Morgunblaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989
59
Þróunarsamvinnustofiiun:
Fengur frá Grænhöfða-
eyjum innan 2 mánaða
Fer líklega til Suðvestur-Afríku næsta vor
SKIP Þróunarsamvinnustoftiunar, Fengur, hefur verið við Græn-
höfðaeyjar tvö undanfarin ár við tilraunaveiðar og vegna þjálfunar
heimamanna í botnfiskveiðum. Skipið kemur hingað um miðjan
september og fer í „klössun" eða reglubundna skoðun sem tekur
getið nokkra mánuði. I undirbúningi er sigling Fengs til Angóla
eða Namibíu næsta vor að sögn Björns Dagbjartssonar, forstöðu-
manns Þróunarsamvinnustofiiunar.
Áformað er að Fengur sigli heim
á leið frá Grænhöfðaeyjum í ágúst-
lok en ferðin tekur þrjár vikur.
Viðdvöl skipsins ytra er hluti fisk-
veiðaverkefnis á Grænhöfðaeyjum
sem staðið hefur með hléum í átta
Skattskrár
lagðar fram
SKATTSKRÁR Reykjavíkur og
Reykjanesumdæmis fyrir árið
1988 liggja frammi á skattstof-
um og bæjar- og sveitarstjórnar-
skrifstofiim til 20. júlí.
Skattskrárnar sýna öll álögð
gjöld af skattstjóra fyrir álagning-
arárið 1988. Búið er að taka til
greina kærur og myndast ekki
kæruréttur við birtingu skatt-
skránna nú.
Ekki er ljóst hvenær álagningar-
skrá fyrir þetta ár liggur fyrir,
samkvæmt upplýsingum frá Skatt-
stofu Reykjavíkur. Samkvæmt lög-
um á álagningin að liggja fyrir í
síðasta lagi um næstu mánaðamót.
ár. Verkefnið byggist á milliríkja-
samningi frá 1981 um þróunarað-
stoð íslands við Grænhöfðaeyjar.
Samningurinn rennur út í árslok
1990, en forsætisráðherra Græn-
höfðaeyja kemur hingað til lands
í næstu viku til viðræðna við ráða-
menn um áframhaldandi þróunar-,
samvinnu.
Bjöm Dagbjartsson segir að
þótt skipið fari frá Grænhöfðaeyj-
um muni stofnunin hafa þar ein-
hveija starfsemi áfram. „Þar verð-
ur fiskifræðingur með hléum fram
á næsta ár,“ segir hann, „við
gagnasöfnun og til að þjálfa þar-
lenda líffræðinga í fiskifræðilegum
rannsókpum. Þá munum við styðja
áfram við heimamenn í fiskvinnslu
og sölumálum, útvega veiðarfæri
ef með þarf og taka jafnvel þátt
í veiðum á þeirra eigin skipum.“
Með Feng var ætlunin að veiða
nógu mikið við Grænhöfðaeyjar til
að koma á fiskvinnslu þar og vinna
markaði erlendis. „Heimamenn eru
farnir að stunda dragnótaveiðar á
eigin skipum, fiskvinnsla er komin
í gang en helst strandar á sölumál-
um. Nú er reynt að vinna markaði
í Bretlandi og Portúgal," segir
Björn.
Þing norrænna þvag-
færaskurðlækna
NORRÆNIR þvagfæraskurð-
læknar þinguðu í Reykjavík dag-
ana 6. til 8. júlí sl. Þetta er í
fyrsta sinn sem þvagfæraskurð-
læknar frá Norðurlöndunum
þinga hér á landi.
Að sögn
yfirlæknis
Sverris Haraldssonar,
á Borgarspítalanum,
sóttu 230 læknar þingið sem hald-
ið var á Hótel Loftleiðum. Þar var
m.a. rætt um sjúkdóma í þvag-
végi, rannsóknir á þeim og með-
ferð þeirra. Einnig var rætt um
krabbamein í þvagblöðru. Norræn-
ir þvagfæraskurðlæknar þinga
annað hvert ár en hittust nú í
fýrsta skipti í Reykjavík.
Lítið af álft á Mývatni
sem af er sumri
það
Björk, Mývatnssveit.
LÍTIÐ hefúr orðið vart við álft
á Mývatni um þessar mundir.
Síðustu ár hafa verið þar stórir
flotar, bæði á Ytriflóa og Nes-
landavík.
Silungsveiði i Mývatni hefur
verið afar treg að undanförnu og
silungur heldur lélegur. Sýnilegt
er að áta fyrir fugl og fisk í vatn-
inu er lítil, enda sést frekar lítið
af rykmýi. Hins vegar hefur tölu-
vert borið á mývargi. Mörgum
fínnst nú tímabært að þeir, sem
hafa verið að rannsaka lífríki Mý-
vatns undanfarin ár, geti farið að
upplýsa hvað veldur átuskortinum
í vatninu. Á sunnudag var mikið
hvassviðri hér í sveitinni og mikið
moldrok sunnan af öræfum norður
í Mývatnssveit. Vatnið virtist líka
moldlitað að sjá. Ekki er ólíklegt
að slíkt veður geti haft einhver
áhrif á lífríki Mývatns.
Veðurfar hér í Mývatnssveit það
sem af er sumri hefur verið frekar
svalt og ákaflega þurrt og gras-
spretta mjög hæg því að áburður-
inn hefur verkað seint vegna þurr-
kanna. Síðastliðinn miðvikudag
gerði þó langþráða rigningu, síðan
hefur verið sæmilega hlýtt og
/spretta farið _ sæmilega_maf _stad._
Sláttur er ekki hafinn enn, trúlega
verður þó sums staðar farið að slá
næstu daga ef þurrkar haldast.
Kristján
Morgunblaðið/Sverrir
Friðgeir Sörlason tekur við fyrstu verðlaunum
af Davíð Oddsyni borgarsljóra. Á milli þeirra
standa arkitektarnir Guðfinna Thordarsson og
Albína Thordarsson.
Morgunblaðiö/Sverrir
Arkitektarnir Finnur Björgvinsson og Hilmar
Þór Björnsson en borgaryfirvöld hafa ákveðið
að leikskólarnir verði byggðir samkvæmt tillögu
þeirra.
Alútboð leikskóla við Dyrhamra og Malarás:
Hefðbundið leikskóla-
fyrirkomulag brotið upp
Tveir leikskólar fyrir 60 milljónir
NIÐURSTAÐA í alútboði á
tveimur leikskólum við Dyr-
hamra og Malarás var kynnt á
Kjarvalsstöðum í gær. Þrenn
verðlaun voru veitt og hlaut
fyrstu verðlaun kr. 500 þús.
Friðgeir Sörlason, arkitektar
eru Albína Thordarson og Guð-
finna Thordarsson, önnur verð-
laun kr. 400 þús. skiptust milli
tveggja, Hagvirki hf., arkitekt-
ar Valdimar Harðarson og Páll
Gunnlaugsson og Steintak hf.,
arkitektar Þórarinn Þórarins-
son og Egill Guðmundsson.
Lægsta tilboð átti Röst hf., tæp-
ar 60 milljónir króna fyrir báða
leikskólana, arkitektar eru
Hilmar Þór Björnsson og Finn-
ur Björgvinsson. Hefiir borgar-
ráð ákveðið að ganga til samn-
inga við þá um byggingu leik-
skólanna en í alútboði felst að
bygging er afhent tilbúin til
notkunar.
Davíð Oddsson borgarstjóri,
sagði að hér væri um nokkuð
nýmæli að ræða með þessu alút-
bóði, sem borgaryfirvöld og stjórn
Dagvistar barna hefðu ákveði að
efna til. Tuttugu aðilum var boðið
að taka þátt í útboðinu en ellefu
tillögur bárust. Sagði Davíð að
mörgum kynni að koma það
spánskt fyrir- sjónir að ekki væri
gengið til samninga við þá er
hlutu verðlaun en leitað var eftir
ódýrri og jafnframt góðri lausn
og verðmunur var það mikill milli
tilboðanna að ákeðið var að semja
við lægstbjóðanda. Friðgeir Sörla-
sonar er hlaut fyrstu verðlaun
bauð rúmar 88 milljónir króna
fyrir báða leikskólana, tilboð Hag-
virkis hf. var um 100 milljónir
wunwsrw .mop
Morgunblaðið/Sverrir
í tillögu þeirra Finns og Hilmars er gert ráð fyrir alrými í miðju
húsi og þremur heimakjörnum út frá því.
króna og tilboð Steintaks hf. var
rúmar 75 milljónir.
Fanný Jónsdóttir deildarstjóri
fagdeildar Dagvistar barna, sagði
að með þessari samkeppni væri
reynt að leita nýrra leiða í bygg-
ingum dagvistarheimila og lýsti
hún yfir ánægju með tillögurnar.
„Við viljum bijóta upp þetta hefð-
bundna form sem er á leikskólum
og dagheimilum með því að
blanda börnunum meira saman
og fá þannig betri félagslega
blöndu," sagði Fanný. „Þessi nýja
bygging á að gefa möguleika á
að mismunandi aldurshópar geti
leikið sér saman eða hver fyrir
sig en í miðri byggingunni er
gert ráð fyrir alrými og út frá því
eru þrír heimakjamar. Ég er mjög
ánægð með þessa samkeppni. I
tvö ár höfum við verið að vinna
að því að geta eytt þessum félags-
lega mun með þessum árangri að
því ógleymdu að nú er í fýrsta
sinn tekið tillit til starfsfólksins."
Stefnt er að sveigjanlegum vist-
unartíma fyrir börn á aldrinum 6
mánaða til 6 ára í leikskólunum
tveimur en miðað er við að vista
116 börn í hvorum skóla. Gert er
ráð fyrir að skólarnir taki til starfa
í mars eða apríl á næsta ári.
Tillögurnar ellefu sem bárust
verða til sýnis í anddyri Kjarvals-
stað næstu daga.
Ársfiindur Landssambands sjúkrahúsa á Sauðárkróki:
Reykingar á heilbrigðisstoftiun-
um bannaðar innan tveggja ára?
ÁLYKTUN sem felur í sér að allar tóbaksreykingar á sjúkra- og
heilbrigðisstofiiunum verði bannaðar innan tveggja ára var sam-
þykkt á ársfúndi Landssambands sjúkrahúsa sem haldinn var á
Sauðárkróki fyrir skömmu. Einnig var samþykkt í sömu ályktun,
að stefiit skyldi að því að banna sölu á tóbaki í sömu stofiiunum, en
á öllum stóru sjúkrahúsunum í Reykjavík hefúr slíkt bann verið í
gildi síðan um áramót.
Jóhannes Pálmason, fram-
kvæmdastjóri Borgarspítalans og
formaður Landssambands sjúkra-
húsa, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að mikið hefði áunnist í
þessum efnum í seinni tíð og svona
reglur yrði að setja með hægðinni.
„Boð og bönn duga skammt, sam-
staða verður að koma innan frá,
en öllum er ljóst að reykingarban-
nið innan veggja slíkra stofnana
er það sem koma ska!,“ sagði Jó-
hannes.
Ályktunin sem um ræðir hljómar
svona: Aðalfundur Landssambands
sjúkrahúsa haldinn á Sauðárkróki
23. júní 1989 ályktar að beina
þeim tilmælum til stjórna allra
heilbrigðisstofnana í landinu að
sölu tóbaksvara verði þegar í stað
hætt í húsakynnum stofnananna.
Jafnframt að stefnt skuli að því
að reykingar verði alfarið bannað-
ar á héilbrigðisstofnunum á íslandi
eigi síðar en 1. janúar 1991. Álykt-
unin kom í kjölfar bréfs frá heil-
brigðisráðherra þar sem lagt er til
að sett verði reglugerð sem tak-
marki sölu á tóbaki á sjúkrahúsum
fyrst um sinn en henni síðan hætt
um næstu áramót. Áður hafði ráð-
herra fengið erindi frá Sólvangi í
Hafnarfirði, þar sem ráðuneytið
er hvatt til þess að beita sér fyrir
því hið fyrsta að starfsfólki á heil-
brigðisstofnunum verði með öllu
óheimilt að reykja á vinnustað.
Þess má geta, að á sjúkrahúsum
má aðeins reykja á tilteknum stöð-
um þar sem reykingar eru ekki til
óþæginda fýrir þá sem ekki reykja.