Morgunblaðið - 16.06.1989, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 1989
Kanada:
Keppast við að „ætt-
leiða“ mjaldurinn
Ottawa. Reuter.
Vísindamenn í Kanada, sem hafa áhyggjur af að mjaldurinn
sé að verða útdauður í St. Lawrence-fljóti, hafa beitt sér fyrir
„hvalaættleiðingu" með miklum og óvæntum árangri. Þurfa
væntanlegir „kjörforeldrar" að reiða fram um 245.000 ísl. kr.
og verður féð notað til að finna leiðir til bjargar hvölunum.
Deng Xiaoping.
Yang'Shangkun, en sonur hans
er kvæntur dóttur Dengs.
Yang Baibing, bróðir Shangkuns.
Chi Hao Tian, tengdasonur
Shangkuns.
Fjörutíu hvalir hafa nú verið
„ættleiddir" og eru það aðallega
fyrirtæki, stofnanir og skólar, sem
í hlut eiga. Mjaldurinn er hvítur
á lit, fremur smár, um fjögurra
metra langur, og það er mengun-
in í St. Lawrence-fljóti, sem er
að drepa hann. Talið er, að um
síðustu aldamót hafi verið 5.000
dýr í fljótinu en nú eru þau innan
við 500. í norðurhöfum er hins
vegar mikið um mjaldur þannig
að stofninn sjálfur er ekki í neinni
hættu.
St. Lawrence-fljótið er eitt það
mengaðasta, sem fyrirfinnst.
Kanadísk iðnfyrirtæki kasta í það
árlega 100.000 tonnum af alls
kyns úrgangi, olíu, málmum og
eitruðum efnasamböndum, og
sem dæmi um það má nefna, að
þegar 21 dauðan mjaldur rak á
fjörur í fyrra reyndust hræin svo
menguð, að farið var með þau
eins og eiturefni. Við krufningu
kom í ljós, að hvalirnir höfðu drep-
ist úr mörgum sjúkdómum, sem
þekktir eru í mönnum, meðal ann-
ars úr krabbameini í blöðruhál-
skirtli, lifrarbólgu og bandvefjar-
vexti í lungum.
Kjörforeldrarnir fá í hendur
fæðingarskírteini og mynd af
ákveðnum hval og eru þeir síðan
ávallt látnir vita komi vísinda-
menn auga á hvalinn aftur. Pierre
Beland, sem starfar við rannsókn-
ir á eiturefnamengun og hrinti
þessari áætlún af stað, segir, að
fólk sé farið að átta sig á því, að
örlög hvalanna geti orðið örlög
okkar allra.
Ættarveldi öld-
unganna í Kína?
SAMKVÆMT frétt þýska blaðsins Bild am Sonntag eru æðstu
yfirmenn kínverska hersins tengdir fjölskylduböndum. Deng Xia-
oping, valdamesti maður Kína, boðaði þessa félaga sína í hinni
nýju fjórmenningaklíku landsins,
arfund í íbúð sinni aðfaranótt 3.
Deng Xiaoping, 84 ára, er for-
maður hermálanefndar kínverska
kommúnistaflokksins og þarmeð
æðsti yfirmaður hersins. Yang
Shangkun, 82 ára, er varaformað-
ur. Einn af sonum hans er giftur
dóttur Dengs. Yang Baibing, 69
ára, öðru nafni „slátrarinn frá
Peking“, er bróðir Shangkuns og
yfirmaður stjórnmáladeildar hers-
ins. Sú deild gegnir svipuðu hlut-
verki og kommissarar Rauða hers-
ins á dögum Stalíns. Chi hao Tian,
65 ára, er yfirmaður herráðsins
eins og blaðið orðar það, á neyð-
júní.
en hann er giftur einni af dætrum
Yangs Shangkuns. Þessir óþokkar
ákváðu að 27. herfylkið væri best
til þess fallið að mola andstöðu
námsmanna á Torgi hins him-
neska friðar. Hermennirnir þar eru
flestir ólæsir og hafa mikla reynslu
af návígi. Yang Baibing sá sam-
viskulausasti af þeim öllum (Baib-
ing þýðir „hvítur snjór“) þótti best
til þess fallinn að stýra 27. herfylk-
inu þegar torgið í miðborg Peking
var rutt.
19
Thoro
Vatnsþéttingarefni
- VATNSFÆLUR
-100% ACRYL MÁLNING
- STEYPUVIÐGERÐAREFNI
- GÓLFVIÐGERÐAREFNI
Efni sem standast prófanir
út um allan heim, slðan 1912.
!i steinprýði
Stangarhyl 7, simi: 672777.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
iijámjiniiíiiii
EIIMNOTA
MYNDAVÉL
FRÁ KODAKI
Enn býður Kodak nýjan valkost:
Myndavél sem er einnota, 35 mm vél með 400 ASA
litfilmu. er handhægur gripur sem sniðinn er fyrir
myndatöku utandyra. Hún er létt í hendi og í notkun og gæðin
eru hreint ótrúleg! Allir geta tekið myndir á og hún fæst
á öllum helstu filmusölustöðum.
AUK/Sl>