Morgunblaðið - 29.06.1989, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. JUNI 1989
23
Skóla-
hald í
stríðs-
hrjáðri
borg
Skólahald í Beirut í
Líbanon liggur að
mestu leyti niðri
vegna hinna geysi-
hörðu átaka, sem
staðið hafa svo til
linnulaust í borginni
undanfarna tvo til
þijá mánuði. Einstöku
skóli hefur þó haldið
starfseminni gang-
andi, eins og sjá má
á þessari mynd, sem
tekin var fyrir
skömmu í múha-
meðska hlutanum í
Vestur-Beirut.
Meirihluti írskra þingmanna
snýst gegn Charles Haughey
Dublin. Reuter.
NÝKJÖRIÐ þing írlands kom saman í fyrsta sinn í gær. Allt benti
til þess að Charles Haughey, leiðtogi Fianna Fail flokksins, yrði
ekki endurkjörinn forsætisráðherra landsins.
Enginn stjórnarandstöðuflokk-
anna ætlar að styðja Haughéy til
embættis forsætisráðherra. Flokk-
ur hans fékk 77 þingmenn kjörna
en alls sitja 165 menn á írska þing-
inu.
Haughey vantar því sex þing-
sæti til þess að hafa meirihluta á
þingi. Annar stærsti flokkur
þingsins er Fine Gael sem hefur
55 þingsæti.
Þeir neita að styðja stjórn
Haugheys nema á jafnréttisgrund-
velli. Þeir vilja fá jafn marga ráð-
herra og Fianna Fail og skiptast
á um forsætisráðherraembættið.
Það getur Haughey ekki sætt
sig við. Vinstri flokkarnir hafa
hafnað hvers konar stjómarsam-
starfi en sameiginlega hafa þeir
22 þingmenn.
Framfarasinnaðir demókratar,
sem hafa sex þingsæti, ákváðu á
þriðjudag að greiða atkvæði gegn
Haughey þegar kjósa ætti nýjan
forsætisráðherra á írska þinginu.
Leiðtogi þeirra, Desmond
O’Malley er höfuðandstæðingur
Haughey, en flokkurinn varð til
með klofningi úr Fianna Fail fyrir
þremur ámm, eftir að þeir deildu
harkalega.
írska þingið virðist því ekki
geta komið sér saman um forsæt-
isráðherra, en slíkt hefur ekki áður
gerst í 68 ára sögu lýðveldisins.
Nýjar kosningar gætu leyst
þennan vanda en flestir stjórn-
málamenn vilja ekki heyja aðra
kosningabaráttu í sumar.
Því er búist við að næstu viku
verði langar og strangar samn-
ingaviðræður á bak við tjöldin til
að leysa þessa stjórnarkreppu.
ERLENT
Á qrillið, - Túböð 599.- kg
' í3KM)PS»
AWskonar skór.
Útbúnaðunnnusar Tjalddýnor, kæ'ibox
OO sahdleMöngunum
börnin.