Morgunblaðið - 11.07.1989, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JULI 1989
Jeppaleikur í Öskjuhlíð:
Heilsuhælið í Hveragerði leggur aukna áherzlu á fræðslu:
Unnið að undirbúningi endur-
hæfingar krabbameinssjúklinga
Töluverð-
ar skemmd-
ir á gróðri
Gísli Krístjánsson látinn
GÍSLI Kristjánsson fyrrverandi
útgerðarmaður lést á Hraihistu í
Hafiiarfirði 6. þ.m. á 96. aldursári.
Hann fæddist í Mjóafirði 12. des-
ember 1893. Hann stundaði útgerð
á Norðfirði á árunum 1922—45,
síðan á Akureyri til ársins 1955. Þá
fluttust hann og kona hans, Panny
Ingvarsdóttir, sem lifir mann sinn,
til Hafnarfjarðar. Þar vann hann
ýmis störf. Þau eignuðust 6 börn,
sem öll eru á lífi. Eru afkomendur
þeirra hjóna 85 talsins. Frú Fanny
er heimilismaður á HrafnrStú í Hafn-
arfirði.
Útför Gísla fer fram nk. föstudag
frá Garðakirkju á Álftanesi kl. 13.30. Gísli Kristjánsson
EIGANDI Bronco-jeppa, sem
var að leika sér á honum utan
vegar í Öskjuhliðinni aðfara-
nótt sunnudagsins, varð fyrir
því óhappi að festa tryllitækið
í bleytu og komast hvergi. Þar
með komst upp um strák, því
að snemma á sunnudagsmorg-
uninn komu Iögreglumenn að
bílnum yfirgefhum, mynduðu
skemmdirnar og höfðu upp á
eigandanum.
Jeppanum hafði verið ekið yfir
viðkvæmt gróðursvæði og skildi
hann eftir sig djúp hjólför og sár
{ svörðinn. Að ná bílnum upp úr
hjólförunum aftur kostaði óhjá-
kvæmilega meiri skemmdir. Eig-
andinn verður væntanlega látinn
greiða fyrir skemmdirnar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Olafur M. Ölafsson fyrrv.
menntaskólakennari látinn
IDAGkl. 12.00:
Heimild: Veöurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
ÓLAFUR Markús Ólafsson, fyrr-
verandi menntaskólakennari, lézt
í Giessen í Þýzkalandi á fostudag
í síðustu viku, sjötíu og þriggja
ára að aldri. Andlát hans bar brátt
að, en hann var staddur í Giessen
á ráðstefiiu.
Ólafur fæddist 16. júní árið 1916
í Reykjavík, sonur Ólafs Magnússon-
ar, kaupmanns í Fálkanum, og Þrúð-
ar Guðrúnar Jónsdóttur konu hans.
Hann útskrifaðist frá Verzlunarskóla
íslands 1935 og lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík
1941. Magistersprófí í íslenzkum
fræðum lauk hann frá Háskóla ís-
lands 1946, og dvaldist við nám í
Þýzkalandi 1955-1957.
Hann kenndi íslenzka hljóðfræði
við HÍ 1947-1949, og aðstoðaði Björn
Guðfinnsson við rannsóknir á
íslenzkum mállýzkum. Kennari við
Menntaskólann varð hann 1951 og
starfaði þar til ársins 1986. Hann
kenndi íslenzku og þýzku, en stund-
aði jafnframt vísindastörf með
kennslunni. Orðin staðall og staðla
(í stað standard og standardisera),
sem nú eru gróin í íslenzku máli, eru
hans verk.
Ólafur var kennari af gamla skól-
anum, formfastur og nákvæmur.
Hann þótti minnisstæður þeim, sem
Ólafúr M. Ólafsson.
kynntust honum, nemendum jafnt
sem öðrum samstarfsmönnum.
Eftirlifandi kona hans er Anna
Christine. Þau áttu dótturina Guð-
rúnu Birnu, fædda 1954.
VEÐURHORFUR I DAG, 11. JULI
YFIRLIT f GÆR: Á Grænlandssundi er 992 mb lægð sem þokast
norðaustur og grynnist. Önnur lægð skammt suður af Hvarfi hreyf-
ist austur og eyðist. Hiti breytist lítið.
SPÁ: Vestan átt, víðast gola eða kaldi, skýjað og þokumóða vestan-
lands en annars léttskýjað. Hiti 10—13 stig um vestanvert landið
en 13—19 stig eystra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Vestlæg eða norð-
vestlæg átt. Smáskúrir vestanlands en bjart á Austur- og Suðaust-
urlandi. Hiti nálægt 10 stigum vestan til en talsvert hlýrra eystra.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y. Norðan, 4 vindstig:
V vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
# # *
* * * * Snjókoma
# # *
jO° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
\j Skúrir
*
V E1
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 13 úrkoma í grennd Reykiavík 10 þokumóða
Bergen 17 skýjað
Helsinkí 20 alskýjað
Kaupmannah. 19 skýjað
Narssarssuaq 10 alskýjað
Nuuk 8 skur
Ósló 23 léttskýjað
Stokkhólmur 13 rigning
Þórshöfn 11 skúrir
Algarve 28 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Barcelona 25 mistur
Berlfn 22 léttskýjað
Chicago 26 helðskfrt
Feneyjar vantar
Frankfurt 22 skýjað
Glasgow 15 súld
Hamborg 18 skýjað
Las Palmas 24 léttskýjað
London 22 léttskýjað
Los Angeles 19 atskýjað
Lúxemborg 20 skýjað
Madríd 29 léttskýjað
Malaga 29 mistur
Mallorca 30 léttskýjað
Montreal 18 skúr
New York 26 mistur
Oriando 24 heiðskfrt
París 19 alskýjað
Róm 28 þokumóða
Vfn 26 skýjað
Washington 23 mistur
Winnipeg vantar
- segir Snorri Ingimarsson, sem tók við
yfírlæknisstarfi um síðustu mánaðamót
DR. SNORRI Ingimarsson tók um síðustu mánaðamót við starfi yfirlækn-
is á Heilsuhæli Náttúrulækningafélags íslands í Hveragerði. Hann seg-
ir mikinn framfarahug ríkja í félaginu, á heilsuhælinu verði nú lögð
áhersla á fræðslu um heilsuvernd auk bættrar þjónustu við gigtarsjúkl-
inga og fólk með stoðkerfisvandamál. Þá sé í undirbúningi endur-
hæfing krabbameinssjúklinga á hælinu.
Snorri segir að hið síðastnefnda
hafí valdið því meðal annars að hann
hóf störf við heilsuhælið, í október
síðastliðið ár. „Ég hafði ekki hugsað
mér að ílengjast héma,“ segir Snorri,
„en áhugaverðar nýjungar voru til
umræðu og mér féll staðurinn ákaf-
lega vel.“
Áður starfaði Snorri í fjögur ár
hjá Krabbameinsfélaginu. Hann er
sérfræðingur í krabbameinslækning-
um og varði doktorsritgerð sína árið
1981.
„Eitt af því sem við munum efla
á næstunni er almenn fræðsla um
heilsuvemd, á svipuðum nótum og
þegar félagið var stofnað," segir
Snorri. „Til að sjúklingur 'nái bata
þarf hann að vera virkur sjálfur og
þar er lykilatriði að hafa nokkum
skilning á því sem til þarf. Þetta virð-
ist sjálfsagt, en gleymist samt stund-
Forsætisráðherra Grænhöfða-
eyja, Pedro Verona Rodrigues
Pires, kemur í þriggja daga opin-
bera heimsókn hingað til lands
næstkomandi mánudag. Hann
Þá hefur verið rætt um sérstaka
endurhæfingu krabbameinssjúklinga
á hælinu í samvinnu við Krabba-
meinsfélagið og krabbameinsdeild
Landspítalans. Að auki viljum við
leggja áherslu á aðstoð við of þungt
fólk, bæta þjónustu við gigtarsjúkl-
inga og þá sem glíma við stoðkerfis-
vandamál eins og bakkvilla."
Á heilsuhælið í Hveragerði koma
árlega um 2.400 manns sér til heilsu-
bótar, eða nærri 1% þjóðarinnar.
Nálægt 180 manns eru á hælinu í
einu að sögn Snorra og á öllum aldri
þótt mest sé um eldra fólk.
mun eiga viðræður við ráðamenn
um frekari þróunarsamvinnu
ríkjanna.
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra mun ræða við Pires.
Dr. Snorri Ingimarsson yfirlækn-
ir við Heilsuhæli NLFÍ.
Líklegt er að Jón Baldvin Hannibals-
son utanríkisráðherra og Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
taki þátt í viðræðunum.
Undanfarin ár hefur þróunarað-
stoð íslands við Grænhöfðaeyjar snú-
ist um'fiskveiðar. Skip Þróunarsam-
vinnustofnunar, Fengur, hefur verið
ytra í tvö ár og nokkrir íslendingar
dvalist þar til að veita tæknilega
aðstoð. Milliríkjasamningurinn um
þróunarsamvinnu hefur einu sinni
verið framlengdur en rennur út á
næsta ári. Vegná heimsóknarinnar
hefur sérstaklega verið óskað við-
ræðna við íslensk stjórnvöld um
orkumál og fjármálastjóm.
VEÐUR
um.
Forsætisráðherra Grænhöfðaeyja í opinbera heimsókn:
Rætt um frekari þróunarsamviimu