Morgunblaðið - 11.07.1989, Síða 18
18-
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JULI 1989
Risamarglyttan
eftirKristin
Pétursson
Höfundur þessara hugleiðinga
hefur setið eitt löggjafarþing á Al-
þingi íslendinga. Ymislegt kom á
óvart og þó átti maður ekki von á
neinu sérstaklega góðu. Best er eins
og komið er að vera hreinskilinn
fjalla um það á opinskáan hátt hvað
yjð getum lagað svo betur megi
fara í framtíðinni.
Stjórnarskráin
Stjórnarskrá landsins er að stofni
til frá 1874. Mikið hefur verið talað
um að ;,endurskoða stjórnar-
skrána“. Nefndir skipaðar sem
starfa árum saman og þokast hægt.
En hvernig væri að endurskoða
samskipti framkvæmdavalds og
löggjafarvalds! Skyldi ekki vera
kominn tími til að endurskoða hvort
ýmsar athafnar kerfisins standast
stjórnarskrá landsins!
Tökum sem dæmi framkvæmd
íjárlaga. Hvað segir stjómarskráin
41. gr. „Ekkert gjald má greiða
af hendi nema heimild sé til þess
í Qárlögum eða Qáraukalögum."
Þetta er ekki flókið orðalag. En
hefur framkvæmdavaldið virt þetta
ákvæði! Við skulum skoða það.
Eftir nokkrar fyrirspurnir í kerf-
inu sl. haust um hvar heimildirnar
væru fyrir aukaíjárlögunum sl. ár
hætti ég að spyija. Mér fannst eins
og ég væri álitinn skrýtinn að vera
að spyija svona. Oft hef ég vitnað
í stjórnarskrána sl. vetur og spurt
hvort tiltekin lög standist stjórnar-
skrá landsins. Hámarksárangur í
svörum ráðherra var útúrsnúning-
ur!
Þá skulum við athuga málið nán-
ar með fjáraukalögin.
Mánuði eftir að ég hætti að
spyija hvar heimildir væm fyrir
greiðslum umfram fjárlög hvers árs
væm, þá skeði það. Þingvörður
lagði á borðið fmmvörp til ijárauka-
laga fyrir árin 1979, 1981, 1982,
1983, 1984, 1985, 1986 og 1987!
Manni sortnaði fyrir augum. Síðan
hef ég verið að gera athugasemdir
við þetta við dræmar undirtektir.
Hvað segir stjómarskráin sbr. 41.
gr. hér að ofan! Það er enginn að
tala um að lifa eftir bókstöfun í
bókstaflegri merkingu. Þetta snýst
um gmndvallaratriði. Fram-
Alþingi
DRENGSKAPARHEIT
Jnm ftUt'tt. .1 ^tttymttt/tti
'&índtttpa, &/// ^v/, aJ vtc
//fttytAtt/t ttttttttm oy aJ ÁaÁ/t
'./ftttttft'uÁ'/íi /tnt/ttttí
kvæmdavaldið má ekki greiða fjár-
muni nema samkvæmt heimild á
fjárlögum, eða íjáraukalögum.
Framkvæmdavaldið verður auðvit-
að að virða stjórnarskrá landsins
og löggjafarvaldinu ber skylda til
að taka í taumana. Nú hef ég skrif-
að ijármálaráðherra bréf og óskað
þess að fmmvarp til fjáraukalaga
fyrir árið 1989 verði lagt fram um
leið og Alþingi kemur saman í
haust. Þetta verður að fara svona
fram því annars verður þjóðin og
alþingismenn ekki meðvitaðir um
hvað er að gerast í ríkisijármálum.
Fjármálaráðherra hafði t.d. enga
heimild til þess að semja um launa-
hækkanir nema með fyrirvara um
samþykki Alþingis á fjáraukalög-
um. Samningafjármálaráðherravið
ríkisstarfsmenn átti að leggja fyrir
Alþingi strax að lokinni undirritun
þar sem þeir fóm fram úr heimild-
um.
Á uppreiknuðu verðlagi dagsins
í dag var um sl. áramót búið að
greiða úr ríkissjóði 100 milljarða
umfram heimildir, frá 1979. Þessi
upphæð jafngildir 130 Ólafsfjarðar-
jarðgöngum eða 200 nýjum skut-
togurum. í vor vom afgreidd áður-
nefnd ár til 1987, samtals um 92
milljarðar en 1988 er enn á „fitt-
inu“, upp á 8 milljarða án heimildar!
Það er alls ekki skemmtilegt að
vera að gagnrýna svona langt aftur
í tímann. En því miður, það er óum-
flýjanlegt að ræða þetta í hrein-
skilni. Stjórnarskrá landsins á að
virða. Sé það ekki gert verður trún-
aðarbrestur milli stjómvalda og
þjóðarinnar. Þegar ég gagnrýndi
starfsaðstöðu alþingismanna og
starfsfólks sl. vetur og óskaði þess
að ráðgjafarfyrirtæki tæki út alla'
starfsemi Alþingis átti ég ekki síst
við þetta. Hvemig eiga alþingis-
menn að fylgjast með fram-
kvæmdavaldinu? Hvar eiga alþing-
ismenn að spyija hvort lög standist
stjórnarskrá landsins! Það vantar
vandaðri vinnubrögð bæði við laga-
setningu og framkvæmd. Kerfið
gengur orðið sjálfaia og skammtar
sér sjálft fjármagn! Þetta er alveg
dæmalaust! Svo eiga framleiðslu-
fyrirtæki að keppa við fram-
kvæmdavaldið um starfsfólk og
fjármagn. Hver verður svo ofan á
í þeirri samkeppni!
En það er ekki sama jón og séra
jón. Framkvæmdavaldið úthlutar
kvóta eftir lögum sem þurfa skoð-
unar við gagnvart 69. gr. stjórnar-
skrárinnar og verður ekki farið
nánar út í núna. Ekki mega útgerð-
armenn fara framyfir í kvóta. Ekki
má fiskvinnslan fara framyfir í
bankanum. En kerfið má fara fram-
yfir hjá Alþingi á fjárlögum það er
séra jón. Það er öðruvísi! Eða hvað!
Svo segja kerfiskarlanir. „Það þarf
að hagræða í fiskvinnslu og útgerð"
„það þarf að draga úr fjárfestingu
í atvinnulífinu". „Það þarf að spara
og hagræða í öllum atvinnugrein-
um.“ En séra jón, kerfisófreskjan,
það þarf ekki að spara og hagræða
þar. Á síðasta ári birtist okkur
„sparnaður" kerfisins með því að
ráðnir voru í vinnu 280 manns hjá
kerfinu umfram heimildir!
Þetta er táknrænt fyrir virðingu
framkvæmdavaldsins gagnvart lög-
gjafarvaldinu. Ríkisendurskoðun
heyrir undir Alþingi frá 1987 og
er því að byija að skapa sér sess í
stjórnkerfinu. Mér heyrist útundan
ríiér að byijað sé að þusa yfir gagn-
rýni ríkisendurskoðunar. Sem betur
fer eru lögin um ríkisendurskoðun
vel úr garði gerð og samkvæmt
þeim nýtur ríkisendurskoðandi
sjálfstæðis í starfi sínu.
Starfsemi ríkisendurskoðunar
þarf að gera markvissari og gagn-
rýni hennar þarf að koma oftar í
Kristinn Pétursson
Hvernig eiga alþingis-
menn að fylgjast með
framkvæmdavaldinu?
Hvar eiga alþingismenn
að spyrja hvort lög
standist stjórnarskrá
landsins! Það vantar
vandaðri vinnubrögð
bæði við lagasetningu
og framkvæmd. Kerfið
gengur orðið sjálfala og
skammtar sér sjálft
fjármagn!
framtíðinni. Mánaðaruppgjör allra
ríkisfyrirtækja og stofnana ætti
tæplega að vera vandamál. Þarf
ekki líka að fylgjast með verklegum
opinberum framkvæmdum og
rekstri ríkisfyrirtækja. Endurskoð-
un er ekki bara bókhaldslegt atriði.
Eitthvað kostar það þá. En hvernig
eigum við að ná fram aðhaldi í ríkis-
rekstri án eftirlits?
Það er öðruvísi þegar fram-
kvæmdavaldið þarf að fylgjast með
útgerðarmönnum varðandi kvóta.
Sé skýrslum ekki skilað mánaðar-
lega kemur „kurteisislegt“ skeyti
frá kerfinu „ef þér skilið ekki
skýrslu innan 10 daga verðið þér
umsvifalaust sviptur réttindum til
að fiska í íslenskri fiskveiðilög-
sögu“. Hvorki meira né minna. Það
er ekki spurt um borgaraleg rétt-
indi. Hér talar séra jón, það er
öðruvísi, eða þannig.
Ég hef aflað mér upplýsinga um
skiptingu kostnaðar milli löggjafar-
valds, framkvæmdavalds og dóms-
vald skv. Ijárlögum.
Löggjafarvald:
Embætti forseta íslands
Alþingi
Ríkisendurskoðun
Alls 0,75%
Dómsvald:
Allt undir dómsmálaráðuneyti
Hæstiréttur
Alls 4.11%
Framkvæmdavald:
Öll önnur útgjöld
Alls 95,14%
Þar höfum við það. Valdið í
landinu er þrískipt og hér sést
hvernig það lítur út peningalega.
Alþingi ísléndinga, stofnað á Þing-
völlum árið 930, er því miður allt
of valdalítið í reynd. Framkvæmda-
valdið (ríkisstjórn) misnotar sér
meirihlutann (gerði það í vetur sem
leið) og treður í gegn um þingið
frumvörpum sem eru hroðvirknis-
lega unnin og standast tæplega
stjórnarskrá landsins. Tökum sem
dæmi hroðvirknislega unnin lög um
húsbréfafrumvarpið. Enginn skrif-
leg umsögn Seðlabanka þjóðar-
innar um áhrif húsbréfakerfisins
á stefhuna í peningamálum ef
hún er þá til!
Sem dæmi um lög sem tæplega
standast stjórnarskrá landsins eru
eignaskattamir. Svona mætti fleira
telja upp en þetta dugar sem dæmi.
Hvað er til ráða?
Hvað er svo til ráða? Ég gerði
tilraun í vetur og skrifaði forsetum
Alþingis bréf og óskaði eftir að
forsetar þingsins létu gera úttekt á
allri starfsemi Alþingis. Það var
túlkað í fjölmiðlum sem „þingmaður
kærir vinnuaðstöðu". Ég hef engan
kært ennþá. Þolir þessi starfsemi
ekki hlutlausa úttekt eða hvað? Má
ekki ráðgjafarfyrirtæki gera hlut-
lausa skýrslu um samskipti löggjaf-
arvalds og framkvæmdavalds! Svo
sannarlega skal þetta allt saman
gegnumlýst að mér heilum og lif-
andi. Það er nóg komið af endaley-
sunni. Öll fyrirtæki landsins að
verða gjaldþrota vegna þess að
framkvæmdavaldið virðir ekki
stjórnarskrá landsins. Fram-
kvæmdavaldið hylmir líka yfir upp-
lýsingar fyrr en seint og um síðir!
I september í fyrra básúnaði þáver-
andi fjármálaráðherra um 600 millj.
kr. afgang á fjárlögum. Síðan var
verið að sletta fram upplýsingum
...GOTTAÐFÁ
jmoí] Mm