Morgunblaðið - 27.07.1989, Síða 48
VEIÐIHJÓL OG STANGIR
SAGA CLASS
Fyrir þá sem eru aðeins
á undan
FLUGLEIÐIR
FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
Fimm hand-
teknir við
innbrot í
Stjörnubíó
FIMM menn reyndu innbrot í
Stjörnubíó seint í fyrrinótt en
lögreglan náði að handtaka þá
alla á vettvangi.
Um kl. 4 um nóttina barst lög-
reglunni tilkynning frá íbúa í ná-
grenni bíósins um að tveir menn
væru að reyna að brjótast inn í
það. Hálftíma síðar kom önnur til-
kynning og nú um að þrír menn
væru að reyna innbrot í bíóið.
Er lögreglan kom á staðinn í
fyrra útkallinu náði hún öðrum inn-
brotsmannanna strax en hinum eft-
ir nokkum eltingaleik um hverfið.
Hálftíma síðar, í seinna útkallinu,
náði hún mönnunum þremur á
staðnum.
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur nú málið til meðferðar og voru
innbrotsmennirnir fimm í yfir-
heyrslum þar til í gærdag. Þeir
hafa flestir komið við sögu lögregl-
unnar áður og eru á aldrinum sext-
án ára til þrítugs. Ekki liggur ljóst
fyrir hvað gerði Stjörnubíó svo eftir-
sóknarvert til innbrota þessa nótt.
Erlendir
ferðamenn:
Tekjurnar
gætu verið
2,7 milljörð-
um meiri
v
Stoltur veiðimaður
Morgunblaðið/Óskar Sæm.
SJÖ ára drengur, Sæmundur Óskarsson, veiddi fyrsta laxinn sinn, „maríufiskinn", í Fiská í Rang-
árvallasýslu á dögunum. Reyndist þetta 13 punda hrygna, 89 sentímetra Iöng og nær veiðimannin-
um upp undir hendur. Sæmundur tók laxinn stoltur í fangið þegar hann hafði náð að landa
honum með góðri aðstoð föður síns.
Norðurlanda-
mótið í skák:
Margeir er
einn efstur
MARGEIR Pétursson vann Dan-
ann Erling Mortensen í 8. umferð
Norðurlandamótsins í skák, og
er nú einn efstur á mótinu með
6/> vinning. Þetta var 6. vinnings-
skák Margeirs í röð.
Helgi Ólafsson vann Jón L. Árna-
son 0g er í 2.-3. sæti með 6 vinn-
inga ásamt Finnanum Jouni Yijölá.
Öðrum skákum umferðarinnar lauk
með jafntefli.
Simen Agdestein er í 4. sæti með
3A vinning og Danarnir Bent Larsen
og Curt Hansen eru næstir með 5
vinninga.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir tap-
aði fyrir Ninu Höjberg frá Dan-
mörku í 4. umferð kvennaflokksins,
en er í 2.-5. sæti með 2J4 vinning.
Höjberg er efst með 4 vinninga.
Lárus Jóhannesson og Tómas
Björnsson unnu báðir í 5. umferð í
meistaraflokki og eru með 3 vinn-
inga. í unglingaflokki unnu ína
Björg Árnadóttir og Hrund Þór-
hallsdóttir sínar skákir og eru með
2!4 vinning.
1. deild:
KA á toppinn
í fyrsta sinn
KA skaust í efsta sæti fyrstu
deildarinnar í knattspyrnu — í
fyrsta sinn í sögu félagsjns — í
gærkvöldi er liðið vann Islands-
meistara Fram 3:1 á Laugardals-
velli.
Leikurinn var skemmtilegur og
bæði Iiðin léku vel, en gestirnir frá
Akureyri nýttu betur færin.
Sjá nánar íþróttir á bls. 47.
Lokaskýrsla um rannsóknir á Hatton Rockall-svæðinu:
Fundist hafa setlög sem
sennilega innihalda olíu
SETLÖG sem sennilega innihalda olíu er að finna á einstöku stöðum
á Hatton-Rockall-svæðinu, og telja þeir sem unnu úr gögnum sameig-
inlegra rannsókna Islendinga og Dana á svæðinu, að vert væri að
rannsaka svæðið betur með tilliti til olíuleitar.
Úrvinnslu á gögnum rannsókn-
STÓRAUKA mætti tekjur íslend-
inga af erlendum ferðamönnum,
eða um 2.700 milljónir króna, ef
hver útlendingur eyddi jafiimiklu
hér á landi og Islendingar gera
að meðaltali í öðrum löndum.
Á síðasta ári komu tæplega 129
þúsund erlendir ferðamenn til ís-
Iands og alls eyddu þeir um 4.680
milljónum króna, og eru þá far-
gjaldatekjur undanskildar. Sam-
kvæmt þessu var meðaleyðsla hvers
ferðamanns rúmlega 36 þúsund
krónur.
íslendingar eyða hins vegar
miklu meira að meðaltali á ferðalög-
um í öðrum löndum eða tæplega
58 þúsund krónum. Ef útlendingar
éyddu að meðaltali jafn miklu hér
á landi 0g íslendingar gera erlendis
gætu tekjur af ferðamönnum aukist
um allt að 2.700 milljónir króna.
Sjá nánar Viðskiptablað, Bl.
Skreiðarframleiðsla hérlendis er
áætiuð 1.500 tonn í ár, en var 1.000
tonn á síðasta ári. Skreiðarverð er
ákvarðað í ellefu gæðaflokkum sem
lækka mismikið, og er miðað við
dollara. Raunlækkun fyrir framleið-
endur í íslenskum krónum mun vera
anna á Hatton Rockall-svæðinu er
lokið og hefur utanríkisráðuneytinu
borist lokaskýrsla um málið frá
Orkustofnun. Rannsóknirnar beind-
ust meðal annars að því að kanna
arframleiðendur greiði í verðjöfnun-
arsjóð í ár.
Hilmar Daníelsson hjá Fiskmiðlun
Norðurlands, sem mun að líkindum
sjá um helming skreiðarútflutnings-
hvort til væru á svæðinu setlög sem
gætu innihaldið olíu.
Jarðeðlisfræðingarnir Guðmund-
ur Pálmason og Karl Gunnarsson
hjá Orkustofnun hafa meðal ann-
arra unnið að þessum rannsóknum
ins í ár, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að verðið ylli sér nokkrum
vonbrigðum, en hins vegar hefði orð-
ið að koma til einhver lækkun til að
koma til móts við óskir kaupenda.
Árni Þ. Bjarnason hjá íslensku
umboðssölunni sagði, að líklega hefði
mátt selja hluta skreiðarframleiðsl-
unnar á hærra verði, en með því að
lækka verðið á þann hátt sem gert
var hafi sala allrar þeirrar skreiðar
sem hér er framleidd í ár verið
tryggð.
af íslands hálfu. Þeir sögðu í sam-
tali við Morgunblaðið að svæðið
væri þakið hraunlögum sem runnið
hafa er hafsvæðið milli Grænlands
og Evrópu myndaðist. Ofar þessum
hraunlögum eru víða þunn tiltölu-
Iega ung setlög sem eru ekki áhuga-
verð frá olíuleitarsjónarmiðum. En
þar sem hægt er að sjá dýpra niður
í hafsbotninn, koma í ljós eldri og
þykkari setlög sem gætu hugsan-
lega innihaldið olíu. Mælingarnar
sem gerðar voru eru þó ekki nægi-
legar til að skera örugglega úr um
slíkt. Til þess að það sé hægt þarf
frekari mælingar og boranir.
„Við fyrstu sýn er þetta svæði
lítið spennandi til olíuleitar, bæði
er þarna mikið dýpi, aðstæður til
að athafna sig erfiðar og setlögin
liggja djúpt í jarðskorpunni," segja
þeir Guðmundur og Karl.
Hugmyndin um sameiginlegar
rannsóknir íslendinga, Dana og
Færeyinga á Hatton Rockall-svæð-
inu kom upp 1985. Ákváðu stjórn-
völd íslands og Danmerkur að
leggja fram fé til þeirra og var
hafist handa um mælingar 1987.
Alls var veitt 1 milljón dollara til
þeirra eða 58 milljónum- króna á
núvirði. Sett var upp stjórnarnefnd
sex manna, þriggja íslendinga og
þriggja Dana, til að annast fram-
kvæmdina. Verkefnisstjóri var ráð-
inn Morten Sparre Andersen frá
F'æreyjadeild Jarðfræðistofnunar
Danmerkur.
Ástæður þess að íslendingar og
Danir ákváðu þessar rannsóknir
voru einkum þær að styrkja samn-
ingastöðu landanna þegar farið
verður að ræða um skiptingu svæð-
isins milli þeirra landa sem liggja
í kringum það og eiga hugsanlegan
rétt á nýtingu þess. Þar að auki
var svæðið lítt rannsakað fyrir og
þær rannsóknir á svæðinu, sem á
annað borð hafa verið birtar, hafa
ekki beinst að olíuleit.
Samið var við bandarískt fyrir-
tæki um gagnasöfnun. Fór gagna-
söfnunin fram í október og nóvem-
ber 1987. Orkustofnun var síðan
falin tölvuúrvinnsla á gögnunum
en jafnframt annaðist bandarísk
háskólastofnun úrvinnslu á hluta
gagnanna ásamt bresku fyrirtæki.
Sá sem annaðist umsjón með þess-
ari vinnu Orkustofnunar var Einar
Kjartansson jarðeðlisfræðingur.
Italíuskreið:
Verðið lækkar um 5-10%
LÁGMARKSVERÐ fyrir skreið til útílutnings á Ítalíumarkað lækkar
um 5-10% frá síðastliðnu ári, en skreiðarverð var ákveðið á sameigin-
legum fundi útflytjenda og fulltrúa utanríkisráðuneytisins fyrr í vik-
unni. Reglan hefur verið sú að miða verðið við opinbert verð á norskri
skreið á Ítalíumarkaði, en nú ber svo til að Norðmenn hafa enn ekki
gefið út opinbert verð. Hins vegar hafa borist fréttir sem herma, að
norsk skreið sé seld gegn lægra verði en í fyrra.
svipuð lækkuninni í dollurum. Það
mun því ekki koma til þess að skreið-