Morgunblaðið - 29.06.1989, Síða 47
MÖRGUNBLAÐIÐ FlMMTUDAUUá'29. JÚNÍ 1989
•47 .
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
I
I
Milliliðir
Þessir hringdu . .
Fiskurinn bestur
Matmaður hringdi:
„Vakin hefur verið athygli á
hinu gífurlega háa verði sem hér
er á landbúnaðarafurðum miðað
við nágrannalönd okkar. Við
þessu virðist lítið að gera, í það
minnsta hefur ekkert verið gert
árum saman og verður sjálfsagt
ekkert gert. Hins vegar er góður
fiskur ódýr hér og það ættu neyt-
endur að nota sér. Fiskurinn er
líka besta matvaran sem fáanleg
er ef hann er rétt matreiddur en
það er heldur meiri kúnst að
matreiða fisk en kjöt. En með því
að þreifa sig'áfram í matseldinni
má komast uppá lag með að gera
fína fiskrétti og það ódýra rétti.“
Kettlingar
Tveir fallegir kassavanir kettl-
ingar fást gefins. Upplýsingar hjá
Svönu í síma 657572 eða síma
43710.
Hálsmen - silfurarmband
Silfurhálsmen með laufi og blá-
um steini tapaðist 17. júní, í Holly-
wood, við Háaleitisbraut eða á
leiðinni þaðan niður í bæ. Silf-
urarmbanda með litlum steini
fannst við Bergstaðastræti sama
dag. Vinsamlegast hringið í síma
83792.
Lesandi hringdi:
„Mikið hefur verið rætt um að
verð landbúnaðarvara sé svona
hátt vegna þess að milliliðir hafí
komist upp með að taka til sín
stór fé og hefur Sambandið a.m.k.
miklar tekjur af þessu. Greinilegt
er að bóndinn fær óeðlilega lítið
í sinn hlut. Hvernig væri að bænd-
ur færu sjálfir að vinna vörur
sínar meira, eins og gert var hér
áður fyrr, og setja þær beint á
markað sjálfir? Þannig mætti ná
verðinu niður og losna við millilið-
ina.
Sparnaður og ábyrgð þing-manna
Til Velvakanda.
Oft hefur verið talað um sparnað
í ríkisrekstri en það er eins og allar
aðgerðir renni út í sandinn sem
miða að því að spara hjá ríkinu.
Við íslendingar höfum því miður
tilhneigingu til að fara illa með
verðmæti og hefur það verið sér-
staklega áberandi síðustu áratugi
Týndur bangsi
Halló! Ég er þriggja ára strákur
og mér varð á að glata bangsanum
mínum. Ég held að það hafi gerst
í Seljahverfi. Ef einhver skyldi hafa
fundið hann er hann Jói minn
brúnn, loðinn og með rauða slaufu
um hálsinn. Ég sakna hans mikið
í rúminu mínu á kvöldin og yrði
mjög glaður ef einhver hefur fundið
hann. Hægt er að hringja í mig í
síma 74071 eftir kl. 19.
þegar þjóðartekjurnar hafa að jafn-
aði verið miklar. Að undanförnu
hefur verið vakin athygli á veislu-
höldum stjórnmálaskörunga sem
greidd eru úr sameiginlegum sjóði
þjóðarinnar. Þarna er um bjánalega
eyðslu að ræða og þennan útgjalda-
lið má skera alveg niður.
Athyglisvert er að meirihluti
fólks virðist vilja að þingmönnum
verði fækkað svo sem um helming.
Þetta er athyglisverð hugmynd því
spurningin er hvort þingmenn eru
ekki allt of margir. Verulegur
sparnaður myndi hljótast af þessu,
ekki síst þar sem núverandi Al-
þingishús myndi þannig nýtast
áfram óbreytt. Virðing fólks fyrir
ráðamönnum almennt hefur því
miður farið minnkandi og stafar
það líklega af hringlandahætti for-
ystumanna. Þeir lofa t.d. ávalt stöð-
ugu verðlagi en alltaf er það verð-
bólgan sem hefur vinninginn. Væru
þingmenn færri myndi ábyrgðin
ekki dreifast á eins marga og þann-
ig myndi hver einstakur verða
ábyrgari. J.G.
Fyrr á öldum var latína
kölluð föðurmál. Þess vegna
var farið að nefna aðrar
tungur móðurmál. Er ekki
íslenska örugglega
móðurmál okkar?
Astæðulaust þetta bros. Ég
verð ekki lengi í burtu ...
HÖGNI HREKKVlSI
i