Morgunblaðið - 16.06.1989, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.06.1989, Blaðsíða 41
MQKGUN'BIxAÐID :FÖSTUDAGUR j6KJÚNÍ 19^9 M 41 Þessir hringdu ... Óréttmætar sparnaðaraðgerðir Árný hringdi: „Illa er nú komið fyrir okkur íslendingum. Skyndilokun á spítölum vekur óhug í brjósum fólks. Það á að loka deildum til að spara og á annað hundrað rúm eiga að standa auð og ónotuð í júní, júlí og ágúst. Þetta bitnar mest á miðaldra fólki og öldruð- um sem bíða í hundarða tali eft- ir aðgerðum til að lina þjáningar þeirra og kvöl. Þessar spamaða- raðgerðir eru óréttmætar. Lands- feðumir hugsa sjálfsagt að þann- ig verði þetta að vera en hver borgar afmælisveislur þeirra og kostnað af alls konar óþarfa sam- komu- og veisluhaldi? Er það ekki greitt úr rikissjóði? Þarna mætti spara mikið fé. Svo er það ungafólkið sem kemur stórslasað á spítalana og er sent ósjálf- bjarga heim því ekki er starfs- fólk til að hjúkra því. Starfsfólk sjúkrahúsa er allt af vilja gert til að lina þjóningar fólks en fær ekki rönd við reist vegna sparn- aðaraðgerða ríkisstjórnarinnar. Nú skora ég á íslensk yfirvöld að gera umbætrr sem fyrst, það má spara á öllum öðrum sviðum. Við verðum öll að vera samtaka og rísa upp gegn þessu.“ Vöruverð ekki sambærilegt OJ. hringdi: „Eg vil lýsa furðu minni á því hvernig ijármálaráðherra ber fyrirhugaða skattahækkun sína saman við það sem gerist erlend- is. Við búum við miklu hærra vöruverð hér en gerist erlendis og ráðum þess vegna ekki við hærri skattagreiðslur. Ólafur Ragnar ætti heldur að gera ráð- stafanir til að lækka vöraverð í samræmi við það sem gerist er- lendis.“ Kettlingur Svartur tveggja mánaða gam- all kettlingur fæst gefins. Upp- lýsingar í síma 53758. Áróðursmeistari Ellilífeyrsþegi hringdi: „Fjármálaráðherrann finnur það ef til vill núna að það er annað að vera fjármálaráðherra en áróðursmeistari fyrir komm- únisma sem aldrei hugsaði um nauðþurftir almennings." Góð þjónusta Sigríður hringdi: „Ég vil þakka fyrir góða þjón- ustu hjá Apóteki Austurbæjar. Ég fékk pöntuð meðul þar í gegn um síma en þar sem ég bý í Kópavogi gat ég ekki sótt þau samdægurs þar sem klukkan var að verða sex. Ég hringdi í apótek- ið og tjáði þeim vandræði mín. Einn starfsmannanna sagðist þá geta komið þessu heim til mín um leið og hann færi úr vinnu og kom hann með meðulin hálftíma seinna. Ég vil þakka fyrir þessa góðu þjónustu. Eins vil ég þakka hreinsunardeildinni hér í Kópavogi fyrir vel unnin störf og hversu þeir eru greið- viknir. Það er alltaf verið að finna að en sjaldnar þakkað fyrir það sem vel er gert.“ Hjól Rautt Nopxa telpureiðhjól var tekið við Tjarnarból á Seltjamar- nesi aðfaranótt sunnudags. Vin- samlegast hringið í síma 612315 hafi það einhvers staðar komið fram. Dagblaðið Tíminn tryllist Til Velvakanda. Fá mál hafa vakið meiri athygli á undanförnum mánuðum en áfengiskaupamál Magnúsar Thor- oddsens hæstaréttardómara. Fyrir nokkra fór fram málflutningur í því máli í borgardómi Reykjavíkur og var nákvæmlega skýrt frá hon- um í öllum fjölmiðlum. I þessum málflutningi dró verj- andi Magnúsar fram margvíslegar fróðlegar upplýsingar um áfengis- kaup ráðherra og annarra fyrir- manna á kostnaðarverði. Athyglis- vert var að kerfið hafði gert allt sem það gat til þess að koma í veg fyrir að lögmaðurinn fengi þær upplýsingar sem hann óskaði eftir. Það ætti þó að vera augljóst mál að ekkert á i þessum efnum að vera þess eðlis að ástæða sé til að fela það eða hylja sjónum almenn- ings, skattgreiðendanna sem borga brúsann. Þrátt fyrir þagnarmúrinn ga* lögmaðurinn birt nokkrar upp- lýsingar sem í sannleika sagt fengu hárin til að rísa á höfðum flestra landsmanna. Fram kom að það virtist alsiða að heim til ráðherra væri farið með áfengisbirgðir sem nægja mundu hundraðum manna til tímabundinnar eða viðvarandi ölvunar um langan tíma. Einstaka ráðherrar vora jafnvel svo illa haldnir af algleyminu að þeir mundu ekkert eftir því hvað orðið hafði um yfir 100 áfengisflöskur sem keyrðar höfðu verið heim til þeirra með nokkurra vikna milli- bili. Eftir að þessar upplýsingar komu fram tók dagblaðið Tíminn sem gefið er út af Framsóknar- flokknum nokkur létt hneykslunar- hástökk. Tíminn hélt þvi fram að af hálfu lögmanns Magnúsar væri um að ræða pólitískar ofsóknir gegn framsóknai-mönnum á valda- stöðum, svo sem eins og Steingrími Hermannssyni sem verið hefur ráð- herra samfleytt um tíu ára skeið. Tíminn hélt því fram að lögmað- urinn drægi aðeins fram áfengis- kaup framsóknarmanna en léti aðra ráðherra liggja óbætta hjá garði. Dag eftir daga hamaðist Tíminná þessum kenningum að hér væri sérstaklega verið að vega að framsóknarmönnum og Framsókn- arflokknum. Óneitanlega læddist sá granur að mörgum manninum að með þessum ofstækisfullu skrif- um og tilraunum til þess að setja málflutning lögmanns Magnúsar væri með einhverjum hætti tengd- ur pólitískri aðför að Framsóknar- flokknum. Sem skattgreiðanda finnst mér aðalefni málsins vera það að rétt- látur dómur falli. Að Tíminn skuli reyna að hræða dómara í málinu með því að ljá því pólitískan blæ 1 x67 1 Steindcór Sendibfiar | Verk- og tækni- fræðingar: Auðveldara að fá vinnu í öðrum Evrópulöndum Framkvæmdastjórn Evrópu- samtaka verk- og tæknifræðinga, FEANI, hittist hérlendis í lok siðustu viku. Mat á tækninámi, til að auðvelda mönnum að fá vinnu í hverju aðildarríki sam- takanna sem er, var aðalefni fundar framkvæmdastjórnarinn- ar með ýmsum islenskum aðilum. Tækniskólinn og Háskóli Islands verða í næstu skrá FEANI yfir tækniskóla í Evrópu. Undirbúningur tæknimanna fyrir sameiningu Evrópubandalagsríkja í eina markaðsheild var sérstaklega kynntur á fundi framkvæmda- stjórnarinnar. Þangað var boðið fulltrúum Háskóla íslands og Tækniskólans, Iðntæknistofnunar, Félags íslenskra iðnrekenda, Út- flutningsráðs og þriggja ráðuneyta. Að sögn Jóns Vilhjálsmssonar, formanns íslendsnefndar FEANI, felst undirbúningurinn einkum í tvennu: Útgáfu bókar þar sem evr- ópskir tækniskólar eru flokkaðir eftir lengd náms, og viðurkenningu á lágmarks tæknimenntun með svo- kölluðum EUR ING titli. Jón Vilhjálmsson segir þetta auð- velda evrópskum verk- og tækni- fræðingum að fá vinnu annars stað- ar í álfunni en þar sem þeir lærðu. Vinnuveitendur geti áttað sig á hvers konar menntun umsækjendur hafi. Þetta sé sérstaklegá gott fyrir tæknimenn frá smærri löndum þar sem skóiarnir era lítt þekktir. Þó er innihald námsins ekki tiltekið í bók FEANI, eins og gert er í sams- konar riti um bandaríska tækni- skóla. Ástæðan er að sögn Jóns að erfitt hefur reynst að samræma kröfur um það milli tuttugu aðild- arríkja Evrópusamtakanna. Að sögn Jóns er næsta víst að Háskóli Islands lendi í efri flokki í bókinni um verkfræði- og tækni- fræðiskóla, og líklegt að Tækniskol- inn verði í sama flokki. Enginn ís- lendingur mun enn hafa sótt um EUR ING titilinn, sem nýlega var byijað að veita, en þegar hafa kringum 2500 manns hlotið þennan titil. Ferðasalerni - Kemisk vatnssal- erni fyrir sumarbústaði, hjólhýsi og báta. Atlas hf., Borgartúni 24, simi 621155, pósthólf 8460, 128 Reykjavík. VELA-TENGI ‘ GZD C Allar geröir Öxull — í — öxul. Öxull — í — flans. Flans — í — flans. Tengiö aldrei stál — í — stál, hafið eitthvaö mjúkt á milli, ekki skekkju og titring milli tækja. Allar stæröir fastar og frá- tengjanlegar Vesturgötu 16, sími 13280 V^terkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! er fyrir neðan allar hellur. Því verð- ur ekki trúað að óreyndu að dómar- ar á íslandi láti slíkar hótanir og upphlaup hafa áhrif á dóma sína. Skattgreiðandi Kannt JJgJjð? símanumer Innilegar þakkir til allra þeirra, sem glöddu mig meÖ heimsóknum, gjöfum og skeytum á 90 ára afmœli mínu þann 28. maí. GuÖ blessi ykkur öll. Sigríöur Bogadóttir, Hliðarstræti 6, Bolungarvík. Trjáplöntur 3.-18. júní seljum við sitkagrenitré, 1-1,50 á hæð, úr skógi. Verð kr. 1.500,- per. meter. Fólk stingur upp sjálft og*velur úr merktum trjám. Seljum einnig upp- teknar plöntur af stafafuru, sitkagreni og lerki. Verð kr. 2.600 per. meter. Verðum einnig með ösp, birki, selju og fleira. Skógrækt ríkisins, Þjórsárdal, sími 98-66060. ur unnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.