Morgunblaðið - 29.06.1989, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 1989
Aðalstræti 6:
Eldur í
lyftuhúsi
ELDUR kom upp í tengi-
töflu í lyftuhúsi Aðal-
strætis 6, Morgunblaðs-
hússins, upp úr hádeginu
í gær. Slökkviliði var
gert viðvart, en er það
kom á staðinn hafði hús-
verði tekizt að slökkva
eldinn með slökkvitæki.
Fjórir slökkvibílar og
sjúkrabíll komu á staðinn
og lögregla lokaði Aðal-
stræti fyrir umferð á með-
an enn var talið að hætta
gæti verið á ferðum. Nokk-
ur reykur fylgdi eldinum,
en skemmdir urðu aðeins
á lyftuhúsinu. Starfsemi í
húsinu, sem er sjö hæðir
og kjallari, raskaðist ekki.
Morgunblaðið/Einar Falur
Slökkviliðsmenn í lyftuhúsinu er eldurinn hafði verið slökktur.
Ferskfískútflutningur:
Ágreiningur um til-
högun aflamiðlunar
„Getum ekki dregið til baka innanhússskýrslu,“ seg-
ir Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra
Mikil aukavinna á ríkisspítulunum:
Aðstoðarlæknar
með 200 aukatíma
Unnið að breytingum á kerfinu
LÍKUR eru á að breytingar verði
á útflutningi á ferskum fiski á
næstunni, þar sem utanríkisráðu-
neytið mun vi^ja að ákvarðana-
taka um útflutning á ferskum
fiski í gámum verði flutt úr ut-
anríkisráðuneytinu í sérstaka
aflamiðlunarstofhun. Þetta er
einnig skoðun sjávarútvegsráðu-
neytisins en ágreiningur er um
það hver tilhögun aflamiðlunar-
innar eigi að vera. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er
ágreiningur um það á milli ut-
anríkisráðuneytisins og LÍÚ
hvort allur útflutningur á fersk-
um fiski, þar með taldar siglingar
fiskiskipa á erlenda markaði, eigi
að heyra undir þessa nýju stofn-
un, en það er eindregin skoðun
ráðuneytisins.
Utanríkisráðuneytið mun leggja
til að sérstök aflamiðlunamefnd
verði sett á laggimar, sem stýri
öllum ferskfiskútflutningi og að
flskvinnslan og fiskverkafólk eigi
fulltrúa í þeirri nefnd. Sjávarút-
vegsráðherra hallast á hinn bóginn
að því að þeir aðilar sem eigi sæti
í verðlagsráði sjávarútvegsins eigi
að fara með þessi mál, en þar á
fiskvinnslufólk engan fulltrúa.
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, mun andvígur því að LÍÚ láti
af stjórnun á siglingum fiskiskipa
á erlenda markaði með ferskan fisk,
og þar mun höfuðágreiningur mjlli
utanríkisráðuneytisins og LÍÚ
liggia.
Halldór Ásgrímssón, sjávarút-
vegráðherra, sagði í samtali við
Morgunbiaðið í gær, að iðulega
hefðu veiðieftirlitsmenn verið sendir
á erlenda fískmarkaði okkar til þess
að fylgjast með sölu á ferskum
físki. Sá háttur yrði hafður á áfram
og skýrslur um þær ferðir gerðar.
„Þó að innanhússskýrsla um svona
ferðir hafí lent í höndum aðila sem
ekki átti að fá hana, þá getum við
ekki dregið slíkar skýrslur til baka,“
sagði Halldór.
Ráðherra sagðist vilja koma upp
upplýsinga- og aflamiðlun sem væri
stjómað af þeim aðilum sem ættu
aðild að verðlagsráði, þ.e. fulltrúa
kaupenda, seljenda og skrifstofan
hefði síðan samvinnu við ráðuneytin
og Fiskifélagið og afgreiddi útflutn-
ingsheimildir á ferskum fiski, bæði
að því er varðaði skip og gáma.
Halldór kvaðst ekki telja tímabært
að svo stöddu, að fulltrúar fisk-
vinnslufólks eignuðust fulltrúa sinn
í slíkri aflamiðlun, en vissulega
mætti athuga það síðar meir. „Fyrst
og fremst þarf að koma svona skrif-
stofu á laggimar og láta hana hefja
störf hið fyrsta, en þetta hefur nú
verið að velkjast í kerfinu í marga
mánuði," sagði sjávarútvegsráð-
herra.
AÐSTOÐARLÆKNAR á
ríkisspítölunum vinna mikla
yfirvinnu. Algengt er að þeir
vinni allt að 200 yfirvinnutíma
á mánuði hveijum. Pétur Jóns-
son framkvæmdastjóri sljóm-
unarsviðs ríkisspítalanna segir
Reykjavík:
Viðurkenning-
ar fyrir viðhald
gamalla húsa
BORGARRÁÐ hefúr samþykkt
að fela umhverfismálaráði
Reylqavíkurborgar að veita við-
urkenningar fyrir viðhald og frá-
gang gamalla húsa í borginni.
Slík viðurkenning verður því
veitt í sumar auk viðurkenninga
fyrir fegurstu götuna og fyrir-
myndar frágang við fjölbýlishús,
atvinnu- og iðnaðarhúsnæði.
Viðurkenning fyrir viðhald eða
endurgerð gamalla húsa er að sögn
Jóhanns Pálssonar garðyrlqustjóra
útvíkkun á gömlum hefðum. Úpp-
haflega veitti Fegranarfélag
Reykjavíkur árlega viðurkenningu
fyrir fallegustu garðana. Síðar tók
Úmhverfismálaráð borgarinnar
þetta að sér og farið var að veita
viðurkenningu fyrir fegurstu göt-
una í stað garða. í nokkur ár hafa
einnig verið valin þau fyölbýlishús
og vinnustaðir sem fallegast er f
kringum.
að þrátt fyrir samdrátt í starf-
semi spítalanna og lokun deilda
í sumar eigi þessi mikla yfir-
vinna sínar skýringar. Hann
nefiiir m.a. skort á aðstoðar-
læknum, Qölda bakvakta hjá
þeim og kjarasamninga. Hins-
vegar er nú unnið að breyting-
um á þessu kerfi en þær eru
ekki á frásagnarstigi enn.
„Stöður aðstoðarlækna eru
námsstöður og þurfa þeir því að
ganga vaktir á öllum deildum, 3-6
mánuði á hverri. Auk þess ganga
þeir bakvaktir á nætumar og slíkt
skapar þeim mikla yfirvinnu," seg-
ir Pétur. „Aðstoðarlæknar hafa
svefnaðstöðu á spítölunum en
hvert útkall þeirra greiðist sem
tveir tímar þótt verkið taki þá
kannski ekki nema 5 mínútur.
Þetta er bundið í kjarasamning-
um.“
Petur segir að frá því að fjölda-
takmarkanir voru teknar upp í
Háskölanum, í læknanámi, hafi
borið á skorti á aðstoðarlæknum.
Nokkur umræða hafa farið fram
um hverning mætti bregðast við
þessu. Meðal annars hafí verið
rætt um að ráða lækna erlendis
frá sem myndu ganga að hluta til
inn í störf aðstoðarlækna. Engin
ákvörðun hefur þó verið tekin um
þetta.
„Það má segja að þessi mál séu
mikið í deiglunni hjá okkur núna
og ýmislegt hefur verið rætt um
en ekkert af því er á frásagnar-
stigi enn,“ segir Pétur.
Norðurá að braggast?
Veiðin í Norðurá hefur ekki ver-
ið upp á það besta stærstan hluta
júnímánaðar og langtum lakari
helöur en spáð hafði verið. Vatn-
skuldi, gragg og flóð hafa haft sitt
að segja, en það stakk menn þó
að Iítið eða ekkert virtist ganga í
ána á stóra straumunum um Jóns-
messuna, en það eru annálaðir
göngustraumar. Að vísu var áin
enn mjög köld, en vatnsmagn orðið
skaplegt og litur hreinn. Síðustu
tvo sólarhringana hefur að vísu
komið svolítil ganga og veiðin hef-
ur glæðst. Verður fróðlegt að sjá
framhaldið. Um 160-170 laxar era
komnir á land og er nú nærri þriðj-
ungur veiðitímans að baki. Jafnvel
þó að áin fyllist af laxi er hætt við
að heildarveiðin líði mjög fyrir hinn
slaka júnímánuð. Aftur á móti
gæti síðsumarsveiðin bætt það
ríkulega upp og nú spá margir
Norðurármenn því að síðágúst-
dagar sem oftast eru daufír í Norð-
urá verði miklir veiðidagar.
Góðar göngur og tökur
í Kjósinni
Eins og í fyrra, berast hvað
líflegastar veiðifréttir ofan úr Kjós,
frá Laxá. Þar era nú komnir um
220 laxar á land og hefur veiðst
mikið allra síðustu daga, stór og
smár fiskur í bland. Vatnsmagnið
er hið besta og sagði Ólafur veiði-
vörður í gærdag, að það væri nú
aðeins tímaspursmál hvenær stóðið
færi að renna fram fyrir Laxfoss.
Stærsti lax sumarsins vó 17 pund,
en einn vel yfír 20 punda er á
sveimi í ánni, sást fyrir stuttu und-
ir brúnni, en grunur leikur á að
hann búi nú Laxfoss.
Sérstök tittabók
í Elliðaánum
Um 80 laxar hafa veiðst í Elliða-
ánum, sá stærsti 14 punda, en
flestir smáir. Um 200 fískar hafa
gengið um teljarann við rafstöð,
en mikið af laxi er fyrir neðan Sjáv-
arfoss, einkum á Breiðunni. Skúli
Kristinsson veiðivörður sagði í
gærmorgun, að það væri með ólík-
indum hversu illa laxinn tæki, en
skýringin væri hugsanlega sú að
mest af laxinum er á litlu svæði
og þar er staðið og barið allan lið-
langan daginn og ekki að undra
að laxinn yrði hvekktur. Það er
farið að bera á eldislaxi í ánum,
sex stubbar hafa veiðst og fleiri
sést. Skúli sagði að þeir færu nú
í sérveiðibók, „tittabókina" og lax
undir 3 pundum teldist nú ekki
lengur í kvóta veiðimanna. „Þetta
er fínt, nú geta menn mokað eldis-
löxunum upp af hjartans lyst án
þess að þeir fylli kvóta þeirra,“
sagði veiðivörðurinn.
Árni BaJdursson leigutaki með
fallega kvöldstundarveiði fyrir
fáum dögum.
Góð byrjun í Leirvogsá
Veiðin bytjaði af krafti í Leir-
vogsá 25. júní, fímm laxar veidd-
ust fyrsta daginn, allir stórir og
sá stærsti tæp 18 pund, en laxar
af þeirri stærð eru fágætir í Leir-
vogsá. Nú eru um 15 fiskar komn-
ir á land og nokkuð gengið af laxi
að sögn kunnugra manna. Laxinn
er dreifður, en sá stóri veiddist í
Helguhyl.
Úr ýmsum áttum
Stærsti lax sumarsins veiddist í
Þverá fyrir nokkram dögum, 19
pundari sem tók flugu, en flugulax-
ar sumarsins era enn afar liðfáir.
Veiðin hefur glæðst nokkuð í Þverá
og Kjarrá og þar munu komnir
samanlagt um 150 laxar sem er
ekki afleitt þegar að er gáð að
fyrsti laxinn veiddist ekki fyrr en
á fjórtánda degi.
Svartá opnaði 25. júní og sagði
Grettir Gunnlaugsson ámefndar-
maður SVFR fyrir ána, að það
hefði ekki svo mikið sem sést lax,
enda hefðu verið foráttuflóð í
Blöndu. Þar hefði nú glæðst veiðin
og því að vænta að laxinn færi að
koma í Svartá.
Laxá í Aðaldal er komin í um
110 laxa o g era þeir nær allir veidd-
ir á svæðum Laxárfélagsins, afar
léleg veiði hefur verið á öðram
svæðum. Stærsti laxinn veiddist í
vikunni, 17 punda hrygna fyrir
neðan Æðarfossa.
Sogið hefur byijað rólega, 4 lax-
ar höfðu veiðst í Ásgarði, 2 laxar
á Bíldsfelli, en enginn í Alviðru eða
Syðri Brú þegar síðast fréttist.
Enginn lax hafði veiðst í Ölfusá
hjá Selfossi þegar fréttist síðast,
en fáeinir fískar í Langholti.
Léleg veiði hefur verið síðustu
daga í Laxánum í Leirársveit og á
Asum. Sú fyrrnefnda byijaði bæri-
lega, en svo dró úr veiðinni, þannig
veiddust ekki nema 7 laxar í henni
á þremur dögum fyrir skömmu.
Úr Laxá á Ásum koma nú margir
með öngulinn í rassinum og síðustu
fregnir herma að innan við 100
laxar hafi veiðst og lítið sjáist af
físki.
Stærsta fréttin er kannski sú að
fjórir laxar höfðu veiðst í Reykja-
dalsá í Borgarfirði í byijun vikunn-
ar. Það eitt að fá þar lax í júní er
óvenjulegt, en þessi á hefur verið
að gefa þetta um 40 laxa á sumri
síðustu sumur og deyfðin verið al-
ger. Ef til vill veit þessi júníveiði
á betri tíma.
Mikil átök rétt ofan brúar í Laxá í Kjós, enda hætta á ferðum
ef stórfiskurinn sleppur niður fyrir.