Morgunblaðið - 16.06.1989, Side 20

Morgunblaðið - 16.06.1989, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1989 Svíþjóð; Ekkja Palme kveðst ætla að mæta til vitnaleiðslu VERJANDI Christers Pettersons, sem ákærður hefur verið fyrir morð- ið á Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagðist í gær myndu krefl- ast þess að Petterson yrði leystur úr haldi kæmi Lisbet Palme, ekkja forsætisráðherrans, ekki til vitnaleiðslu. Lisbet Palme tilkynnti síðar að hún myndi bera vitni fyrir réttinum á mánudag, að sögn Kristínar Valdimarsdóttur, sem hefiir verið viðstödd réttarhöldin yfir Petterson. Reuters-fréttastofan greindi frá því að veijandi Pettersöns, Arne Christer Pettersson. Liljeros, hefði krafist þess að Lisbet Palme kæmi til vitnaleiðslu sem fyrst, þar sem vitnisburður hennar gæti skorið úr um hvort hinn ákærði ætti að vera áfram í haldi. Lisbet Palme er lykilvitni ákæruvaldsins í réttarhöldunum yfir Petterson, sem sakaður er um að hafa skotið Palme í bakið 28. febrúar 1986 er hjónin voru á heimleið frá kvikmyndahúsi. Hún mætti hins vegar ekki til vitna- leiðslu á miðvikudag eins og henni var gert að gera, þrátt fyrir rétturinn hefði fallist á flest skilyrði hennar, meðal annars að Petterson yrði ekki viðstaddur og að hljóðritanir og út- sendingar fjölmiðla yrðu bannaðar á nieðan hún bæri vitni. Hún hafði einnig krafist þess að vitnaleiðslan færi fram fyrir luktum dyrum, en ekki var vitað í gær hvort hún hefði fallið frá þeirri kröfu. Ákæruvaldið hefur mjög átt í vök að veijast í réttarhöldunum. Talið var að þijú vitni myndu hnekkja fjar- vistarsönnun Pettersons, sanna að Búlgörsk stjómvöld hafa krafíst þess að innflyljendur af tyrkneskum ættum, sem eru um ein og hálf millj- ón talsins, lagi sig að siðum og menn- ingu búlgörsku þjóðarinnar. Emb- ættismaðurinn sagði að fjölmargir Tyrkir hefðu særst í andófsaðgerðum og að í það minnsta 20.000 flótta- menn hefðu flúið yfir landamærin til Tyrklands. Búlgarar segja að Tyrk- imir hafi flúið vegna áróðurs gegn hann hefði getað orðið sér úti um skammbyssu og verið fullur haturs í garð Palme. Öll þessi vitni hafa hins vegar breytt framburði sín'um Petterson í vil. Ennfremur hafði fjórða vitnið, 34 ára kona, neitað að hafa verið á skemmtistað með Pett- erson kvöldið sem morðið var fram- ið, eins og Petterson hefur haldið fram, en við vitnaleiðslur í gær kvaðst hún ekki muna hvort svo hafi verið. Hún viðurkenndnað minni sitt gæti hafa brugðist vegna áfeng- is- og amfetamínsneyslu hennar umrætt kvöld. Annað vitni, sem kom fyrir réttinn í gær, áréttaði að hann hefði ekki séð Petterson á skemmti- staðnum umrætt kvöld. Fyrrum unn- usta hins ákærða sagði að hann hefði verið bamgóður og viljað bæta ráð sitt, en verið árásargjarn undir áhrif- um áfengis. Reuter Fallnir meskhetar, sem hópar Úzbeka myrtu í síðustu viku, voru í gær lagðir í íjöldagröf í Sovétlýðveldinu Úzbekístan. Embættismenn tóku þátt í blóðbaðinu í Uzbekistan 50 Tyrkir sagðir hafa verið myrtir í Búlgaríu Nikosíu. Reuter. HÁTTSETTUR embættismaður í tyrkneska utanríkisráðuneytinu hélt því fram í gær að búlgarska leyniþjónustan hefði myrt að minnsta kosti 50 innflytjendur af tyrkneskum ættum síðan úlfiið reis á milli tyrkneska þjóðarbrotsins og búlgarskra stjórnvalda í maíbyijun. Turg- ut Ozal, forsætisráðherra Tyrklands, hvetur til þess að Búlgaríustjórn og Tyrkir ræði flóttamannastrauminn frá Búlgariu ásamt fúlltrúum Sameinuðu þjóðanna. - segir forsætisráðherra Sovétríkjanna Moskvu. Reuter. NIKOLAJ Ryzhkov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, sagði í gær að fúlljóst væri að embættismenn sovéska kommúnistaflokksins hefðu tek- ið þátt í ofsóknum gegn meskhetum, minnihlutahópi sem er af tyrk- nesku bergi brotinn, í Sovétlýðveldinu Úzbekístan. Sovéskir fjöliniðlar skýrðu frá því að lík 93 manna hefðu fúndist en átökin blossuðu upp í síðustu viku er hópar Úzbeka Iétu til skarkr skríða gegn meskhetum og myrtu íjölda þeirra á hinn hroðalegasta hátt. Sovéski forsætisráð- herrann kvaðst aldrei áður hafa orðið vitni að öðrum eins óhugnaði. Um 12.000 manna herlið innanríkisráðuneytisins hefúr frá því um síðustu helgi haldið uppi eftirliti í lýðveldinu og fjökli manns hefúr búlgörskum stjómvöldum. Rauf Denktash, leiðtogi Kýpur- Tyrkja, sagði í gær að allt að 30.000 Tyrkir frá Búlgaríu gætu sest að í hinni yfirgefnu borg Kýpur-Grikkja, Varosha. Borgin var hluti hinnar grísk-kýpversku hafnarborgar Fa- magusta. 1974 flúðu íbúar borgar- hlutans, um 40.000 manns, undan innrásarheijum Tyrkja sem lögðu undir sig þriðjung eyjunnar. verið handtekinn. Ryzhkov ávarpaði miðstjórn kommúnistaflokksins í bænum Andízhan í Fergana-dalnum í Úz- bekístan í gær og fordæmdi harðlega þá staðreynd að embættismenn flokksins hefðu tekið þátt í fjölda- morðunum. Illvirkin voru flest framin í Fergana-dalnum og eru flestir þeirra 93 sem vitað er að féllu mesk- hetar ef marka má fréttir sovéskra fjölmiðla. „Ég hefi séð ýmislegt um dagana en aldrei neitt líkt því sem ég sá í flóttamannabúðum mesk- heta,“ hafði Moskvuútvarpið eftir sovéska forsætisráðherranum. Um 15.000 meskhetar hafa flúið Ferg- ana-dalinn af ótta við frekari ofsókn- ir Úzbeka sem eru af trúflokki shíta- múslima. Meskhetar teljast á hinn bóginn til sunní-múslima og þykir enginn vafi leika á því að blóðbaðið megi rekja til ofstækismanna í röðum Úzbeka. Sjónarvottar segja að engin orð fái lýst grimmd og hatri þeirra sem fóru fyrir flokkum illvirkjanna. Sovéskir fjölmiðlar hafa sagt að blóð- ugum átökum Azera og Armena á síðasta ári verði engan veginn líkt við fjöldamorðin í Fergana-dalnum. Fjölmargir sjónarvottar hafa full- yrt að illvirkjunum hafi verið greitt fyrir að vinna ódæðisverkin en þær fréttir hafa ekki fengist staðfestar. Ryzhkov forsætisráðherra sagði hins vegar í ávarpi sínu að ótilgreindir aðilar hefðu látið fjöldamorðingjun- um í tjé vodka, bensín og ökutæki. Forsætisráðherrann sagði að við- búnaður yfirvalda í lýðveldinu hefði greinilega verið öldungis ófullnægj- andi og gagnrýndi forustumenn flokksins harðlega. Dagblaðið 'íz- vestíja sagði mikla spennu hafa ein- kennt fund Ryzkhovs og ráðamanna í Úzbekístan. Sovéskir blaðamenn í lýðveldinu sögðu í samtali við frétta- mann Reufers-fréttastofunnar að „Eining" (Bírlík), þjóðemishreyfing Úzbeka, hefði lagt sitt af mörkum til að auka á spennuna í Iýðveldinu að undanförnu með því að krefjast þess að tunga Úzbeka yrði gerð að opinberu máli lýðveldisins. Sögðu þeir hreyfmgu þessa minna um margt á samtök þjóðemissinna í Eystrasaltsríkjunum og kváðu sjálf- stæði til handa Úzbekum vera eitt af helstu baráttumálum hennar. Utför Imres Nagys, fyrrum forsætisráðherra Ungverjalands: Táknræn fyrir gjaldþrot hins kommúníska kerfís Búdapest. Reuter. IMRE Nagy, fyrrum forsætisráðherra Ungvetjalands, verður borinn til grafar í dag öðru sinni og nú með þeirri virðingu, sem þjóðarleið- toga sæmir. Segist fyrrum blaðafúlltrúi Nagys fúrða sig á þeim miklu umskiptum, sem orðið hafi á afstöðu stjórnvalda til þessa manns, sem enn getur komið róti á tilfinningalíf þjóðarinnar, 31 ári eftir að hann var tekinn af lífi. Þegar hersveitir Varsjárbanda- lagsins höfðu bælt niður uppreisn- ina í Ungveijalandi var Nagy dæmdur og hengdur sem landráða- maður og var mesta sök hans sú að hafa sagt Ungveija úr Varsjár- bandalaginu. Nú verður hans minnst sem mikils stjómmála- og umbótamanns, sem dæmdur hafi verið í sýndarréttarhöldum. Miklos Vasarhelyi, blaðafulltrúi Nagys og sá eini, sem-lifði réttarhöldin af og býr enn í Ungveijalandi, segir, að ungverska kommúnistaflokknum hafi loks skilist „af póiitískum, efnahagslegum og siðferðilegum ástæðum", að hann yrði að breyt- ast. „Frá þeirri stundu, sem ég kom úr fangelsi, sagði ég bömunum mínum, að Nagy yrði endurreistur en samt er ég hissa. Fyrir aðeins ári virtist þetta óhugsandi. Megin- ástæðan er hins vegar algert hrun og gjaldþrot þessa kerfis," sagði Vasarhelyi í viðtali við fréttamann Reuters. Vasarhelyi, sem er 71 árs að aldri og sagnfræðingur að mennt, á sæti í nefnd, sem skipulagt hefur útför Nagys og fjögurra samstarfs- manna hans og við útförina I dag mun hann flytja ávarp á Hetjutorg- inu í Búdapest. Þá er Vasarhelyi einnig frammámaður í Samtökum fijálsra demókrata, einum þeirra stjómmálaflokka, sem nú hafa litið dagsins ljós í Ungveijalandi. Vasarhelyi var ásamt Imre Nagy einn af stofnendum ungverska kommúnistaflokksins og var tals- maður ríkisstjómarinnar í fyrri for- sætisráðherratíð Nagys, 1953-55. Hann tók aftur við því embætti snemma í nóvember 1956, rétt áður en skriðdrekar Varsjárbanda- Ungveijar börðust hetjulega en máttu sín lítils gegn skriðdrek- um Varsjárbandalagsins. lagsins réðust inn í Búdapest. Þegar uppreisninni hafði verið drekkt í blóði var Vasarhelyi flutt- ur til Rúmeníu ásamt Nagy og þar var hann hafður í einangrun í 14 mánuði. Var síðan efnt til réttar- Pal Maleter halda yfir Nagy og sex samstarfs- mönnum hans og þeir sakaðir um að hafa lagt á ráðin um „vopnaða gagnbyltingu með dyggri aðstoð heimsvaldasinna“. Nagy var hengdur árið 1958 ásamt varnarmálaráðherra sínum, Pal Maleter, og blaðamanninum Miklos Gimes. Verða þeir þrír jarð- settir í dag og einnig Geza Losonc- zy, fyrrum innanríkisráðherra, sem lést í fangelsi þegar verið var að þröngva ofan í hann mat, og Joz- sef Szilagy, aðstoðarmaður Nagys, sem hafði verið tekinn af lífi áður. Auk Vasarhelyis lifði aðeins einn annar sakbominganna réttarhöldin Imre Nagy ræðir við Búdapest- búa af en það er Sandor Kopacsi, fyrr- um lögreglustjóri í Búdapest og samstarfsmaður Nagys. Hann býr nú í Kanada. Báðir kváðust þeir saklausir af glæpum en lýstu yfir, að þeir bæru ábyrgð á því, sem gerst hefði. Vasarhelyi var dæmdur í fímm ára fangelsi en var látinn laus 1960. Þá var ekkert eftir af hans kommúnísku trú. í 12 ár eftir að fangavistinni lauk var Vasarhelyi bannað að stunda hvers konar fræðistörf og jafnvel á síðasta ári var honum meinað um vegabréfsáritun til It- alíu vegna þess, að hann væri í hópi stjórnarandstæðinga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.