Morgunblaðið - 11.07.1989, Side 1

Morgunblaðið - 11.07.1989, Side 1
72 SIÐUR B 154. tbl. 77. árg. ÞRIÐJUDAGUR 11. JULI 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Stjórnarmyndun í Póllandi: Samstaða leitar eftir stuðningi í Moskvu Reuter Barbara Bush, forsetafrú Bandaríkjanna, með trékross sem nunnur gáfii henni í Varsjá er hún heim- sótti skóla fyrir blinda og heyrnarlausa þar i borg. Vai*sjá. Reuter. SAMSTAÐA, óháðu verkalýðs- samtökin, er tilbúin til að mynda ríkisstjórn í Póllandi veiti Sovétstjórnin samþykki sitt og fái hún umfangsmikla eínahagsaðstoð frá vestrænum ríkjum, að sögn formælanda Samstöðu. Adam Michnik, einn helsti hug- myndafræðingur Samstöðu, er á förum til Moskvu til viðræðna við fulltrúa Sovétstjórnarinnar um hugsanlegt samþykki hennar við því að Samstaða myndi ríkisstjórn, að sögn formælanda samtakanna. Hann sagði að auk samþykkis Sovétstjórnarinnar teldi Samstaða sig þurfa að hafa tryggingu fyrir mikilli efnahagsaðstoð vestrænna ríkja. Það væri forsenda áætlana um efnahagslega endurreisn og fylgi almennings við nauðsynlegar aðgerðir. Michnik ritaði grein í málgagn Samstöðu, Gazeta Wyborcza, fyrir viku þar sem hann lagði til að Samstaða styddi frambjóðanda Bush lýsti stuðningi við umbætur í Póllandi í ávarpi í þinginu í Varsjá: Umbætumar marka upp- haf stöðugleika í Evrópu Hét 100 milljónum dollara í stuðning við pólskt einkaframtak Varsjá. Reuter. GEORGE Bush, Bandaríkjaforseti, lýsti stuðningi við lýðræðislegar umbætur i Póllandi í ræðu sem hann hélt í pólska þinginu í gær og hét Pólverjum efhahagsstuðningi. Sagði hann umbæturnar aðdáunar- verðar og að þær kynnu að marka upphaf stöðugleika í Evrópu þar eð lýðræðislegar umbætur í Austur-Evrópu hefðu í för með sér minni spennu og ykju möguleika á afvopnun. „Kalda stríðið hófst í Póll- andi - en nú stöndum við frammi fyrir því að pólska þjóðin getur bundið enda á skiptingu Evrópu,“ sagði forsetinn. uðu. Fundur Bush og Jaruzelski í gær markar hins vegar þáttaskil í sambúð þeirra. Bush kom til Póllands á sunnudag og þaðan heldur hann í dag til Ung- verjalands, en þar eiga sér einnig stað pólitískar og efnahagslegar umbætur. Sjá ennfremur „Endurreisn Pól- lands í augsýn" á bls. 28. kommúnistaflokksins til forseta gegn því að fá að útnefna forsætis- ráðherra sem myndaði siðan nýja ríkisstjórn. Fundur Botha og Mandela: Misjöfh við- brögð í Suð- ur-Afríku Jóhannesarborg. Reuter. AFRÍSKA þjóðarráðið (ANC) sagði í gær að fúndur P.W. Botha, Suður-Afríkuforseta, og blökkumannaleiðtogans Nelsons Mandela, helsta forystumanns ANC, sl. miðvikudag hefði verið áróðursbragð forsetans til að gefa í skyn að hann vildi afnema aðskilnaðarstefnuna. Leiðtogi sex milljóna súlúmanna, Mangosuthu Buthelezi, segir aftur á móti að Botha muni ávallt verða minnst fyrir framtakið og telur fundinn sýna að Mandela verði lát- inn laus á næstunni. Ofstækismenn í hópi hvítra hafa ráðist harkalega á Botha og krafið hann skýringa. Stjórnmálaskýrendur telja að lausn Mandela verði ekki á dagskrá fyrr en eftir kosningar sem haldnar verða í september en hins vegar geti fundurinn í síðustu viku orðið fyrsta skrefið í raunhæfum viðræð- um blökkumanna og stjórnvalda. ANC segir að Mandela geti ekki átt neinar viðræður við stjórnvöld meðan hann sitji í fangelsi og geti því ekki ráðgast við samstarfsmenn sína. Samtökin fordæmdu þó ekki fundinn beinum orðum. Sjá „Mikil von um að leiðtogan- um verði sleppt“ á bls. 29. Bush skýrði frá því að hann myndi biðja bandaríska þingið um 100 millj- ón dollara fjárstuðning til að efla einkarekstur í Póllandi og 15 milljóna dollara framlag til sameiginlegs verkefnis Pólveija og Bandaríkja- manna á sviði umhverfismála. Einnig sagðist hann ætla að beita sér fyrir því að Alþjóðabankinn veiti Pólveij- um 325 milljóna dollara lán og jafn- framt sagðist hann myndu leggja til Sprenging- ar í Mekka Riyadli. Reuter. FJOLDI pílagríma slasaðist er tvær sprengjur sprungu með stuttu millibili í hinni helgu borg Mekka í gærkvöldi. Að sögn útvarpsins í Riyadh sprungu sprengjurnar rétt við mosk- una miklu, æðsta helgidóm múslima. Talið er að um 114 milljón pílagríma sé nú stödd í Mekka. við leiðtoga helstu iðnríkja heims er þeir kæmu saman í París næstkom- andi föstudag að Pólveijar fengju frest á afborgunum af erlendum lán- um að upphæð fimm milljarðar doll- ara. I gær undirrituðu utanríkisráð- herrar Bandaríkjanna og Póllands, James Baker og Tadeusz Olechow- ski, samkomulag um greiðslur á gjaldföllnum afborgunum að upphæð einn milljarður dollara. Alls nema erlendar skuldir Póllands 39 millj- örðum dollara, eða jafnvirði 2.300 milljarðar íslenskra króna. Fulltrúar Samstöðu fögnuðu því að Bush skyldi lýsa stuðningi við umbæturnar í þingræðu sinni. „Óskir okkar hafa verið uppfylltar,“ sagði Bronislaw Geremek, þingleiðtogi Samstöðu eftir ræðu Bush. Forsetinn átti í gær fund með Wojciech Jaruz- elski, leiðtoga pólska kommúnista- flokksins, og sagði talsmaður Bush að hann hefði verið árangursríkur. Þegar Jaruzelski bannaði starfsemi Samstöðu, óháðu verkalýðsfélag- anna, með herlögum, sætti hann harðri gagnrýni af hálfu Bandaríkja- I stjórnar og samskipti ríkjanna stirðn- Thule-herstöðin á Grænlandi: 100 milljónum dala varið til endumýjunar Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. JOHN L. Plotrowskl, hershöfðingi í Bandaríkjaher, hefúr upplýst að bandarísk stjórnvöld hafi í hyggju að verja 100 milljónum dala (5,7 milljörðum íslenskra króna) til endurskipulagningar Thule- herstöðvarinnar á Norðvestur-Grænlandi. Ratsjáin þar verður end- urnýjuð sem og önnur mannvirki. Er markmiðið meðal annars að draga úr rekstrarkostnaði stöðvarinnar, til dæmis verður dönsku starfsliði þar fækkað um helming. Bandaríkjamenn hafa áður til- kynnt að DEW-stöðvunum á Grænlandsjökli verði fækkað úr fjórum í eina og þarmeð þurfi þeir ekki lengur á bækistöð í Syðri-Straum- firði á vesturströnd Grænlands að halda. Uffe Ellemann-Jensen, utanrík- isráðherra Danmerkur, sagði í gær í viðtali við grænlenska útvarpið að danska ríkisstjórnin myndi reyna að fá íjárstuðning frá Atl- antshafsbandalaginu til að starf- rækja flugvöllinn í Syðri-Straum- firði ef Bandaríkjamenn leggja nið- ur hernaðarbækistöð sína þar um áramótin 1991-92. Bandaríkja- menn hafa allt frá því í seinni heimsstyijöldinni staðið undir rekstri flugvallarins í Syðri- Straumfirði sem er mikilvægasti alþjóðaflugvöllur Grænlendinga. Þar hefur Bandaríkjaher haft bæki- stöðvar sem tengjast fjórum DEW-stöðvum í ratsjárkeðju Bandaríkjamanna á Grænland- sjökli. Þijár stöðvanna verða lagðar niður á næstu árum og segjast Bandaríkjamenn því ekki lengur hafa þörf fyrir bækistöðina í Syðri- Straumfirði. Rekstrarkostnaður hennar hefur verið um 25 milljónir dala á ári (1,4 milljarðar ísl. króna).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.