Morgunblaðið - 29.06.1989, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 29.06.1989, Blaðsíða 50
50 MCffGIiNBlADH).. H 29. JÚNÍ 1989 KÖRFUKNATT! CIKUR / NBA-DEILDIN URSLIT Ellison valinn fyrstur Mikið um að vera íhinu árlega vali háskólaleikmanna Sean Elliott, skormaskínan frá San Arizona fer til Antonio Spurs HIÐ árlega val NBA-liðanna á háskólaleikmönnum fór fram á þriðjudag. Pervis Ellison frá Louisville var valinn fyrstur af Sac- ramento Kings. Þá hafa nokkrir leikmenn skipt um félag nýlega og hafa nýju liðin frá Minnesota og Orlando verið iðin við að ná sér í leikmenn. Auk þessa hafa leikmenn frá Sovétríkjunum og Júgóslavíu nú samið við NBA-lið. Háskólavalið fer þannig fram að liðin velja í öfugu hlut- falli við árangur á síðastliðnu keppnistímabili, þannig að lélegustu liðin velja fyrst en þau bestu síðast. Leikmönnum er skylt að semja við liðin sem velja þá, annaðhvort um að vera seldir til annara félaga eða samning við Gunnar viðkomandi lið. Að öðrum kosti verða þeir Valgeirsson að bíða í eitt ár og fara þa'aftur í valið. skrífar Kerfi þetta er sett upp til að jafna upp styrk- leikamun liðanna. Sacramento átti fyrsta valið og valdi Ellison eins og fyrr segir. Hann er miðvörður og mun styrkja liðið mikið. Los Angeles Clippers vöidu númer tvö og tóku Danny Ferry frá Duke. Ferry er framvörður og leikur mjög líkt og Larry Bird. Hann er talinn eiga mikla framtíð fyrir sér í deildinni. San Antonio valdi skormaskínuna Sean Eiliott frá Arizona. Elliott er mikill skorari og hann ásamt Ðavid Robinson, sem nú er loks laus við herskylduna, og Terry Cummings frá Mil- waukee, munu styrkja liðið verulega næsta keppnistímabil. Miami valdi bakvörðinn Glenn Rice frá meisturum Michigan- háskóla númer fjögur. Þá var komið að Charlotte og liðið ákvað að velja heimamann, J.R. Reed frá Norður Karolínu- háskólanum. Af öðrum liðum má nefna að Indiana fékk George McClo- ud frá Florida State, Dallas fékk Randy White Louisiana Tech, Washington Vlade Divac til Lakers Los Angeles velur miðherja Júgóslavneska landsliðsins Fær Radja leifi? Félagi Divac í Júgóslavneska landsliðinu, Dino Radja, var valinn af Boston í annarri umferð, en óvíst er að hann geti farið til liðsins þar sem hann er ennþá samningsbund- inn Jugoplastika,. sem er Evrópu- meistari félagsliða. Þjálfari liðsins sagði í gær að Boston fengi ekki Radja fyrir ekki neitt. „Hann er enn samningbundinn okkur, ólíkt Divac hjá Partizan Belgrad. Vilji hann fara verður að ganga frá íjárhags- legu hliðinni við okkur og ég veit ekki nú hvort það verður hægt,“ sagði hann. Þá má loks geta þess að Drazen Petrovic, besti leikmaður Júgóslava, sagði að hann væri á leiðinni til Bandaríkjanna til Portland að semja við liðið. Þetta kemur mjög á óvart, því talið var víst að hann yrði áfram hjá Real Madrid á Spáni. LOS Angeles Lakers kom held- ur betur á óvart á þriðjudag þegar liðið ákvað að velja Vlade Divac, miðherja Júgó- slavneska landsliðsins, íárlegu vali NBA-liðanna á leikmönn- um. Divac, sem er 21 árs, er 2.11 metrar á hæð og geysilega fljótur af miðherja að vera eins og íslenskir sjónvarpsáhorf- endur gátu séð í úrslitaleik Evrópukeppni landsliða á sunnudag. akers hefur þegar samið við k kappann og mun hann fljótlega fara til Los Angeles þar sem hann verður settur í stíft nám í ensku. „Ég trúi þessu varla Gunnar ennþá. Á síðustu sjö Valgeirsson dögum hef ég gift skrifar mig, orðið Evrópu- meistari, verið val- inn í NBA-deildina og nú er ég að flytja á stað kvikmyndastjarnanna. Það verður frábært að fá tækifæri á að leika með Magic Johnson. Þetta er allt eins og draumur," sagði Divac við fréttamenn í gær. Lakers vonar að Divac muni ná að fylla það skarð sem Abdul- Jabbar skilur eftir sig. Flestir sér- fræðingar telja að Lakers hafi verið mjög heppið að ná i Divac og að hann muni standa sig vel í deiidinni. Michael Cooper sagði í viðtali við dagblaðið USA Today á föstudag að hann byggist allt eins við að verða seldur frá félaginu í skiptum fyrir miðheija, en hann þarf varla að hafa áhyggjur af því nú. Ljóst er af þessu að framkvæmdastjóri Lakers hefur farið hljótt með samn- ingaviðræður við Divac, enda kom val Lakers á óvart á þriðjudag. Föstudagur kl.19:55 25. LEIKVIKA- 30. júní1989 III ;;:x: 2 Leikur 1 Þór - Valur ^ Leíkur 2 Víkingur - Keflavík1d Leikur 3 Akranes - F.H.1d Leikur 4 K.R. - Fram1d Leikur 5 Selfoss - Í.R.2d Leikur 6 Völsungur - Í.B.V.2d Leikur 7 Stjarnan - Víðir2d Leikur 8 Einherji - Breiðablik2d Leikur 9 Tindastóll - Leiftur2d Leikur 10 Grótta - Í.K.30 Leikur 11 Afturelding - Grindavík3(1 Leikur 12 K.S. - Huginn30 Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. LUKKULÍNAN s. 991002 , Ath. lokunartímann ! Ikvöld Einn leikur verður í kvöld í 1. deild karla í knattspyrnu — Fylkir og KA eigast við á grasvelli Fylkis í Arbæ kl. 20.00. Þá verða tveir leikir í 1. deild kvenna. ÍA og Breiðablik mætast á Akranesi og á Akur- eyri leika KA og Valur. Báðir leikirnir hefjast kl. 20.00. GOLF Mót á Hellu Hið árlega háforgjafamót Golf- klúbbs Hellu verður haldið á Strandarvelli 1. júlí næstkomandi og hefst kl. 8.00. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar. Rétt til þátttöku eiga kylfingar með forgjöf 20 og yfir. Skráning verður í golf- skála föstudaginn 30. júnf frá kl. 13.00 til 20.00. tók Tom Hammonds frá Georgia Tech, Minnesota valdi Pooh Richardson frá UCLA, Detroit náði í Kenny Battle frá Illinois, og Boston valdi Michael Smith, miðheija frá Brigam Young University í Utah. Chicago styrkist Chicago Bulls hafði nóg að gera í valinu. Liðið hafði rétt á að velja þrisvar í fyrstu umferð eftir að hafa losað sig við leikmenn í skipt- um fyrir valrétt. Þannig seldi liðið Brad Sellers til Seattle fyrir valrétt þess félags. Liðið valdi Stacy King, miðheija, frá Oklahoma númer sex, B.J. Armstrong frá Iowa númer 18 og Jeff Sanders frá Georgia Sout- hem númer 20. Doug Collins, þjálf- ari Chicago var mjög hress eftir valið. „Við hreinlega rændum King, við áttum aldrei von á því að hann væri eftir þegar kæmi að okkur. Þetta er einmitt leikmaðurinn sem okkur vantaði. Ég er himininlifandi yfir þessu,“ sagði Collins. Með þess- um leikmönnum hefur Chicago loksins fengið nægan stuðning með Michael Jordan og ljóst er að liðið á mikla framtíð fyrir sér. 3. DEILDA: ÍK—Þróttur.........................1:1 Júlíus Þorfmnsson - Sigurður Hallvarðsson. Grindavík—B.í......................1:0 Páll Bjömsson. Leiknir R—Reynir S.................2:3 Ragnar Baldursson, Jóhann Viðarsson — Valdimar Júliusson 2, Antony Stissi. Hvcragerði—Afturelding.............3:3 Jóhannes Bjömsson, Ólafur Jósefsson, Anton Tómasson — Rúnar Sigurðsson, Þór Hinriks- son, Höskuldur Steinarsson. 3. DEILDB: Huginn—Reynir A....................1:0 Sveinbjöm Jóhannsson. Magni—Kormákur.....................4:2 Jón Ingólfsson, Heimir Ásgeirsson, Jónas Bald- ursson, Helgi Helgason — Albert Jónsson, Hörður Guðbjömsson. Þróttur N—Dalvík................. 3K) Guðbjartur Magnason, Þorlákur Ámason og Kristinn Guðmundsson. 4. DEILDD: T.B.A.—Efling...................-—1:1 Sigurpáll Ámi Aðalsteinsson — Svavar H. Viðarsson. HSÞ-b—UMSE-b.......................7:0 Ámi Hallgrímsson 3, Viðar Sigurbjömsson 3, Hilmar Ágústsson. Æskan—S.M..........................3:3 Halldór Aðalsteinsson, Stefán Rögnvaldsson, Sigurður Skarphéðinsson — Heimir Finnsson, Helgi Eyþórsson, Rósant Torfason. Hvöt—UMF Neisti....................3:0 Gísli Gunnarsson 2, Axel Rúnar Guðmundsson. 4. DEILDE Leiknir F—KSH......................5:4 Róbert Amar Stefánsson 3, Jakob Atlason, Magnús Steinþórsson — Jónas Ólafsson, Ey- þór Viðarsson, Vilhelm Jónasson, Ingólfur Amarson. Höttur—Sindri.................... 4:2 Guttormur Pálsson 2, Haraldur Klausen, Magnús Steinþórsson — Elvar Grétarsson, Sigmundur Sigurgeirsson. LYFJANOTKUN / A-ÞYZKALAND Fjöldi íþrótta- manna gerður að öryrkjum HANS-GEORG Aschenbach, austur-þýzki læknirinn og fyrrum ólympíumeistari í skíðastökki, sem flýði til Vest- ur-Þýzkalands fyrir skömmu, hélt í gær áfram að deila á austur-þýzk yfirvöld fyrir illa meðferð þeirra á ungu íþróttafólki. Hann segir, að ótrúiegar fómir séu færðar í þeim tilgangi að búa til íþróttamenn á heimsmæli- kvarða. „Fyrir hvern ólympíu- meistara er fórnað að minnsta kosti 350 ungmenn- um, sem verða öryrkjar" seg- ir Aschenbach. Austur-þýzk yfirvöld hafa harðneitað þessum sakargiftum. Aschenbach útlistaði náið hvernig ungu austur-þýzku afreksfólki væri pískað út og alið á lyfjum allt frá bemsku. Alagið á börnunum og unglingunum, jafnt iíkamlegt sem andlegt, væri ólýsanlega mikið í íþróttaskólun- um og aðeins 10% þeirra stæðust það álag og yrðu íþróttamenn á heimsmælikvarða. Máli sínu tii stuðnings nefndi hann nokkur dæmi. Fimleika- stúlkur, 18 ára að aldri, þurfa sumar hverjar að nota iífstykki vegna þess að hryggur þeirra og liðbönd hafa ekki þoiað álagið. Þá tiltók hann dæmi um 14 ára gamla skíðamenn, sem var ofgert svo með æfingum, að þeir þurftu að fara í sprautumeðferð vegna hnjámeiðsla. Járnaganum er einnig beitt gagnvart íþróttamönnum, sem lengi hafa verið í fremstu röð að sögn Aschenbachs. Sumum er til dæmis bannað að hætta keppni þegar enginn landi þeirra er talinn nægilega góður til að taka sess þeirra á alþjóðlegum vettvangi. Wolfgang Hoppe, ólympíumeistari á bobsleða, er nú 31 árs. Þrátt fyrir að rannsóknir lækna sýni, að hryggur hans sé eins og á sjö- tugum manni, er hann neyddur til að halda áfram keppni, íkiædd- ur lífstykki og í sérhönnuðu sæti sem er eins og bæklaðir nota. Þýzka blaðið Bild, sem birt hefur viðtölin við Aschenbach, segir, að fyrst eftir flótta hans vestur yfir járntjald hafi hann ætlað sér að þegja um þessi mál. Eftir að eiginkonu hans og tveim- ur börnum var neitað um brott- fararleyfi til V-Evrópu í síðasta mánuði, hafi hann hins vegar ákveðið að leysa frá skjóðunni. Austur-Þjóðverjar harðneita Austur-þýzk íþróttayfirvöld hafa harðneitað þessum ásökun- um Aschenbachs og segja þær tilhæfulausar með öllu. Austur- Þjóðveijar hefðu þvert á móti staðið framarlega í flokki herferð- ar gegn ólöglegri lyfjanotkun. Hins vegar hefði Aschenbach sjálfur verið grunaður um að hafa ætlað að gefa skiðastökkvurum ólögleg lyf og rannsókn staðið yfir vegna málsins í Austur- Þýzkalandi þegar hann flýði vest- ur yfir. Aschenbach hefði í fyrstu verið virtur sérfræðingur en síðan hefði eigingirnin náð yfirhönd- inni. Þegar i óefni hefði verið komið og upp hefði komizt um aðgerðir hans, hefði hann fremur kosið að flýja en horfast í augu við staðreyndir. Heimildir í Austur-Berlín herma einnig að nokkrir austur- þýzkir íþróttamenn hefðu fallið á lyfjaprófum undanfarin ár og ver- ið refsað. Hins vegar hafi verið tekin sú stefna að íjalla ekki um málin opinberlega. Síðustu at- burðir kynnu að breyta þessari stefnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.