Morgunblaðið - 16.06.1989, Síða 22

Morgunblaðið - 16.06.1989, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1989 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTiUÐAGUR 16, JÚNÍ 1989 23 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík HaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið. EFTA í nýju hlutverki Samskipti Fríverslunarbanda- lags Evrópu (EFTA) og Evr- ópubandalagsins (EB) hafa þró- ast örar á síðustu vikum en nokkru sinni fyrr. Þetta var stað- fest á fundum EFTA-landanna, sem efnt var til í Kristiansand í Noregi í byrjun þessarar viku. Þar kom í ljós, að EFTA er að breytast. Greinilega er að því stefnt að efla stofnanir þess til þess að þær séu betur í stakk búnar til að takast á við einstök úrlausnarefni í þágu aðildarríkj- anna. Meira að segja vottar fyrir hugmyndum um að EFTA verði að einhverju leyti yfirríkjastofn- un._ Ástæða er til að velta því fyr- ir sér, hvers vegna þessar breyt- ingar eru að verða. EFTA-ríkin hafa staðið frammi fyrir því að velja óbreytt ástand í samskipt- unum við Evrópubandalagið, sem þau telja ekki farsælt til fram- búðar, eða aðild að bandalaginu, sem er ekki á dagskrá í neinu landanna sex nema Austurríki. Við þessar aðstæður hafa EFTA-ríkin valið millileið eða þriðju leiðina, það er að semja sig eins nálægt EB og kostur er án þess að setja aðild að banda- laginu á oddinn. Hingað til hefur EFTA verið samtök fullvalda ríkja, sem hafa gert með sér samkomulag um fríverslun og ekki annað. EB hefur hins vegar frá upphafi ver- ið yfirríkjastofnun, þar sem meirihluti getur sagt minnihlut- anum fyrir verkum. Nú er EFTA að breytast úr samtökum ríkja í bandalag þar sem meirihluti get- ur í sérstökum umsömdum tilvik- um sagt minnihlutanum fyrir verkum. Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra segir, að ekki sé verið að koma á fót yfirríkjastofnun innan EFTA „heldur er hér um að ræða dóm- stól til þess að skera úr í ágrein- ingsmálum sem rísa út af samn- ingsskuldbindingum," eins og hann orðaði það í Morgunblaðs- samtali í gær og lýsti afstöðu ríkisstjórnarinnar með þessum hætti: „Við íslendingar erum til- búnir til að fallast á það enda mörg fordæmi fyrir því t.d. í sambandi við mannréttindadóm- stól Evrópu.“ Breytingarnar á EFTA hafa að sjálfsögðu haft nokkurn að- Hraganda. Þáttaskil urðu hins vegar á fundi forsætisráðherra Iandanna í Ósló í mars síðastliðn- um. Þar var breytt eðli EFTA endanlega staðfest. Á fundinum í Kristiansand voru teknar ákvarðanir um það hvernig sam- þykktunum í Ósló skyldi hrundið í framkvæmd. Frá og með 1. júlí kemur það í hlut Islendinga að veita EFTA pólitíska forystu og er krafa gerð til þess af hinum ríkjunum fimm að markaðri stefnu verði fylgt og skriðurinn minnki ekki. Sérfræðingar og embættismenn vinna að því inn- an EFTA að koma sér saman um sameiginlega afstöðu í ýms- um málum sem varða „frelsin fjögur“, það er frjálsan flutning á vörum, þjónustu, fjármagni og fólki. Hin sameiginlega niður- staða verður síðan rædd við full- trúa EB. Framkvæmdastjórn EB hefur ekki áhuga á hagsmunum einstakra EFTA-ríkja og telur að EFTA verði að tala með einni rödd til að árangur náist. Umræður um Evrópusam- starfið hafa verið töluverðar hér á landi undanfarna mánuði. Að loknum EFTA-fundinum í Ósló kom upp ágreiningur milli ráð- herranna sem hann sátu, þeirra Steingríms Hermannssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar, um það, hvort ísland hefði haft fyrirvara á samþykki sínu við lokaályktun fundarins. Um það hafa margir enn þokukenndar hugmyndir, andstaða forsætis- ráðherra við aðild að yfirríkja- stofnun var þó skýr. Umræðurnar um Evrópusam- starfið hafa hingað til borið þess merki að menn vildu átta sig á staðreyndum og vega þær og meta. Minna hefur borið á pólitískri stefnumótun og frum- kvæði. Stjórnvöld hafa fylgt EFTA-ríkjunum með einhvers konar fyrirvara og jafnframt leit- ast við að gæta fisksöluhags- muna okkar á mörkuðum Evr- ópubandalagsins. Hinn hraða þróun innan EFTA og pólitísk forysta okkar þar næstu sex mánuði krefst skýrari stefnumótunar. Þá þarf að leggja það fyrir þjóðina með mun skýr- ari hætti en gert hefur, hvað felst í breytingunum á því banda- lagi, sem, við eigum aðild að, EFTA. Finnist mönnum undan- brögð í upplýsingamiðlun skapar það aðeins tortryggni. Hér er um stærsta utanríkismál líðandi stundar og næstu ára að ræða. Við íslendingar verðum að gæta vel að okkur í þessum efn- um. Nú er rætt um að aðild- arríki EFTA taki á sumum svið- um á sig áþekkar skyldur og fylgja beinni aðild að Evrópu- bandalaginu. Áður en við tökum afstöðu til þess verður þjóðin að hafa undir höndum rækilegar upplýsingar um það hvað felst t.d. í frjálsum flutningi fjár- magns og vinnuafls milli landa. A Halldór Asgrímsson: Mögiilegt að hrefnuveið- ar verði leyfðar næsta ár HALLDÓR Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra segir að hugsanlega verði hægt að veiða hrefnu í atvinnuskyni þegar á næsta ári. „Tæknilega ætti ekkert að vera í vegi fyrir því að ráðið heimili hrefnuveiðar þá þegar, en ég hef þó efasemdir um að það takist. En ég er mun bjart- sýnni nú en ég hef verið áður á að samstaða náist um að leyfa hvalveið- ar að nýju, hugsanlega árið 1991,“ sagði Halldór á fréttamannafundi í gær. Vísindanefnd Alþjóðahvalveiði- ráðsins mun taka hrefnustofninn út á næsta ári og leggja niðurstöður sínar fyrir ársfund ráðsins. Ekki stóð til að vísindanefnd hvalveiðiráðsins gerði heildarúttekt á langreyðastofn- inum en íslendingar fengu því fram- gengt að nefndin mun halda auka- fund um langreyðastofninn haustið 1990 og hafa íslensk stjórnvöld boð- ist til að halda fundinn. „Þá ætti að vera komið nokkuð gott heildarmat á helstu stofnum okkar árið 1990. Þar mun að vísu vanta upp á sandreyði, meðal annars vegna þess að staðið hefur á gögnum hjá okkur. Við vonumst eftir að fá þau gögn í talningaleiðangrinum í sumar,“ sagði Halldór. í sumar verða taldir hvalir á Norð- ur-Atlantshafi af 15 bátum og úr tveimur flugvélum. Af íslands hálfu verður aðaláhersla lögð á sandreyði. íslenska sendinefndin á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem nú stendur yfir í San Diego í Banda- ríkjunum, lagði fram skýrslu um áhrif hvalveiðibannsins á fjölskyldur á Bijánslæk og Árskógsströnd sem höfðu viðurværi af hrefnuveiðum. „Það var mikill skilningur á þessu máli frá aðilum sem ekki hafa sýnt okkur sérstakan velvilja fram að þessu. Við munum fylgja þessu máli eftir, en til að þessar veiðar geti hafist aftur þurfa atvinnuveiðar að verða leyfðar í einhveijum mæli á næsta fundi og það er erfitt að segja til um hvort það fæst,“ sagði Halldór. Japanir óskuðu eftir því á fundin- um í San Diego, að íbúar strand- héraða fengju að veiða 325 hrefnur í atvinnuskyni á þessu ári á þeim forsendum að hvalveiðibannið hefði valdið þessu fólki miklum efnahags- legum og þjóðfélagslegum erfiðleik- um. Þessi ósk hafði ekki verið tekin fyrir, en Halldór sagði ólíklegt að við þessu yrði orðið. Málefni íslensku hrefnuveiðimannanna hefði mætt meiri skilningi en þeirra japönsku. íslendingar munu veiða hvali í vísindaskyni í síðasta skipti í sumar, samkvæmt 4 ára vísindaáætlun Ha- frannsóknarstofnunar. Veiðarnar heíjast 18. júní og verða veiddar 68 langreyðar. Samkvæmt vísindaáætl- uninni átti að veiða 80 langreyðar en þeim var fækkað eftir tilmæli í ályktun sem samþykkt var á fundi hvalveiðiráðsins um íslensku vísindaáætlunina „Við leyfðum okkur raunar að vona að ekki yrði flutt tillaga um áætlunina að þessu sinni; það var eindreginn vilji Bandaríkjamanna, sem eru raunar upphafsmenn þess- ara ályktunartillagna," sagði Hall- dór. Hann sagði þó mikilvægt að í til- lögunni hefði komið fram viðurkenn- ing á starfi íslendinga, og það hefði ekki gerst áður. „Það er ekki síst vegna þess að Bandaríkjamenn telja mjög vel staðið að málum, en þeir eru mjög ráðandi innan hvalveiðiráðsins. Formaður bandarísku sendinefndarinnar, Bill Evans, tók_ til máls á fundinum til að hrósa íslendingum sérstaklega. Það er ekkert létt fyrir þá að gera slíkar skoðanir opinberar, því þeir eru undir miklum þrýstingi umhverf- isvemdarmanna, og þeir eiga skilið hrós fyrir að standa upp og segja það sem þeir meina,“ sagði Halldór. Umhverfísverndarsinnar voru mjög reiðir eftir að tillagan var sam- þykkt. „Við skömmumst okkar fyrir, að Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að styðja hvalveiðar á fyrsta fundi hvalveiðiráðsins í Bandaríkjunum í tvo áratugi," sagði Patricia Forkan hjá Humane Society á blaðamanna- fundi í San Diego. Campbell Plowden, sem stjórnar herferð Grænfriðunga gegn Islend- ingum í Bandaríkjunum, sakaði Bandaríkjastjórn um að reyna að komast hjá því að beita íslendinga viðskiptaþvingunum. Grænfriðungar höfðuðu mál gegn Bandaríkjastjóm í fyrra fyrir að hafa gert samkomulag við íslendinga um að beita ekki viðskiptaþvingunum vegna hvalveiðanna síðastliðið sum- ar. „Þetta er fáranleg afstöðubreyt- ing því áður voru rannsóknir íslend- inga fordæmdar fyrir ótrúverðug- leika,“ sagði Plowden. Halldór sagði að íslendingar og Bandaríkjamenn hefðu átt ýtarlegar óformlegar viðræður um þessi mál undanfama daga og mjög gott and- rúmsloft hefði ríkt í þeim viðræðum. Þegar hann var spurður hvort það hefði ekki einnig verið mikilvægt fyrir Bandaríkjamenn vegna mál- sóknarinnar, að hvalveiðiráðið viður- kenndi vísindarannsóknir Islands, sagði hann ljóst, að málaferlin væm hluti af málinu öllu. „Við höfum staðið við okkar hluta Morgunblaðid/Bjarni Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra á blaðamannafiindi í gær. af samkomulaginu við Bandaríkja- menn, sem er að sjálfsögðu mikil- vægt fyrir málaferlin," sagði Halldór. Hann sagði að röksemdir Banda- ríkjamanna hefðu meðal annars vald- ið því að ekki verða veiddir þeir hval- ir í sumar sem vísindanefndin gerir ráð fyrir. Þeir hafi m.a. bent á að þýðingarlítið væri að veiða sandreyð og það hel'ðu íslendingar viðurkennt. „Okkar vísindamenn leggja lítið upp úr því að ná sýnum úr sandreyðinni að svo stöddu, enda mistókst talning á henni árið 1987,“ sagði Halldór Ásgrímsson. Grænfriðungar: Róðurinn hertur gegn Islendingum Grænfriðungar segjast ætla að herða róðurinn gegn íslenskum afurðuni til að mótmæla hval- veiðum íslendinga i sumar. Ros Reeve sem skipuleggur herferð grænfriðunga Evrópu segir það ekki skipta máli þótt Halldór Ásgrímsson sjvarútvegsráðherra hafí lýst því yfir að engar vísinda- veiðar verði árið 1990 og engin áform séu um frekari vísinda- veiðar. „Við sjáum enga möguleika á að hætta herferðinni á meðan hvalir verða veiddir í sumar. íslendingar voru beðnir um að endurskoða fyrir- hugaðar veiðar á langreyð, og þeir ákváðu að fækka dýrunum sem veidd verða úr 80 í 68. Við lítum hins vegar svo á að hvalveiðiráðið hafi beðið íslendinga um að hætta við veiðarnar og þannig litu sumir flutningsmenn tillögunnar einnig á málið, svo sem Bretar og Hollend- ingar," sagði Ros Reeve við Morg- unblaðið. „Ef að Grænfriðungar ætla núna að fara að herða sínar aðgerðir gegn íslendingum þá veit ég ekki hvernig þeir hugsa,“ sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra við Morgunblaðið. „Við höfum lýst því yfir að við munum ljúka þess- ari áætlun í sumar og á sama tíma ætla þeir að herða aðgerðir gegn okkur. Slíkt hlýtur að byggjast á einhveijum illvilja og það kemur væntanlega í bakið á þeim ef þeir beita sér með þessum hætti.“ Grænfriðungar telja sig raunar ekki hafa fengið nægilega vissu fyrir því að vísindaveiðum verði hætt eftir þetta sumar. Ros Reeve benti á ummæli Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra í blaðaviðtali að íslendingar myndu aldrei hætta hvalveiðum þótt rigni eldi og brennisteini. Einnig benti hún á, að vísindanefnd Alþjóðahval- veiðiráðsins ætlaði ekki að gera heildarúttekt á langreyðastofninum fyrr en haustið 1990 og íslendingar hefðu tíma til að stunda vísindaveið- ar þá um sumarið. „Við höfum lýst því yfír að við munum ekki veiða hvali í vísinda- skyni á næsta ári, höfum engar áætlanir um að gera það síðar, en okkar stefna er að taka upp at- vinnuveiðar að nýju svo fljótt sem ákvarðanir hvalveiðiráðsins liggja fyrir," sagði Halldór Ásgrímsson á blaðamannafundi í gær. Breyting á hreyflum Boeing 737 - 400: Hefiir engiii áhrif á flug*- tíma í millilandaflugi Fyrri vélin fór utan 1 nótt til breytinganna BREYTINGAR þær, sem bandaríska flugmálasljórnin hefiir krafíst að gerðar verði á hreyflum Boeing 737 - 400 flugvéla, munu ekki hafa áhrif á flugtíma vélanna í áætlunar- eða leiguflugi til og frá Islandi, að sögn Einars Sigurðssonar blaðafulltrúa Flugleiða. Þá mun öryggi farþega og vélar vera jafntryggt, þrátt fyrir að afl hreyflanna verði minnkað. Flugvélin mun eftir sem áður geta flogið fullhlaðin á öðrum hreyflinum og langdrægi skerðist ekki. Einar segir að eini munurinn í daglegum rekstri verði sá, að ekki verður hægt að hlaða vélarnar til fulls við flugtak frá tveimur flugvöll- um, í Osló og Salzburg. Breyt- ingamar verða gerðar á vegum framleiðanda hreyflanna og fór fyrri vélin, Eydis, til Briissel í nótt, þar sem verkið verður unnið í dag og á vélin að vera komin í gagnið á ný á morgun, laugardag. í dag er fulltrúi Flugleiða í London á fundi með fulltrúum annarra hlutaðeig- andi flugfélaga og hreyfilfram- leiðandans um skiptingu kostn- aðar vegna hreyfílbreyting- anna. Bandaríska flugmálastjómin, FAA, hefur sett þau skilyrði fyrir áframhaldandi notkun Boeing 737 - 400 flugvéla með hreyfla af gerðinni CFM 56 - 3C - 1 að hreyflunum verði breytt í aðra undirgerð sem kallast CFM 56- -3B - 2. Skipt er um fremstu hverfilblöð og disk sem þau festast í, þá er aflgjöf hreyf- ilsins stillt þannig að hámarksk- nýr hans minnkar úr 23.500 pund- um í 22.000 pund. í frétt frá Flugleiðum segir svo um þessar breytingar: „Hreyfl- arnir tveir sem hér um ræðir, B2 og Cl, eru í raun undirgerðir sama hreyfils og eru hér um bil eins að allri gerð. Báðar undirgerðirn- ar henta vel Boeing 737 - 400 flugvélunum. Munurinn er nánast eingöngu í fremstu hreyfilblöðun- um. CFM 56 - 3B - 2 hreyfl- arnir hafa reynst einstaklega traust tæki. Þegar er búið að fljúga B2 hreyflinum í meira en 6 milljón stundir án teljandi óhappa. Rekstraröryggi hans hef- ur verið meira en nokkurs annars þotuhreyfils á farþegaflugvélum. Þessi undirgerð hreyfilsins er einnig notuð á Boeing 737 - 300 flugvélar og hluta 737 - 400 flugvéla sem nú eru í rekstri. Á þessu rekstraröryggi B2 undir- gerðarinnar byggðist einnig trú manna á C1 hreyflinum, sem ex- nokkuð öflugri. Ekki er enn ljóst hvað fór úrskeiðis í bresku far- þegaþotunum tveimur sem lentu í Bretlandi um síðustu helgi með annan C1 hreyfilinn bilaðan. Á meðan rannsókn á því fer fram verður öllum 737 - 400 flugvél- um flogið með B2 gerðina af hreyflinum.“ Samkvæmt upplýsingum frá Flugleiðum skerðist flutningsgeta flugvélanna einungis í þeim tilvik- um, þegar flogið er frá flugvöllun- um í Osló og Salzburg. Að öðru leyti á breytingin ekki að hafa áhrif og flugöryggi á að vera óskert. Flugvélarnar eiga að geta náð til næsta flugvallar á öðruiíl hreyflinum, hvar sem þær eru staddar á leiðinni og þótt þær hafi farið fuilhlaðnar af stað. Þó lækkar flughæð þeirra á öðrum hreyfli um allt að tvö þúsund fet, í um 14 þúsund fet. Fyrri flugvélin, sem fer í hreyf- ilbreytingu, Eydís, fór til Brússel klukkan 03.30 í nótt og var vænt- anleg þangað klukkan 06.30 í morgun. í dag á að vinna við hreyflana og munu flugvirkjar flugfélagsins Sabena vinna það' verk. Lagt er allt kapp á af hálfu Flugleiða að vélar félagsins verði meðal þeirra fyrstu sem hreyflun- um verður breytt á. Ástæða þess er sú, að þessar tvær flugvélar eru hátt hlutfall af flugflota fé- lagsins og veldur stöðvun þeirra því meiri röskun hjá Flugleiðum en hjá öðrum 'stærri flugfélögum. Að sögn Einars Sigurðssonar eru góðar vonir taldar um að þetta takist, en þó er ekki enn ljóst hvenær síðari vélin fer til breyt- inganna. Frelsi í atvinmimáliim og einræði fer ekki saman Rætt við Milton Friedman hagfræðing um atburðina í Kína VIÐTAL: HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Nú er það lýðum ljóst, sem frjálslyndir hagfræðingar eins og von Mises og Hayek sögðu fyrir um í byrjun þriðja áratugs, að kommún- ismi gengur ekki upp. I Ráðstjómarríkjunum reynir Míkhaíl Gorb- atsjov að blása nýju lífi í hrörnandi hagkerfi biðraða og vöruskorts, sóunar og skeytingarleysis um móður náttúru. I Póllandi hafa komm- únistar misst tökin: flokkur þeirra er fylgislaus, en ríkið svo háð vestrænum lánadrottnum, að þeir þora ekki að beita byssustingjun- um. Og Kínveijum tókst þá fyrst að metta alla munna sína, er sam- yrkjubúskap var hætt og jarðnæði skipt á milli bænda. Þeir horfa öfundaraugum yfir til Tævan og Hong Kong, þar sem menn af sama bergi brotnir hafa komist úr fátækt í bjargálnir. En síðustu vikur hafa mikil tíðindi verið að gerast í Kína. Mér fannst tilvalið að tala um ástandið þar við einn kunnasta hagfræðing okkar daga, Milton Friedman, en hann var nýlega í Kína og ræddi þá við ráðamenn. Við hittumst á skrifstofu Fried- mans í Hoover-stofnuninni í Stan- ford-háskóla í Kaliforníu. Friedman hefur verið í þessari stofnun, frá því að hann lét af prófessorsemb- ætti í Chicago-háskóla fyrir aldurs sakir 1977, en ég er hins vegar við rannsóknir þar í tengslum við fyrir- hugað 22ja binda ritsafn Hayeks. Eftir stutt spjall gengum við út í sólina áleiðis til matstofu kennara í Stanford í öðru horni háskóla- hverfisins, þar sem við fengum okk- ur hádegisverð. Friedman var sem endranær í ágætu skapi, síhugs- andi, fullur af áhuga á gátum tilver- unnar. Með okkur í för var mágur hans, bróðir Rose Friedmans, Aaron Director, sem einnig hafði verið prófessor í Chicago-háskóla. Undir virðulegum pálmatijám, j sem hneigðu sig lítillega fyrir okkur og öðrum vegfarendum í mildri gol- unni, tókum við upp léttara hjal. Director sagði, að hann kynni illa við síma og önnur galdratæki tutt- ugustu aldar. Eftirlætistími sinn væri átjánda öld. Hvers vegna? — spurði ég. „Þessi öld ól bæði Davíð Hume og Adam Smith,“ sVaraði Director. „Hver gerir betur?“ Fried- man bætti við: „Og dr. Johnson!" Ég sagði þeim þá frá því, er dr. Johnson hreykti sér af því við ævi- söguritara sinn, Boswell, að hann kynni heilan kafla í bók utan að. Við eftirgrennslan kom í ljós, að kaflinn var í íslandslýsingu Horrebows og nefndist „Um jsnáka á íslandi". Hann var ákaflega; stutt- ur: „Engir snákar eru til á íslaiidi!" Hræðsla við verðbólgu Þegar við vorum sestir að snæð- ingi, vék sögunni austur til Kína- veldis. „Ég er í litlum vafa um það,“ sagði Friedman, „að átökin á Torgi hins himneska friðar í Peking má að nokkru leyti rekja aftur til síðustu stjórnarára, Chang Kai Cheks eftir stríð. Þá geisaði óða- verðbólga í Kína, og varð hún Chang að lokum að falli. Með þjóð- um, sem þekkja óðaverðbólgu af eigin raun, ætlar allt um koll að keyra, ef verðbólga er talin vera að aukast óhóflega. Margt hefur verið skynsamlegt í umbótum kínversku stjómarinnar síðasta ára- tug. Hún losaði víða um, dreifði valdinu, hætti samyrkjubúskap. En fastar reglur skorti um útgáfu pen- inga. Hvert einstakt hérað fékk sjálfdæmi um fjárfestingar án þess að hafa markaðsverð við að styðj- ast, en Þjóðbankanum var síðan gert að útvega fé. Við þetta mynd- aðist peningaþensla, sem hleypti af stað verðbólgu. Deilurnar innan kommúnistaflokksins snerust ekki síst um það, hvernig bregðast skyldi við henni. íhaldsmenn vilja verð- stöðvun, en umbótasinnar eru því andvígir." Milton Friedman Hin blóðugu átök á Torgi hins himneska friðar og annars staðar í landinu snerust þó ekki um verð- stöðvun? spurði ég forviða. „Auðvit- að ekki,“ svaraði Friedman. „Stúd- entar og háskólakennarar voru vita- skuld óánægðir með stjórnarfarið og létu það í Ijós með hinum hörmu- legu afíeiðingum, sem við höfum séð á sjónvarpsskjánum. En hver er undirrót óánægju þeirra? Síðustu misseri hefur verðbólga í Kínaveldi verið um 15% samkvæmt opin- berum tölum og líklega í raun og veru nær 20%. Þetta hefur einkum bitnað á launafólki og stúdentum, sem horfa á námsstyrki sína sífellt minnka. Bændur hafa á hinn bóginn notið tiltölulega góðra lífskjara, enda er verðlag á landbúnaðarvör- um að miklu leyti frjálst. Mennta- menn hafa þannig verið óánægðir án þess að gera sér ef til vill fulla grein fyrir ástæðunni. Við þurfum að gera greinarmun á því, sem rek- ur menn út á torg, og hinu, sem þeir segja, þegar þangað er kom- ið.“ Friedman bætti við: „Það er líka augljóst, að einhveijir úr innsta hring kommúnistaflokksins hafa stutt stúdenta beint eða óbeint, ella hefði verið látið fyrr til skarar skríða. Mótmælaaðgerðirnar hefðu tæplega orðið eins umfangsmiklar, hefðu stúdentar ekki talið sig hafa einhveija von um áheyrn.“ Okkur Friedman kom saman um, að erfitt væri eða ókleift að átta sig a'því, hvað væri að gerast í innsta hring kommúnistaflokksins. En mér varð hugsað til þess undir borðum, að alltaf endurtekur sagan sig. Um síðustu aldamót stóðu mikl- ar deilur í Kínaveldi á milli þeirra, sem vildu fara sömu leið og Japan- ir (og síðar Tyrkir) beint inn í hinn vestræna nútíma, og hinna, sem vildu sitja kyrrir í lokuðu landi. Ekki hætta á miðri leið Þar eð ég vissi, að Friedman hafði hitt þáverandi aðalritara kommúnistaflokksins, Zhao Ziy- ang, að máli síðastliðið haust, eftir að Friedman hafði flutt erindi á ráðstefnu í Shanghai, spurði ég hann, hvemig honum hefði litist á Zhao. „Hann kom mér fyrir sjónir sem greindur og glöggur maður, sem skildi mæta vel, að Kínveijar yrðu að virkja markaðsöflin, ættu þeir ekki að dragast lengra aftur úr öðrum þjóðum,“ svaraði Fried- man. „Stefnuskrá hans virtist vera fólgin í því tvennu að láta markað- söflin sjá um hagkerfið, en komm- únistaflokkinn um stjórn ríkisins.“ Friedman kvaðst hafa sagt Zhao, að Kínveijar gætu ekki gert sér vonir um mikinn varanlegan árang- ur, ef þeir hættu á miðri leið. Um- bætur í Júgóslavíu hefðu einmitt strandað á því, að stjórnin hefði ekki treyst sér til að leyfa fijálsan fjármagnsmarkað, einkaeign á framleiðslutækjum og fyrirtækjum annars vegar og fijálsa verslun með þetta hins vegar. En fijáls fjár- magnsmarkaður — þrotlaus endur- skipulagning framleiðslunnar, sífelld tilfærsla fjármagns til þeirra, sem kunna best með það að fara, næg tækifæri fyrir fædda athafna- menn til að ögra gömlum kreddum væri lífsnauðsynlegur. Menn gætu vissulega reynt að skipa forstjórum opinberra fyrirtækja að haga sér eins og kapítalistar, en það væri líkast því að ætla sér að breyta ösnum í sebradýr með því að mála á þá rendur! „Flestir skilja líklega nú á dögum,“ sagði Friedman, „að frjáls verðmyndun er eina færa leið- in á milli framleiðslu og neyslu, eina ráðið til að stilla saman sparnað og fjárfestingu. En hitt vefst fyrir mörgum, að fjármagnið, hvort sem það er Iand fyrir bændur, verksmiðj- ur, vinnuvélar eða fyrirtæki, verðS^ líka að vera í einkaeign." Friedman minnti líka á, að frelsi í atvinnumálum og einræði í stjórn- málum hlyti að lokum að vera ósam- rýmanlegt. „Hvernig getur til lengdar farið saman að stjórna hag- kerfinu að neðan, en ríkinu að of- an?“ spurði hann. En hann kvaðst ekki vita meira en aðrir um það, sem framtíðin bæri í skauti sér fyr- ir Kínveija. Svo virtist sem Zhao hefði tapað baráttunni við aðra leið- toga kommúnistaflokksins um völd- in. Hið eina, sem unnt væri að segja með vissu væri að nú myndi snar- fjölga þeim íbúum Hong Kong, sem reyna myndu að sleppa þaðan útv áður en nýlendan félli í hendur Kínveija 1997. Við risum frá borðum og héldum út í bjarta Kaliforníusólina. Á leið- inni á Hoover-stofnuninna röbbuð- um við þrír um bók eftir heims- þekktan rússneskan stærðfræðing og andófsmann, Igor Shafarevitsj, The Socialist Phenomenon eða Sameignarfyrírbærið, en þar er reynt að skýra þessa heimsplágu sögulegri og heimspekilegri skýr- ingu. Friedman þótti mikið til bók- arinnar koma. En þegar ég leit yfir þennan sólríka, friðsæla blett T Kaliforníu og hugsaði síðan til ástandsins í Kína, áttaði ég mig betur en áður á því, hversu því fer ijarri, að við getum gengið að öllu því vísu, sem Islendingar telja eins sjálfsagt og andrúmsloftið — al- mennum mannréttindum, atvinnu- frelsi og einkaframtaki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.