Morgunblaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989 þremur keppnisgreinum af þeim keppendum sem eftir voru. Var það árangur í tölti sem fleytti Sigur- birni og Skelmi inn í liðið. Þegar hér var komið magnaðist spennan enn því seinni daginn voru aðeins þijú sæti laus. Hafliði Hall- dórsson sem keppti á Flosa frá Hjaltastöðum hætti keppni eftir fyrri daginn en hafði að sögn mjög góða möguleika á að komast ínn í liðið, þurfti að keppa í hlýðniæfing- um seinni daginn og ná þar þokka- legum árangri. Eftir gæðingaskeiðið á laugar- dag virtist Hinrik Bragason á Vafa frá Hvassafelli vera svo gott sem búinn að tryggja sér sæti fyrir bestan árangur í fimmgangi og skeiði samanlagt sem kom á dag- inn. Atli Guðmundsson á Fjalari frá Fossvöllum kom inn fyrir saman- lagðan árangur í fimmgangi, skeiði og tölti. Jón Pétur Ólafsson kom inn fyrir 250 metra skeið á Glaumi frá Sauðárkróki. Eftir að ljóst var hver yrði endanleg liðsskipan var haldinn stuttur fundur liðsmanna og EM-nefndarinnar og þar var Sigurður Sæmundsson valinn liðs- stjóri og er það í þriðja skiptið sem hann gegnir þeirri stöðu. Fimm af þessum sjö sem skipa landsliðið að þessu sinni eru nýliðar en þeir Sig- urbjörn og Aðalsteinn hafa báðir keppt fimm sinnum á Evrópumót- um og unnið þar EM-titla. Þrátt fyrir að fimm nýliðar séu í liðinu að þessu sinni er ekki því að neita þetta eru töluvert keppnisreyndir strákar sem allir hafa keppt mikið hér heima og á erlendri grund. Og allir eru þeir aldir upp í hesta- mennsku. Einhveijir vildu meina að nú ættu sér stað kynslóðaskipti í hestamennskunni en tæplega er hægt að afskrifa „gömlu mennioa" strax því heldur er það ólíklegt er að menn eins og Benedikt Þor- björnsson, Reynir Aðalsteinsson og Sigurður Sæmundsson hafi sagt sitt síðasta í þessum efnum svo einhveijir séu nú nefndir. Ekki var að heyra annað en þeir sem fylgdust með úrtökunni væru ánægðir með liðskipan og vekur nú athygli hversu margir verulega góðir hestar voru falboðnir í keppn- ina því reynslan hefur sýnt að þeg- ar Evrópumót eru haldin ári á und- an landsmótum hafa menn verið sínkir á góðu hestana. Ekki var hægt að merkja það nú að menn geymdu góða hesta til landsmóts. Þeir sem voru næstir því að kom- ast í liðið voru einnig með afbragðs- góða hesta og var keppnin það jöfn að þetta var nánast spurning um dagsform á mönnum og hestum hveijir hefðu betur. Morgunblaðið Valdimar Kristinsson Brosmildir landsliðskappar að lokinni taugastrekkjandi keppni, frá vinstri talið: Sigurbjörn á Skelmi, Einar Öder á Fjalari, Baldvin á Trygg, Jón Pétur á Glaumi, Aðalsteinn á Snjalli, Atli á Fjalari og Hinrik á Vafa. Landslið íslands í hestaíþróttum valið; Fimm nýliðar og tveir gamalreyndir refir Óvenju sterkt lið ári fyrir landsmót Hestar Valdimar Kristinsson Landslið íslands í hestaíþrótt- um var valið á úrtökumóti sem haldið var á glæsiiegu mótssvæði íþróttadeildar Harðar á Varmár- bökkum í Mosfellsbæ. Keppnin stóð yfir í tvo daga, á föstudag var tvöíold umferð í gangteg- undagreinum, fimm- og fjór- gangi, og tölti. Á laugardag var keppt í skeiðgreinum og hlýðni- keppni. Alls mættu tuttugu og fjórir keppendur til leiks fyrri daginn en þeim fækkaði jafnt og þétt eftir því sem á daginn leið. Eins og fram hefur komið tryggðu fjórir liðs- menn sér öruggt sætLí liðinu eftir fyrri daginn. Voru það þeir Baldvin Ári Guðlaugsson á Trygg frá Valla- Jón Pétur og Glaumur fá það hlutverk að vinna skeiðið á Evrópumótinu og er vonandi að þeir verði sem oftast í þeirri aðstöðu sem hann er í á myndinni, sem sagt langfyrstir. nesi en þeir urðu stigahæstir í bæði tölti og fjórgangi en koma inn í liðið fyrir árangur í fjórgangi, Aðalsteinn Aðalsteinsson sem keppti á Snjalli frá Gerðum kemur inn fyrir árangur í tölti en þeir urðu næstir á eftir Baldvini og Trygg í bæði tölti og fjórgangi. Einar Öder Magnússon keppti á stóðhestinum Fjalari frá Hafsteins- stöðum og voru þeir stigahæstir í fimmgangi og Sigurbjörn Bárðar- son sem keppti á Skelmi frá Krossanesi hlaut hlutfallslega best- an árangur úr einni af þessum .Sýning Stóðhestastöðvarinnar: Þáttar-dagur í Gunnarsholti Morgunblaðid/Valdimar Kristinsson Tamningamenn stódhestastöðvarinnar máttu gera sér að góðu að sýna folana í slyddu og kulda, en þrátt fyrir það fórst þeim verkið vel úr hendi. Rúna Einarsdóttir situr hér Stíganda frá Sauðárkróki sem hlaut hæstu einkunn. Kolfinnur frá Kjarnholtum sem ekki hefur sést lengi á sýningum átti gott „come back“ og vöktu ágæt tilþrif hans hrifhingu sýningargesta. Knapi er Gísli Gíslason. SEX stóðhestar hlutu fyrstu verðlaun á sýningu Stóðhesta- stöðvarinnar í Gunnarsholti. Hestamir vom dæmdir á mið- vikudag en dómar vom opin- beraðir almenningi á sýning- unni á laugardag. Sjö Qögra- vetra hestar komu fram og náðu þrír þeirra inn í ættbók. Ekkert lát virðist á vinsældum hinnar árlegu sýningar stóðhesta- stöðvarinnar og er talið að nú hafi komið þar á fjórða þúsund manns. Veðurguðirnir gerðu sitt ýtrasta til að spilla fyrir sýning- unni og gekk á með skúrum og slyddu. Voru tamningamenn stöðvarinnar þau Eiríkur Guð- mundsson og Rúna Einarsdóttir ekki öfundsverð af hlutskipti sínu þann daginn en þau stóðu sig með mikilli prýði að vanda. í upphafi sýningarinnar var formlega tekinn í notkun nýr hringvöllur sem byggður var síðast liðið haust og er það upp- hafið að stórbættri aðstöðu á stóð- hestastöðinni. Fyrirhugað er að hefja fljótlega byggingu hests- húss fyrir starfsemi stöðvarinnar sem hingað til hefur verið í bráða- birgðahúsnæði. Ekki mun ljóst hvenær verði hafist handa en það ræðst mikið af velvilld fjárveit- ingavaldsins. Þá var þarna stutt kynning á ræktuninni í Kirkjubæ í tilefni sjötugsafmæli Sigurðar Haraldss'onar bónda sem fór þar í broddi fylkingar á glæsihrys- sunni Rauðhettu. Hæstu einkunn hlaut að þessu sinni Stígandi frá Sauðárkróki, sem er undan Þætti 722 frá Kirkjubæ og Ösp 5454 Sauðár- króki. Fyrir byggingu hiaut hann 8.20 en hæfileika 8.10 og 8.15 í aðaleinkunn. Eigandi er Arni Arnason Laugarvatni. Næstur varð Þengill frá Hólum sem er undan Hervari 963 frá Sauðár- króki og hinni landsfrægu hryssu Þrá 5478 frá Hólum sem er eitt hæst dæmda kynbótahross lands- ins. Þengill hlaut 8.15 fyrir bygg- ingu og 7.99 fyrir hæfileika og 8.07 í aðaleinkunn. Eigandi Þeng- ils er Kynbótabúið á Hólum. Kvistur frá Laufhóli varð þriðji en hann er undan Kjarval 1025 frá Sauðárkróki og Arabíu frá Laufhóli. Fyrir byggingu hlaut Kvistur 7.89 og hæfileika 8.20 og 8.04 í aðaleinkunn. Fjórði í röð varð svo Goði frá Sauðárkróki undan Þætti 722 ogHervöru 4647 frá Sauðárkróki oki. Hann hlaut í einkunn fyrir byggingu 8.13, fyrir hæfileika 7.91 og 8.02 í aðal- einkunn. Eigandi er Sveinn Guð- mundsson Sauðárkróki. Þeir Goði og Stígandi eru báðir synir Þáttar og fæddir hjá Sveini Guðmundssyni og kveður þar við nýjan tón er hestar frá Sveini fá hærri einkunn fyrir byggingu en hæfileika. Þessa breytingu má án efa þakka Þætti 722 og er ekki ósennilegt að sú ákvörðun Sveins að nota Þátt á allar sínar hryssur árið 1983 hafi verið einhver sterk- asti leikur sem leikinn hefur verið á taflborði hrossaræktarinnar hér á landi. Þess má einnig geta að Þengill frá Hólum er dóttursonur Þáttar og undan hesti frá Sveini þannig að telja má víst að þeir Sveinn og Sigurður í Kirkjubæ hafi þama átt glaðan dag. Hæsta einkunn af fjögra vetra hestum hlaut Toppur frá Eyjólfs- stöðum en hann er undan Hrafni 802 frá Holtsmúla og Seru 5017 frá Eyjólfsstöðum, eigandi er Björn I Stefánsson Reykjavík. Hann hlaut fyrir byggingu 7.86 og hæfileika 7.81 og 7.84 í aðal- einkunn. Þrír eldri stóðhestar voru sýnd- ir þarna til kynningar þeir Geisli frá Meðalfelli, Kolfinnur frá Kjarnholtum og Pá frá Laugar- vatni sem nú hefur verið seldur til Bandaríkjanna. Kolfinnur kom sýnu best fyrir af þessum þremur og vöktu mikil tilþrif hans á skeiði athygli sýningargesta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.