Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 27
Þetta var eins og að vera að drep- ast úr flensu, bara þúsund sinnum verra. Ég lá í köldu svitabaði. Það rann úr nefi og augum. Ég ældi öliu sem ég reyndi að borða. Fýluna lagði af mér. Svo var þetta búið.“ Það eru ekki margir sem hafa lagt í „kalda kalkúninn“ einir síns’ liðs en löngu seinna sagði Miles að tveir af uppáhaldsboxurum sínum hefðu veitt sér styrkinn: „Sugar Ray Robinson gaf mér kraftinn til að losna við eitrið. Þegar hann fór að æfa fyrir leik hætti hann að sofa hjá stelpum. Hann hafði sjáifs- agann — eins og Jack Johnson." 1981 sneri Miles Davis afturtil manna með skífunni The man with • a horn. Tónleikaferðir fylgdu í kjöl- farið og skífan We want Miles þar sem heyra má nýsköpun á söngnum úr Porgy og Bess: My man’s gone now, er hann hljóðritaði með Gil Evans 1958. Það var langt síðan Miles hafði notað gömul stef. Ung- ur piltur var á rafbassanum: Marc- us Miller og kynni þeirra áttu eftir að vera afdrifarík. John Scofield og Gil Evans unnu stundum með Miles eftir endurkom- una og á síðustu skífu sinni fyrir CBS: You’re under arrest, tekur hann poppsöngva samtímans og blæs þá eins og hann blés popp- söngvana klassísku. Time after time eftir Cindy Lauper varð My funny Valentine. 1986 kemur ný skífa frá Miles: Tutu. Þar urðu straumhvörf. Hann var skilinn að skiptum við CBS (og Teo Macero sem hafði hljóðstýrt öllum skífum hans þar, nema tveim- ur síðustu) og genginn til liðs við Warner bræður og hafði fengið Marcus Miller sem hljóðstjóra og undirleikara og tónskáld. Hljóð- gervlar gegndu stóru hlutverki og ekki síður á næstu skífu er út kom árið eftir: Siesta, tónlist Marcusar úr samnefndri kvikmynd og minnti í mörgu á Sketches of Spain og GilEvans. Ég hlustaði á Miles á Norðursjáv- ardjasshátíðinni 1985 og 1987 í júlímánuði og þótti harla gott — en það var ekki fyrr en ég heyrði hann í Sirkushöllinni í Kaupmanna- höfn að ég hreifst næstum eins og í Antibes nær 20 árum áður. Miles blés á þriðja tíma og aukalög líka. Ekkert hlé og hann yfirleitt á svið- inu. Hann brosti og veifaði áheyr- endum. Maðurinn sem frægastur var fyrir að leika eins og hann væri einn í heiminum ásamt hljóð- færaleikurum sínum. Snúa bakinu í áheyrendur, ganga af sviði og leika aldrei aukalög. Miles hefurgreinilega fundið til- ganginn í lífinu eftir langa leit og nú er þriðja skífa hans og Marcusar Millers komin út og tileinkuð minn- ingu Gil Evans. Og satt best að segja: Amandla er en besta skífa Davis síðan Bitches brew. Hljóð- gervlarnir svífa yfir vötnum og fönkrýþminn einnig en allt er það svo listilega samtvinnað ljóðrænni djassfegurð trompetleiks hans að undrun sætir. Það er eins og Miles safni saman allri reynslu sinni til að segja sem mest með sem fæstum orðum og tvö verk eru á þessari skífu sem hrífa meira en annað í einfaldri fegurð sinni, bæði skrifuð af Marcusi í ballöðustíl hinna miklu söngleikjahöfunda. Amandlaer blásin með dempara eins og næst- um öll verk skífunnar og hljómborð Marcusar eins og kór og hljóm- sveit. Kenny Garrett altóistinn ungi, sem þekktur var úr Out Of The Blue sveitinni, blæs þarna fallega, en er þó jafnvel betri í fönkaðri verkum þar sem rýþmablús snið er á sólóunum. Lokaverknið nefnist Pastorius, samið í minningu bassasnillingsins. Miles blæs opið með þeirri einstöku tónfegurð er honum er einum gefin. Marcus sveiflar bassanum og A1 Fostertrommunum. Rafmagn er notað, sparlega þó, kannski er þetta fyrsta lagið sem Miles hljóðritar í tuttugu ár sem fær gömlu aðdáend- ur hans, sem heltust úr lestinni hér og þar eftir Bitches brew, til að grípa andann á lofti að nýju og segja: Miles erengum Iíkur. MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1989 Afinæliskveðja: Axel Jónsson frá Stóru-Hildisey Síðasta tala númersins segir til um skoðunarmánuðinn. Láttu skoða í tíma - öryggisins vegna! BIFREIÐASKOÐUN ÍSLANDS HF. Hægt er að panta skoðunartíma pöntunarsími í Revkjavík er 672811 Hinn 9. júlí sl. átti ágætur vinur minn hér í Ámesþingi 75 ára af- mæli. Það er Axel Jónsson, Engja- vegi 45, Selfossi. Ekki veit ég nema hann verði öskuvondur við mig að ég skuli senda honum afmæliskveðju með þessum hætti. Ég bregst þá bara við því með þeirri taktík sem við venjulega höfum í samræðum okkar en þar gengur venjulega á ýmsu. Axel ber ekki allar heimsins syndir á herðum sér. Hann er léttlyndur að eðlisfari og húmoristi ágætur. Axel er mannblendinn, fróðleiksfús um land sitt og hefir ekki látið úr hendi sleppa fáein tækifæri til þess að ferðast til annarra landa og auka þannig vitneskju sína um svipmót lands og fólks íjær heimahögum. Greiðamaður og gestrisinn er hann en fjarri þvi að vera viðhlæjandi allra. Vandur að vali vina sinna en því traustari þeim sem hann bindur vináttu við. Áxel hefir næmt auga fyrir allri fegurð hvort sem hún birtist í fólki, landslagi eða híbýlum manna. Axel er Rangæingur í húð og hár. Fæddur á Uxahrygg, en for- eldrar hans fluttu með hann korn- ungan að Stóru-Hildisey í Landeyj- um. Það var árið 1919. Þar ólst hann upp, og tók síðar við búi for- eldra sinna og bjó þar til ársins 1978 að hann varð að láta undan síga af heilsufarsástæðum og flutt- ist á Selfoss. Eiginkona Axels er Sigríður Sig- utjónsdóttir, Rangæingur að ætt en ólst upp í Vestmannaeyjum. Hún er kona vönduð á allan máta, dug- leg og hagsýn í verkum sínum meðan heilsa og þrek leyfði. Hún sýnir nú í sjúkleika sínum sömu festu og yfirvegun og hún áður gerði í verkum sínum. Börn Axels og Sigríðar eru: Guðjón, löggæslu- maður á Selfossi. Ingigerður, hús- freyja í Reykjavík, Erla, húsfreyja í Reykjavík, og Jón, iðnverkamaður á Selfossi. 011 eru þau styrkar grein- ar af traustum stofni. Axel er af þeirri kynslóð sem kynntist margbreytilegum störfum gegn um liðna tíma. Hann var margar vertíðir við landverkastörf í Vestmanneyjum á sínum yngri árum milli þess sem hann vann búi foreldra sinna á öðrum árstíðum. Félagsmálum í sveit sinni tók hann einnig góðan þátt í og er ekki að efa að þar hefir góður liðsmaður að verki verið eftir þeim viðhorfum sem ég hefi kynnst hjá honum til þess þáttar mannlífsins. Hann er þannig séð einn af þúsundunum í alþýðustétt, sem átt hefir sinn þátt í að skapa það samfélag sem lengi var stolt okkar þjóðar. Hér gæti nú staðið amen eftir efninu, en aðeins bæti ég við þakk- læti mínu fyrir góð kynni þau ár sem við höfum ræktað kynni okk- ar. Allt hefir það verið með þeim hætti að mér er það í minningunni gleðigjafi og tilbreyting í annars tilbreytingarlitlu samfélagi. Þakk- læti mitt nær ekki hvað síst til þess tíma sem við áttum saman á vinnu- stað í nokkur síðsumur. Ég óska Axel Jónssyni og fólki hans góðs um ókomna tíma. Gunnar Sigurðsson ISííLBOT PEUGEOT REIÐHJOL FJALLAHJÓL, VERÐ FRÁ 28.250,- DRENGJAFJALLAHJÓL, VERD FRÁ 16.400,- 10 GÍRA KARLMANNSHJÓL, VERD FRÁ 18.500,- 3 GÍRA KARLMANNS- OG KVENMANNSHJÓL MED FÓTBREMSU, VERÐ FRÁ 19.950,- 12 GÍRA KEPPNiSHJÓL, VERD FRÁ 31.500,- BMX, 8.000,- ÚTSÖLUSTAÐIR Reykíavik: Sportval, Krínglunni Kópavogur: Jöfur hf. Keflavik: Sportvörubúð Óskars Akranes: Bilver sf. Akureyrí: Skiðaþjónustan Dalvík: Sportvik Húsavik: Bókaverslun Þórarins Stefánssonar ísaQörður: Vélsmlðjan Þór VERTU Á RÓLI Á PEUGEOT HJÓLI I & flF fr-RB* nr NÝBÝLAVEGI 2 KÓPAVOGI SÍMI 42600 i p < s I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.