Morgunblaðið - 16.06.1989, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 16.06.1989, Blaðsíða 44
fEINKAREIKNINGUR Þ/NN * í LANDSBANKANUM, __________________i FÉLAG FÓLKSINS FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1989 VERÐ 1 LAUSASÖLU 80 KR. Hvalreki í Skagafirði GRENJASKYTTUR fimdu hval á Þórðarhöfða í Skagafirði aðfara- nótt mánudags, að sögn Friðriks Antonssonar bónda á Höfða á Höfðaströnd. „Þetta er örugglega búrhvalur," sagði Friðrik Antonsson í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að hvalur- inn væri 17 til 18 metra langur og mjög sver. „Það hlýtur að vera nokk- uð langt síðan hvalinn rak á land, því það er farið að krauma ansi mik- ið í honum,“ sagði Friðrik. Ríkissljórnin; Aðstoð við loð- Frá slysstað á mótum Laugavegar og Vitastígs. Morgunbíaðið/JÁs Umferðarslys á Laugavegi; Stúlka lést og önnur slasaðist alvarlega NÍTJÁN ára stúlka lést og 16 ára stúlka liggur mikið slösuð á sjúkrahúsi eftir harðan árekstur strætisvagns og fólksbíls á mót- um Laugavegar og Vitastígs á níunda tímanum í gærmorgun. Stúlkan sem lést ók fólksbílnum, en sú sem liggur slösuð sat í fram- sæti hans. Stúlkurnar voru á leið suður Vitastíg, en strætisvagninn á leið vestur Laugaveg. Við árekst- urinn köstuðust stúlkurnar út úr bílnum, Volkswagen „bjöllu". Bíllinn snerist á götunni, rann áfram og staðnæmdist á verslunar- húsi við Laugaveg. Stúlkan sem ók bifreiðinni var úrskurðuð látin við komu á slysadeild. Gerð var aðgerð á hinni stúlkunni og liggur hún nú á gjörgæsludeild mikið slös- uð, að sögn lögreglu. dýrabændur Á FUNDI ríkisstjórnarinnar í gær var ákveðið að hraða greiðsl- um á uppsöfnuöum söluskatti til loðdýrabænda og uppgjöri á framlögum vegna bygginga á grundvelli jarðræktarlaga. Þá var ákveðið að Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðarráðherra og Jón Sigurðsson viðskiptaráð- herra he§i viðræður við þá við- skiptabanka og sparisjóði, sem loðdýrabændur eru í viðskiptum við, um möguleika á að veita bændum gjaldfrest á lausaskuld- um. Þessar aðgerðir eru hugsað- ar til að gera loðdýrabændum kleift að ljúka yfirstandandi fram- leiðsluári. Steingrímur sagði að einnig yrði rætt við Seðlabankann um hvernig hægt verði að leysa þau vandamál sem skapast hafa vegna áhvílandi afurðalána á óseldum skinnum. „Við ætlum að fá Byggðastofnun og Stofnlánadeild landbúnaðarins í lið með okkur, enda eiga þessir aðil- ar ríkra hagsmuna að gæta í þessu máli. Þannig á ég til dæmis von á að óskað verði eftir skýrslu frá Byggðastofnun um stöðu loðdýra- ræktarinnar og áhrif þess ef greinin hrynur og þá hvað sé hugsanlega hægt að gera í þeim efnum,“ sagði Steingrímur. Listasafh íslands starfrækir í sumar vinnustofu fyrir 5-12 ára I fara með leiðsögumanni um safnið, skoða verkin og fá að spreyta börn í tengslum við sýningu safhsins á landslagsverkum. Börnin | sig sjálf. Þessi drengur var að skoða eitt listaverkanna i gær. Hvalveiðar í vísindaskyni heijast 18. júní; Leikur í Listasafhi Morgunblaðið/Einar Falur - segir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra ÍSLENDINGAR munu veiða hvali í síðasta skipti í sumar, samkvæmt 4 ára vísindaáætlun Hafrannsóknarstofhunnar. Veiðarnar hefjast 18. júní og verða veiddar 82 langreyðar. Þeim var fækkað vegna tilmæla í ályktun um íslensku vísindaáætlunina, sem samþykkt var á fhndi Alþjóða hvalveiðiráðsins í San Diego í Bandaríkjunum. Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, segir að á næsta ári ætti að vera komið nokkuð gott heildarmat á helstu hvalastofna, sem íslendingar veiða. Hann segist bjartsýnni en áður á að samstaða Sorpmál í Kópavogi; Heilbrig-ðisráðherra Biður borgjna um fi-est GUÐMUNDUR Bjarnason heilbrigðisráðherra hefur ritað borgarsljórn bréf þar sem hann biður um að Kópavogsbæ sé veittur frekari frestur fram yfir 1. júlí til að urða sorp í Gufunesi. Guðmundur segir að hann geri þetta svo Hollustuvernd gefist frekari tími til rannsókna á því svæði, Leirdal, sem Kópavogsbær hefur í hyggju að nota til urðunar sorps í framtíðinni. Davíð Oddsson, borgarstjóri, segir að afstaða verði tekin til bréfs ráðherra á borgarráðsfundi á þriðjudag. „Það liggur ljóst fyrir að ítarlegri rannsókna á svæðinu er þörf, meðal annars þarf að kanna hugsanlega mengun grunnvatns á þessu svæði,“ sjjáír Guðmundur Bjarnason. „Grunnvatnsmengun gæti leitt til þess að neysluvatn Garðbæinga væri í hættu.“ Guðmundur segir að hann hafi ekki farið fram á neinar sérstakar tímasetningar hvað frestinn varðar, en vill að hann dugi til að Ijúka rann- sóknum á svæðinu í Leirdal. „Ég vona að þessari málaleitan verði vel teTSÖ. Annars þurfum við að leita annarra og erfiðari lausna í þessu máli,“ segir Guðmundur. Davíð Oddsson, borgarstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi, að ekki hefði verið tekin efnis- leg afstaða til þessa bréfs ráðherra. Það yrði gert á fundi borgarráðs næstkomandi þriðjudag. „Hins vegar er ekki víst að ráðuneytið viti, að það hefur tvisvar komið fram tillaga í bæjarstjórn Kópavogs, um að óska eftir því að fá afnot af sorphaugum Reykvíkinga að nýju. Sú tillaga var felld í bæði skiptin, þannig að það virðist ekki liggja fyrir viljayfirlýsing í þessa veru af hálfu Kópavogs," sagði Davíð Oddsson. náist um að leyfa hvalveiðar nýju, hugsanlega árið 1991. að Á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins fengu Islendingar því framgegnt, að vísindanefnd ráðsins mun gera úttekt á langreyðarstofninum, en það stóð ekki til. Vísindanefndin mun einnig taka hrefnustofninn út á næsta ári og leggja niðurstöður sínar fyrir ársfund ráðsins. íslenska sendinefndin á fundin- um í San Diego lagði fram skýrslu um áhrif hvalveiðibannsins á §öl- skyldur á Bijánslæk og Árskógs- strönd, sem höfðu viðurværi _af hrefnuveiðum. Segir Halldór Ás- grímsson, að þessu máli hafi verið sýndur mikill skilningnJ/ af aðilum sem ekki hefðu sýnt íslendingum velvilja fram að þessu. Þessu máli verði fylgt eftir á næsta fundi, en til þess að hrefnuveiðarnar geti hafist þyrftu atvinnuveiðar að verða leyfðar í einhveijum mæli þá. Ekki væri ljóst hvort það fengist fram. Talsmenn grænfriðunga segja, að róðurinn verði hertur gegn íslenskum afurðum til að mótmæla hvalveiðum í sumar og segir Ros Reeve, sem skipuleggur herferðina í Evrópu, að engu máli skipti þótt íslendingar segist ekki munu halda vísindaveiðum sínum áfram árið 1990. Telja grænfriðungar sig held- ur ekki hafa fengið nægilega vissu fyrir því að vísindaveiðunum verði hætt eftir þetta sumar. Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, segjst ekki skilja hugsunarhátt grænfriðunga, ætli þeir að herða aðgerðir sínar gegn Islendingum nú. Því hafi verið lýst yfir, að vísindaáætluninni ljúki í sumar og hertar aðgerðir nú hljóti að stafa af einhveijum illvilja. Sjá nánar fréttir á miðopnu. Heildarmati hvalastofiianna ætti að vera lokið á næsta ári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.