Morgunblaðið - 29.06.1989, Qupperneq 1
64 SIÐUR B
144. tbl. 77. árg.
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Breta boð-
ið í Mir-
geimstöðina
BRESKA dagblaðið Daily Tel-
egraph skýrir frá því í dag að
Sovétmenn ætli að bjóða bresk-
um geimfara um borð í Mir-geim-
stöðina sovésku árið 1991.
Blaðið segir að geimfarinn verði
að vera vinveittur Sovétríkjunum
en ekki endilega kommúnisti. Hann
verði einnig að vera vel á sig kom-
inn líkamlega og þurfi að búa sig
undir erfiða þjálfun. Mir-geimstöðin
er mun minni en Alþjóðageimstöðin,
sem Bandaríkjamenn, Evrópumenn
og Kanadamenn hyggjast koma
fyrir í geimnum um miðjan næsta
áratug.
Morgunblaðið/RAX
Sumarblíða íBláa lóninu
Ítalía:
Ræningiá
hjólastól
Róm. Daily Telegraph.
FÓTBROTINN maður, sem
lagður var inn á sjúkrahús í
Napólí á Ítalíu, laumaðist á
hveijum degi út á stolnum
hjólastól og rændi fólk á göt-
um borgarinnar. Hann braust
einnig inn í bifreiðar til að
stela hljómtækjum og öðrum
verðmætum. Var hann dæmd-
ur í sex mánaða fangelsisvist.
Fram kom við réttarhöldin
yfir manninum að hann hefði
einkum ráðist aftan að fólki við
strætisvagnabiðskýli. „Hanp
komst upp með þetta mánuðum
saman vegna þess að enginn
hélt að fatlaður maður á hjóla-
stól gæti rænt fólk,“ sagði lög-
reglumaður, sem handtók mann-
inn.
Maðurinn fór á hveijum degi
eftir morgunverð niður í mið-
borgina í hjólastól, sem hann
stal á sjúkrahúsinu. Hann var
ekki handtekinn fyrr en lögregl-
an stóð hann að því að bijóta
framrúðu bifreiðar. I fórum hans
fannst ljöldi veskja, armbands-
úra og annarra verðmæta.
Opinber persónudýrk-
un á Deng hafín í Kína
Políinn- Rmitor
Peking. Reuter.
KÍNVERSK sljórnvöld efla enn
áróðursherferð sína til réttlæting-
ar fjöldamorðunum á Torgi hins
himneska friðar í byijun mánaðar-
ins. Athygli vekur að hafín er
persónudýrkun á Deng Xiaoping,
en fram að þessu hefúr persónu-
dýrkun verið litin hornauga i Kína
— allt frá því að Maó Zedong var
tekinn úr guðatölu. Þrátt fyrir að
þrjár vikur séu liðnar frá fjölda-
er friður enn ekki
í Peking. Að minnsta
morðunum
kominn á
kosti tveir hermenn hafa verið
drepnir á undanförnum dögum og
fregnir hafa borist um að almenn-
ir borgarar hafi vopnbúist. Hafa
allir kínverskir sendiherrar er-
lendis verið kallaðir heim til að
taka þátt í ráðstefnu um ástandið
í Kína og viðbrögð erlendra ríkja.
Fyrsta frétt kínverska sjónvarps-
ins í gær var ræða Dengs, sem hann
flutti 9. júní, fimm dögum eftir að
alþýðuherinn myrti þúsundir kínver-
skra ungmenna á Torgi hins him-
neska friðar. Myndir voru sýndar af
Deng í fullu fjöri og tók sú sýning
rúman stundarfjórðung.
Helstu dagblöð í Kína höfðu ræðu
Dengs á forsíðum sínum og hún var
hvað eftir annað lesin upp í útvarpi
og sjónvarpi. Félagar í kommúnista-
Kynlífshneykslið í Japan:
Uno lá við taugaáfalli af áhyggjum
Tókíó. Reuter.
NÝJAR sögur um kvennamál Sosukes Unos, forsætisráðherra Jap-
ans, hafa fengið svo á hann, að síðastliðið þriðjudagskvöld urðu
frammámenn í stjórnarflokknum, Frjálslynda lýðræðisflokknum,
sjálfir að sjá um að koma honum i rúmið. Var það haft eftir einum
starfsmanna 'flokksins í gær.
Starfsmaður stjórnarfiokksins
sagði, að Uno og aðrir forystumenn
flokksins hefðu komið saman í for-
sætisráðherrabústaðnum til að
ræða ástandið og hefði Uno þá
verið svo illa haldinn, að félagar
hans óttuðust, að hann fengi
taugaáfall.
„Það, sem veldur honum mestu
hugarangri, er, að hann á að fara
á leiðtogafund iðnríkjanna í París
í næsta mánuði og hann óttast, að
aðrir þjóðarleiðtogar muni ekki
virða hann viðlits, að þeir vilji ekki
einu sinni taka í hönd honum,“
sagði flokksstarfsmaðurinn.
Blöð og fjölmiðlar í Japan sögðu
í fyrradag, að Uno hefði boðist til
að segja af sér á þriðjudag þegar
hann heyrði, að slúðurtímarit ætl-
aði að birta nýja sögu um kynlífs-
ævintýri hans, en Uno sagði í gær,
að þessar fréttir væru tilhæfu-
lausar. í tímaritsgreininni, sem
birtist á morgun, er sagt, að Uno
hafi verið í tygjum við 16 ára gamla
„geishu“ og einnig, að náinn sam-
starfsmaður hans sé félagi í vænd-
isklúbbi. Þá sagði kvennatímarit á
þriðjudag, að Uno hefði á árum
áður haldið við barstúlku, gert hana
ófríska og beðið hana um að eyða
fóstrinu. Fyrir nokkrum vikum
sagði í öðru tímariti, að Uno hefði
notið félagsskapar fertugrar gleði-
konu í fjóra mánuði og greitt fyrir
um 1,2 milljónir ísl. kr.
Japanskir fjölmiðiar segja, að
forystumenn í stjórnarflokknum
hafi fengið Uno til að hætta við
að segja af sér og beitt þeim rök-
um, að ella stefndi í pólitíska upp-
lausn innanlands og álitshnekki
erlendis. 23. júlí nk. verður kosið
til efri deildar japanska þingsins
og er búist við, að stjórnarflokkur-
inn tapi mikiu fylgi. Kemur þar til
mikil óánægja með nýjan sölu-
skatt, Recruit-mútuhneykslið og
loks kynlífsævintýri Unos.
Reuter
Sosuke Uno, forsætisráðherra
Japans.
flokknum hafa verið hvattir til þess
að lesa ræðuna og meðtaka boðskap
hennar og í sjónvarpi hafa verið
sýndar myndir af kommúnistum nið-
ursokknum í ræðuna.
Vestrænir sérfræðingar segjast
ekki hafa séð annað eins frá þvi að
Maó var lyft á guðastall í menningar-
byltingunni, sem stóð frá 1966 til
dauða hans tíu árum síðar.
„Deng hefur ávailt látið svona
nokkuð eiga sig,“ sagði einn þeirra.
„Þetta minnir mig á dýrkunina á
Kim II Sung alræðisherra Norður-
Kóreu,“ bætti hann við.
Fréttaskýrendur telja að með
þessu vilji stjórnvöld koma almenn-
ingi í fullan skilning um að enginn
vafi leiki á um að Deng sitji sem
fastast í stjómarsessi og hafi að
auki verið aðalhugmyndafræðingur-
inn á bak við fjöldamorðin aðfara-
nótt hins 4. júní.
Lík tveggja hermanna hafa fund-
ist í skipaskurðum á undanförnum
tveimur dögum og báru bæði líkin
þess merki að hermennirnir höfðu
verið kyrktir. Þá hafa heyrst óstað-
festar fregnir af því að almennir
borgarar hafi gengið til liðs við vopn-
aðar sveitir ungra stuðningsmanna
lýðræðishreyfingar stúdenta í hópi
verkamanna. Vitað er að fjöldi vopna
hersins hefur „týnst“ og stúdentar
hafa sagt fréttaritara Daily Tel-
egraph að hægðarleikur sé að kom-
ast yfir skotvopn.
Sjá ennfremur: „Sá með eigin
augum ...“ á síðu 25.