Morgunblaðið - 16.06.1989, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIK FÖfeVuöÁGuR 16. JÚNÍ 1989
4?
HANDKNATTLEIKUR
Sex lands-
liðsmenn
. áSpáni
ÞAÐ kemur engum spánskt fyr-
ir sjónir að fslenska landsliðið
í handknattleik þurfi að aðlaga
sig deildarkeppninni á Spáni
og undirbúningi spænska
landsliðsins fyrir heimsmeist-
arakeppninni íTékkóslóvakíu
1990. Sex af bestu handknatt-
leiksmönnum íslands leika á
Spáni næsta vetur.
Fram til þessa hefur Handknatt-
leikssamband íslands þurft að
aðlaga undirbúning íslenska lands-
liðsins að keppni í V-Þýskalandi,
þar sem flestir af okkar bestu leik-
mörinum hafa leikið undanfarin ár.
HSÍ hefur hug á að senda bréf
til Spánar til að fá deildar- og land-
sleikjaplan Spánveija fyrir næsta
vetur.
Sex leikmenn leika á Spáni næsta
keppnistímabil. Það eru þeir Kristj-
án Arason, sem leikur nú með Teka
Santander og Atli Hilmarsson, sem
leikur með Granollers. Alfreð Gísla-
son og Sigurður Gunnarsson fara
til Irun í sumar, þar sem þeir verða
leikmenn með Bidasoa. Þá fer Geir
Sveinsson til Granollers og leikur
við hlið Atla. Þetta eru allt leik-
menn sem hafa ieikið iykilhlutverk
með iandsliðinu á undanförnum
árum.
Hans Guðmundsson, sem var
markahæsti leikmaður 1. deildar sl.
vetur, mun fara til Kanaríeyja og
leika með 2. deildarliðinu Maritim,
en hann lék með félaginu á árum
áður.
HANDBOLTI / KVENNALANDSLIÐ
Tap gegn
. Spán-
verjum
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
handknattleik tapaði gegn
Spáni í sínum fyrsta leik á al-
þjóðlegu móti í Portúgal. Leik-
urinn endaði 15:12 fyrir Spán-
verjum, eftir að staðan í leik-
hléi hafði verið 7:6.
Þrátt fyrir tapið var leikurinn
jafn og spennandi og aðeins
slæmur kafli undir lok leiksins kost-
aði íslenska liðið sigurinn. Spán-
yf^ar leiddu leikinn framan af rrieð
2-3 mörkum, en strax í upphafi
síðari hálfleiks jafnaði íslenska liðið
7:7. Eftir það var jafnt á öllum
tölum upp í 11:11, en þá skoraði
ísland ekki mark í 10 mínútur og
Spánverjar náðu aftur forskoti sem
dugði þeim til sigurs.
Halla Geirsdóttir átti stórleik í
íslenska markinu. Vörnin var
þokkaleg, en fékk á sig ódýr mörk
í hornunum. Aðeins þrír leikmenn
skoruðu mörk íslenska liðsins; Inga
Lára Þórisdóttir skoraði 7/4,
Morgunblaðið/Einar Falur
Inga Lára Þórisdóttir var marka-
hæst íslenska liðsins gegn Spánveijum
- með sjö mörk.
Andrea Atladóttir 4 og Herdís Sig-
urbergsdóttir 1.
Helga Magnúsdóttir, fararstjóri
íslenska liðsins, sagði í samtali við
Morgunblaðið að úrslitin væru vel
viðunandi miðað við þá endurnýjun
sem ætti sér stað hjá liðinu og ungu
stúlkurnar hefðu staðið fyrir sínu.
KRISTJÁN ARASONj
Santander
Granollers*
Barcelona
ALFREÐ GISLASON
SIGURÐIJR GUNNARSSON
Valencia
[HANS GUÐML'NDSSON'I
TEKA
BIDASOA
MARITIM á Kanaríeyjum
ínémR
FOLX
■ AC Mílanó lagði Sampdoría,
3:1, í Super Cup á Ítalíu, þetta
var í fyrsta sinn sem meistara og
bikarmeistarar mættust í í þessari
keppni. Frank Rijkaard, Graziano
Mannari og Marco Van Basten
skoruðu mörk Mílanó, en Gianluca
Vialli skoraði fyrir Sampdoría.
19.500 áhorfendur sáu leikinn.
■ REAL Valladolid vann Cor-
una, 2:0, í seinni leik liðanna í
undanúrslitum spönsku bikar-
keppninnar og samanlagt, 2:1.
Valladolid leikur gegn Real
Madrid eða Atletico Mardid, sem
eiga eftir að leika seinni leik sinn.
Real Madrid vann fyrri leikinn, 2:0.
■ RODION Camataru, rúm-
enski landsliðsmaðurinn sem leikur
með Dynamo Bukarest, hefur
ákveðið að ganga til liðs við
belgíska 1. deildar liðið Sporting
Charleroi. Eftir því sem talsmaður
belgíska liðsins segir mun Camat-
aru skrifa undir samninginn um
helgina.
Þeir leika í útlandinu næsta vetur.
Sigurður Sveinsson í V-Þýskalandi og
Sigurður Gunnarsson, Geir Sveinsson,
Kristján Arason, Alfreð Gíslason (fyr-
ir aftan) og Atli Hilmarsson leika á
Spáni.
Erlendir fangbragða-
menn mæta til leiks
Meistaramót Glímusambands íslands í axlatökum verður haldið í
íþróttahúsi Kennaraháskólans í kvöld, föstudaginn 16. júní kl. 19:00.
Keppt verður í fjórum þyngdarflokkum. Meðal keppenda verða fang-
bragðamenn frá Skotlandi, Hollandi og Bretagne í Frakklandi. Einnig
verður sýning á gouren (bretónskum fangbrögðum).
Dagana 18. - 21. júni verður síðan haldið námskeið í keltneskum fang-
brögðum í Steinabæ sem er undir stúkunni á Laugardalsvelli. Nánari
upplýsingar um námskeiðið er hægt að fá á skrifstofu GLÍ í Laugardal.
FANGBROGÐ / MEISTARAMOT
ATLI HILMARSSON
GEIR SVEINSSON
GRANOLLERS
Stiörnuvðllur - 2. deild karla - í kvöld kl. 20
STJARNAN
EINHERJI
Þaú er alltaí Stiömstemnm þat sem Stirnaa spilar
Sttféýcun, Stýoswcctut,
SJOVÁOlluALMENNAR
íslensku pottarnir
og pönnurnar frá Alpan hf.
. v
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
FALKINN
VMNIRMím
'VMimtMCfjari&uaHeOtccAaSwut
FRJALSAR IÞROTTIR
Langhlaupararnir
bæta sig í Koblens
Jóhann og Gunlaugur rufu fimmtán mín. múrinn.
JÓHANN Ingibergsson, FH, og
Gunnlaugur Skúlason, frá
Hvammstanga, bættu árangur
sinn í 5000 metra hlaupi veru-
iega í Koblens í V-Þýskalandi á
miðvikudagskvöldið, en þar
hafa þeir verið við æfingar og
keppni að undanförnu.
Báðum tókst þeim að rjúfa 15
mínútna múrinn, en að hlaupa
5000 metra á skemmri tíma en
það, hefur oft verið langhlaupurum
mikil sálfræðileg hindrun. Jóhann
hljóp á 14:57,37 mín. en Gunnlaug-
ur á 14:57,53 mín. Besti tími Jó-
hanns fram að þessu var 15:07
mín. en Gunnlaugur átti áður
tímann 15:14,60 mín. Gunnlaugur
hefur hins vegar sýnt miklar fram-
farir að undanförnu, því í fyrrasum-
ar var hans besti tími 14:52,37
mín, og hefur hann því bætt sig
um 42 sekúndur.
Þá bætti Daníel Gúðmundsson,
USAH, sig í 1500 metra hlaupi í
Essen á dögunum, hljóp á 3:59,1
mín., og þar með tókst honum að
ijúfa fjögurra mínútna múrinn, sem
einnig hefur verið höfuðverkur fyrir
1500 metra hlaupara. Þá sýndi
hann það í Koblens í fyrrakvöld að
þessi árangur er enginn tilviljun,
því þá hljóp hann á 4:00,1 mín.