Morgunblaðið - 05.08.1989, Qupperneq 1
56 SIÐUR B OG LESBOK
176. tbl. 77. árg.
LAUGARDAGUR 5. AGUST 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hugsj ónavarnir
Kúbu treystar:
Tvö sovésk
tímarit sett
á bannlista
Havana. Reuter.
Kommúnistastjórn Fídels Kast-
rós á Kúbu hefúr bannað innflutn-
ing tveggja sovéskra tímarita,
vikublaðsins Moskvufrétta og
Spútniks, sem er mánaðarrit. Seg-
ir málgagn Kúbustjómar, Gran-
ma, að ritin mæli með borgaralegu
lýðræði sem fúllkomnasta skipu-
lagi á þátttöku almennings í
stjórnmálum og virðist heilluð af
bandarískum lífsháttum í skrifúm
sínum; því hafi ekki verið hægt
að fresta þessari ákvörðun sem sé
„í samræmi við grundvallarsjónar-
mið“ stjómvalda.
„Við berjumst fyrir sósíalisma og
kommúnisma og þess vegna henta
rit af þessu tagi hvorki aðstæðum
okkar né hagsmunum," sagði í for-
ystugrein Granma í gær. „Þeir sem
vísa á bug forystuhlutverki flokksins
í Sovétríkjunum, heimta fjölflokka-
lýðræði, mæla með fijálsum mark-
aðsbúskap, 4ofa fjárfestingar út-
iendra aðila í hástert, vilja koma
aftur á einkaeign; slíkir menn draga
í efa gildi alþjóðahyggju og samstöðu
með öðrum þjóðum."
Sagt var að ritin tvö gæfu í skyn
að söguleg afrek Sovétríkjanna væru
einskis virði og landsmenn yrðu að
„byija allt starf frá grunni á ný ...
Þeir gleyma því að vegna alls þess,
sem áunnist hefur síðan Sovétríkin
urðu til og í skjóli jafnvægis á sviði
varnarmáttar hefur verið kleift að
koma á þeim breytingum sem nú
eiga sér stað í landinu.“ Granma
segir einnig að þeir sem ekki séu
„fyllilega sannfærðir um gildi hinnar
sögulegu nauðsynjar og möguleika
sósíalismans geti byijað að draga
lífvænleika hans í efa, jafnvel glatað
allri von,“ ef þeir lesi ritin.
Kastró hefur verið við völd frá
1959 er hann velti Fulgencio Batista
einræðisherra úr sessi. Forsetinn
hefur í engu hvikað frá hefðbundinni
harðlínustefnu sinni, þrátt fyrir um-
bótastefnu Míkhaíls Gorbatsjovs í
Sovétríkjunum.
Hressir krakkar á leið á útihátíð frá Umferðamiðstöðinni í gær.
Morgunblaðið/BAR
Hætt að selja í Þórsmerkurferðir
TEKIÐ var fyrir frekari miðasölu í rútur á leið í Þórsmörk þegar
búið var að bóka þangað yfir 1800 manns samkvæmt upplýsingum
frá Umferðamiðstöðinni sídegis í gær.
Rúmlega 500 manns fóru með óvíst var um fjölda í kvöldferðir
rútum í Húnaver í gærdag, en þangað. Heldur minni fólksstraum-
ur hefur verið til Vestmannaeyja
en í fyrra, en þó var fullbókað með
Heijólfi í gær.
Einkabílar byijuðu að streyma
út úr bænum um hádegisbilið í gær
og var umferðarþunginn þá þegar
orðinn talsverður. Umferð jókst er
leið á daginn, en var frekar jöfn á
Suður- og Vesturlandsvegi að sögn
lögreglunnar í Reykjavík.
Bandaríkjamenn beita íslamska mannræningja gífurlegum þrýstingi:
Likur á Mðsamlegri lausn
gísladeilunnar í Líbanon
Nikósíu. Reuter.
BANDARÍSK og ísraelsk stjóm-
völd binda vonir við að mesta
hættan á því, að gíslamálið fyrir
botni Miðjarðarhafs fari úr bönd-
um, sé liðin hjá. Öfgasinnaðir
shíta-múslimar í Líbanon létu und-
Sovétmenn endurskoða Stalín-tímabilið:
Þjóðnýtíng landbúnaðarins
kostaði níu milljónir lífið
Moskvu. Reuter.
HARTNÆR níu og hálf milljón
manna týndi lífi af völdum hung-
ursneyðar og oíbeldis er Jósef
Stalín kom á samyrkjubúskap í
Sovétríkjunum snemma á fjórða
áratugnum. Þetta kom frain í
grein sem einn fremsti lýðfræð-
ingur landsins, Leoníd Pere-
verzev, ritaði nýlega í sovéska
mánaðarritið Molodaja Gvardý'a.
Pereverzev bendir ennfremur á
að stofnandi Sovétríkjanna,
Vladímír Lenín, hafi átt sök á
dauða milljóna bænda með
harðýðgislegri stefnu sinni fyrstu
árin eftir októberbyltinguna 1917.
Að sögn Pereverzevs féllu 4,8 millj-
ónir manna í borgarastríðinu eftir
byltinguna. 5,9 milljónir dóu í
hungursneyð árin 1921-1923, aðal-
lega vegna þess að Lenín neyddi
bændur til afhenda ríkinu alla upp-
skeru sína. Fólksfjöldafræðingur-
inn nefnir engar tölur um mann-
fall í hreinsunum Stalíns seint á
fjórða áratugnum en þá telja marg-
ir að tíu milljónir manna hafi verið
drepnar.
Tölurnar um mannfallið í upp-
hafi fjórða áratugarins eru nokkuð
hærri en flestir sérfræðingar á
Vesturlöndum hafa nefnt, en Pere-
verzev segir að þrátt fyrir alla „per-
estrojku" sé „nær ekkert fjallað
um þetta ofboðslega manntjón af
sagnfræðingum okkar, blöðum,
sjónvarpi eða í kvikmyndum."
Hann sagði að stjómendur landsins
á Stalín-tímanum hefðu gert sig
seka um „hryllilega glæpi gegn
þjóð sinni“ er þeir gerðu upptækt
korn í miðri hungursneyðinni til
að selja það til útlanda. Markmiðið
var að fjármagna iðnvæðingar-
áform stjórnarinnar. Sjónarvottar
frá þessum tímum hafa lýst því
hvernig öryggissveitir leyniþjón-
ustunnar lokuðu kombirgða-
geymslum og hindruðu sveltandi
smábændur og fjölskyldur þeirra í
að yfirgefa hungursvæðin.
an miklum þrýstingi bandarískra
sljórnarerindreka þegar þeir
ákváðu að fresta fyrirhugaðri af-
töku Josephs Cicippios, fyrrum
starfsmanns Bandaríska háskól-
ans í Beirút, á fimmtudag. Talið
er að nærvera bandarískra her-
skipa við Líbanon og íran hafi
einnig stuðlað að þessu.
Vestræn ríki telja jafnvel mögu-
legt að hægt verði að ná samkomu-
lagi við mannræningja í Líbanon um
skipti á föngum og gíslum. ísraelar
hafa boðist til að skipta á 150 shíta-
múslímum og Abdel-Karim Obeid,
einum af leiðtogum Hizbollah-sam-
takanna (Flokks guðs), sem þeir
rændu fyrir viku, og 17 vestrænum
gíslum og þrem ísraelskum hermönn-
um sem talið er að séu í haldi í Líban-
on. ísraelar væntu þess í gær að fá
svar fyrir milligöngu Rauða krossins
við þessu tilboði. Sérfræðingar þeirra
telja þó að það geti tekið mánuði að
ná samkomulagi um skipti á föngum
og gíslum.
Hryðjuverkahópur íslamskra ofsa-
trúarmanna, sem nefnist Samtök
byltingar og réttlætis, frestaði á
fimmtudag hótun sinni um að myrða
Bandaríkjamanninn Joseph Cicippio
um óákveðinn tíma. Er það þakkað
þrýstingi bandarískra stjórnarerind-
reka á þær ríkisstjórnir, sém næst
standa Hizbollah, og nærveru banda-
ríska flotans á Miðjarðarhafi og
Persaflóa. Talið er að George Bush
Bandaríkjaforseti hafi verið í beinu
símasambandi við tug þjóðarleiðtoga
víðs vegar um heim til að þrýsta á
um lausn á deilunni. Einnig þykir
víst að Iranir hafi beitt öfgasinnaða
shíta í Líbanon þrýstingi til að fresta
aftöku Cicippios. Ali Akbar Rafsan-
jani, nýr forseti Irans, gagnrýndi
hernaðarógnanir Bandaríkjanna á
Miðjarðarhafi og Persaflóa í gær en
sagði jafnframt að lausn væri í sjón-
máli á deilunni og sagðist reiðubúinn
til að vinna að frelsun gíslanna.
Bush Bandaríkjaforseti sagði að
ummæii Rafsanjanis gæfu nokkra
von um friðsamlega lausn mála.
Bandaríska dagblaðið New York
Times greindi frá því í gær að Bush
Bandaríkjaforseti hefði verið reiðu-
búinn að fyrirskipa loftárás á aðsetur
hryðjuverkamanna Hizbollah í Líban-
on ef þeir hefðu framkvæmt hótun
sína um að myrða Cicippio. Jafn-
framt sagði blaðið að áætlun Banda-
ríkjamanna um árás væri væri enn
á dagskrá ef.deilan færi úr böndun-
um. James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að þessi frétt
væri úr lausu lofti gripin.