Morgunblaðið - 11.07.1989, Side 56
56
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1989
HOOVER
„Compact”
heimilisryksugan
með öllum fylgihlutum
kostar 7.990 krónur
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8, Reykjavík, sími 84670.
Þarabakka 3 (við Kaupstað) í Mjódd, sími 670100.
Svangir isiendingarí
Takió ykkur frí frá matseid
TÖURIST MENU
\^eitingastaöir víöa um land innan Sambands
veitinga- og gistihúsa bjóöa í sumar sérstakan
matseöil, SumarréttiSVG, þarsem áhersla erlögó
á staögóúan mat ógóðu mði.
Sumarréttamatseöillinn
gildirfrá 7. júní til 15. september.
Hádegisv. Kvöldverður
Forréttur eða súpa, kjöt- eða fiskréttur, kaffi. 600 750kr. 850-1200kr.
Börn 0 til 5 ára: Ókeypis Börn 6 til 12 ára: 50% afsláttur
Upplýsingabæklingur fæst á ferðaskrifstofum
og upplýsingamióstöð í Ingólfsstræti 5.
Sjá þátttakendalista íMorgunblaðinu
laugardaginn 7 5. júlí.
H
Þessir hringdu . .
Hjólreiðamenn verða að
virða umferðarlög
Margrét Sæmundsdóttir hjá
Umferðarráði hringdi:
„Fyrir nokkru birtist bréf í Vel-
vakanda þar sem réttilega var bent
á að ökumenn tækju ekki nógu
mikið tillit til hjólreiðamanna. Á
hitt má einnig benda að hjólreiða-
menn virðast ekki kunna umferðar-
reglur eða gera sér í það minnsta
ekki far um að fara eftir þeim.
Fólk áttar sig kannski ekki á að
það gilda nákvæmlega sömu um-
ferðarreglunar um reiðhjól, bíla og
vélhjól þegar út á götu er komið.
í umferðarlögum segir að hjól-
reiðamaður skuli hjóla hægra meg-
in á akrein en algengt er að sjá
fólk hjóla vinstra megin, rétt eins
og vinstri umferð væri hér en ekki
hægri umferð. Gangandi fólki hef-
ur verið bent á að ganga á móti
umferðinni þar sem ekki eru gang-
stéttar. Þetta hefur ef til vill valdið
misskilningi hjá hjólreiðamönnum
því mjög algengt er að fólk hjóli á
móti umferðinni.
Útlendingar sem koma hingað
til landsins og ferðast á reiðhjólum
fara nær undantekningarlaust eftir
umferðarlögum. íslendingar hjóla
venjulega á móti umferðinni og
gildir það jafnt um börn sem full-
orðna. Hjá Umferðarráði er mælt
með því að fólk, og alveg sérstak-
lega böm, hjóli á gangstéttum eða
göngustígum. í umferðarlögum
segir að heimilt sé að hjóla á gang-
stéttum og gangstígum enda valdi
það ekki gangandi vegfarendum
hættu eða óþægindum, og ber hjól-
reiðamönnum að víkja fyrir gang-
andi vegfarendum á gangstéttum
og göngustígum.
Að lokum. Hjólreiðamenn verða
að muna að það er hægri umferð
á íslandi en ekki vinstri umferð."
ÚF-
Karlmannsúr fannst við Flóka-
götu fyrir skömmu. Upplýsingar
í síma 10578 eða síma 27214.
Aukaskattur á neytendur
Neytandi hringdi:
„Samkvæmt búvörusamningi
ríkis og bænda greiðir ríkið (þ.e.
neytendur) ákveðið magn af
kindakjöti hvort sem það selst eða
ekki. Það kjöt sem nú er á útsölu
er eins árs gamalt og seldist ekki
en ríkið greiddi að fullu, með pen-
ingum neytenda, bændum,
vinnslustöðvum og öðrum aðilum.
Nú býður fjármálaráðherra neyt-
endum Iq'ötið, sem þeir eru búnir
að greiða með sköttum sínum og
þeir eiga í raun og veru, á sérstök-
um kjörum. Þetta er ekki annað
en lævíslegur viðbótarskattur á
þá sem kaupa kjötið. Eitt hefur
þó fjármálaráðherra tekist. það
er að fólk stendur nú í biðröðum
eftir að fá að greiða þennan við-
bótarskatt og færri fá að greiða
en vilja.“
Læða
Gulflekkótt og lítið eitt brönd-
ótt læða með hvítar loppur er í
óskilum við Apavatn og hefur
sennilega vilst frá sumarbústað.
Upplýsingar í síma 98-64438.
Biblían er besti vegvísirinn
Til Velvakanda.
Ég vil þakka Einari Inga Magnús-
syni fyrir góða hugleiðingu er bar
yfirskriftina „Elskum náungann" því
hún vakti mig til umhugsunar og
varð þess meðal annars valdandi að
ég lét verða af því að skrifa eftirfar-
andi hugleiðingu.
Það skortir oft mikið á að við sem
teljum okkur kristin rækjum boðskap
Jesú Krists í alvöru en ég tel að það
yrði til mikils góðs ef meira væri
farið eftir því í einu og öllu sem Bibl-
ían segir okkur. Ungur maður sem
vildi fylgja Jesú fékk þessi svör: Far
og gef allar eigur þínar. Hann treysti
sér ekki til að sjá af eignunum sínum
og sneri á braut.
Flest hneykslumst við á þessum
unga manni. En hvað gerum við?
Við hrifsum til okkar allt sem við
getum mögulega náð og kostum
kapps um að skapa okkur forréttindi
fram yfir aðra. Sjálf er ég víst engin
undantekning þó ég hafi ekki náð
langt í lífsgæðakapphlaupinu svo-
kallaða en það er kannski vegna
þess að ég áttaði mig í tíma.
Ég hef stundum hugleitt hvort
þjóðfélagið okkar væri ekki betra ef
við notuðum biblíuna virkilega sem
vegvísi og færum í hvívetna eftir
orðum Krists. Það er of erfitt, segir
sjálfsagt margur. Ég spyr þá á móti:
Ér ekki ennþá erfiðara að gera það
ekki og taka afleiðingum spillts
hugsunarháttar? Ég dreg ekki í efa
að ef við færum í einu og öilu eftir
orðum Jesú Krists myndu flest sam-
félagsvandamál og samfélagslegt
óréttlæti hverfa eins dögg fyrir sólu.
Spurningin er meira að segja sú hvort
þessi vandamál, sem sifellt virðast
aukast, eiga sér ekki rætur í hnignun
trúarinnar fyrst og fremst, því að
fólk hafnar hinni sönnu leiðsögn og
lætur veraldleg málefni ná tökum á
huga sínum en gleymir Kristi. Er
nema von að illa fari þegar svo er
komið?
Ég tel að kristin trú hafi haft
sterkari tök á fólki áður fyrr enda
var mannlífið þá farsælla. Nú halda
margir að hálærðar heimspekikenn-
ingar hjálpi þeim til að skilja lífíð
og leita þá langt fyrir skammt því
hinn rétta skilning er að fínna í Bibl-
íunni og þar er hann hverjum manni
aðgengilegur sem vill tileinka sér
hann. Forðast ber þó allar þær rang-
túlkanir sem sprottið hafa upp þar
sem snúið er út úr hinu heilaga orði.
Jafnan eru hinir sannkristnu lítils
metnir, einmitt vegna þess að þeir
hafna falskenningum og lifa í anda
Krists.
Þegar á allt er litið er tími okkar
skammur hér á jörð og mikil er
umbun þeirra sem staðfastir standa
allt til enda. Veraldargæðin, sem svo
margur leggur allt af mörkum fyrir,
reynast oft fallvallt stundargaman
sem ekkert andlegt gildi hefur. Þetta
hugleiði ég oft og það hjálpar mér
að sætta mig við margt óréttlæti.
Vissulega ber okkur að þakka sér-
hvem dag og láta andstreymið ekki
buga okkur vegna þeirrar umbunar
sem bíður okkar í nálægri framtíð.
Við erum öll syndug og ættum ekki
að dæma hvert annað því drottins
er dómurinn og sá dómur verður
réttlátur.
Trúuð kona
★
★ STÓRÍJTSALA f I4VOSIWI ★
*
'gj "**£*>*, Hafnarstræti.
M M M M * M * M M M