Morgunblaðið - 11.07.1989, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRÍÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989
því. En við hvetja raun varð sam-
heldnin meiri og tengslin sterkari.
Það stóð ekki á honum Benedikt ef
einhver var hjálparþurfi.
Mér var ætíð tekið af miklum hlý-
hug og innileik og hafði Benedikt
sjálfur orð á því í veikindum sínum
að hann hefði eiginlega aldreilitið á
mig sem tengdadóttur heldur sem
dóttur sína. Þar var ég honum inni-
lega sammála. Bömin hans gengu
fyrir öllu og ég var þar meðtalin.
Það kom berlega í ljós, þau fjögur
ár sem ég bjó inni á heimili þeirra
hjóna.
En hann átti líka litla vinkonu
eins og hann sjálfur kallaði hana.
Lítinn augastein sem honum þótti
svo mikið vænt um. Það var dóttir
okkar Magnúsar, Unnur Ylfa, fædd
21. desember 1980. Mér er minnis-
stætt atvik eitt er átti sér stað þeg-
ar Benedikt var beðinn um að passa
barnabarn sitt og Unnur amma var
stödd erlendis. Þá bauð hann litlu
vinkonu sinni út að borða á veitinga-
stað og áttu þau þar saman ánægju-
lega kvöldstund. Daginn eftir var
farið, eins og svo oft áður, og keypt-
ur „risaís“ handa litlu afastelpunni
hans. Þær eru margar verðmætar
minningarnar sem Unnur Ylfa á um
besta afa í heimi.
Þegar veikindi Benedikts upp-
götvuðust varð fjölskyldan felmtri
slegin, vitandi það að hann ætti að-
eins örfáar vikur eftir. Allt kapp var
lagt á að fá hann heim af spítalanum
þótt helsjúkur væri og á Hólmfríður
dóttir hans þakkir skilið fyrir þann
dugnað og kjark sem hún sýndi í
þeim efnum. Vikurnar dýrmætu
urðu fjórar og eftir stendur fjölskyld-
an jafnvel enn samhentari en nokkru
sinni fyrr.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég votta Benedikt Bogasyni virðingu
mína þakklæti fyrir allan þann
stuðning og styrk sem hann veitti
mér. Sá styrkur er mér ómetanlegur.
Elsku Unnur, megi algóður Guð
veita þér styrk á þessari sorgar-
stundu, og hjálpa þér að sætta þig
við þennan mikla missi. Megi þessi
litla bæn hjálpa okkur öllum til þess.
Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig
við það, sem ég fæ ekki breytt...
Kjark til að breyta því, sem ég get breytt...
og vit til að greina þar á milli.
Birgitta Thorsteinsson
„Dáinn, horfinn, harmafregn,
hvílíkt orð mig dynur yfir.
En ég veit að látinn lifir,
það er huggun harmi gegn.“
Svo kvað Jónas við fráfall Tómas-
ar Sæmundssonar, og þessi orð
koma mér í hug nú þegar góðvinur
minn og náinn frændi, Benedikt
Bogason, verkfræðingur og alþingis-
maður, hefur kvatt jarðneska tilveru
langt um aldur fram eftir stutt en
strangt sjúkdómsstríð.
Dánardagur hans, 30. júní 1989,
mun seint gleymast mér. Við frænd-
ur vorum jafnaldrar, djúp og einlæg
vinátta var milli foreldra okkar. Frá
barnæsku hefur fundum okkar vart
borið svo saman að Benedikt hafi
ekki frætt mig um eitthvað af elsku
og alúð. Ég hef sótt til hans bróður-
leg ráð um það sem ég gat engum
sagt nema þeim sem átti trúnað
minn allan, og úr málum hefur hann
jafnan leyst eftir vandlega og ræki-
lega íhugun, af hinum næmasta
skilningi. Svo að hver ráðlegging
hans hefur verið mér dýrmæt, enda
var hann miklum og góðum gáfum
gæddur og það var gott að vera í
návist hans.
Benedikt ólst upp í höfuðborg-
inni, en hann gleymdi ekki uppruna
sínum, var sannur sonur sveitanna
og landsbyggðarinnar. Hann kom
víða við í störfum og skilur hvar-
vetna eftir sig mikil spor. í Byggða-
stofnun sem annars staðar naut
hann trausts og álits sökum frábærr-
ar þekkingar sinnar, djúphyggni og
grandskoðunar hvers þess máls er
hann bar fram eða átti um að íjalla.
Og það því fremur sem göfuglyndi
hans og drengskapur hlaut að ávinna
honum virðingu, þökk og hlýjan hug
allra þpirra er þekktu hann. Vera
hans á Alþingi varð því miður of
skammvinn. ísland hefur átt marga
nýta og ágæta sonu. Benedikt Boga-
son er í þeirra hópi. Hans nánustu
ástvinir og við frændfólk hans eigum
nú við bústaðaskiptin margs að
minnast. Margs sem við nú viljum
þakka af heitu hjarta og hrærðum
hug.
Eg þakka guði fyrir að hann gaf
mér Benedikt Bogason að frænda
og vini. Ég flyt eiginkonu hans,
Unni Magnúsdóttur, börnum,
tengda- og barnabarni einlægustu
og dýpstu samúð fjölskyldunnar frá
Bergþórshvoli.
Guð blessi minningu Benedikts
Bogasonar.
Eggert Haukdal
Stundu fyrir hádegi á laugardegi
gengur hnellinn maður með glettnis-
glampa í augum inn í gyllta salinn
á Borginni og hraðar sér út í horn
til fundar við gamla vini úr skóla.
Menn rýma til fegnir og hann sest,
hellir í bolla, kveikir í vindli og spyr
hvort nokkuð sé títt. Hér er mættur
til leiks Benedikt Bogason verk-
fræðingur, alþingismaður og stjórn-
málafræðingur okkar um áratugi.
Oft og einatt hitnar nú heldur betur
á könnunni í umræðum og ekki allt
af setningi slegið. Miðaldra menn
og sköllóttir, skeggjaðir jafnt og
skegglausir, hlæja dátt og hafa flest
hvað í flimtingum og augun glampa
sem ungir væru öðru sinni. Skoðan-
ir eru vegnar sem menn í Sturlungu
bara vegna þess hve vel þær liggja
við höggi. Upp úr hádegi riðlast
hópurinn og heldur hver til síns
heima og hlakkar til næstu funda.
Sú klukka sem öllum slær er tólf
og Benedikt Bogason er á braut.
Hann var margræðari gerðar en
mörgum virtist og burðarþol verk-
fræði og stjórnmála þekkti hann
flestum betur og gáfur hafði hann
bæði til hversdags og spari. Hug-
stæðust er þó hlýja hans og glað-
værð og fundvísi á sólskinsbietti í
heiði hugar og handa og eðlislægur
vilji til góðra verka.
Hætt er við að hornkörlum Borg-
ar sitri tár af hvarmi í kaffið svart,
þegar stjórnmál ber á góma næst
svona alveg án línu og leiðsagnar.
Við sendum Unni og fjölskyldunni
innilegar samúðarkveðjur. Verði
Benedikt að trú sinni, blessaður og
guði fallinn.
Einar Þorláksson
„Benedikt er látinn." Þessi frétt
kom mér ekki á óvart, en samt var
þetta sem köld vatnsgusa. Það var
svo stutt síðan við drukkum saman
kaffisopa, og ailt virtist í himnalagi.
En, Benedikt veiktist fljótlega eftir
þessa kaffidrykkju okkar, og fljótt
var ljóst að hverju stefndi.
Ég ætla mér ekki að rekja ættir
né störf Benedikts, það gera aðrir,
sem betur þekkja en ég. Við Bene-
dikt kynntumst fyrir rúmum áratug,
þegar við höfðum sigrast á sameigin-
legum óvini. Með okkur tókst kunn-
ingsskapur, sem hélst síðan. Bene-
dikt hafði verkfræðistofu á sömu
hæð og ég vann í sex ár, og síðar
lágu leiðir saman í stjórnmálum. Ég
átti þess einnig kost að kynnast
Benedikt í starfi hans hjá Byggða-
stofnun, og var gaman að fylgjast
með störfum hans þar. Málin voru
krufin til mergjar og aðgerðir
ákveðnar. Benedikt var einn af fáum
opinberum embættismönnum, sem
gaf afdráttarlaus svör, og þau svör
stóðu.
Benedikt var rökfastur maður
með fastmótaðar skoðanir, sem
reyndi alltaf að breyta eftir bestu
vitund. Við vorum oft sammála, og
auðvitað einnig ósammála, en þótt
okkur greindi á varpaði það aldrei
skugga á vináttu okkar. Skipulags-
hæfileikar Benedikts voru miklir, og
vinnuþrek með ólíkindum. Það var
virkilega gaman að vinna með Bene-
dikt, sjá hugmyndir hans fæðast og
mótast, og síðan hrint i framkvæmd.
Benedikt var kjörinn varaþing-
maður Borgaraflokksins í síðustu
Alþingiskosningum, og tók fast sæti
á þingi í apríl sl., en því miður átti
Alþingi þess ekki kost að njóta
starfskrafta hans nema í stuttan
tíma, alltof stuttan. Ég er þess full-
viss að maður með menntun, þekk-
ingu og reynslu Benedikts hefði
reynst betri alþingismaður en marg-
ur annar.
Við höfum misst mætan mann, á
besta aldri, en minningin um góðan
dreng lifir. Ég mun sakna Bene-
dikts, og sendi fjöiskyldu hans mínar
innilegustu smaúðarkveðjur.
GJG
Kveðja frá systrum
Sá sem elskar, telur það sjálfsagt
og eðlilegt að gefa. Þetta var lífsvið-
horf bróður okkar, Benedikts Boga-
sonar. Gjöfín fylgir kærleikanum.
Bak við hvert orð hans mátti finna
mikla orku. Þegar manni virtust
sundin vera að lokast, var Benedikt
bróðir kletturinn. Það hefir gefið
lífi okkar gildi. Þegar eitthvað hefir
amað að, var auðflúið til Benedikts.
Helgustu stundir bernsku okkar
á æskuheimilinu í faðmi ástúðlegra
foreldra, þar sem kærleiki og kraft-
ur foreldranna yfirskyggðu allt. Það
sló fölva á við brottför móður okkar
og allt dapraðist fyrir okkur pabba,
sem nú hefur fyrir stuttu kvatt.
Hönd forsjónarinnar leiddi okkur.
Benedikt. bróðir var spakur mað-
ur og forvitri, farnaðist allt vel.
Benedikt var maður með háar hug-
sjónir, sem lagði hátt verðgildi á
andlega menningu og kostuðu hjón-
in Unnur og Benedikt kapps að
koma börnum sínum Magnúsi og
Hólmfríði til góðra mennta.
í öllum félagsmáium sem snertu
heill og velferð, tók Benedikt mik-
inn þátt, stóð í broddi fylkingar.
Hann var af öllum vel metinn fyrir
einlægni sína, áhuga, dugnað og
manndóm. Alvörumaður og siða-
vandur og harður í horn að taka
ef um mál var að ræða, sem honum
fannst miklu skipta, og lét hann
þá ekki hlut sinn. Var hann vel fær
um að standa framarlega, hann var
vel lesinji og fróður um margt, rök-
fastur. Heimili þeirra hjóna stóð
jafnan opið fyrir gestum og gang-
andi, og gestrisni þeirra viðbrugðið.
Benedikt var af öllum virtur fyr-
ir leiðtogahæfileika, manndóm og
ráðvendni, og elskaður fyrir sitt
hreina vinarþel og einlægni frá
hjartans grunni.
Unnur kona Benedikts er að
verðleikum mikils metin. Hún á sinn
stóra þátt í velgengni og menning-
arþroska fjölskyldunnar, vinnur í
kyrrþey. Unnur mágkona er greind
kona og heilbrigð í hugsun og anda.
„Það sem maðurinn sáir, það
mun hann og uppskera." Benedikt
sáði vel og hann uppskar vel. Hann
auðgaði líf okkar.
Góður Guð blessi ástvini hans,
Unni, Magnús, Hólmfríði, Birgittu,
Þorgils og Unni Ilfu. Góður Guð
blessi ferð hans til hærri sviða.
Guðrún og Ragna Bogadætur.
Enn einu sinni hefur hinn válegi
sjúkdómur lagt að velli á fáeinum
vikum mann í blóma lífsins. Bene-
dikt veiktist í lok maí og í lok júní
var hann allur. Hann átti ekki aftur-
kvæmt á skrifstofu sína í Byggða-
stofnun frá því að hann gerði þar
stuttan stans laugardaginn 24. maí
áður en hann lagðist á spítala til að
gangast undir uppskurð, sem því
miður gat ekki hjálpað, þrátt fyrir
hina miklu þekkingu er læknavísind-
in búa yfir.
Aðrir munu minnast Benedikts
og rekja hans æviferil, nám, störf
og stjórnmálaafskipti. Mig langar
að minnast hans með nokkrum orð-
um og þá sérstaklega starfa hans
hjá Framkvæmdastofnun ríkisins og
síðar Byggðastofnun.
Ég var lögfræðingur Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins þegar
Benedikt hóf störf hjá stofnuninni.
Á þessum árum bytjaði að koma í
ljós hver áhrif veðtryggingar á láns-
fé höfðu. Stofnunin varð oftar að
skipta sér af stjórnun fyrirtækja og
jafnvel yfirtaka þau um tíma með
samvinnu við aðra kröfuhafa. Naut
ég þá reynslu og verkfræðiþekkingar
Benedikts. Störfuðum við mikið
saman en auk þess vann hann mikið
að samgöngumálum á vegum stofn-
unarinnar. Hann lét sig miklu skipta
að þéttbýlisstaðir á landsbyggðinni
næðu sem fyrst að leggja bundið
slitlag og hefur reyndar séð um út-
lán Byggðastofnunar til þeirra mála
allt frá því að Byggðastofnun tók
til starfa 1985. Hann vildi fylgja
þessum málum vel eftir og lagði til
að stofnunin ýtti undir og lánaði
sveitarfélögum til að leysa sorp- og
holræsismál með sem bestum hætti,
þegar búið væri að ljúka við gerð
bundins slitlags á götur bæjanna.
Svo vildi til að starfsfólk Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins mátti
hvað fyrst kenna á óöryggi í starfi
hjá hinu opinbera. Slíkt hefur síðan
komið upp í mörgum fleiri tilvikum
eins og reyndar eðlilegt má teljast.
Ný ríkisstjórn 1983 ákvað að breyta
lögum um Frámkvæmdastofnun
ríkisins og leggja suma starfsemi
hennar niður. Það var hins vegar
ekki fyrr en rúmum tveimur árum
seinna eða í lok september 1985 að
ljóst var hvaða starfsmenn myndu
starfa áfram hjá Byggðastofnun og
Framkvæmdasjóði Islands sem tóku
við starfsemi Framkvæmdastofnun-
ar sem löggjafinn ákvað að áfram
skyldi sinnt. Benedikt tók þá við
starfi fulltrúa forstjóra Byggða-
stofnunar. Verkefni hans var m.a.
að sitja í nefndum fyrir stofnunina
vegna landbúnaðar, iðnaðar og skip-
asmíða. Þá vann hann einnig mikið
í sambandi við útlánamál til fyrir-
tækja og sveitarfélaga. Oftar en
ekki lentu erfið mál á hans borði
og var honum þá falið að reyna að
samræma sjónarmið sjóða, banka
og lántaka þannig að hægt væri að
loka dæmunum eins og hann sagði
sjálfur. í framhaldi af slíku kom það
í hans hlut að setjast í stjórnir hluta-
félaga sem Byggðastofnun gerðist
hluthafi í og hjálpa þar með heima-
mönnum við rekstur fyrirtækjanna.
Hér skal aðeins nefnt eitt dæmi, sem
var reyndar með fyrstu málum sem
Byggðastofnun tók á með þessum
hætti.
Vorið 1986 gerðist Byggðastofn-
un hluthafi í Límtré hf., Hruna-
mannahreppi og tók Benedikt þá
sæti í stjórn félagsins. Ég veit að
hann vann félaginu af alhug og
stjórnendur virtu og tóku tillit til
sjónarmiða hans. Hann dáðist einnig
að hinum kraftmikla hópi, sem vann
hjá fyrirtækinu. Bæði Benedikt og
ég höfum oft bent á Límtré hf. sem
dæmi um það hvað hægt sé að gera
til eflingar atvinnulífi á landsbyggð-
inni, þegar strengirnir eru stilltir
saman.
Margt flýgur í gegnum hugann
og minningarnar hrannast upp.
Margt höfum við rætt um í þau átta
ár sem við höfum starfað sáman.
Sammála vorum við aldeilis ekki allt-
af og oft þótt mér Benedikt leggja
til að erfiðum málum væri sinnt um
of. Ég veit að þar var góðsemin og
velvildin að verki og hans stóra
hjarta.
Að leiðarlokum kveðjum við
starfsmenn Byggðastofnunar góðan
vinnufélaga og góðan dreng. Við
þökkum honum fyrir liðsinni hans
og hjálpsemi. Megi góður Guð
geyma hann.
Unni konu hans, sem staðið hefur
með honum gegnum þykkt og þunnt,
og börnunum Hólmfríði og Magnúsi
sendum við Sigríður okkar dýpstu
samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur
og styrki.
Guðmundur Malmquist
Það urðu tímamót í félagsstörfum
okkar íbúanna í Árbæjar- og Selás-
hverfi þegar hollvinur minn Benedikt
Bogason fluttist í hverfið.
Um það leyti lauk frumbýlisárun-
um í hverfinu og við tók traust og
vakandi félagsstarf hjá okkur í Fé-
lagi sjálfstæðismanna, þar sem leiðir
okkar Benedikst lágu saman, en
ekki síður í Framfarafélagi hverfis-
ins, þar sem Benedikt var kallaður
til forystu.
Með Benedikt eignuðumst við leið-
toga og læriföður, sem miðlaði okk-
ur á sinn ljúfmannlega hátt þeirri
reynslu og þekkingu er honum hafði
áskotnast í ölduróti þjóðlífsins, ekki
síst á hinu gráa baksviði stjórn-
málanna, þar sem lesa má raun-
verulegan vilja og ásetning manna
og flokka, og grímulausir valdhafar
standa berir að verkum sínum.
Með vogaskálar réttlætisins í
hönd, lagði Benedikt hlutlægt mat
á menn og málefni, og beitti í kyrr-
þey áhrifum sínum til þess að leiða
mönnum fyrir sjónir villu af réttri
leið, þegar valdafíkn eða sérhags-
munir sveigðu þá af braut heilbrigðr-
ar þjóðmálamálastefnu. Hans var
ekki bumbusláttur eða fagurgali á
torgum, þar sem málpípur forrétt-
inda og próventukarlar auðvaldsins
lofsungu dulinn ásetning ftjáls-
hyggjunnar. Af árvekni og framsýn
leiddi hann mönnum fyrir sjónir þær
hættur sem okkar litlu þjóð gæti
stafað af slíkum öfgum, sem nú eru
komnar á daginn.
Þessi sjónarmið bundu okkur
Benedikt órofa samstpðu, þegar sýnt
í347
*
þótti hvert stefndi í okkar gamla
Sjálfstæðisflokki. Með heljarstökki
æskublindra fijálshyggjumanna í
æðstu valdastöður flokksins, yfir
heila kynslóð reyndra stjórnmála-
manna, hlutum við að skipa okkur
í fylkingu þeirra sem slá vildu skjald-
borg um lýðræðishugsjónir flokks-
ins. En auðna réð, og óvönduð með-
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
Heildarupphæð vinn-
inga 08.07. var
3.978.222.
Enginn hafði 5 rétta,
sem var kr. 1.831.516.
Bónusvinninginn
fengu 3 og fær hver
kr. 106.161.
Fyrir 4 tölur réttar
fær hver kr. 6.619
og fyrir 3 réttar tölur
fær hver um sig kr.
414.
Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir út-
drátt í Sjónvarpinu.
Sími685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulína 99 1002