Morgunblaðið - 16.07.1989, Blaðsíða 22
22 C
MORGUNBLAÐIÐ FJOLMIÐLAR SUNNUDAGUR 16. JÚLÍ 1989
—i ■■ . ;........—.' ■ ■■ ... .....——... ............
Minnkandi vinsældir.- Leikararnir í Dynasty hafa litla ástæðu til að
brosa um þessar mundir. Framleiðslu þáttanna verður senn hætt vegna
síminnkandi vinsælda þeirra.
Eru sápuóperur að
syngja sitt síðasta?
ÞÆR HÓFU flestar frægðarferil-
inn í forsetatíð Reagans og eru
nú að syngja sitt síðasta enda
tími Reagans liðinn undir lok og
Bush sestur í forsetastólinn með
nýja siði og ný viðhorf. Einar af
frægustu og Ianglífustu sápu-
óperunum, Dallas og Dynasty,
virðast nú um það bil að Ijúka
göngu sinni og Miami Vice-
þættirnir einnig. Astæðan er
sögð breytt viðhorf bandarískra
sjónvarpsáhorfenda, sem hafí nú
fengið yfír sig nóg af glysinu og
ríkidæminu sem einkennt hafí
þessa þætti. Upp sé runnið tíma-
bil hins venjulega.
FÓLK
i fjölmiðlum
■ÁSA Richardsdóttir hefiir ver-
ið ráðin fréttamaður á erlendu
deild Ríkissjónvarpsins ogtók
hún við störfum þann 19. júní
síðastliðinn. Ása er enginn ný-
græðingur hjá stofhuninni en
hún hefur starf-
að þar í fíögur
ár, í fimmtán
mánuði I dag-
skrárgerð og í
tvö sumur sem
tæknimaður.
Þá var hún
fréttaritari
sjónvarpsins á
meðan hún stundaði nám í al-
þjóðastjórnmálum í Kantaraborg
á Bretlandi um þriggja ára skeið.
„Háskólamenntunin gerði mér
gott og nýtist mér örugglega
betur í þessu starfi en mörgu
öðru. Mér likar mjög vel að vera
fréttamaður, þetta er ábyrgðar-
fullt starf. Ég er ráðin hér í sum-
arafleysingar en síðan kemur
bara í fjós hvað ég geri en ég
ætla að vera á íslandi í vetur.“
Athygli vakti fyrir skömmu er
Joan Collins, ein aðalleikkona
Dynasty, lýsti því yfir að allt púður
væri úr þáttunum og áhorfendur
hefðu misst áhugann á þeim. Þó
að talið væri að hún .hefði gefíð
þessa yfirlýsingu til að leyna von-
brigðum sínum með síminnkandi
hlutverk sitt, dylst þó fáum að hún
er staðfesting á því að vinsældir
Dynasty hafa hrapað.
Áhugi áhorfenda er hvikull og
því má telja hina tíu ára Dallas-
þætti og átta ára Dynasty-þætti
hafa lifað lengur en búast hefði
mátt við. En það kom að því, að
ríkidæmið og ótrúleg atburðarás
eiga ekki lengur upp á pallborðið
hjá fólki, nú vilja áhorfendur sjá
venjulegt fólk sem lifir venjulegu
lífí.
Þó að þættimir þættu heldur
innihaldsrýrir, verður því ekki neit-
að að t.d. Dynasty kom með fjölda
nýjunga inn í bandarískt sjónvarp.
Völd og glæsileiki kvenna yfír fer-
tugu reist einna hæst í þáttunum.
Diahann Carroll var fyrsta svarta
leikkonan í aðalhlutverki í stærri
sápuóperum. Og það var í Dynasty
sem ein aðalpersónan var hommi,
enda hlutu framleiðendur viður-
kenningu frá samtökum kynhverfra
listamanna fyrir að skapa fyrstu
jákvæðu kynhverfu' persónuna í
sjónvarpi.
Miami Vice-þættimir gerðu einn-
ig sitt gagn, því þeir hleyptu nýju
lífí í borgina Miami á Flórída. Þeir
urðu hvatning þess að það sem
áður var rykfallinn dvalarstaður
ellilífeyrisþega, varð að hressilegri
borg, aðsetri listamanna, fullri af
kaffíhúsum og klúbbum.
Til þess að tryggja það að þráður-
inn verði ekki tekinn upp þar sem
frá var horfíð, hafa framleiðendur
Dynasty-þáttanna látið skrifa loka-
þátt, sem slær öllu við í ótrúlegri
atburðarás. Þar mun Blake Carr-
ington meðal annars ná að færa
syni sínum öll völd ættarveldisins
áður en hann gefur upp öndina.
Alexis og fyrrverandi eiginmaður
hennar munu stökkva fram af svöl-
um og láta lífið, og tvær aðrar sögu-
hetjur munu farast er þær verða
undir gífurlegu magni af rusli.
Aðfjárfesta
í fjölmiðlum
UTAN ÚR HEIMI berast fréttir af heiftarlegum átökum blaða-
°g útgáfiiþursa og fíölmiðlarisa. Stjórnendur risafyrirtækjanna
Time Inc. og Warner Bros. voru að ganga frá samningum um
samruna fyrirtækjanna þegar Paramount-þursinn gerði sig
líklegan til þess að gleypa Time Inc. með kauptilboði sem
vart átti sér fordæmi í sögu bandarískrar kaupsýslu. Fræg og
útbreidd tímarit, bókaútgáfur, áskrifendasjónvarpsfyrirtæki,
kapalsjónvarpsfyrirtæki og hlutabréf í alls konar fjölmiðla- og
samskiptafyrirtækjum, sem töldust til eigna Time Inc. voru
orðin bitbein kvikmyndarisa sem fyrir áttu útgáfu- og einka-
rétt á jafíi ólíkum dægurmenningargullkálfum og nýju Batman
kvikmyndinni, Miss USA-keppninni og íslenskum Sykurmolum.
Á sama tíma fréttist það sunnan úr Ástralíu að þar hefði millj-
ónamæringur að nafni Bond, Alan Bond, sem m.a. á eitt stærsta
sjónvarpsfyrirtæki á suðurhveli jarðar og er einn helsti hlut-
hafi í BSB-gervitunglinu sem á næsta ári verður skotið á braut
yfír Evrópu, verið dæmdur óhæfur til þess að reka ljósvaka-
stöð. Hann var fundinn sekur umað hafa látið sjónvarpsstöð
sína þjóna á óheiðarlegan hátt hagsmunum annarra fyrirtækja
í sinni eigu.
slík leyfissvifting gæti orðið. Að
sögn Kjartans Gunnarsson, for-
manns útvarpsréttarnefndar,
yrði það væntanlega á grund-
velli almennra laga, m.ö.o. bryti
ljósvakamiðill lög með frásögn-
um sínum gæti hann misst leyf-
ið. Samkvæmt þessum skilningi
núverandi formanns þá mega
íslenskir Ijósvakamiðlar í einka-
eign útvarpa siðlausum aðdrótt-
unum svo fremi þær bijóti ekki
lög. Með annarri skipan manna
í útvarpsréttarnefnd gæti þetta
þó breyst. Hér er spurt hvort
ekki sé ástæða til þess kveða
skýrar á um þessi mál þannig
/fuí9&9
Islenskir Ijósvakamiðlar hafa
vart slitið bamsskónum en
samt eru þeir og hlutabréf í þeim
farin að ganga kaupum og söl-
um. Fyrir skömmu runnu tvær
útvarpsstöðvanna saman í eina
og halda sumir því fram að þar
hafi frekar verið um yfirtöku að
ræða. Þegar það er athugað
hveijir eiga
íslensku ljós-
vakamiðlanna
kemur það í ljós, —
sem er áberandi
víða erlendis, að
eignaraðilar eru
gjaman eignamenn sem einnig
reyna að ávaxta sitt pund í öðr-
um fyrirtækjum og þá oft sem
tengjast dægurmenningu og
skemmtanaiðnaði. Jón Olafsson
og Ólafur Laufdal em að líkind-
um stærstu eigendur Bylgjunnar
og Stjömunnar. Eins og flestum
er kunnugt þá er Ólafur ókrýnd-
ur konungur skemmýanaiðnaðar-
ins hér á landi og Jón er einnig
eigandi plötuútgáfufyrirtækis og
verslunar sem einnig flytur m.a.
inn myndbönd og tækjabúnað
fyrir sjónvarpsver. Auk þess hef-
ur hann að undanfömu komið
nærri kvikmyndaútgerð. Upp-
haflegir eigendur Stöðvar 2,
Hans Kristján Ámason og Jón
Óttar Ragnarsson, em ekki vísir
að neinum öðmm rekstri en hins
vegar em þeir, sem síðar komu
inn í reksturinn, tengdir öðmm
fyrirtækjum. Ólafur Jónsson sel-
ur einnig íþróttavömr, en sér-
staklega em það Svavar Egils-
BAKSVID
eftirÁsgeirFridgeirsson
son, sem nú hefur selt hlut sinn
í íslenska myndverkinu, og Páll
Jónsson, sem kenndur er við
Pólaris, sem era dæmigerðir
kaupsýslumenn sem víða eiga
hagsmuna að gæta. Líklegt er
miðað vð ijárhagsstöðu Stöðvar
2 að auka þurfí hlutafé fyrirtæk-
isins og eykur það enn frekar
líkurnar á að
kaupsýslumenn
eignist stærri
- hlut í því. Það
er því ekki út í
hött að ætla að
íslenskir einka-
miðlar verði í framtíðinni frekar
í eigu manna sem hafa lifibrauð
af kaupum og sölum fyrirtækja
og setu í stjóm þeirra en beinlín-
is rekstri og stjómun fjölmiðla.
Það er alls ekki til þess að
kasta rýrð á ofangreinda menn
101,
að spyija í þessu samhengi hvort
íslenskum ljósvakamiðlum í
einkaeign leyfist að fjalla um
menn og málefni á þann hatt að
eigendur miðlanna geti beinlínis
hagnast af því. Miðað við núver-
andi lög og túlkun þeirra virðist
þeim leyfast það. Útvarpsréttar-
nefnd hefur heimild til þess svifta
aðila útsendingarleyfi. Ekki er
kveðið á um á hvaða forsendum
<■ H
A N N I: ,
„Spilapeningar í
pókerspili
auðjöfra og
kaupsýslu-
manna?“
að braskarar viti fyrir víst hvort
þeir megi reka útvarpsstöð sem
leggði aðaláherslu á vondar
fréttir af samkeppnisaðilum.
HVERSUIANGT?
Undirritaður hefur um
skeið notið þeirrar
ununar að leika á
bumbu í hinní sjálfskipuðu
sinfóníusveit, sem ár og síð
klifar á nöldur-hljómkvið-
unni mikiu um tungutak
þeirra, sem öðmm fremur
hafa orð fyrir oss á opin-
bemm vettvangi.
Þar hefur þeim verið send-
ur tónninn, sem hnýta saman
málsgreinar eins og hér get-
ur að líta í upphafi þessa
pistils, þar sem tilvísunar-
setningar hanga hver í tagli
annarrar líkt og áburðar-
tmntur í lestarferð; einnig
þeim sem nota fomafn ann-
arrar persónu sem óákveðið
fomafn; einnig þeim sern
beita viðbjóðslegri skildaga-
tíð í staðinn fyrir yndislegan
viðtengingarhátt; einnig
þeim sem að ófyrirsynju hafa
eintöluorð í fleirtölu eða fleir-
töluorð í eintölu; einnig þeim
sem misþyrma fornöfnunum
hver, hvor, sinn, hvortveggi
og báðir; einnig þeim sem
setja persónufornafn í stað
afturbeygðs fomafns; einnig
þeim sem brúka fomöfn í
stað miðmyndar sagna; og
yfirleitt öllum þeim sem búa
til enskar setningar úr
íslenzkum orðum.
Löngum hafa fjölmiðla-
menn verið eftirlætis-bráð
nöldurseggja. En þeir sem
iðnastir em við málspjöllin
hafa þann kost með sér, að
allt það fólk í fjölmiðlastétt
sem jafnan vandar mál sitt
verður þeim mun betri auð-
fúsugestir á íslenzkum heim-
ilum.
Þar skal að þessu sinni
einungis nefndur einn flokk-
ur manna, sem mjög er til
fyrirmyndar, en það er
starfsfólk Veðurstofu ís-
lands. Það hygg ég teljist til
tíðinda, ef á þeim bæ heyrist
annað en heilsugott mál,
hraustleg en tilgerðarlaus
íslenzka, vel búin til allra
veðra.
, Eitt er það samt, sem ég
hef undrazt í málfari þeirra
sem flytja veðurfregnir í út-
varp, og ég hef lengi beðið
eftir að yrði fært til betri
vegar. Þegar tilgreind er
hnattstaða, einkum staður
skips á rúmsjó, er einatt
sagt, að skipið sé á svo eða
svo mörgum gráðum, til
dæmis á 60 gráðum norður-
breiddar og 30 gráðum vest-
urlengdar.
Þess er að gæta, að hér
er gráða notuð sem mæliein-
ing um vegalengd, annars
vegar um fjarlægð frá mið-
baugi, en hins vegar um fjar-
Iægð frá tilteknum lengdar-
baugi. Enginn segði að kaup-
staðurinn Selfoss væri á
sextíu kílómetrum austur frá
Reykjavík, jafnvel þó svo
mældist að hann væri sextíu
kílómetra austur frá
Reykjavík. Auðvitað væri þá
líka rétt að segja: Selfoss er
sextíu kílómetrum austar en
Reykjavík, ef því væri að
skipta. En „á sextíu kíló-
metrum“ næði engri átt.
Um skipið í dæminu væri
því rétt að segja: Skipið er
statt 60 gráður norður og
30 gráður vestur.
Mikið væri nú gaman, ef
Veðurstofan sæi sér fært að
kippa þessu lítilræði í lag,
svo að trú vor íslendinga á
veðurguðina megi enn eflast,
jafnvel þótt þeir skreppi í
smáverkfall annað veifið.