Morgunblaðið - 16.06.1989, Síða 4
4“
MORGUNBLAfclÐ' 'FÖSTÍMAGUR1 Íé/jÖUí ’ lMiM
MorKunblaðið/Sverrir
Börnin fylgjast með af áhuga þegar Broddi Kristgánsson lögreglumaður fer með þeim yfir umferðarregl-
urnar. Myndin var tekin í Austurbæjarskóla.
Umferðarfiraeðsla fyrir börnin
Umferðarfræðsla fyrir 5 og 6 ára börn í Reykjavík stendur nú yfir
í grunnskólum borgarinnar. Lögregla, Umferðarráð og umferðamefnd
Reykjavíkur standa fyrir fræðslunni í tilefiii af því að tími útivistar
með þátttöku barna í umferðinni er framundan. Öllum börnum á þess-
um aldri hefiir verið sent bréf með boði um þátttöku.
Fóstrur og lögreglumenn annast er yfir mikilvægar umferðarreglur,
fræðsluna sem felst í því að farið fjallað um hjólreiðar, bílbelti og
bamastóla. Þá eru sýndar umferðar-
kvikmyndir og sögð sagan Sigga og
skessan í umferðinni eftir Herdísi
Egilsdóttur með brúðum eftir Sjöfn
Ólafsdóttur fóstru.
Þá fá börnin verkefnablað til að
teikna á og fá löggustjörnu í verð-
laun.
VEÐURHORFUR í DAG, 16. JÚNÍ
YFIRLIT í GÆR: Yfir N-Skandinavíu er 1.027 mb hæð, en um 500
km suðvestur af Reykjanesi er 994 mb lægö sem þokast norðnorð-
austur.
SPÁ: Sunnangola eöa kaldi og smáskúrir um sunnanvert landið,
en hæg austlæg átt um landið norðanvert. Sums staðar þokuloft
eða súld á annesjum fyrir norðan. Hiti á bilinu 8 til 17 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG (17. júnfi: Suðvestanátt og súld eða
skúrir suðvestanlands, en sunnan- eða suðaustanátt og rigning á
Norður- og Austurlandi. Hiti 10-15 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG: Nokkuð hvöss suðvestanátt um allt land.
Skúrir um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt og bjartara veð-
ur norðanlands og austan. Hiti 9-13 stig.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hélfskýjað
Skýjað
||k Alskýjað
y. Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10
V
*
V
Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
Él
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hltl veftur
Akureyri 17 léttskýjað
Reykjavik 12 skýjað
Bergen 18 hálfskýjað
Helsinki 11 rigning
Kaupmannah. 18 úrkoma
Narssarssuaq vantar
Nuuk vantar
Ósló 16 léttskýjað
Stokkhólmur 18 skýjað
Þórshöfn 12skýjaö
Aigarve vantar
Amsterdam 25 mlstur
Barcelona 25 léttskýjað
Berlín 18 léttskýjað
Chicago 12 alskýjað
Feneyjar 23 skýjað
Frankfurt 24 skýjað
Glasgow 20 skýjað
Hamborg 20 skýjað
Las Palmas 25 léttskýjað
London 25 skýjað
Los Angeles 16 Þokumóða
Lúxemborg 24 léttskýjað
Madrfd 27 skýjað
Malaga 27 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Montreal 15 alskýjað
New York vantar
Orlando vantar
Parls vantar
Róm 25 láttskýjað
Vín 20 léttskýjað
Washington 22 skúr
Winnipeg vantar
Millilendingin kost-
aði 600 þúsund kr.
MILLILENDING DC 8 þotu Flugleiða í Giasgow í fyrrinótt kostaði
Flugleiðir meira en 600 þúsund krónur, að sögn Einars Sigurðssonar
blaðafulltrúa félagsins. Vélin var í leiguflugi með sólarlandafara frá
Ferðamiðstöðinni Veröld og átti upphaflega að fljúga í einum áfanga
til íslands, en þar sem flugtíminn færi fyrirsjáanlega sjö mínútur fram
yfir hámarksvinnutima áhafnar var millilent í Glasgow. Hver mínúta
seinkunarinnar hefur því kostað um 100 þúsund krónur.
Allur kostnaður við þessa milli-
lendingu fellur á Flugleiðir og .mun
ekki auka kostnað ferðaskrifstofunn-
ar eða farþeganna, að sögn Einars.
Flugvélinni hafði seinkað vegna
hægagangs flugumferðarstjóra á
Keflavíkurflugvelli, en viðræður
stóðu þá um kjarasamninga þeirra.
Vegna millilendingarinnar þurftu
farþegar að bíða tvo og hálfan tíma
í flugstöðinni í Glasgow aðfaranótt
miðvikudags.
Einar Sigurðsson segir þetta atvik
ekki einsdæmi, að flugstjóri ákveði
að halda strangt við tímamörk, þótt
hitt hafi verið almenn venja að taka
ekki strangt á fáeinum mínútum sem
farið er fram yfir tímann.
Venjulega eru þessar leiguflug-
ferðir farnar á Boeing flugvélum og
átti önnur hinna nýju 737 véla að
fara þessa ferð. Vegna kyrrsetningar
komst hún ekki og því var DC 8
send í hennar stað. Þegar farið er á
Boeing þarf að millilenda í Glasgow
og skipta um áhöfn, en að þessu sinni
átti þess ekki að þurfa. í sumar mun
leiguflugið verða farið á Boeing 727
flugvélum og næsta ár á Boeing 757
vélum, sem annars verða í Norður-
Atlantshafsflugi.
Sala Utvegsbankans;
Slæmt að ekki var
ijallað ítarlegar um
málið fyrir undirritun
- segir forsætisráðherra
„ÞAÐ SEM ég tel vera jákvætt við þessa sölu á Útvegsabankanum
er að þessari sameiningu bankanna fylgir mikil hagræðing í banka-
kerfinu," sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Forsætisráðherra kvaðst þó telja að
ekki hefði fengist nógu hátt verð fyrir Útvegsbanka Islands.
Steingrímur sagði jafnframt:
„Mér finnst á hinn bóginn mjög
slæmt að ekki skuli hafa verið ítar-
legar um málið Tjallað áður en sam-
komulagið var undirritað. Ég treysti
mátu bankann, þeim Sigurði Þórð-
arsyni og Árna Tómassyni, og ve-
fengi ekki þeirra mat, en ég heyri
það mat vefengt í kringum mig,
bæði frá þingfiokki Framsóknar-
flokksins og Útvegsbankanum
sjáifum."
Forsætisráðherra sagði að þing-
flokkurinn hefði lýst undrun sinni
á þingflokksfundi í fyrradag, á því
að hægt væri að selja heilan ríkis-
banka án þess að þingmenn kæmu
þar nokkuð nálægt. „En þegar lög-
unum um Útvegsbankann var
breytt og hann gerður að hlutafé-
lagi, þá var sú heimild veitt þar
með, því verður ekki í móti mælt,“
sagði ráðherra.
Kjaradómur:
Tók mið af launaþróun
háskólamanna hjá ríkinu
í RÖKSTUÐNINGI Kjaradóms
fyrir úrskurði þeim sem upp var
kveðinn í fyrradag um laun
þeirra sem hann ákvarðar um
segir m.a. að dómurinn hafi afl-
að sér gagna frá launaskrifstofu
ríkisins sem sýni að meðaltal
Fundað með
flugvirkjum
KJARADEILUR Flugfreyju-
félags íslands og Flugvirkja-
félags íslands við viðsemj-
endur eru báðar til með-
ferðar hjá ríkissáttasemjara.
Fundir voru með báðum aðil-
um í gær, en talið er að nokk-
uð sé í að samkomulag náist.
Flugfreyjur voru á þriggja
tíma fundi eftir hádegið og
verður næsti fundur boðaður
öðru hvoru megin helgarinnar.
Fundurinn f gær var annar
fundurinn hjá ríkissáttasemj-
ara. Flugvirkjar byijuðu fund
klukkan 16 og var gert ráð
fyrir kvöldfundi. Deila flug-
virkja hefur verið lengur hjá
ríkissáttasemjara en deila flug-
freyja.
greiddra dagvinnulauna há-
skólamenntaðra ríkisstarfs-
manna hafi á sl. tveimur árum
hækkað um nálægt 5% umfrani
dagvinnulaun þeirra, sem
Kjaradómur ákveður laun.
Orðrétt segir í rökstuðningnum:
„Samkvæmt 6. gr. laga um Kjara-
dóm nr. 92, 31. desember 1986
ber dóminum við úrlausn mála að
gæta þess að laun sem hann
ákveður „séu á hvetjum tíma í
samræmi við laun í þjóðfélaginu
hjá þeim sem sambærilegir geta
talist með tilliti til starfa og
ábyrgðar". í þessu efni hefur
Kjaradómur m.a. litið til þeirrar
launaþróunar sem orðið hefur hjá
aðildarfélögum BHMR og hjá þeim
ríkisstarfsmönnum sem fjármála-
ráðherra ákveður laun.“
Jafnframt segir þar að athugun
á breytingum dagvinnulauna há-
skólamenntaðra ríkisstarfsmanna
frá september 1987 til apríl 1989
og þeirra sem fjármálaráðherra
ákveður laun gefi til kynna nokkuð
meiri hækkun en ofangreind 5%.
„Loks er til þess að taka, að síðari
hluta mai 1989 gerði fjármálaráð-
herra f.h. ríkissjóðs við aðildarfé-
lög BHMR, sem almennt kváðu á
um 3,35% hækkun launa frá 1.
mai sí.“ segir í rökstuðningnum.