Morgunblaðið - 16.06.1989, Blaðsíða 30
' MORGUNBLABIÐ TOSTUDÁGUR 16.1 JÚNÍ 1989
lso..................
Stjömu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
-T*
Hœfileikar
Bogamannsins
I dag er röðin komin að hæfi-
leikum ogjákvæðum eiginleik-
um Bogmannsins (22. nóv. -
21. des.). Eins og áður er fyrst
og fremst fjallað um mögulega
hæfiieika, eða það sem býr í
merkinu en eigi að síður þarf
aðhlynningar við.
Fjölhœfur
Hæfileikar Bogmannsins eru
margir því hann er fjölhæfur
'og getur fengist við mötg og
ólík starfssvið með góðum ár-
angri. Það er því erfitt að festa
hann niður og segja að hann
hafi hæfíleika á einu afmörk-
uðum sviði öðrum fremur.
Enda er það svo með Bog-
manninn að sjálfur vill hann
ekki láta binda sig niður eða
takmarka um of við eitt ákveð-
ið svið. Framtíðin á að vera
óskrifað blað spennandi mögu-
leika! Eigi að síður standa
nokkrir málaflokkar uppúr
þegar hann er annars vegar.
Yfirsýn
Júpíter, sem m.a. er táknrænn
fyrir æðri hugsun, er stjóm-
..íandi Bogmannsins. Það tákn-
ar að hann hefur hæfíleika þar
sem hugsun og hugmynda-
vinna nýtur sín. Þegar talað
er um æðri hugsun er átt við
þann hæfíleika að tengja sam-
an ólík þekkingarbrot og
mynda eina samhangandi
heild. Hæfíleiki Bogmannsins
er sá að hann á frekar auð-
velt með að hafa yfírsýn yfir
heild hvers máls, að sjá hvað
tengist og hvað ekki. Það hef-
ur því verið sagt að Bogmað-
urinn hafi hæfíleika sem lög-
- •fræðingur og heimspekingur
eða almennt á sviði æðri
menntunar.
Hugmyndaríkur
Framangreindur hæfíleiki get-
ur nýst honum á mörgum öðr-
um sviðum en í lögfræði og
háskólamenntun. Bogmaður
sem fæst við viðskipti er hefur
t.d. hæfileika til að hafa yfír-
sýn
yfir markaðinn og sjá fyrir sér
nýja möguleika. Samfara
þessu er það að vera hug-
myndaríkur.
Ferðamál
Eitt af sígildari hæfileikasvið-
um Bogmannsins tengist
—ferðamálum, erlendum lönd-
um og tungumálum. Hæfíleiki
hans til að hafa yfírsýn nær
einnig til þess að skilja ólík
þjóðfélög, hugsunarhátt
manna af ólíkum uppruna og
að læra óíkar tungur. Tungu-
málahæfíleiki Bogmannsins
nýtur sín þó aðallega á staðn-
um sjálfum, þegar lifandi
tungumál er annars vegar.
JákvœÖ viðhorf
Einn helsti hæfíleiki Boga-
mannsins er fólginn í jákvæð-
um og opnum viðhorfum.
Hann er yfírleitt vakandi
gagnvart Iífinu og möguleik-
um þess. Hann er því frekar
fordómalítill og fljótur að sjá
"tækifæri þar sem aðrir sjá
ekkert.
Sveigjanleiki
Bogmaðurinn býr oft yfír
ákveðnum sveigjanleika, bæði
andlega og likamlega. Hann
er liðugur og því oft góður í
íþróttum, enda þarf hann einn-
ig
á líkamlegri útrás að halda.
Skjót ákvarðanataka
Meðal annarra eiginleika má
nefna að Bogmaðurinn býr
yfir snerpu og hefur hæfileika
• til að taka skjótar ákvarðanir.
Hann getur því starfað án
utanaðkomandi reglna og þar
sem öryggi er lítið. Hann nýt-
ur sín þar sem meira reynir á
skjót og sjálfstæð viðbrögð.
Bogmaðurinn þarf að vera
frjáls og hreyfanlegur og hef-
ur því hæfíleika til að takast
á við störf sem krefjast slíkra
eiginleika.
GARPUR
/■*< n ■ ■ ■"■ i n
uKt 1 1 IK
BRENDA STARR
í VATNSMÝRINNI
SMÁFÓLK
Þetta var fyrsti þáttur sinfóníunnar, herra ... nú leika Rétt eins og líf mitt... ég er í hæga kaflanum.
þeir hæga kaflann.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er sagt að laufkóngurinn
sé jafnan blankari en önnur spil,
en menn mega ekki láta hjátrúna
fæla sig frá bestu spilamennsk-
unni.
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♦ KD5
VG72
♦ 843
♦ ÁD106
Austur
éþ 73
Hllll VÁKD10954
111111 4 0105
+ 7
Suður
♦ ÁG10842
¥8
♦ ÁK
♦ G532
Vestur Norður Austur Suður
— — 4 hjörtu 4 spaðar
Pass 5 lauf Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
Útspil: hjartasexa.
Slemmutilboð norðurs er í
frekara lagi, því suður getur
verið að teygja sig nokkuð í
þessari stöðu. Enda er slemman
ekki nema tæplega 50%.
Austur á fyrsta slaginn og
spilar aftur hjarta. Sagnhafi
trompar og gerir sér grein fyrir
því að laufsvíning gefur bestu
líkurnar, en eftir hindrun aust-
urs gæti laufið hæglega legið
4—1. Hann ákveður því að rann-
saka leguna: tekur ÁK í tígli,
tvisvar spaða og trompar tígul.
Þá veit hann að austur á einung-
is eitt lauf.
Einspilið gæti verið kóngur-
inn, en ef það er 9, 8 eða 7
vinhst spilið með því að spila
laufgosanum út strax. Þá má
ráða við millispil vesturs. Það
er sem sagt þrisvar sinnum betra
að spila gosanum en leggja niður
ásinn, svo menn þurfa að vera
mjög hjatrúarfullir til að reyna
að fella kónginn.
Vestur
♦ 96
¥63
♦ D9762
♦ K984
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Spennan á heimsbikarmótinu í
Rotterdam jókst um allan helming
á þriðjudagskvöldið, þar sem
Short virðist eiga unna biðskák
gegn Karpov. *
Það hafa sézt margir grófir
afleikir á mótinu. Þessi staða kom
upp í skák þeirra Andrei Sok-
olov, Sovétríkjunum, sem hafði
hvítt og átti leik, og Lajos Port-
isch, Ungveijalandi. Svartur lék
síðast 35. - Rf6-d7??
36. Bxa6! (Þetta er með einfald-
ari tveggjaleikjafléttum sem bom-
ar hafa verið á borð fyrir lesendur
hér í skákhominu. 36. - Bxa6 er
auðvitað svarað með 37. Rd5+)
36. - Ba8 37. Bfl og eftir að
hafa unnið þetta mikilvæga peð
vann Sokolov endataflið án telj-
andi erfiðleika.
Staðan á mótinu eftir níu um-
ferðir var þannig:
1. Karpov 5 v. og biðskák af
7, 2-3. Timman og Nunn 5 v. af
8, 4. Vaganjan 5 v. af 9, 5. Salov
4h v. af 7, 6. Nogueiras 4 v. og
biðskák af 8, 7. Jusupov 4 v. og
biðskák af 9, 8. Sax 4 v. af 8,
9-10. Ehlvest og Short 34 v. og
biðskák af 8, 11. Sokolov 3Jt v.
af 7, 12. Seirawan 314 v. af 8, 13.
Van der Wiel % v. af 9, 14. Jó-
hann Hjartarson 2S4 v. af 8, 15.
Ljubojevic 2 v. af 7, 16. Portisch
K v. af 6.