Morgunblaðið - 29.06.1989, Page 21
•MORGUNBLAÐIÐ: FlMMTUt>AGUR 29-.'4ÚNLjt98?
Yfírverkstjóri Hagvirkis við Blönduvirkjun:
Hættuástand hefði getað
skapast við vatnavexti
í bréfinu til fjármálaráðherra
sagðist forstjóri Landsvirkjunar
telja, að stöðvun vinnuvéla við
Blönduvirkjun biyti í bága við lög-
mæta hagsmuni Landsvirkjunar.
Röskun á framkvæmdum væri til
þess fallin að valda beinni hættu
við Blöndu vegna bráðabirgðastíflu
sem búið væri að gera og þyrfti að
vakta og Landsvirkjun yrði fyrir
meiriháttar tjóni vegna tafa á fram-
kvæmdum.
Rennsli Blöndu nú í lágmarki vegna kulda á hálendinu
„EF TÆKIN væru innsigluð gæti vissulega skapast hér hættuástand
við bráðabirgðastífluna. Það eru afkastamestu tækin sem vinna við
hana og ef mikið hækkar í ánni, sem gæti hæglega orðið ef hlýnar
snögglega, þá eru þessi mannvirki í hættu,“ sagði Árni Baldursson
yfirverkstjóri Hagvirkis við gerð Blöndu- og Kolkustíflu í samtali
við Morgunblaðið. Halldór Jónatansson forstjóri Landsvirkjunar hafði
lýst því yfir í bréfi til fjármálaráðherra og Hagvirkis að mjög alvar-
legt væri fyrir Landsvirkjun ef starfsemi fyrirtækisins yrði stöðvuð
og röskun á framkvæmdum við Blöndu væri til þess fallin að valda
beinni hættu vegna bráðabirgðastíflu sem þyrfti að vakta og tjóni
vegna tafa við framkvæmdirnar.
Á framkvæmdasvæðinu við
Blöndustíflu var vinna í fullum
gangi þegar Morgunblaðsmenn
komu þangað á þriðjudag og 45
manns komnir til starfa. Aðrir 40
munu síðar bætast við, þannig að
um 80 manns munu starfa hjá
Hagvirki við stíflugerðina í sumar,
þar af um helmingur úr héraði.
Vinna hófst við stíflugerðina í byij-
un maí og fór seinna af stað en
ráðgert hafði verið, vegna snjóa og
kulda.
Árni Baldursson segir að tækin
í eigu Hagvirkis, sem hefðu verið
innsigluð, væru fimm stórir gijót-
flutningatrukkar og stærsta hjóla-
skóflan á svæðinu. Þessi tæki eru
notuð við að flytja efni í stífluna á
Blöndu.
Hann segir að hættan, sem staf-
aði af stöðvun þessara tækja, liggi
í því, að þegar hlýnar aftur á há-
lendinu, vex í ánni og þá brýst hún
út úr þeim farvegi sem hún fellur
nú í og getur rutt frá sér jarðvegsst-
íflu, sem beinir henni nú um loku-
virki, sem reist var í fyrra. Litið
er nú í ánni, rennslið um 40 rúm-
metrar á sekúndu, en fyrir um
tveimur vikum komst rennslið í um
500 rúmmetra.
„Hér fyrir ofan er allt fullt af
snjó alla leið að Hveravöllum,“ sagði
Árni. „Þegar hlýnar þá vex í ánni
og ef hlýindin koma skart, þá má
ekkert út af bera.“
Árni Baldursson er jafnframt
formaður Starfsmannafélags Hag-
virkis og sagði hann engan vafa
leika á því, að aðgerðir félagsins
hefðu haft sín áhrif til að forða
Hagvirki frá stöðvun. „Við vorum
að skipuleggja þetta í gærkvöldi,
ég var allt kvöldið í símanum. Svo
þegar við fréttum það í morgun að
ríkisstjórnarfundi var frest-að, þá
ákváðum við að stilla fólkinu í stað-
inn upp fyrir framan ráðherrabú-
staðinn þar sem ráðherrarnir ræddu
við finnska forsætisráðherrann. Það
var örugglega miklu sterkari að-
gerð heldur en að standa framan
við stjórnarráðið," sagði Ámi Bald-
ursson.
Verkefni Hagvirkis við Blöndu
er gerð aðalstíflu Blönduvirkjunar
við Refstjamarbungu auk annarra
stlflna. Þessu verki á að ljúka að
mestu fyrir árslok 1990, að fullu
1991, og heildarverkalaun vom 885
milljónir króna á verðlagi í desem-
ber 1988.
Morgunblaðið/RAX
Efst á myndinni trónir turninn, sem verður í Blöndustíflu miðri, í
honum eru lokur til að hleypa úr lóninu sem verður ofan stíflunnar.
Nú rennur Blanda um lokuvirkið og í stokknum á myndinni. Rennsl-
ið er nú í lágmarki, 40 rúmmetrar á sekúndu og er líklegt til að vaxa
í hlýindum. Skurðurinn og lokurnar geta tekið við 180 rúmmetra
rennsli. Vinstra megin við turninn má sjá í jarðvegshauga, sem
mynda bráðabirgðastífluna.
Lítið eitt neðan við lokuvirkið er gijótnámið, þar sem efni í Blöndustíflu er tekið. I flóðunum fyrir tveim-
ur vikum fór þetta vinnusvæði á kaf, þá var vatnsborð Blöndu þarna um tveimur metrum hærra en nú.
Á myndinni sjást grjótflutningabí
Reykj avíkurborg:
Hugmyndasamkeppni um skipu-
lag byggðar á Geldinganesi
Hugmyndasamkeppni um skipulag á Geldinganesi verður kynnt
formlega á næstu dögum og auglýst eftir tillögum. Um er að ræða
220 hektara svæði þar sem gert er ráð fyrir íbúðabyggð auk at-
vinnu- og þjónustuaðstöðu. Svæðið er svipað að stærð og lögun og
gamli bærinn innan Hringbrautar og Snorrabrautar.
Borgarráð samþykkti í fyrra til-
lögu skipulagsnefndar Reykjavíkur-
borgar um að efna til hugmynda-
samkeppninnar. Fimm manna dóm-
nefnd sem skipuð var á síðasta ári
hefur að undanförnu unnið að und-
irbúningi samkeppninnar. Öllum er
frjálst að taka þátt, en Þorvaldur
S. Þorvaldsson, forstöðumaður
borgarskipulags, kveðst þó gera ráð
fyrir að vegna umfangs verkefnis-
ins komi tillögur aðallega frá arki-
tektum.
Þorvaldur segir að ekki verði leit-
að eftir fullunnum tillögum til að
byggja eftir, miklu frekar nýjum
hugmyndum um skipulag. Til
greina gæti komið að nýta hluta
af tillögum eða fleiri en eina. Dæmt
verði í samkeppninni í byijun næsta
árs og í framhaldi af því tekin
ákvörðun um hvemig tillögurnar
verði notaðar.
I dómnefnd sitja arkitektarnir
Guðlaugur Gauti Jónsson, Finnur
Björgvinsson og Ingimundur
Sveinsson, en auk þeirra Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson og Ingibjörg Sólrún
Gísládóttir. Dómnefndinni til ráðu-
neytis em Þorvaldur S. Þorvaldsson
og Þórður Þ. Þorbjarnarson, borg-
arverkfræðingur.
Steinakrýl
Fyrir þá sem vilja mála sjaldan
en gera það vel
Þú vandar til verksins, þegar þú málar húsið
með Steinakrýli frá Málningu hf. Stein-
akrýl veitir stcininum ágæta vatns-
vöm og möguleika á að að
„anda“ betur en hefðbundin
plastmálning. Viðloðun
Steinakrýls er gulltrygg og
því getur þú einnig notað
það senr grunn undir Kópal-Steintex. Þú
gctur málað mcð þessari úrvalsmálningu við
lágt hitastig, jafnvel í frosti. Hún
þolir vætu eftir um eina
klst., hylur fullkomlega í
tveimur umferðum, veðr-
unarþol er frábært og litaval
gott.
Næst þegar þú sérð fallcga málað hús - kynntu þér þá hvaðan málningin er
mmálninghlf
- það segir sig sjdlft -