Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989 HANDBOLTI LANDSMOTIÐ I GOLF11989 Boris til Breiðabliks Boris Akbashev hefur fengið leyfi frá sovéska hand- knattleikssambandinu til að þjálfa 2. deildar lið UBK í hand- knattleik næsta keppnistímabil og er væntanlegur til landsins á næstunni. Boris er ekki óþekkt- ur hér á landi, því hann þjálfaði Val 1980 til 1983 með góðum árangri. Hann var aðstoðar- 1 andsliðsþjálfari Sovétmanna á Óiympíuleikunum 1972, en að undanförnu hefur hann þjálfað lið í Moskvu. ÚRSLIT Meistaraflokkur karla — 54 holur: Úlfar Jónsson, GK..........73 73 73 219 Ragnar Ólafsson, GR........79 75 73 227 Sigurður Pétursson, GR.....79 70 79 228 Guðmundur Sveinbj., GK.....77 75 76 228 Sveinn Sigurbergsson, GK ...79 76 73 228 Tryggvi Traustason, GK.....81 74 74 229 Gunnar Sigurðsson, GR______77 76 76 229 Björn Knútsson, GK.........79 76 78 233 Sigurður Sigurðsson, GS....81 77 76 234 Magnús Birgisson, GK.......80 76 78 234 Bjöm Axelsson, GA..........78 80 77 235 Hannes Eyvindsson, GR......83 79 74 236 Arnar Már Ólafsson, GK.....87 77 73 237 Siguijón Arnarsson, GR.....78 75 86 239 Kristján Gylfason, GA......82 83 75 240 Sigurður Albertsson, GS....83 78 79 240 Hörður Arnarsson, GK.......83 79 79 241 Þorsteinn Hallgrímsson, GV.79 83 80 242 Jón Karlsson, GR...........83 80 79 242 Peter Salmon, GR...........79 82 81 242 Eiríkur Guðmundsson, GR ...82 82 80 244 Hilmar Björgvinsson, GS....82 79 83 244 Guðmundur Arason, GR.......80 83 84 247 Viggó H. Viggóson, GR......84 81 86 251 Meistaraflokkur kvenna — 54 holur: Karen Sævarsdóttir, GS....82 82 79 243 Steinunn Sæmundsd., GR ....83 86 84 253 ÁsgerðurSverrisdóttir,GR..85 83 86 254 Þórdis Geirsdóttir, GK....97 84 79 260 RagnhildurSigurðard.,GR...90 82 90 262 Alda Sigurðardóttir, GK....94 89 93 274 Ámý Árnadóttir, GA........101 97 93 291 Kristín Pálsdóttir, GK....102 101 93 296 1. flokkur kvenna — 54 holur: Andrea Ásgrímsdóttir, GA..............270 Anna J. Sigurbergsdóttir, GK..........271 Svala Óskarsdóttir, GR................282 HerborgAmarsdóttir, GR,...............283 Rakel Þorsteinsdóttir, GS.............284 JóhannaWaagfjörð, GR..................284 Guðbjörg Sigurðardóttir, GK...........287 Guðrún Eiríksdóttir, GR...............293 1. flokkur karla: Gunnar Þór Halldórsson, GK............232 Þorsteinn Geirharðsson, GS............233 Amar Baldursson, GÍ...................234 Þorbjöm Kjærbo, GS....................235 Þröstur Ástþórsson, GS................236 Sigurgeir Guðjónsson, GG..............236 Marteinn Guðnason, GS.................239 Jóhann Rúnar Kjærbo, GN...............239 Rúnar S. Gíslason, GR.................239 Ragnar Guðmannsson, GA................239 Sigurður Aðalsteinsson, GK............240 Ástráður Þ. Sigurðsson, GR............240 Gunnlaugur Sævarsson, GG..............241 Magnús Karlsson, GA...................242 Guðmundur Jónsson, GG.................242 Ólafur Gylfason, GA...................242 uiaiur vjyua&un, . ípRÚmR FOLK ■ ÚLFAR Jónsson og Ragnar Ólafsson eru í tveimur efstu sætun- um í meistaraflokki karia. Þeir eru reyndar tengdir því Ulfar er tilvon- andi svili Ragnars. Eiginkona Ragnars, Hólmíríður Guðmunds- dóttir, og unnusta Úlfars, Kol- brún eru systur. „Ef ég vinn ekki þá get ég alltaf komið í heimsókn og klappað bikarnum,“ sagði Ragn- ar brosandi. ■ SKEMMTILEGT ntrvik kom upp í keppni 3. flokks í fyrradag. Einn keppandinn sló boltann í stein í öðru höggi á 10. braut. Boltinn týndist og keppandinn þurfti að slá annan bolta. Sá boltinn fór í sama stein og nú sáu menn hvert hann fór. Þegar farið var að athuga málið kom í ljós að seinni boltinn hafði lent ofan á þeim fyrri, þannig að ekki er hægt að segja annað en að nákvæmnin sé í fyrirrúmi hjá keppendum. „Hlýtur að vera happatalan mín“ - sagði ÚlfarJónsson eftirað hafa leikið á 73 höggum þriðja daginn í röð.— ÚLFAR Jónsson stendur með pálmann í höndunum eftir þriðja daginn á Landsmótinu í golfi í Leirunni. Úlfar lék á 73 höggum, þriðja daginn í röð, er kominn með 219 högg og hefur átta högga forskot á Ragnar Ólafsson fyrir lokadag- inn. Sigurður Pétursson, sem var aðeins þremur höggum á eftir Úlfari í gær, lék á 79 högg- um og er í 3.-5. sæti, ásamt Sveini Sigurbergssyni og Guð- mundi Sveinbjörnssyni, níu höggum á eftir Úlfari. Ulfar hefur sýnt mikið öryggi á mótinu. Hann hefur vissulega átt slæm högg en yfirleitt bjargað sér með góðum vippum inná flöt og púttað ágætlega. LogiB. Úlfar var reyndar Eiðsson þrjú högg yfir pari skrifar þegar komið var að 15. braut en náði fugli þar og einnig á 18. braut. „Þetta hlýtur að vera happatalan mín, að minnsta kosti á þessu móti. Að vísu hefði ég viljað leika á pari einhvern daginn en ég get ekki verið annað en ánægður," sagði Úlfar. „Átta högg eru nokkuð mikið og ég stefni að því að halda þeim og jafnvel gera betur. Ég er í ágætu formi og hef spilað nokkuð vel, þannig að ég býst við að ná því. Það væri ánægjulegt að bæta fyrir mótið í fyrra en þá lék ég ekki vel,“ sagði Úlfar. Ragnar Ólafsson komst í 2. sæti en hann lék einnig á 73 höggum. Ragnar hefur lækkað með hveijum degi, byijaði á 79, þá 75 og loks 73 högg. Möguleikar hans eru þó ekki miklir. Atta högg er býsna mikið fyrir 18 holur og á meðan Úlfar leikur eins og hann gerir þarf eitthvað mikið að gerast til að Ragnar sigri. „Ég geri mér nú ekki miklar vonir en það getur allt gerst í golfi. Ég vona bara að ég haldi áfram að lækka mig og tel raunhæft að stefna á annað sætið,“ sagði Ragn- ar. „Líklega þyrfti ég að leika á 64-66 höggum til að eiga möguleika eða Úlfar að fá í magann. Ég ætti kannski bara að bjóða honum í mat,“ sagði Ragnar og hló. Sigurður Pétursson náði ekki að fylgja eftir góðum leik sínum í fyrradag. Hann lék á 79 höggum og getur ekki gert sér miklar vonir um sigur. Sveinn Sigubergsson lék vel í dag, á 73 höggum og Guð- mundur Sveinbjömsson á 76 högg- um, en þessir þrír em í 3.-5. sæti með 228 högg. Flestir telja Úlfar Jónsson nokk- uð öruggan með sigur. Hann hefur átta högga forskot og leikur af ör»«^ yggi. Þvi má búast við að keppnin í dag verði um 2. sætið. Þó er ekki hægt að útiloka að eitthvað óvænt gerist í dag — það getur jú allt gerst í golfi. I Morgunblaöiö/Einar Falur Karen Sævarsdóttir var nálægt vallarmeti í gær og hefur tíu högga forskot í meistaraflokki kvenna. Karen með tíu högga forskot KAREN Sævarsdóttir, úr GS, hefur haft forystu í meistara- flokki kvenna frá upphafi. Kar- en lék mjög vel í gær og jók forskot sitt úr fjórum höggum ítíu fyrir síðasta daginn. Stein- unn Sæmundsdóttir, GR, náði aftur öðru sætinu sem hún missti til Ásgerðar Sverridótt- ur, GR, eftir annan keppnis- daginn. Enn sem fyrr er mjótt á mununum hjá þeim tveimur og hefur Steinunn notað einu höggi færra en Ásgerður. Karen byijaði reyndar illa og var sjö yfir pari eftir fyrstu níu og átta yfir pari eftir ellefu Karen 79 243 43 — 36 7 yfir pari Fuglar (1 undir): 15.16.18. Skollar: (1 yfir) 2. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 11. Skrambi (2 yfir): 17. holur. Eftir það tók hún við sér, náði þremur fuglum, en gekk þð^ illa á 17. holu, fór hana á tveimur yfir pari. Síðari níu hoiunum lauk hún því á pari. Þessi árangur Karenar er aðeins einu höggi frá tveggja ára gömlu vallarmeti hennar og telst jafnvel vallarmet því nokkrar breytingar hafa verið gerðar á vellinum. „Þetta hefur gengið ágætlega hjá mér enn sem komið er. Að vísu er ekkert mál að tapa niður tíu högga forystu og þetta er alls ekki búið. Ég mæti í lokaslaginn ákveð- in í að gera mitt besta. Það er um að gera að hafa gaman af þessu,“ sagði Karen Sævarsdóttir. „Að- stæður hafa verið góðar en að vísu var frekar blautt í gærmorgun. Ég púttaði illa fyrri hringinn, það á reyndar við um allar stelpurnar, en þetta lagaðist í síðari hringnum." Karen hefur leikið vel það sem af er og sloppið við öll meiri háttjj^ áföll.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.