Morgunblaðið - 16.06.1989, Síða 2
MÖRGUNBLAtilÐ FÖSTUDÁGUlt! 16. JÖNÍ Í&&9
Tók sjáJf
ámóti
barninu
„ÉG HEFÐI alveg viljað vita
með klukkutíma fyrirvara að
ég væri að fara að eignast
barn,“ segir Laufey Þóra Olafs-
dóttir sem á miðvikudagsmorg-
un Ó1 stúlkubarn á heimili sínu
við Grettisgötu í Reykjavík.
Laufey Þóra tók sjálf á móti
barninu á meðan sambýlismað-
ur hennar, Grétar Pétur Geirs-
son, var í símanum að hringja
á sjúkrabíl.
Laufey Þóra Ólafsdóttir, sem
er 22 ára og á fyrir þriggja ára
gamla dóttur, segist hafa vaknað
upp klukkan um hálfsex á mið-
vikudagsmorgun og fundist hún
þurfa fara á salernið. Þegar til
kom reyndist það vera bamið, sem
lá svona á að komast í heiminn.
„Ég kallaði á Pétur sem lá sof-
andi inni í rúmi að bamið væri
að koma,“ sagði Laufey Þóra í
samtali við Morgunblaðið. „Ég
lagðist síðan inn í rúm en hann
fór í símann til að hringja á sjú-
krabíl. Á meðan hann var í síman-
um fæddist bamið.“
Sjúkrabíll og læknir komu fljót-
lega og klippti móðirin þá sjálf á
naflastrenginn. Mæðgumar voru
síðan fluttar á Fæðingadeild
Landspítalans, þar sem barnið
þurfti að vera nokkrar klukku-
stundir í hitakassa til að ná upp
Morgunblaðið/Bjami
Laufey Þóra Ólafsdóttir með dótturina sem lá svo á að komast
í heiminn.
hitatapi. En hvernig skyldi móður-
inni líða eftir fæðinguna? „Ég er
mikið hressari en eftir fæðingu
eldri stelpunnar, enda fékk ég
ekki nein deyfilyf núna. Ég hefði
þó getað hugsað mér að hafa
meiri fyrirvara á þessu. Ég var
engar hríðir með og datt því ekki
í hug að barnið væri á leiðinni
þegar ég vaknaði. Það fyrsta sem
Pétur, sambýlismaður minn, sagði
lfka var að næst yrði sko fylgst
með mér.“
Stúlkubamið sem vó ellefu
merkur fæddist rúmum tveimur
vikum fyrir tímann eins og systir
hennar sem fylgdist með öllu sam-
an.
Afsagnarbréf Benedikts Gröndals:
Ráðherra setti sendi-
herra í ferðabann
Augljóst, að ráðherra vill halda sendi-
herra einangruðum og starfslausum
BENEDIKT Gröndal sendiherra hefúr látið fjölmiðlum í té afrit af
bréfí því sem hann ritaði til forseta Islands og baðst lausnar frá
starfi. Hann segir í bréfinu að utanríkisráðherra hafi sett sendiherra
í ferðabann, nauðsynleg ferð til Japans í vetur hafi verið bönnuð
og augljóst sé, að ráðherra vilji losna við sendiherra úr utanríkis-
þjónustunni eða að minnsta kosti halda honum einangruðum og
starfslausum.
Orðrétt hljóðar bréfið svo: „Mér
var frá 1. nóvember 1987 falið starf
ferðasendiherra í Kína, Japan og
fleiri Kyrrahafslöndum. Starf þetta,
sem þróast hafði í áratug, byggist
á embættisferðum, sem lengi hafa
verið tvær á ári.
Nauðsynleg ferð til Japans var
síðastliðinn vetur bönnuð og síðan
hefur ríkt ferðabann. Ráðherra hef-
ur lýst yfir, að starfið sé óþarft og
verði afnumið. Þessari stefnu hans
hefur þegar verið fylgt í raun og
Undirmenn:
Kjarasamning-
arnir felldir
UNDIRMENN á farskipum, sand-
dæluskipum og hafrannsóknar-
skipum, felldu kjarasamninga Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, sem
undirritaðir voru 20. maí síðastlið-
inn. Atkvæði voru talin í gær.
73 greiddu atkvæði og stóð at-
kvæðagreiðslan í þijár vikur. Þetta
er um 70 prósent þeirra sem búist
var við að gætu tekið þátt í atkvæða-
greiðslunni, að sögn Guðmundar
Hallvarðssonar, formanns Sjó-
mannafélags Reykjavíkur. Já sögðu
23, nei sögðu 49, eða 67% þátttak-
enda, einn seðill var auður.
Stjórn sjómannafélagsins hefur
heimild trúnaðarmannaráðs til að
boða vinnustöðvun, en Guðmundur
segir að áður en til slíks kemur verði
leitað eftir viðræðum við útgerðir
skipanna.
sendiherra verið að miklu leyti
starfslaus.
Heimasendiráðið hefur verið ein-
angrað og sendiherra ekki leyft að
taka þátt í viðræðum við sendimenn
frá Japan, svo að dæmi sé nefnt.
Skrifstofan er utan ráðuneytisins
og úr tengslum við flest, sem þar
gerist.
Ráðherra hefur ekkert samband
haft við sendiherra um þessi mál
eða neitt annað varðandi starfið.
Ráðherra hefur ekki svarað orð-
sendingum eða skýrslum sendiherra
einu orði allt árið.
Augljóst er, að ráðherra vill losna
við sendherra úr utanríkisþjón-
ustunni eða að minnsta kosti halda
honum einangruðum og starfslaus-
um.
Tilgangslaust er að troða illsakir
við ráðherra og er enginn skynsam-
legur kostur annar en afsögn.
Ég hverf ekki með gleði úr ut-
anríkisþjónustunni, við góða heilsu
á besta aldri. Sjö ára sendiherra-
starf og miklu lengri kynni af sam-
starfsfólki, þar með töldum öllum
ráðherrum til þessa, hefur verið
mér til mikillar ánægju.
En nýir siðir koma með nýjum
herrum." Undir þetta ritar Benedikt
Gröndal.
Benedikt sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gær ekkert frekar
hafa um málið að segja, að minnsta
kosti ekki fyrr en hann hefði átt
fund með Jóni Baldvin Hannibals-
syni utanríkisráðherra.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
*
Seðlabanki Islands:
Vextir lækkaðir í
tveimur áföngum
TILLÖGUR Seðlabanka íslands um vaxtaákvarðanir voru kynntar
á ríkisstjórnarfúndi í gær af Jóni Sigurðssyni, viðskiptaráðherra,
en þar er gert ráð fyrir að vextir lækki um 1 til 1,25% í tveimur
áföngum, næstu tvo vaxtaákvörðunardaga, þannig að raunvextir
verði nálægt 6%. Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, og Steingrím-
ur Hermannsson, forsætisráðherra, sögðust í gær telja að við þess-
ar tillögur væri vel hægt að sætta sig.
Viðskiptaráðherra sagðist telja „Nú, svo lofuðum við náttúrlega
svar Seðlabankans vera mjög já- að koma fiskvinnslunni að meðal-
anríkisráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, þar sem
hann var staddur á flugvellinum í
Osló og á heimleið, að hann myndi
ekkert segja um þetta mál opin-
berlega fyrr en hann hefði átt fund
með Benedikt Gröndal. Hann hafði
þá fengið bréf Benedikts í hendur
þar sem Benedikt hafði sent honum
afrit af því til Noregs í gærdag þar
sem Jón Baldvin var á fundi.
„Við Benedikt gerðum með okkur
samkomulag um að segja ekkert
um þetta mál fyrr en við hefðum
átt með okkur fund. Ég mun standa
við það samkomulag," sagði Jón
Baldvin Hannibalsson.
kvætt, og í því væri tekið undir
hans sjónarmið. „Ég á því von á
því að þeir muni koma fram breyt-
ingum á vöxtum næstu tvo vaxta-
ákvörðunardaga,“ sagði viðskipta-
ráðherra.
„Seðlabankinn lýsir því að þróun
efnahagsmála hafi verið það já-
kvæð undanfarna mánuði að ýmsu
leyti, að grundvöllur sé til vaxta-
lækkunar," sagði forsætisráð-
herra. Hann sagði að Seðlabankinn
vekti athygli á því að innlán hefðu
vaxið meira en útlán, úr þenslunni
hefði dregið mjög mikið, og því
myndi bankinn beita sér fyrir því
að vextir lækki á næstu tveimur
vaxtaákvörðunardögum.
„Vextir munu þannig lækka um
1 til 1,25% og þá verður vaxtastig-
ið komið niður undir það sem ég
hef verið að tala um, 6%,“ sagði
Steingrímur. Forsætisráðherra
sagði að Seðlabankinn hefði einnig
tekið undir það, að endurskoða
bæri innlánshliðina, sérstaklega
skiptikjarareikningana og jafn-
vægi þyrfti að nást í verðtryggðum
inn- og útlánum.
Steingrímur sagði að Seðla-
bankinn tæki undir það, að þegar
verðbólga færi lækkandi, sem
væntanlega myndi gerast nú eftir
að olíuverðshækkunin væri yfir
gengin, þá þyrfti að tryggja það
að nafnvextir lækkuðu.
„Ég tel þetta vitanlega vera
hroðalegt," sagði Steingrímur, er
hann var spurður álits á útreikn-
ingum Hagstofunnar, sem gefa til
kynna að verðbólguhraði síðasta
mánaðar hafi verið 42%, á árs-
grundvelli. Hann sagði að olíu-
verðshækkunin hefði átt stærstan
hlut í þessari hækkun.
tali á núllið, sem hefur þýtt að
gengið hefur sigið mjög mikið og
menn uppskera verðbólgu í stað-
inn,“ sagði Steingrímur. „Við lof-
orðin verður að sjálfsögðu að
standa, þó að ég sé farinn að hafa
vaxandi efasemdir um svona
pólitík. Ekki það að ég sé að boða
fast gerigi, en verðbólgan er slík
meinsemd í þessu þjóðfélagi, að
við þolum hana ekki mikið lengur.“
0'
INNLENT
Borgarstjórn
Reykjavíkur:
Tillögu um
kjaraorku-
vopnabann
vísað frá
Borgarsljórn Reykjavík-
ur samþykkti í gær að vísa
frá tillögu Alþýðubanda-
lagsins um að kjamorku-
knúnum skipum og herskip-
um búnum kjarnorkuvopn-
um verði meinað að koma
til haftiar í Reykjavík.
Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, flutti frávísunartillög-
una og sagði hann meðal ann-
ars, að þetta mál væri
tvímælalaust í verkahring
ríkisstjómar og Alþingis, en
ekki sveitarstjórna.
Á borgarstjórnarfundinum í
gær fór einnig fram fyrri um-
ræða um ársreikning borgar-
sjóðs og stofnana hans fyrir
árið 1988. Þar kom meðal
annars fram, að veltuíjármunir
borgarinnar hefðu hækkað um
857.100.000 króna frá 1987,
en skammtímalán aftur á móti
um 717.500.000 króna. Eigið
veltufé hefði þannig aukist um
89.400.000 krónur.
Aðalfimdur Sláturfélags Suðurlands:
Tap síðasta árs 273 millj.
Mikil umskipti til hins betra í rekstrinum
MIKIL umskipti til hins betra urðu í rekstri Sláturfélags Suðurlands
á síðasta ári, að því er fram kom á aðalfiindi félagsins í gær, sem
haldinn var á Hvolsvelli. Þannig varð tap félagsins fyrstu þrjá mán-
uði síðasta árs um 70 milljónir króna, en fyrstu þijá mánuði þessa
árs skilaði félagið hagnaði að upphæð 4,5 milljónir og 31 milljón
var lögð í varasjóð til að mæta gengistapi í apríl og maí, að sögn
Steinþórs Skúlasonar, forstjóra SS. Tapið samtals á síðasta ári var
273 milljónir.
„Ársskýrslan er í raun og veru
vitnisburður um afkomu og uppgjör
við fyrra rekstrarform Sláturfélags-
ins. Þær breytingar sem byijað var
að gera í lok apríl á síðasta ári og
lauk ekki fyrr en á þessu ári, skil-
uðu ekki fullum árangri fyrr en í
lok ársins,“ sagði Steinþór í sam-
tali við Morgunblaðið.
Hann sagði að árið 1988 hefði
verið mikið umbreytingatímabil.
Mikið tap hefði verið á rekstrinum
og við sölu og uppgjör á ýmsum
deildum félagsins hefði komið fram
leynt tap, þar sem ekki hefði feng-
ist fullt verð fyrir birgðir til dæmis.
Jafnframt hefði Sláturfélagið í
fyrsta skipti verið endurskoðað af
löggiltum endurskoðendum. Eignir
og útistandandi kröfur hefðu verið
færðar verulega niður. Varkámi
hefði verið gætt í öllu tilliti, sem
væri eðlilegt og í samræmi við bók-
haldshefðir og staðan í lok ársins
endurspeglaði þetta.
Steinþór sagði að reksturinn nú
væri í jafnvægi. „Okkar vinnu er
engan vegin lokið, en við erum
búnir að snúa þróuninni við. Fyrir
liggur að vinna að ýmsum aðkall-
andi verkefnum eða nokkurs konar
fínstillingu rekstursins, auk þess
að koma eignum í peninga, sem
skila engum arði.“
Hann sagði þar einkum um tvær
eignir að ræða, Grensásveg 14, þar
sem sútunarverksmiðja félagsins
hefði verið til húsa, og byggingu
Sláturfélagsins í Laugarnesinu.
Sala á síðarnefndu eigninni væri í
skoðun. Hún yrði seld ef kaupandi
fyndist, enda teldu þeir starfsemi
Sláturfélagsins betur komna annars
staðar í annars konar byggingum.
Steinþór sagði ennfremur að búið
væri að tryggja rekstur vömhússins
við Eiðistorg, sem hefði verið þung-
ur baggi á félaginu. Nú síðast hefði
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
verið leigður hluti af kjallara húss-
ins undir áfengisútsölu.