Morgunblaðið - 11.07.1989, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JUU 1989
39
Minninff:
Fanney Eyjólfs-
dóttir, Hafharfírði
Fædd 9. júlí 1914
Dáin 3. júlí 1989
Ástkær amma okkar, Fanney
Eyjplfsdóttir, lést að morgni 3. júlí
síðastliðins, í St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði, eftir langvarandi veik-
indi.
Amma fæddist 9. júlí 1914 og
hefði því orðið 75 ára síðastliðinn
sunnudag. Hun var fædd að Brúsa-
stöðum í Hafnarfirði, dóttir hjón-
anna Ingveldar Jónsdóttur og Eyj-
ólfs Kristjánssonar. Hún var ein
tólf systkina.
Þann 3. júní 1933 giftist hún afa
okkar, Jóni Sigurðssyni, og eignuð-
ust þau þijú börn, Sæunni, Grétu
og Sigurð. Bamabömin eru níu og
eitt bamabamabarn.
Amma var ávallt heilsuhraust og
hafði aldrei legið á spítala fyrr en
í október síðastliðið haust. Hún átti
ekki afturkvæmt þaðan en komst
þó heim í nokkur skipti og þá að-
eins stutta stund í einu.
Við eigum margar minningar um
ömmu okkar og þökkum Guði fyrir
þær.
í þessum örfáu orðum kveðjum
við í hinsta sinn ömmu okkar með
miklum söknuði og munum ávallt
minnast hennar í huga okkar eins
og hún var. Elsku afi, megi Guð
styrkja þig í þessari miklu sorg.
Kalli, Eva og Silla
Hún amma okkar, Fanney Eyj-
ólfsdóttir, er dáin, eða amma vest-
urfrá eins og við kölluðum hana
alltaf. Við söknum þess mikið að
hún amma skuli ekki lengur vera á
meðal okkar, hún sem var alltaf svo
hlý og góð og bar alltaf svo mikia
umhyggju fyrir okkur öllum. Það
er svo mikils að minnast og erfitt
að kveðja.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÚN KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Kristnesi
í Glerárhverfi,
til heimilis i Lyngholti 9,
sem lést á heimili sínu 6. júlí verður jarðsungin frá Glerárkirkju
föstudaginn 14. júli kl. 13.30.
Unnur Óskarsdóttir, Ingimar Davíðsson.
Oddný Óskarsdóttir, Björn Þorkelsson,
Kristján G. Óskarssson, Dóra Kristinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.'
(Sb. 1886 - V. Briem)
Minninguna geymum við ætíð.
Skarðið sem amma skilur eftir sig
mun seint verða fyllt. Elsku afi
okkar, Guð blessi þig og styrki í
sorginni.
Sigurgeir, Guðrún Halla,
Fanney, Ágúst og Lína.
t
Móðir okkar,
STEINUNN GRÓA SIGURÐARDÓTTIR
frá Seyðisfirði,
lést að morgni 6. þessa mánaðar. Útför fer fram nk. föstudag,
þann 14. júlí, kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
Sigurður Dagnýsson,
Ólafía Dagnýsdóttir,
Guðrún Lilja Dagnýsdóttir,
Björk Dagnýsdóttir,
Hlynur Dagnýsson,
Vigfús Dagnýsson.
ÝMISLEGT
Ættarmót
Ættarmót niðja Sigríðar Guðmundsdóttur og
Magnúsar Jónssonar, er bjuggu í Skarfanesi
á Landi, verður haldið laugardaginn 29. júlí.
Framkvæmdanefndin æskir þess að sem
flestir sjái sér fært að koma og tilkynni þátt-
töku sína til hennar.
Anton Erlendsson s. 38792, Ásta Árnadóttir
s. 32231, Einar Magnússon s. 24149, Ólafur
Ö. Árnason s. 37421, Elín Sigurbergsdóttir
s. 77078.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Leiguskipti
Óska eftir að taka á leigu íbúð á Stór-
Reykjavíkursvæðinu í skiptum fyrir 3ja her-
bergja íbúð á Akureyri.
Upplýsingar í síma 96-25969.
Leiguskipti
Til leigu gott einbýlishús á ísafirði í skiptum
fyrir gott húsnæði á Reykjavíkursvæðinu (4-5
herbergi). Æskilegur tími frá 1. september
89 til 1. júní 90, eða lengur eftir samkomu-
lagi. Einnig kæmi til greina bein leiga á
Reykjavíkursvæðinu. Góð leiga og allt fyrir-
fram.
Tilboð óskast sent auglýsingadeild Mbl. fyrir
20 júlí merkt: „L - 10690“.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Vatnagarðar
Atvinnuhúsnæði ca 200 mz. Stórar .dyr, mik-
il lofthæð. Til sýnis eftir kl. 13 þriðjudag og
miðvikudag.
Sími 671552.
Mjódd - Álfabakki 14
Til leigu verslunarpláss ca 115 m2. Einnig
skrifstofuhúsnæði 300-400 2. Getur að sjálf-
sögðu hentað fyrir ýmislegt annað. Góð bíla-
stæði. í Mjódd eru ört vaxandi umsvif.
Upplýsingar í síma 620809.
FUNDIR — MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Kaupfélags ísfirðinga verður haldinn í Grunn-
skólanum á ísafirði fimmtudaginn 20. júlí
kl. 17.00.
Stjórnin.
bátar-skip
Frystitogari til sölu
Upplýsingar í síma 28599 á skrifstofutíma.
Kvóti
Óska eftir þorskkvóta í skiptum fyrir síldar-
kvóta. Hef einnig áhuga á að kaupa þorsk-
kvóta beint.
Upplýsingar í símum 92-68355 og 92-68395.
Sjónvarpsauglýsingar
Af sérstökum ástæðum hefur fyrirtæki í
Reykjavík mjög góðan auglýsingasamning við
gott kvikmyndafyrirtæki. Um er að ræða allt
sem viðkemur framleiðslu á leiknum sjón-
varpsauglýsingum. Auglýsingarnar eru boðn-
ar á mjög hagstæðu verði og greiðslukjörum.
Tilboð merkt: „A - 2984 óskast send auglýs-
ingadeild Mbl. sem fyrst.
TILKYNNINGAR
IDRÆTSH0JSKOLEN
S0NDERBORG
Nemendamót
í tilefni af 25 ára starfsafmælis Inge og Hans
Jörgens Nilsen, skólastjóra Idrætshöjskolen
í Sönderborg, koma þau í heimsókn til ís-
lands. Af þessu tilefni er ákveðið að efna til
nemendamóts gamalla og nýrra IHS nem-
enda í Viðeyjarstofu þriðjudagskvöldið 1.
ágúst nk. Lagt verður af stað frá Sundahöfn
kl. 17.30 þ.d. og komið til baka um kl. 24.00.
Sýndar verða myndir, sagt frá skólastarfinu
og snæddur kvöldverður o.fl. Allir gamlir
nemendur eru hvattir til að mæta, makar eru
velkomnir. Þátttaka tilkynnist til Isólfs Gylfa
Pálmasonar í síma 675000 og 673656 og
Olgu B. Magnúsdóttur í síma 74364 fyrir 20.
júlí nk. Mætum hress og kát, takið söng-
bókina með.
þungaskattsgreiðenda
Gjaldendum vangoldins þungaskatts er bent
á að þungaskattskröfum fylgir lögveðréttur
í viðkomandi bifreið, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga
nr. 3/1987.
Verði vangoldnar þungaskattsskuldir ejgi
greiddar fyrir 12. ágúst nk., mun, skv. 1. gr.
laga nr. 49/1951, fyrirvaralaust verða krafist
nauðungaruppoðs á bifreiðum þeim, er lög-
veðrétturinn nær yfir, til lúkningar vangoldn-
um kröfum auk dráttarvaxta og kostnaðar.
Tollstjórinn í Reykjavík.
TIL SÖLU
Sumarhústil sölu
Húsið er 43 fm að stærð og er á mjög falleg-
um stað 14 km frá Borgarnesi.
Nánari upplýsingar í síma 91-612406 eftir
kl. 19.00.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á Hellisbraut 7, neðri hæð, Hellissandi, þingl. eig-
andi Björn Halldórsson o.fl., fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar
rikisins og veödeildar Landsbanka íslands, á eigninni sjálfri þriðjudag-
inn 18. júlí 1989 kl. 11.00.
Sýslumaður Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu,
bæjarfógetinn i Ölafsvík,
Stykkishólmi, 11. júli 1989.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á Austurgötu 6, Stykkishólmi, þingl. eigandi Berg-
sveinn Gestsson, fer fram eftir kröfu innheimtu ríkissjóðs, veðdeild-
ar Landsbanka íslands og Ingvars Björnssonar hdl., á eigninni sjálfri
þriöjudaginn 18 júlí 1989 kl. 16.30.
SýslumaðurSnæfellsness- og
Hnappadalssýslu,
bæjarfógetinn i Ölafsvík,
Stykkishólmi, 11. júli 1989.
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta á Mýrarholti 6A, Ólafsvík, þingl. eigandi Björn V.
Jónsson o.fl., fer fram eftir kröfu Útvegsbanka islands hf., Fjár-
heimtunnar hf. og Ólafsvikurkaupstaðar, á eigninni sjólfri þriðjudag-
inn 18. júlf 1989 kl. 13.30.
Sýslumaður Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu,
bæjarfógetinn i Ölafsvík,
Stykkishólmi, ll.júlí 1989.