Morgunblaðið - 27.07.1989, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JULI 1989
fclk í
fréttum
Laurence Olivier 80 ára.
Sem Lér konungur
1946. Alec Guin-
ness leikur fíflið.
Ásamt Merle
Oberon í Fýkur
yfír hæðir.
Laurence og Vivien árið
1939.
LAURENGE OLIVIER
MEISTARI
MEISTARANNA
Hinn þekkti leikari Sir Laurence
Olivier lést á heimili sínu í
Sussex í Englandi 11. júlí síðastlið-
inn. Laurenee er af mörgum talinn
mesti leikari þessarar aldar.
Margir urðu til að minnast leikar-
ans. Michael Caine sagði að enginn
myndi nokkurn tíma geta fyllt skarð
hans. Anthony Quayle lét hafa eftir
sér að með dauða hans hafi dýr-
mætri bók verið lokað. Megan Ros-
enfeld segir í grein í Washington
Post „Olivier lék myndarlega
menn, illskeytta, göfuga, veik-
byggða, volduga, slæga, veikgeðja
og fatlaða. Hann lek svikara, kon-
unga, hermenn, guði og elskuhuga,
og einu sinni eða tvisvar konur. En
hann hélt alltaf virðingu sinni.
Anthony Hopkins segir Laurence
mesta leikara aldarinnar en Peter
Hall gengur enn lengra og segir
Laurence mesta leikara allra tíma.
Laurence Olivier fæddist 22. maí
árið 1907 í smábæ í Englandi. Fað-
ir hans var skapmikill prestur en
móðir hans hlý og nærgætin hús-
móðir. Laurence fékk snemma
áhuga á leiklist. Þegar hann var 5
ára breytti hann leikherbergi sínu
í leikhús þar sem hann flutti frum-
samin verk fyrir þá sem vildu fylgj-
ast með. Tíu ára lék Laurence Brut-
us í uppfærslu á Julius Caesar á
vegum sunnudagskólans sem hann
var í. Tólf ára gamall missti Laur-
ence móður sína og var sendur í
fábrotinn ríkisskóla. Tveimur árum
seinna var Skassið tamið sett upp
í skólanum. Laurence fór með hlut-
verk Kate „dökkeygðar lauslætis-
drósar" eins og ánægður gagnrýn-
andi komst að orði.
Sautján ára gamall hélt Laurence
til Lundúna. En frægðin lét bíða
eftir sér. Hann fékk aukahlutverk
í leikhúsunum og skrimti. Á þessum
árum giftist Laurence fyrstu konu
sinni, Jill Esmond. Þau eignuðust
einn son, Tarqin, árið 1952. Árið
1933 sóttist Laurence eftir að leika
elskhuga Gretu Garbo i Queen
Christina en var hafnað. John Gil-
bert hreppti hlutverkið.
Á miðjum fjórða áratugnum
vinnur Laurence hvern leiksigurinn
af öðrum á sviði. Um svipað leyti
er tekið eftir honum í Hollywood.
Honum er boðið að fara með hlut-
verk Heathcliff í Fýkur yfir hæðir
HJÓLREIÐAR
A fjallahjólum frá
Akranesi til Olafsfjarðar
■ : ' • ' ■. :
yrðum líka að hjóla aftur til
baka. Ég þurfti líka að passa
Hanna Brynja Axelsdóttir, létu . um kvöldið svo við snérum við.
gamlan draum rætast þegar þær Eftir að við fluttumst til
hjóluðu frá Akranesi til Ólafs-
fjarðar fyrr í mánuðinum. Álf-
heiður og Hanna eru báðar upp-
Reykjavíkur hefur blundað með
okkur draumur um að hjóla frá
Reykjavík til Ólafsfjarðar. Á
endanum ákváðum við að gefa
sjálfum okkur ferðina í eins kon-
ar afmælisgjöf en við erum báð-
ar fertugar í sumar. Ég átti af-
mæli á meðan á hjólreiðaferðinni
stóð en Álfheiður á ekki afmæli
fyrr en 2. ágúst. Við ákváðum
aldar a Olafs
firði.
„Fyrstu meiri-
háttar hjólreiða-
ferðina fórum við
þegar við vorum
13 ára,“ segir
Hanna. „Þá æt-
luðum við að
hjóla frá Ólafs-
firði upp í Siglu-
fjarðarskarð. Við
fórum þó ekki
alla leið því þeg-
ar við vorum
komnar vel á veg
áttuðum við okk-
ur á því að við Hanna Brynja Axelsdóttir og Álfheiður Árnadóttir.
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon