Morgunblaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989 21 ' Nýr valmöguleiki í sólina. Þú velur Costa del Sol eóa Benidorm og færð gististaðinn staðfestann viku fyrir brottför. Heyrnarstöðin og dr. med. Ole Bentzen Erlingur Þorsteinsson um, í Heynar- og talmeinastöð Is- lands. Nú er starfsliðið orðið um 20 manns og tveir aðstoðarlæknar auk yfirlæknis. Þetta er sem sagt orðið mikið fyrirtæki, sem Zonta- systurnar áttu frumkvæði að og dr. Ole Bentsen lagði lið með góð- um leiðbeiningum. Ég á einnig margt annað dr. Bentzen að þakka, lært mikið af honum m.a. við heimsóknir í heyrn- arstöðina í Árósum og svo ómetan- lega hjálp er hann gerðist aðalrit- ari við fyrsta þing norrænna eyrna- lækna, sem haldið var hér á landi árið 1975 og ég veitti forstöðu. Það hefði orðið erfitt án hans hjálpar. Hann hafði frábæra skipu- lagsgáfu auk þess sem hann var hressilegur og ánægjulegur maður. Dr. med. Ole Bentzen er nýlega látinn, svo sem kunnugt er. Við sem þekktum hann mátum hann mikils og söknum hans. eftirErling Þorsteinsson Tilefnið til þess að ég skrifa þetta greinarkorn er viðtal við frú Friedu Briem sem birtist í Morgun- blaðinu þann 4. þ.m. Þar kemst frúin svo að orði að það hafi verið mikið og erfitt starf sem lagt hafi verið á herðar dr. Bentzens við að koma á fót heyrnarstöð hér á landi. Frúin segir ennfremur að marg- ir aðrir hafi lagt hönd á plóg, en farsælt starf dr. Bentzens hafi ekki síst orðið til þess að heyrnar- stöðin var opnuð 1. nóvember 1962. Ég ætla ekki að rekja sögu heyrnarstöðvarinnar hér í smáat- riðum, en aðeins stikla á stóru. Síðla árs 1960 bað Zontaklúbbur Reykjavíkur mig um að athuga málið með að koma hér á fót heyrn- arstöð, því þær systurnar væru að safna fé til þess að kosta þá fram- kvæmd. Ég. var þá á förum til Banda- ríkjanna til þess að læra heyrnar- bætandi aðgerðir og dvaldi þar á nokkrum stöðum til áramóta við þetta nám, en kynnti mér jafn- framt starfsemi heyrnarstöðva einkum í New York, Chicaco og Mayo clinic. Þegar ég kom aftur til íslands í janúar 1961 leitaði ég að stað fyrir væntanlega heyrnarstöð og fengum við vilyrði fyrir húsnæði í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur fyrir velvild fyrrverandi borgar- læknis dr. med. Jóns Sigurðssonar. Zontasystumar höfðu líka sam- band við hann og voru ánægðar með staðinn. Það var þó ekki fyrr en í lok þessa árs að stjórn Heilsu- verndarstöðvarinnar samþykkti að heyrnarstöð yrði stofnuð þar. ' Fyrir hönd Zontaklúbbsins hafði ég skrifað til dr. Ole Bentzens, yfirlæknis heyrnarstöðvarinnar í Kaupmannahöfn og beðið þá um leiðbeiningar um tækjaval og fleira í þessu sambandi og höfðu svör borist frá þeim. Heyrnarmælir og önnur tæki komu til landsins sumarið 1962. Zontasystur höfðu einnig kostað fóstru, Mariu Kjeld, til náms við heymarstöðina og háskólann í Árósum, mjög duglega, greinda og ágæta stúlku. Starfsfólk heyrnastöðvarinnar var aðeins við Maria er stöðin var opnuð 1. nóvember 1962. Dr. Ole Bentzen vann að sjálf- sögðu ekkert að stofnun þessarar stöðvar, en hafði gefíð okkkur góð ráð og leiðbeiningar, sem ég og við öll erum honum mjög þakklát fyrir. Við Maria vomm eina starfs- fólkið í nær þijú og hálft ár, en árið 1966 fengum við liðsauka, fyrst Birgi Ás Guðmundsson, heyrnar- og talnaeinafræðing, sem numið hafði í Danmörku m.a. hjá dr. Bentzen og skömmu síðar Gylfa Baldursson lærðum í sömu grein- um í Bandaríkjunum, báðir mjög færir menn. Við þennan liðsauka gerbreytt- ist starfsemin og húsrými var auk- ið og nefndist stöðin þá heyrnar- deild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur. Árið 1973 var stöðu minni breytt í yfirlæknisstöðu. í júní 1980, flutt- um við í nýtt húsnæði í Valhöll við Háaleitisbraut og síðar á því ári lét ég af embætti, fyrir aldurs sak- ir, varð þá Einar Sindrason yfi- ræknir í minn stað. Hann hafði „Dr. Ole Bentzen vann að sjálfsögðu ekkert að stoftiun þessarar stöðv- ar, en hafði gefið okkur góð ráð og leiðbeining- ar, sem ég og við öll erum honum mjög þakklát fyrir.“ numið heyrnarfræði hjá dr. Bentz- en í Árósum. Er við fluttum í nýja húsnæðið var nafninu aftur breytt, með lög- Höfundur er fyrrverandi ySrlæknir Heymar- og talmeinastöðvar Islands Við seljum síðustu sætin í ágúst. Við bjóðum nú síðustu sætin í ágúst á ótrúlegu verði. Þú færð annálaða þjónustu Veraldarfararstjóra, þjónustutryggingu og frábært sumarleyfi á einstöku verði. Þú bókar þig á ákveðnum brottfarardegi og færð staðfesta ferð annað- hvort til Costa del Sol eða Benidorm. Viku fyrir brottför staðfestum við gististaðinn og nýtum þannig alla gistinguna okkar og getum boðið þér ferð í ágúst á frábæru verði. V estmannaeyj ar: Á103 kíló- metra hraða á vélhjóli LÖGREGLAN í Vestmanna- eyjum stöðvaði vélhjóla- kappa á 103 kílómetra hraða á véllyóli sínu á föstu- dag. Var hann stöðvaður á götu þar sem hámarkshraði er 45 kílómetrar á klukku- stund. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum var öku- maður vélhjólsins ekki sviptur ökuleyfi á staðnum, en hins vegar megi búast við því að mál hans fái slíka meðferð fyrir dómstólum. Vikuferöir frá kr. 29.800,- 18. júlí Benidorm 2 í íbúð Europa Center. 25. júlí Costa del Sol 2 í stúdíó, Benal Beach. Verð 2 vikur 3 vikur 4 í íbúð 41.800,- 48.800,- 3 í íbúð 43.600,- 50.600,- 2 í íbúð 45.900,- 52.900,- Barnaverð 29.000,- 34.500,- * Verð m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-12 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.