Morgunblaðið - 16.06.1989, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ j FÖSTUDAGUR l lfl.'JÚNÍ 1989
25
Katrín Briem dóttir Jóhanns og Ólafiir Kvaran listráðunautur húss-
ins, við eitt verka Jóhanns.
Félags-
heimili
tónlistar-
manna
með happ-
drættis-
miðasölu
LOKAÁTAK Félagsheimilis tón-
listarmanna í sölu happdrættis-
miða í Kringlunni verður í dag,
fostudag, en undanfarið hefur
Qöldi tónlistarmanna komið þar
fram til að vekja athygli á fjáröfl-
unarátaki Félagsheimilisins,
sem er til húsa að Vitastíg 3.
Stefnt er að því að selja 1000
miða í Kringlunni, en miðasala fer
fram á 2. hæð (fyrir framan Hag-
kaup), þar sem 1. vinningur, Skoda
Favorit er til sýnis. Þá verður dreg-
inn úr veglegur aukavinningur á
númer miða, sem selst hafa í
Kringlunni, ferð til Portúgal, ásamt
50 hljómplötuvinningum og 10
matarvinningar fyrir tvo.
Þeir sem koma fram milli klukk-
an 15 og 17 eru Valgeir Guðjóns-
son, Bjartmar Guðlaugsson, Karla-
kórinn Fóstbræður, Karlakór
Langholtskirkju, Rúnar Þór Pét-
ursson, Ingi Gunnar Jóhannsson,
hljómsveitin Ný dönsk og Centaur
o.fl.
Sumarsýning
Norræna hússins
með verkum eft-
ir Jóhann Briem
Laugardaginn 17. júní klukk-
an 15 verður opnuð sýning í sýn-
ingarsölum Norræna hússins á
málverkum eftir Jóhann Briem.
Sýningin stendur fram til 24.
ágúst og verður opin daglega
klukkan 14-19.
Á sýningunni verða yfír 30 mál-
verk, sem era í eigu einstaklinga
og stofnana. Málverkin eru máluð
á árunum 1958-1982.
Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu í Morgun-
blaðinu í gær að í grein um Norr-
æna stangveiðisambandið misrit-
aðist nafn höfundarins. Hann heitir
Hákon Jóhannsson. Eru hlutaðeig-
andi beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
Kammersveit
Seltjarnarness
með tónleika
Fyrstu tónleikar Kammersveitar
Seltjarnarness verða haldnir
mánudagskvöldið 19. júní klukk-
an 20.30 í Seltjarnarneskirkju.
Kammersveit Seltjamarness var
stofnuð nú í vor og voru stofnend-
ur hennar Einar Jóhannesson klar-
inettuleikari, Hlíf Siguijónsdóttir
fiðluleikari, Hróðmar Ingi Sigur-
björnsson tónskáld, Sigrún Val-
gerður Gestsdóttir söngkona, Sig-
ursveinn K. Magnússon skólastjóri
og Örn Magnússon píanóleikari.
Á efnisskránni eru verk eftir
Zoltán Kodály, Arnold Schönberg,
Hróðmar Inga Sigurbjömsson og
Darius Milhaud.
Einsöngvari með Kammersveit-
inni er Sigrún Valgerður Gests-
dóttir en Örn Magnússon píánóleik-
ari frumflytur nýtt verk eftir
Hróðmar Inga Sigurbjörnsson.
Kammersveit Seltjarnarness
skipa að þessu sinni 37 hljóðfæra-
leikarara. Konsertmeistari er Hlíf
Sigurjónsdóttir og stjómandi er
Sigursveinn K. Magnússon.
Laugardags-
ganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana
nú í Kópavogi verður á morgun
laugardaginn 17. júní. Lagt af stað
frá Digranesvegi 12 klukkan 10.
Hljómsveitin Rikshaw.
Tónleikar í
Tunglinu
HELGINA 16. og 17. júní verða
haldnir stórtónleikar í Tunglinu
við Lælgargötu. Hljómsveitirnar
Rikshaw, Lagt til þerris, Eftirlit-
ið og Loðin rotta flylja frum-
samda tónlist og kynna væntan-
legar hljómplötur.
Tónleikamir hefjast klukkan 23
en húsið opnar klukkan 22, föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Námskeið hjá
Þrídrangi
ÞRÍDRANGUR býður upp á viku
námskeið í sjálfskönnun, næmn-
isþjálfún, dásefjun, dans-hug-
leiðslu, líföndun og lífefli, að þvi
er segir í frétt frá Þrídrangi.
Námskeiðið verður 24.-30. júní í
skíðaskálanum í Skálafelli.
í fréttinni frá Þrídrangi segir,
að leiðbeinendur á námskeiðinu
verði sállæknamir Ma Atit Kaya
og Sw. Anand Sudas. Þau munu
einnig veita einkatíma á meðan á
dvöl þeirra stendur hér.
Nánari upplýsingar og skrásetn-
ing fyrir námskeið og einkatíma
er hjá Framþróun, Laugavegi 92 í
Reykjavík. Félagsmenn í Þrídrangi
fá afslátt af námskeiðsgjaldi og
fullt fæði er innifalið þá viku.
„Ég og minn“
LAUGARÁSBÍÓ sýnir gaman-
myndina „Ég og minn“. Með
aðalhlutverk fara Griffln Dunne
og Ellen Green. Leikstjóri er
Doris Dörrie.
Myndin fjailar um ungan lög-
fræðing i hamingjusömu hjóna-
bandi sem verður fyrir þeirri ólukku
að vinur hans fer á kvennafar al-
gerlega uppá sitt einsdæmi.
Sigursveinn K. Magnússon hljómsveitarstjóri.
Atriði úr myndinni „Ég og minn“ sem Laugarásbió sýnir um þessar
mundir.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 15. júní.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 59,50 43,00 55,38 21,758 1.204.953
Þorskur(smár) 32,00 32,00 32,00 0,367 11.744
Ýsa 72,00 50,00 65,06 2,474' 160.950
Karfi 32,00 32,00 32,00 1,141 36.496
Ufsi 32,50 15,00 27,08 2,561 96.431
Steinbítur 40,00 40,00 40,00 0,579 23.140
Langa 34,00 34,00 34,00 0,214 7.276
Lúða 210,00 190,00 202,67 0,030 6.080
Koli 53,00 38,00 38,47 0,529 20.369
Samtals 51,07 30,752 1.570.439
í dag verða m .a. seld 110 tonn af karfa, 20 tonn af þorski, 3
tonn af kola, 4 tonn af löngu, óákveðið magn af ýsu, lúðu og
fleiri tegundum úr Sigurjóni Arnlaugssyni HF og ýmsum bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 63,00 52,00 58,03 39,305 2.280.791
Þorskur(smár). 37,00 37,00 37,00 0,325 12.025
Ýsa 77,00 57,00 60,28 10,204 615.112
Ýsa(umál) 20,00 20,00 20,00 0,082 1.640
Karfi 33,00 33,00 33,00 14,282 471.319
Ufsi 35,00 15,00 32,75 24,453 800.928
Ufsi(umál) 15,00 15,00 15,00 0,479 7.185
Steinbítur 40,00 15,00 33,54 0,482 16.167
Hlýri+steinb. 29,00 29,00 29,00 0,827 23.983
Langa 25,00 25,00 26,00 0,036 900
Lúða 215,00 115,00 177,12 0,682 120.795
Grálúða 56,50 53,00 55,46 37,449 2.076.881
Skarkoli 40,00 25,00 30,48 0,293 8.930
Samtals 49,91 129,536 6.465.353
Selt var meðal annars úr Ásgei ri RE og Þórsnesi HF. í dag
verða meðal annars seld 100 tonn af þorski, 80 tonn af ufsa,
12 tonn af karfa og fieira úr Jóni Vídalín ÁR og Má SH.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 59,50 51,00 53,94 25,543 1.377.860
Þorskur(smár) 30,00 30,00 30,00 0,080 2.400
Ýsa 94,00 40,00 72,79 27,532 2.003.995
Karfi 35,50 30,50 32,18 10,220 328.835
Ufsi 34,00 30,50 33,17 21,771 722.153
Steinbítur 47,00 30,00 34,99 2,613 91.452
Langa 33,50 28,50 33,24 0,717 23.835
Lúða 215,00 135,00 203,30 0,317 64.346
Sólkoli 56,00 40,00 47,12 2,247 105.880
Skarkoli 20,00 20,00 20,00 0,026 520
Skata 70,00 70,00 70,00 0,100 7.000
Skötuselur 150,00 120,00 144,32 0,074 10.680
Sfld 8,00 8,00 8,00 0,017 136
Samtals 51,93 91,282 4.740.092
Selt var úr Eini GK, Þuríði Halldórsdóttur GK, Eldeyjar-Boða
GK og ýmsum færabátum. Alls seldu 34 bátar á markaðinum.
i dag verða m.a. seld 55 tonn af þorski, 2 tonn af ýsu og fleira
úr Eldeyjar-Hjalta GK. Selt verður úr dagróðra- og færabátum.
Umboðsmaður Alþingis:
Eignarnámsbætur
vegna niðurskurðaf
BÆNDUM er heimilt að krefjast þess að ákvarðanir um bætur
vegna niðurskurðar sauðQár vegna riðuveiki verði ákveðnar í
samræmi við réttarreglur um eignarnám, en í reglugerð frá
1982 um bætur vegna niðurskurðar er ekki vikið að umræddum
rétti sauðfjárbænda til eignarnámsbóta. Kemur þetta fram í
áliti sem Gaukur Jörundsson, umboðsmaður Alþingis, hefur sent
frá sér vegna kvörtunar sem honum barst frá bónda, sem taldi
bætur sem hann fékk greiddar vegna niðurskurðar vera ófull-
nægjandi.
Hí.Oimou,'
W".......
FÉLAGSSTAKF ALDRADRA 20 ÁRA
Reykjavík:
Tvær þjónustu-
miðstöðvar
TVÆR nýjar þjónustumiðstöðvar
aldraðra í Reykjavík eru í bygg-
ingu í vesturbænum. Önnur
þeirra, við Vesturgötu 7, verður
tekin í notkun í haust og miðstöð
við Aflagranda opnuð á næsta
ári. Um 15 til 20% aldraðra í
Reykjavík njóta starfs félags- og
þjónustumiðstöðva.
Félags- og tómstundarstarf aldr-
aða hófst í apríl árið 1969 og árið
1972 var fyrsta þjónustumiðstöðin
tekin í notkun í Norðurbrún 1. Á
síðastliðnum vetri var starfað á 9
stöðum í borginni.
Fréttabréf aldraða er sent öllum
67 ára Reykvíkingum og eldri og er
það að þessu sinni helgað 20 ára
afmæli félagsstarfsins. Markmiðið
hefur alla tíð verið að vinna að fyrir-
byggjandi starf með fjölbreyttri tóm-
stundariðju og vinnu og veita öldruð-
um nauðsynlega þjónustu.
Tildrög þessa máls voru þau
að riðuveiki hafði orðið vart á
ákveðnu svæði, og tókust samn-
ingar um niðurskurð til útrýming-
ar veikinni við alla bændur á
svæðinu nema eigendur tiltekins
félagsbús. Landbúnaðarráðherra
fyrirskipaði niðurskurð sauðfjár í
eigu félagsbúsins vorið 1986, en
annar eigenda búsins taldi bætur
þær sem landbúnaðarráðuneytið
bauð fram af því tilefni vera ófull-
nægjandi. Sauðfé í eigu félags-
búsins var slátrað um haustið
1986.
I áliti Gauks Jörundssonar kem-
ur fram að ljóst sé áð fé í eigu
félagsbúsins hafi verið skorið án
þess að samningar tækjust um
niðurskurðinn eða að samþykki
eigenda þess lægi fyrir með öðrum
hætti. Vekur hann athygli á að
sámkvæmt lögum frá 1956, um
vamir gegn útbreiðslu næmra
sjúkdóma og útrýmingu þeirra,
væri ljóst að fjáreigendur gætu
krafíst mats samkvæmt reglum
um eignarnámsbætur væri fé
þeirra skorið niður án samþykkis
þeirra. Landbúnaðarráðuneytið
hefði hins vegar lagt til gmndvall-
ar reglugerð frá 1982, um varnir
gegn útbreiðslu riðuveiki og kýla-
pestar í sauðfé og geitum, þegar
bótagreiðslur vegna niðurskurðar-
ins á hinu tiltekna svæði voru
ákveðnar. í reglugerðinni væri
ekki vikið að rétti sauðfjáreigenda
til eignarnámsbóta, og telur um-
boðsmaður henni því áfátt að
þessu leyti.
Gaukur Jörundsson segir það
vera skoðun sína að eigendur áð-
urnefnds félagsbús geti krafist
þess, að ákvörðun bóta vegna nið-
urskurðar sauðfjár þeirra, sam-
kvæmt fyrrgreindri ákvörðun
landbúnaðarráðherra, verði
ákveðnar í samræmi við réttar-
reglur um eignarnám. Hann bend-
ir ennfremur á að landbúnaðar-
ráðuneytið hefði átt að vekja at-
hygli bændanna á þessum rétti
þeirra, þegar ágreiningur var
kominn upp um bætur til þeirra.