Morgunblaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 24
24 esei .ri íF.iDAOuuita-; fflðAjmjaaof MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR lI. JÚLri989 Háskóli Islands: Breytingar á stjórnsýslu samþykktar í Háskólaráði Óánægja innan heimspekideildar HÁSKOLARÁÐ hefiir samþykkt tillögur til lagabreytinga um stjórn- sýslu Háskóla Islands. Að sögn Sigmundar Guðbjarnasonar rektors er með samþykktinni verið að samræma lögin þeim breytingum sem orðið hafa á stjórnsýslu Háskóla íslands síðustu ár. Forseti heimspeki- deildar, Sveinbjörn Rafiisson, bar fram tillögu í upphafi Háskólaráðs- fundar þess efnis að afgreiðslu málsins yrði frestað til hausts. Sú tillaga var felld með 11 atkvæðum gegn 4. Fulltrúar stúdenta í Háskólaráði fengu samþykktar breytingartillögur við lögin þess efii- is að Háskólaráð fari með æðsta ákvörðunarvald innan skólans og að námsráðgjöf við háskólann verði sjálfstæð eining innan stjórnsýsl- unnar. Starfsmönnum háskólans hefur fjölgað mikið á undanförnum árum og verkefnum þeirra einnig," sagði Sigmundur Guðbjarnason rektor í samtali við Morgunblaðið. „Með nýrri skipan stjómsýslunnar verður verkaskipting innan háskólans skýrari og boðleiðir greiðari.“ I tillögunum er gert ráð fyrir að stjórnsýsla Háskóla íslands skiptist í 6 svið. Tvö akademísk svið, þ.e. rannsókna- og kennslusvið og 4 svið er snúa að rekstri háskólans. Þau eru fjármála-, starfsmanna-, samskipta- og bygginga- og tækni- Listsýning í Minnesota: Islenskum konum boð- in þátttaka Samtökin „Minnesota Worldwide Women“ ætla að efiia til sýningar á list kvenna frá íslandi og Min- nesóta í tengslum við heimsókn Kvennalistakvenna í mars 1990. Sýningin verður haldin í Minnea- polis-borg og er efhi verkanna ætlað að endurspegla félagslegt, stjómmálalegt og menningarlegt umhverfi listamannsins. Listakonur, sem áhuga hafa, eru beðnar að senda allt að átta skyggn- ur af nýjum tvívíddarmyndverkum frá árinu 1985 til þessa dags. Skyggnumar skulu merktar með nafni listamannsins, heiti verksins, umfangi þess og aðferð. Verkin skulu ekki vera stærri en 1.0 x 1.2 metri. Þá skal yfirlit yfír listferil höfundar fylgja. Listakonurnar, sem valdar verða, skulu senda skrif- lega lýsingu á list sinni ásamt leyfi til birtingar í myndbæklingi, sem gefin verður út í tengslum við sýn- inguna. Umsóknafrestur rennur út þann 15. júlí nk. og skulu umsóknir um þátttöku sendast til: Bobbi Burritt and Ann Mohler, Minnesota Worldwide Women/Art Competition, 1920 South lst Street 2002, Minneapolis, MN 55454, USA. svið. Rektor segir tillögur stjórn- sýslunefndar hafa fengið ítarlega umfjöllun í Háskólaráði á þessu ári. „Frestur til að skila inn ábend- ingum eða breytingartillögum rann út 1. maí sl.,“ sagði Sigmundur. „Og var sú leið kosin að afgreiða málið fyrir sumarleyfi þar sem frestun hefði þýtt að tillögurnar hefðu ekki Kvöldganga um Gerðahrepp Náttúruverndarfélag Suð- vesturlands stendur fyrir náttúruskoðunar- og sögu- ferð á þriðjudagskvöld kl. 21.00. Farið verður frá Garðskaga- vita og gengið suður með ströndinni og yfir á Skagagarð- inn. Síðan verður gengið eftir honum að Útskálum og þaðan með ströndinni út að Garð- skagavita. Göngunni lýkur þar um kl. 23.00. (Frcttatilkynningr) verið afgreiddar fyrr en eftir ára- mót.“ Rektor tók fram að það hefði þótt farsælla að binda breytingarn- ar í lög svo að ekki yrði jafnauð- velt að breyta þeim aftur og til þess að tryggja festu í starfsemi háskólans. Sveinbjörn Rafnsson, forseti heimspekideildar, segir að deildin hafi farið fram á frest þar sem nefnd skipuð af deildarfundi hafi ekki verið búin að skila áliti í mál- inu. „Deildarfundur skipaði 4 próf- essora í nefnd til þess að Ijalla um tillögurnar í apríl og höfðu þeir ekki skilað áliti fyrir fund Háskólar- áðs,“ sagði Sveinbjörn. „Því var ákveðið einróma í deildinni að biðja um frest til haustsins." Sveinbjöm segir almenna óánægju með hina nýju stjórnsýslu- skipan innan heimspekideildar. Hann telur einnig óþarfa að binda stjórnsýslubreytingar í lögum um Háskóla íslands þar sem aukið umfang stjórnsýslunnar geti orðið á kostnað rannsókna og aka- demísks frelsis innan stofnunarinn- ar. Fulltrúar stúdenta í Háskólaráði báru fram tillögu um að námsráð- gjöf við skólann yrði áfram sjálf- stæð eining innan hans. Sú tillaga var samþykkt. Þar með er námsráð- gjöf færð út úr stjómsýslunni og gerð að sérstakri þjónustustofnun við háskólann. Einnig var samþykkt tillaga stúdenta um að skýrt væri kveðið á í lögunum um að Háskóla- ráð færi með æðsta ákvörðunarvald innan skólans. Telja fulltrúar stúd- enta að slíkt ákvæði tryggi jéttarör- yggi nemenda við Háskóla íslands. Einar Kristján Einarsson gítarleikari og Robyn Koh semballeik- ari. Leikið á sembal og gítar Á þriðjudagstónleikum 11. júlí í Listasafiii Sigurjóns Olafsson- ar leika þau Robyn Koh og Einar Kr. Einarsson tónlist fyrir sembal og gítar. Robyn Koh er fædd í Malasíu og hlaut fyrstu tónlistartilsögn þar, en 12 ára gömul fluttist hún til Englands þar sem hún stund- aði nám við Chetham’s School of Music, sem er sérskóli fyrir börn gædd tónlistarhæfileikum. Hún hefur lokið prófi frá Royal Aca- demy of Music og frá Royal Nort- hern College of Music í Manchest- er. Robyn hefur haldið tónleika víða í Evrópu, í Malasíu, Sov- étríkjunum og Bandaríkjunum. Undanfarin ár hefur hún verið búsett í Reykjavík og kennir við Söngskólannn og við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Einar Kr. Einarsson er fæddur á Akureyri og stundaði þar nám við Tónlistarskólann. Haustið 1977 hóf hann gítarnám við Tón- skóla Sigursvein D. Kristinssonar og lauk burtfararprófi frá þeim skóla árið 1982. Einar var við framhaldsnám í Manchester árin 1982—88. Hann hefur m.a. haldið tónleika í Englandi og á Spáni og starfar sem gítarkennari við Tónskóla Sigursveins D. Kristins- sonar og Tónlistarskóla Kópa- vogs. I Listasafni Sigurjóns leika Robyn og Einar verk eftir Manuel Ponce, Luigi Boccherini og Þorkel Sigurbjörnsson. Enn fremur er á efnisskránni lítið lag eftir Áskel Másson, Kansóna, sem ekki hefur heyrst opinberlega áður og er til- einkað dóttur Áskels. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og standa í um það bil klukku- stund. Aðgöngumiðar á kr. 350.- fást við innganginn. Kaffistofan verður opin. (Frcttatilkynning-) Evrópumótið í brids: ísland vinnur sterku liðin en tapar fyrir þeim veiku Frá Sigurði B. Þorsteinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Turku. ÍSLENSKA liðið hélt uppteknum hætti i leikjum helgarinnar og vann Pólveija, sem eru í 2. sæti á mótinu, en tapaði fyrir Sviss og Portúgal sem eru í neðri sætunum. Islenska liðinu hefúr gengið vel gegn efstu liðunum, en miin síður gegn þeim neðri. Það-var með blendnum huga að íslendingar fóru í leikinn gegn Pól- veijum í 13. umferð. Pólveijarnir voru í 2. sæti og höfðu spilað fírnavel en sömu sögu var ekki hægt að segja um okkar menn. Eina vonin virtist vera að þeir ætluðu að rúlla yfir okk- ur og gæfu þannig á sér einhver færi. I fyrri hálfleik, sem Guðmundur Páll Arnarson, Þorlákur Jónsson, Jón- as P. Erlingsson og Valur Sigurðsson spiluðu, gáfu okkar menn nær ekkert út og voru 24-18 yfir. Eina stóra sveiflan í hálfleiknum kom í þessu spili: Vestur ♦ KD762 V- ♦ KDG972 ♦ K7 Norður ♦ 83 VKD4 ♦ Á1064 ♦ 8653 Austur ♦ G10 VG963 ♦ 83 ♦ DG742 Menntamálaráðherra í opin- berri Finnlandsheimsókn SVAVAR Gestsson menntamálaráðherra var í opinberri heimsókn í Finnlandi dagana 2-6. júlí, í boði Önnu-Liisu Kasurinen menningar- málaráðherra Finnlands. Á fundi, sem haldinn var í finnska menningarmálaráðuneyt- inu 3. júlí voru rædd ýmis mál sem þjóðirnar eru að vinna saman að. Svavar Gestsson gegnir nú for- mennsku í menntamálaráðherra- nefnd Norðurlanda og ræddu ráð- herramir um gerð norrænna menn- ingarfjárlaga. Fjallað var um Finnsk-íslenska menningarsjóðinn sem stofnaður var 1974 að fmmkvæði Finna, en tilgangur hans er að efla menning- artengsl íslands og Finnlands með ferðastyrkjum og öðmm fjárstuðn- ingi. Ný menningarmiðstöð verður opnuð í Tammerfors 1990. Er áhugi á því að miðstöðin verði opnuð með sérstakri íslandsviku og að Sin- fónínuhljómsveit íslands byrji þar tónleikaferð sína til Norðurlanda. Finnska menntamálaráðuneytið hefur lýst því yfir að það leggi fram um 300 þúsund finnsk mörk, eða sem svarar 4 milljónum króna, til íslandsvikunnar. Ráðherranum var boðið til Sa- vonlinna en þar er haldin óperu- hátíð ár hvert í júlímánuði. Jafn-. framt vom skoðaðar fjórar sýningar í listamiðstöðinni Retretti í Punka- harju. I Koupio var borgar og héraðs- bókasafnið heimsótt en þar er sér- stök íslandsdeild. f því er nú all- nokkurt safn íslenskra bóka og ákvörðun hefur verið tekin um að íslenska ríkið styrki safnið til bó- kakaupða næstu tvö árin, sem álíka upphæð og á síðasta ári. Suður ♦ Á954 V Á108752 ♦ 5 ♦ Á10 Við annað borðið opnaði Valur á 1 hjarta í suður. Vestur sagði 2 hjörtu sem sýndu spaða og tígul og er oft- ast veik sögn. Jónas sagði 3 hjörtu og Valur 4 hjörtu. Vestur doblaði til að sýna að hann ætti vel fyrir sínu og austur passaði. Valur fékk út tígulkóng og vann spilið með því að trompa tvo spaða með tromphjónunum í borði, trompa þijá tígla heim og svína hjartatíu. Við hitt borðið unnu Guðmundur og Þorlákur sálfræðilegan sigur í sögnum: Vestur Norður Austur Suður Guðm. Þorlákur pass* 1 grand* dobl 2 lauf passs 3 tíglar pass pass 3 hjörtu allir pass Fyrsta pass suðurs sýndi opnunar- styrk. 1 grand Guðmundar sýndi ann- aðhvort spaða og tígul eða hjarta og lauf. Þetta dugði til að fæla Pólveij- ana frá geiminu. Reyndar fékk sagn- hafi aðeins 9 slagi því hann tók einu sinni tromp og ísland fékk 10 stig. í seinni hálfleik komu Aðalssteinn og Ragnar inn fyrir Val og Jónas. Aftur var lítið gefið út og aftur vannst doblað geim, í þetta skipti 5 tíglar sem Aðalsteinn spilaði, og 12 stig græddust. Lokatölur vom 59-40 og 18-12 sigur. ísland spilaði tíðindalítinn leik við Tyrki í 14. umferð og vann 16-14. Þau úrslit voru nokkur vonbrigði því Tyrklandi hefur ekki gengið sem best. Þau vonbrigði vom þó lítil miðað við vonbrigðin með leikinn við Sviss í 15. umferð. Svisslendingar voru þá í 23. sæti en ísland var 30 stigum undir í hálfleik eftir illa spilaðan leik. Sér- staklega voru Aðalsteinn og Ragnar heillum horfnir. í seinni hálfleik komu Jónas og Valur inn fyrir þá en spilin vom mjög villt og illviðráðanleg. Sviss bætti 10 stigum við og vann leikinn 23-7. í 16. umferð var spilað við Portú- gali og enn tapaði íslenska liðið, nú 8-22. Guðmundur og Þorlákur spiluðu allan leikinn en hinir skiptust á. Eftir 16 umferðir er ísland í 18. sæti með 215,5 stig. Svíar leiða enn mótið, eins og þeir hafa gert frá upphafi, með 313 stig, Pólveijar eru í 2. sæti með 299, Danir í 3. sæti með 293 stig og Grikkir eru komnir í 4. sæti mðe 270 stig. Austurríki og Frakkland eru í 5. og 6. sæti með 269,5 og 268,5. í kvennaflokki eru Hollendingar efstir með 205 stig og Þjóðveijar með 192. Frakkar, Bretar og Búlgarir em allir mðe 177 stig. í gær var frídagur og þá söfnuðu menn kröftum í lokaslaginn. Það er enginn uppgjafartónn í liðinu þrátt fyrir mótlætið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.