Morgunblaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 16
M0RGUNBIiAÖIÐ' ÞRIÐJUIDAGUU 11. JÚLÍ 1089
Óðurinn til gleðinnar
eftir Hreggvið
Jónsson
Þann 5. maí sl. var haldið 40 ára
afmæli Evrópuráðsins í Strassborg.
Þessa afmælis hefur lítillega verið
minnst í fjölmiðlum hér á landi, en
full ástæða er til þess að vekja enn
frekari athygli á þessu fertuga af-
mælisbarni á síðum Morgunblaðs-
ins. Starfsemi Evrópuráðsins hefur
ekki verði títt til umræðu í íslensk-
um fjölmiðlum, enda er óhægt um
vik fyrir blaðamenn okkar að íjalla
um hana, þar sem þeir eru talsvert
fjarri höfuðstöðvum þess í Strass-
borg. Hér á eftir verður í stuttu
máli Qallað um Evrópuráðið og
þýðingu þessi fyrir frjálsar þjóðir
Evrópu.
Hugsjónir rætast
Það var á vordögum 1949, þann
5. maí, að fulltrúar 10 þjóða í Evr-
ópu komu saman í London til að
undirrita stofnsamning Evrópu-
ráðsins í St. James höllinni. Sagan,
sem hófst á Haag-ráðstefnunni
1948 og í Zúrich 1946, þar sem
Winston Churcill reifaði Evrópu-
hugsjónina, var rétt að hefjast.
Þremur dögum síðar voru utanríkis-
ráðherrar 12 þjóða mættir í ráðhúsi
Strassborgar til fyrsta ráðherra-
fundarins. Daginn eftir hófst fyrsti
þingfundur Evrópuráðsins undir
heiðursforsæti Edouard Herriot, en
fyrsti forseti ráðsins var síðan kos-
inn Paul Henri Spaak. Evrópuráðið
var stofnað á rústum síðari heims-
styrjaldarinnar, en í lok hennar
gerðu menn sér ljóst frekar en
nokkru fyrr þörfina á friði og sam-
einaðri Evrópu. Og nú á 40 ára
afmælinu 5. maí sl. má segja að
þessar hugsjónir hafi ræzt, þegar
síðasta fijálsa þjóðin í Evrópu,
Finnar, undirrituðu Evrópusáttmál-
ann og gengu í hóp 23 þjóða Vest-
ur-Evrópu. Á þingi Evrópuráðsins
eiga nú sæti 177 þingmenn ogjafn-
margir varamenn, fulltrúar nær
400 milljóna manna í Evrópu. Jafn-
framt eru starfandi 52 þingnefndir
og undirnefndir. Starfsmenn ráðs-
ins í Evrópuhöllinni í Strassborg
um 900. Einnig eiga allar 23 þjóð-
imar fulltrúa að ráðherranefndinni,
en í henni sitja utanríkisráðherrar
landanna eða fastafulltrúar þeirra,
þegar þannig stendur á. Undir hana
heyra 120 nefndir, þar sem fjallað
er um nánast öll svið mannlífsins.
í Strassborg eru og sendirráð nær
allra þjóða ráðsins, annarra en ís-
lands.
Mannréttindi í öndvegi
Allt frá byijun hafa mannréttindi
setið í öndvegi í starfi Evrópuráðs-
ins og mannúð, mildi og menning
skipað heiðurssess í starfi þess. Það
er því ekki tilviljun, aðÓðurinn til
gleðinnar úr níundu sinfóníu Beet-
hovens var snemma valinn sem,
nokkurs konar þjóðsöngur og sam-
einingartákn þjóða Evrópuráðsins.
Eitt af fyrstu verkum ráðsins var
að setja á laggirnar mannréttinda-
dómstólinn og mannréttindanefnd-
ina sem byggja starf sitt á mann-
réttindasáttmála Evrópuráðsins frá
1950. Allir, sem eiga samskipti við
aðildaríkin geta, ef þeir telja brotið
á sér samkvæmt ákvæðum mann-
réttindasáttmálans, skotið máli sínu
til mannréttindanefndarinnar, ef
þeir una ekki úrskurði eða dómi á
lokadóms- eða stjómsýslustigi. Hún
tekur síðan afstöðu til þess hvort
málið falli undir ákvæði mannrétt-
indasáttmálans og megi senda það
áfram til mannréttindadómstólsins
til úrlausnar eða vísað því frá. I
allt hafa 14.500 mál komið til kasta
nefndarinnar frá upphafi og dóm-
stóllinn hefur dæmt í 160 málum
frá stofnun hans 1959. Það er því
’rétt um einn hundraðasti hluti
þeirra mála, sem skotið er til nefnd-
arinnar, sem eru talin þess eðlis að
dómstóllinn þurfi að fjalla um þau.
Mikilvægir sáttmálar
Evrópuráðið hefur samþykkt
fjölda mikilvægra sáttmála, sem
hafa stuðlað að bættu mannlífi og
fjölbreyttari menningu í álfunni.
Þar má fyrst telja mennigarmála-
sáttmálann, sem hefur leitt til
margs konar viðburða á menningar-
sviðinu, þar sem fjallað er um ræt-
ur menningar í Evrópu, listsýning-
ar, nýjungar í tungumálakennslu,
aðalnámsefni í skólum, mannrétt-
indi í námsefni, námsstyrki fýrir
kennara, tónlistarár Evrópu 1985 í
samvinnu við EB, sjónvarps- og
kvikmyndaár Evrópu 1988 í sam-
vinnu við EB, og Evrópuímyndin,
sjóður til styrktar evrópskri sjón-
varps- og kvikmyndagerð. Þá má
nefna félagsmálasáttmála Evrópu,
en í honum er tryggður grundvallar-
réttur einstaklinga á íjölmörgum
sviðum mannlífsins. Hér má og
geta sáttmála sem bannar pynding-
ar, annan til að koma í veg fyrir
hryðjuverk með stjórnmál að yfir-
skini, sáttmála sem er ætlað að
koma í veg fyrir misnotkun tölvu-
gagna og sáttmála til að stemma
stigu við á ofbeldisverkum á knatt-
spyrnuleikjum. Þá er ekki úr vegi
að geta nokkurra annarra sáttmála,
eins og sáttmála um vemdun dýra-
lífs og náttúruminja, um samvinnu
nágrannarílqa, um sjálfstjórn sveit-
arfélaga og um óhindraðar útsend-
ingar á sjónvarpsefni milli landa í
Vestur-Evrópu. í blaðagrein sem
þessari er ekki hægt að hafa upp-
talninguna lengri en hér er gert,
en minna má á nýafstaðinn fund
íþróttaráðherra Evrópuráðsins hér
í Reykjavík þar sem samþykkir voru
m.a. sáttmálar um að koma í veg
fyrir misnotkun lyfja í íþróttum og
um sameiginlega stefnu gagnvart
Hreggviður Jónsson
„Evrópuráðið er nú
skipað öllum frjálsum
þjóðum Evrópu. Nú
beina menn því sjónum
sínum til austurs og
vonast til að hægt verði
að auka samvinnu við
þær þjóðir, sem gæti
orðið til þess að allar
þjóðir Evrópu samein-
uðust í Evrópuráðinu.“
kynþáttaaðskilnaði. Löggiltir sátt-
málar og samningar Evrópuráðsins
eru nú 130 talsins, sem hafa fætt
af sér 25.000 aðra tvíhliða samn-
inga og ákvæði.
Önnur starfsemi
í örstuttu máli er rétt að benda
á nokkra aðra þætti í starfi Evrópu-
ráðsins: Pompidou-hópurinn, sem
fæst við baráttuna gegn eiturlyfj-
um. Æskulýðsstarfsemi, sem er
stýrt af starfsfólki æskuklýðsmið-
stöðvar Evrópu og æskulýðsstofn-
unar Evrópu í Strassborg. Þróunar-
sjóður Evrópu í félagsmálum, sem
hefur veitt lán til að stemma stigu
við atvinnuleysi og félagslegum af-
leiðingum þess með ýmsu móti.
Útlán eru nú um það bil 7.500 millj-
ónir bandaríkjadala. Lyfjastofnun
Evrópu, sem á að vernda fólk gegn
framleiðslu á skaðvænlegum lyfjum
og öllum þáttum, sem lúta að fram-
leiðslu og gerð þeirra. Evrópublóð-
bankinn í Amsterdam, sem er ætlað
að koma til hjálpar í neyðartilvikum.
Evrópumiðstöðin í Feneyjum til að
þjálfa iðnaðarmenn til að halda við
kunnáttu í byggingarlist fýrri tíma,
m.a. með námskeiðum í múrverki,
í trésmíði, í að höggva til steina og
í gerð gifsmynda. Þá má geta hinn-
ar árlegu ráðstefnu um sveitar-
sjómarmál, sem hefur verið haldin
síðan 1957.
Framtíð Evrópu og staða
íslands
Þrátt fyrir smæð íslands hefur
þátttaka okkar í Evrópuráðinu haft
heillavænleg áhrif á ýmislegt hér
heima. Einnig höfum við getað lagt
nokkuð af mörkum til ýmissa mála
og haft þannig áhrif á þróun mála
í Evrópu. Evrópuráðið er nú skipað
öllum fijálsum þjóðum Evrópu. Nú
beina menn því sjónum sínum til
austurs og vonast til að hægt verði
að auka samvinnu við þær þjóðir,
sem gæti orðið til þess að allar þjóð-
ir Evrópu sameinuðust í Evrópuráð-
inu. Nú þegar hefur nokkrum þjóð-
um í Austur-Evrópu verið gefinn
kostur á að hafa áheyrnarfulltrúa
á einstaka þingi Evrópuráðsins og
senda áheyrnarfulltrúa á einn og
einn fund á- vegum ráðsins, eins og
t.d. hér á fund íþróttamálaráðherra
ráðsins, þar sem voru fulltrúar frá
Júgóslavíu, Ungveijalandi og Pól-
landi. Markmið Evrópuráðsins er
hið sama og áður: Að veija rétt
einstaklinga og lýðræðið, sem þess-
um elstu samtökum og breiðfylk-
ingu allra stjórnmálaafla í fijálsum
ríkjum Vestur-Evrópu hefur tekist
á undraverðan hátt. Heiðursforseti
Evrópuráðsins, Edouard Herriot,
sagði við setningu fyrsta þingsins
fyrir 40 árum: „Það er einlæg ósk
okkar að sameinast í vörn fyrir
mestu verðmætum siðmenningar-
innar, sem eru frelsi og lög.“ Nú
stendur Vestur-Evrópa sameinuð í
sterkri vörn fyrir þessum mannrétt-
indum, sem jafnframt hefur orðið
öflug sókn gegn einræði og kúgun
hvar sem er í heiminum.
Framtíð Evrópu byggist á frelsi
og lögum fyrir alla eða eins og sov-
éski andófsmaðurinn Búkoski orð-
aði það í viðtali við Morgunblaðið
fyrir nokkrum árum: „Það er engin
slökun án mannréttinda."
Höfundur er alþingismaður fyrir
Fijálsfynda hægriflokkinn í
Reykjavíkurkjördæmi.
Við stofnun Evrópuráðsins. Frá vinstri: Halvard Lange (Noregi), Dirk U. Stikker (Hollandi), Necmeddin Sadak (Tyrklandi), Paul-Henri
Spaak (Belgíu, fyrsti forseti ráðsins,), Carlo Sforza (Italíu), Edouard Herriot (heiðursforseti fyrsta þingfundar Evrópuráðsins), Ostan B.
Unden (Svíþjóð), Ernest Bevin (Stóra- Bretlandi), Charles Frey (borgarstjóri Strassborgar), Robert Schuman (Frakklandi), Constantin Tsald-
aris (Grikklandi).
Hver framdi glæp?
eftirÓlafÞór
Ragnarsson
Oft er það svo að fæst orð hafa
minnsta ábyrgð. En þó að ég sé
friðsemdarmaður getur manni
stundum þótt nóg komið. Svo var
um mig þegar ég bar augum lang-
lokuna hans Árna Johnsens um
sjálfvirka sleppibúnaðinn. Hélt satt
að segja að þar væri mælirinn full-
ur, en lengi skal manninn reyna.
Það er alltaf sorg á íslandi þegar
sjóslys verða, kannski mest sorgin
þegar minning góðra drengja er
útbíuð með orðavaðli.
Ef við snúum okkur að um-
ræddri grein, þá er sumt þar á
þann hátt að alls ekki er svaravert.
Aftur á móti mun ráðuneytið áreið-
anlega svara fullyrðingum sem
snúa að því á sinn hátt og eins ,er
víst að Iðntæknistofnun mun ekki
sitja undir ámæli um talhlýðni og
yfirborðsleg vinnubrögð.
En obbinn af greininni er frekar
rætin árás á siglingamálastjóra og
Siglingamálastofnun. Ég hugsa að
Magnús hafi vart nennu eða geð
tii að svara gífuryrðum Árna og
er það kannski besta lausnin, en
sumu verður þó að svara eða leið-
rétta. Ég er ekki málpípa Magnúsar
og ætla mér því ekki að svara þessu
pexi hér og nú, en allt hefur sinn
tíma og ef til vill sendi ég Árna
nokkrar línur seinna. Ég vil þó taka
það fram, að oftar en hitt hefur
mér fundist að siglingamálastjóri
fái ekki nógan stuðning frá ráðu-
neyti eða siglingamálaráði til lúkn-
ingar vissra mála. Ég sit í siglinga-
málaráðuneyti og er þar ekki já-
„En ég fullyrði í eitt
skipti fyrir öll að sigl-
ingamálastjóri er
hvorki glæpamaður né
annað verra og það er
kannski aðalástæðan til
minna skrifa.“
bróðir eins né neins og oft er ég
ekki fyllilega sáttur við framvindu
mála. En það er ekki alltaf best að
fara offari og segja stóra hluti. Og
fullyrðingar um glæpsamlegt at-
hæfi og stuðlun að mannslátum er
út í hött. Hitt er annað má að Sigl-
ingamálastofnun býr við hrikalegt
fjársvelti. Kannski er þar skýringin
á því sem betur mætti fara.
En ég fullyrði í eitt skipti fyrir
öll að siglingamálastjóri er hvorki
glæpamaður né annað verra og það
er kannski aðalástæðan til minna
skrifa. Ég neita því alfarið að
glæpamennska og gróðapungasjón-
armiðið ráði ferðinni í öryggismál-
um sjómanna, hvorki hjá Magnúsi
eða okkur hinum sem koma þar
nálægt.
Mætti ég að lokum spyija hæst-
virtan 1. hnefaréttarmann hvort
hann sé með þingmanninn í magan-
um, eða hvað? Og í framhaldi af
því minnir mig að einhver hafi sagt
á málfundi í gamla daga að þó
hann færi inn í Klúbb og stæði þar
á haus tæki enginn eftir því. Engum
fyndist það athugaýert og öllum
þætti þetta ágæt stelling.
Kannski er það svo, að sumum
fer það best að vera þannig stað-
settur, og má þá koma hér amen á
eftir efninu.
Höfundur situr i siglingamálaráði
og er áhugamaður um öryggismál
sjómanna.
Vöruskipta-
jöfiiuður hag-
stæður í apru
Vöi-uskiptajöfnuður íslendinga
í viðskiptum við útlönd var hag-
stæður um 1.337 milljónir króna
í aprílmánuöi. í apríl í fyrra var
vöruskiptajöftiuðurinn hins vegar
hagstæður um 1.664 milljónir, sé
miðað við fast gengi. Ef litið er á
fyrstu flóra mánuði ársins var
vöruskiptajöfhuðurinn hagstæður
um 4.204 milljónir króna.
Á þessu fjögurra mánaða tímabili
voru fluttar út vörur fyrir 23.362
milljónir króna, en inn fyrir 19.158
milljónir, og var verðmæti útflutn-
ings 12% hærra en á sama tíma í
fyrra, en þá var vöruskiptajöfnuður-
inn lítillega óhagstæður. Sjávaraf-
urðir voru um 71% alls útflutnings
fyrstu fy'óra mánuði þessa árs, en
nokkur aukning varð á útflutningi
þeirra á milli ára.