Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 13
sinni, Vivien Leigh (skilnaður við
fyrstu konu hans, Jill Esmond, var
í aðsigi), en það var í þeirri frægu
ferð sem kvikmyndaframleiðandinn
David 0. Selznick sá hana og fékk
til að leika Scarlett O’Hara í Á
hverfanda hveli. Eftir Fýkur yfir
hæðir lék Olivier í „Rebecca" eftir
Alfred Hithchock.
En hans eigin kvikmyndagerð
var líka nokkuð sem hann gat verið
mjög hreykinn af. Eftir stríðið gerði
hann þrjár myndir uppúr verkum
Shakespeares: Henry V, sem færði
honum sérstök óskarsverðlaun og
var einkar vel tekið af gagnrýnend-
um en Olivier var allt í senn aðal-
leikarinn, leikstjórinn og framleið-
andinn; Hamiet hlaut óskarsverð-
launin sem besta myndin og Olivier
fékk óskarinn fyrir bestan leik og
Sem Henry V í sam-
nefndri kvikmynd.
*mm—mmmmmmm—^
seinastur kom Ríkharður III. Hann
leikstýrði og framleiddi aðeins eina
mynd enn, heldur, stirðu Marilyn
Monroe-númeri, „The Prince and
the Showgirl", með honum í öðru
aðalhlutverkinu.
Á sjötta og sjöunda áratugnum
vann hann af miklum krafti við að
setja upp sýningar, leika í sýningum
og stjórna leikhúsum þrátt fyrir að
veikindi hijáðu hann oft.
Sir Lowrence Olivier varð fyrsti
þjóðleikhússtjóri Breta og hafði með
1 sér leikara eins og Maggie Smith,
Colin Blakely, Derek Jacobi og ót-
eljandi aðra. Tynan var leiklistar-
ráðunautur hans og efnisskráin var
alþjóðleg og glæsileg.
Seinustu 20 árin eða svo var
hann þekktastur fyrir sjónvarps-
og bíómyndir sínar. Hann fór með
mörg smáhlutverk og dáði þau
vegna þess að hann vissi að hann
gat gert eitthvað mikið úr þeim og
það gerði hann líka ekki síst í sjón-
varpi og kvikmyndum. Það var
sama hvað hann gerði á filmu, hann
var alltaf jafn magnaður. í Arabíu-
Lárensi eftir David Lean eða sem
geðsjúki tannlæknirinn í Maraþon-
manninum eða gamli maðurinn í
„Brideshead Revisited". Honum
fannst gaman að leika í bíómyndum
og fyrir sjónvarp, hann leit stundum
á það sem einskonar frí, ferðast á
ókunnar slóðir fyrir tökur og hitta
vini sína og vera með þeim. En það
fylgdu þeim skuggahliðar. Hann
kom fram í mörgum vondum mynd-
um af því það var peningur í því
og hann lék í amerískum auglýsing-
um með því skilyrði að þær yrðu
aldrei sýndar í Bretlandi.
Hann var aðlaður árið 1947 og
árið 1971 tók hann sæti í lávarða-
deildinni bresku fyrstur leikaja til
að hljóta þá viðurkenningu. í bók
sinni, Um leiklist, talaði hann um
arftaka sinn, þann sem vildi sækj-
ast eftir kórónu hans í leiklistinni.
„Byrjaðu, hver sem þú ert, byijaðu
fyrir alla muni,“ skrifaði hann,
...en mundu bara að þegar þú
læðist eftir ganginum að gullna
herberginu sérðu gamlan mann sem
stendur við innganginn, fætur
sundur, bakið beint og upprétt,
augun stingandi, sem varnar þér
inngöngu." Draugurinn. Guðinn.
Áhrifa hans mun gæta um ókomna
framtíð.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1989
i ■ >■: , i ; -j--—-------- ' . •;■<:--r
C 13
r> ■ C ■ -f
Til þess að kynnast landi og þjóð er nauðsynlegt að leita út fyrir borgirnar.
Á bílaleigubíl, með lestum eða rútum, siglandi eftir skurðum og síkjum
eða jafnvel gangandi.
Norður-England og þjóðgarðarnir Lake District, North York Moors,
Yorkshire Dales og Peak District búa yfir heillandi ósnortinni
náttúrufegurð ásamt fjölskrúðugu jurta- og dýraríki sem löngum hafa heillað
göngugarpa og náttúruunnendur.
Comwall. Að aka milli litlu fiskiþorpanna á Cornwallskaganum er eins
og að skjótast aftur í aldir. Myndræn fegurð t.d. Clovelly, Lynton og
Lynmouth er ógleymanleg og Jamaica-kráin á Bodmin Moor er jafn
, dulúðug og í samnefndri sögu Daphne de Maurier.
Suður-England hefur sannarlega margt að bjóða þeim sem njóta vilja
sólar og skemmtunar. Einkar milt loftslag, ljós strandlengja, pálmatré og
annar suðrænn gróður hafa gert suðurströndina að einum vinsælasta
sumarbaðstað í norðanverðri Evrópu.
Wales. Óvíða er að fmna jafnmarga sögufræga kastala og kastalarústir og
, í Wales. 1 grasi grónum hlíðunum, innan um sauðfé á beit eða sitjandi við
\ lítið vatn með stöng, gætirðu haldið að þú værir eina manneskjan í
\ heiminum.
Skotland. Skosku hálöndin hafa árum saman dregið að' ferðamenn, með
hinu dularfulla Loch Ness, undurfagra Loch Lomond og hinu sérstæða
Great Glen, ekki síður en hinir heimsþekktu skosku golfvellir.
Leitaöu ekki langt yfir skammt. Fáðu nánari upplýsingar hjá
söluskrifstofum Flugleiða, Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni,
eða hjá ferðaskrifstofum og umboðsmönnum um land allt.
FLUGLEIDIR
BRESKA FERÐAMÁLARÁÐIÐ
r| J 1 1