá var vatnskuldi
mikill, Norðurá t.d. ekki nema 4 gráður. Veiðin gekk eftir því,
enginn lax kom á land, utan að veiðimenn í Laxá drógu nokkra
hoplaxa. Nýrunnir fiskar sáust þó í Norðurá og auk þess lifnaði
yfir netaveiðinni í Hvítá og nokkrir tugir laxa veiddust, m. a. 20
punda lax frá Feijukoti. Á meðfylgjandi mynd er Halldór Nikulás-
son veiðivörður við Norðurá til sextán ára að mæla hitastig árinnar
á Laxfossbrún.
15 - 20.000 manns mótmæltu á Lækjartorgi:
Viðbrögð við hækkunum
hljóta að verða mjög hörð
- segir Asmundur Steíansson forseti ASI
Á FJÖLMENNUM útifundum, sem haldnir voru í Reykjavík og Vest-
mannaeyjum í gær, var verðhækkunum undanfarinna daga mótmælt
harðlega. 15-20.000 manns söfiiuðust saman á fundi Alþýðusambands-
ins og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja á Lælyartorgi. I Vestmanna-
eyjum héldu stéttarfélögin 300 manna fund, einn hinn Qölmennasta í
Eyjum um áraraðir.
Ásmundur Stefánsson, formaður
Alþýðusambandsins, sagði í ræðu
sinni á Lækjartorgi að þess sæjust
engin merki að ríkisstjómin hefði
uppi einhvetja tilburði til að standa
við yfirlýsingu sína um að hún myndi
sporna við verðhækkunum næstu
misseri til að greiða fyrir gerð kjara-
samninga ASI og BSRB. „Ef verð-
hækkanasóttin bráir ekki af ríkis-
stjóminni þá hljóta viðbrögð okkar
áð verða hörð. Þau hljóta að verða
mjög hörð,“ sagði Ásmundur. Hann
sagði að léti stjómin sér ekki segjast
myndu harðar aðgerðir fylgja í kjöl-
farið til að knýja hana til að standa
við sinn hlut.
Verkamannafélagið Dagsbrún og
Iðja, félag verksmiðjufólks, hafa
einnig mótmælt verðhækkununum.
Dagsbrúnarmenn vara stjómina al-
varlega við og krefjast þess að hún
afturkalli þær hækkanir, sem sann-
anlega séu ekki vegna erlendra verð-
hækkana. Iðjufólk segir að það litla
sem samið hafi verið um í kjarasamn-
ingum hafi verið tekið til baka með
gengisfellingu og verðhækkunum.
40 til 50 námsmenn bætast
daglega á atvinnuleysisskrá
Unnt að ráða 1000 af yfir 2000 umsækjendum um sumarvinnu hjá borginni
FJÖRUTÍU til fimmtíu skólanemar bætast á atvinnuleysisskrá skóla-
fólks í Reylgavík á degi hveijum. Margir skólar ljúka störfúm þessa
dagana, en nemar í atvinnuleit geta ekki skráð sig í hóp atvinnulausra
fyrr en skóla er lokið. Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður atvinnumála-
nefiidar Reykjavíkur, skýrði firá þessu á fúndi borgarstjómar í gær-
kvöldi. 660 nemar vom á atvinnuleysisskrá 31. maí, álíka margir af
báðum kynjum.
I gærmorgun höfðu 1.986 nemar
yfir 16 ára aldri sótt um sumarvinnu
hjá Reykjavíkurborg. Að sögn Jónu
Gróu er búizt við að umsækjendum
muni enn fjölga um að minnsta kosti
200. Hún sagði að í apríllok í fyrra
hafi 1.071 nemi verið búinn að sækja
um vinnu, miðað vð 1.928 í ár.
Jóna Gróa sagði að á fjárhagsáætl-
un hefði verið gert ráð fyrir að ráða
750 unglinga í sumarvinnu, en eftir
að flölga störfum yrði hægt að ráða
um 1.000 nema 16 ára og eldri, auk
1.700 unglinga á aldrinum 14-15
ára, sem fengju vinnu hjá Vinnu-
skóía Reykjavíkur. Allir umsækjend-
ur um Vinnuskólann verða ráðnir.
Alls hafa nú 3.630 unglingar sótt
um sumarvinnu hjá borginni, og að
sögn Jónu Gróu má búast vð 300-400
í viðbót. í fyrra sóttu 2.417 um vinnu.
Jóna Gróa sagði að atvinnuástand
að ankafjárveiting hefði fengizt til skálafólk svndi ástandið í Jandinu_L_
hnotskurn. Ekki væri útlit fyrir að
atvinnuástandið batnaði í bráð. Mikl-
ar umræður urðu um atvinnuástand-
ið á fundi borgarstjórnar og gagn-
rýndi Jóna Gróa atvinnustefnu ríkis-
stjórnarinnar harðlega. Fleiri borgar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins tóku í
sama streng.
Fulltrúar minnihlutaflokkanna
töldu ekki nóg að gert í atvinnumál-
um skólafólks á vegum borgarinnar.
Þeir létu bóka að fjárframlag borgar-
ráðs og ríkisstjórnarinnar bæri vott
um vilja til að leysa vandann. Þar
sem enn væri ekki séð hversu mikið
framlag ríkisins yrði og með tilliti
til samþykktar atvinnumálanefndar
um að greiða fyrir ráðningum skóla-
fólks áskildu þeir sér rétt til frekari
tillöguflutnings um þau efni. Meðal
annars stungu minnihlutafulltrúarnir
upp á því að unglingar yrðu látnir
taka að sér garðvinnu fyrir borgar-
ana gegn gjaldi og að snyrta til í
kring um fyrirtæki, sem þess ósk-
uðu. Fulltrúar Alþýðubandalagsins
létu bóka að til greina kæmi að auka
aðstoð á félagslega sviðinu með því
að ungmenni aðstoðuðu aldraða og
öryrkja á margvíslegan hátt.
689 voru skráðir atvinnulausir hjá
Ráðningarstofu Reykjavíkurborgar
síðastliðinn þriðjudag, 29. maí.
Stærstu hóparnir eru verzlunar-
menn, verkamenn og iðnaðarmenn.
Skólafólk er ekki talið með í þessum
*
Utlánsvext-
ir hækka
NOKKUR hækkun varð á
útlánsvöxtum hjá bönkum og
sparisjóðum í gær. Fimm
bankar og sparisjóðimir
hækkuðu útlánsvexti í átt til
samræmis við vexti Iðnaðar-
og Verslunarbanka sem
hækkuðu í maí. Útlánsvextir
em áfram lægstir hjá Lands-
banka en þar hækkuðu ein-
ungis skuldabréfavextir, úr
27,5% í 30,5%.
Hækkun á víxilvöxtum varð
á bilinu 1-3%. Þannig hækkaði
t.d. Útvegsbanki víxilvexti úr
28% í 31%, hjá Búnaðarbanka
varð hækkunin úr 29% í 31%
og hjá Samvinnubanka hækk-
uðu víxilvextir úr 28,5% í
30,5%. Vextir af yfirdráttarlán-
um hækkuðu um 1,5-3% og eru
nú almennt á bilinu 34-35%,
nema hjá Landsbanka þar sem
þeir héldust óbreyttir 31,5%.
Skuldabréfavextir hækkuðu í 5
tilvikum. Má nefna að Útvegs-
banki hækkaði skuldabréfa-
vexti úr 28% í 31%. og hjá
Búnaðarbanka hækkuðu þeir
úr 31% í 33,5%.
Sjá Peningamarkaðinn á
bls. 28