Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989
Grænmetisneysla
dregur úr hættu á
lungnakrabbameini
Washington. Reuter.
GRÆNMETISRÍKT fæðl virðist
vernda fólk gegn lungnakrabba-
meini, að því er haft var eftir
vísindamönnum á þriðjudag.
Vísindamennirnir, sem starfa við
krabbameinsrannsóknastöð háskól-
Offita vanda-
mál í belg-
íska hernum
Brussel. Reuter.
MENN sem kvaddir eru í belgíska
herinn verða stöðugt feitari enda
nýkomnir af mataræði þar sem
franskar kartöflur og skyndibita-
matur er uppistaðan. Eru þeir
jafhframt þjakaðir af hreyfingar-
leysi.
Að sögn Guy Coeme, vamarmála-
ráðherra Belgíu, hefur reynst nauð-
synlegt að auka líkamlega þjálfun
nýliða í hemum vegna hversu feitir
þeir eru. Verður aukin áhersla lögð
á íþróttaiðkun hermanna í framtí-
ðinni og hefur nú nýlega verið ákveð-
ið að veija 2,5 milljónum dollara, eða
150 milljónum ísl. króna, til kaupa
á 200.000 pörum af hlaupaskóm fyr-
ir hermenn.
Coeme segir að 8% þeirra ungu-
manna sem kvaddir em í herinn og
falla á læknisskoðun séu felldir
vegna offitu. Megi aðallega rekja
hana til lélegs mataræðis og hreyf-
ingarleysis.
ans í Hawaii-ríki, bára saman fæði
332 lungnakrabbameinssjúklinga á
Hawaii og 865 heilbrigðra eyja-
skeggja. Komust þeir að raun um,
að mikil fylgni var á milli græn-
metisríks mataræðis og tiltölulega
lágrar tíðni lungnakrabbameins.
Vömin virtist stafa frá græn-
metinu sem fæðuflokki fremur en
einstökum tegundum þess eða
þekktum þáttum þess eins og trefj-
um eða A-vítamíni.
„Þegar við lögðum saman niður-
stöðutölur allra grænmetistegund-
anna, sem við rannsökuðum, virtust
varnaráhrifin sterkust," sagði í
skýrslu vísindamannanna, sem birt-
ist í ágústhefti tímarits Bandarísku
krabbameinsstofnunarinnar.
„Aukning varnarmáttarins gæti
stafað frá einhveijum einum þætti,
sem er til staðar í flestu grænmeti,
eða frá sameiginlegum eða sam-
virkum áhrifum nokkurra vamar-
þátta þessarar fæðutegundar,"
sagði í skýrslunni.
Vísindamennimir sögðu enn
fremur, að niðurstöðumar ættu
jafnt við um konur og karla af öllum
kynþáttum.
Gengið yfír Suðurheimskautslandið
Reuter
Sovésk flutningaflugvél af gerðinni IL-76 MD
sést hér skömmu eftir lendingu á Eyju Georgs
konungs við Suðurheimskautslandið. Þangað
hafði vélin meðferðis þátttakendur í alþjóðlegum
leiðangri og búnað þeirra en mennirnir hyggj-
ast ganga þvert yfir Suðurheimskautslandið, frá
vestri til austurs, með viðkomu á Suðurskautinu.
Ferðin hófst 1. ágúst og er búist við að hún taki
sjö mánuði.
Beljavskíj
einn efstur
Alexander Beljavskíj var efstur
í úrvalsflokki eftir Qórar umferðir
á OHRA-skákmótinu í Hollandi
með þijá vinninga. I stórmeistara-
flokki er Judith Polgar efst með
þijá vinninga af þremur möguleg-
um ásamt Sovétmanninum Boris
Gelfand.
í öðra sæti í úrvalsflokki er Viktor
Kortsnoj með 24 vinning. í 3.-4.
sæti era Boris Gulko og Jonathan
Speelman með 2 vinninga. Fimmti
er Van der Wiel með 1/4 vinning og
lestina rekur Jerevan Piket með 1
vinning.
Sjálfstæðir atvinnurekendur
eiga erfitt uppdráttar í Kína
Stjórnvöld segja afstöðuna til menntamanna óbreytta
Peking. Reuter.
SAMKVÆMT nýjum hagtölum
sem birtar voru í gær í Kína
hefúr einkafyrirtækjum fækkað
þar í landi undanfarið í fyrsta
skipti síðan árið 1981. Einka-
rekstur hefúr sætt þungu ámæli
í opinberum fjölmiðlum landsins
og er talið að sfjórnvöld vilji
kynda undir óánægju almenn-
ingps með gróða einkafyrirtækja.
Sfjómvöld lýstu því hins vegar
yfir í gær að afstaða þeirra til
menntamanna væri óbreytt og
að ekki væru uppi áform um að
hverfa frá yfirlýstri stefiiu ráða-
Flýja skógarelda
Reuter
Skógareldar, hinir mestu í 20 ár, hafa valdið miklum usla I
Frakklandi að undanfömu. Hefúr fólk átt fótum fjör að launa
á flótta undan þeim. I mörgum tilfellum hafa menn orðið að
hlaupa í sjó fram til að sleppa lifandi. Á meðfylgjandi mynd,
sem tekin var skammt frá Marseille í gær, em tvær konur að
flýja úr húsi sínu í þorpinu La Fare des Oliviers þar sem eld-
veggur nálgaðist það óðum. Talið var í gær að tekist hefði að
stöðva útbreiðslu eldanna.
manna gagnvart þeim.
Samkvæmt frétt Dagblaðs
bænda voru rúmlega 12,3 milljónir
einkafyrirtælq'a í landinu í lok júní
með rúmlega 19 milljónir manna í
vinnu. Er það um 15% samdráttur
frá því á sama tíma í fyrra. Blaðið
segir að framleiðsluverðmæti einka-
fyrirtækja sé 29% minna á fyrstu
sex mánuðum þessa árs en á sama
tíma í fyrra.
Sjálfstæðir atvinnurekendur hafa
einnig verið harðlega gagnrýndir
undanfarið fyrir skattsvik, vinnu-
þrælkun og mikinn gróða. Ónafn-
'greindur vestrænn stjómarerind-
reki segist telja að stjórnvöld séu
með þessu að beina reiði almenn-
ings frá sjálfum sér að einkageiran-
um. Margur almennur borgarinn
öfundar atvinnurekendur af góðu
gengi þeirra.
Jin Xin, skattsjóri Kína, hefur
látið hafa eftir sér að sjálfstæðir
atvinnurekendur greiði víða einung-
is 20-30% af þeim skatti sem þeim
beri. Markmið stjórnvalda sé að ná
12 milljörðum yuan (185 milljörðum
ísl. kr.) af atvinnurekendum á þessu
ári í stað 9 milljarða yuan (140
milljarða ísl. kr.) í fyrra.
Afstaðan til menntamanna
óbreytt
Stjómvöld í Kína sögðu í gær
að afstaða þeirra til menntamanna
væri óbreytt og að ekki væm uppi
áform um að hverfa frá yfirlýstri
stefnu ráðamanna gagnvart þeim.
Þúsundir manna hafa verið hand-
teknar frá því að lýðræðishreyfing
kínverskra námamanna var brotin
aftur með hervaldi í Peking og áróð-
ursherferð yfirvalda hefur ekki síst
beinst gegn meintri „undirróður-
starfsemi" tiltekinna mennta-
manna.
I síðasta mánuði sagði í forystu-
grein Dagblaðs alþýðunnar að
verkalýðurinn væri gmndvöllur
ríkisins, ekki menntamennirnir og
þótti sá málflutningur minna á yfir-
lýsingar ráðamanna á sjöunda ára-
tugnum. Allt frá því hermenn myrtu
þúsundir manna á Torgi hins him-
neska friðar í júnímánuði hefur
áróður stjómvalda einkum beinst
gegn erlendum menningaráhrifum
og andófsmönnum í röðum lýðræð-
issinna. Á fimmtudag veittist Dag-
blað alþýðunnar harkalega að Yan
Jiaqi, einum þekktasta leiðtoga lýð-
ræðishreyfingarinnar en hann hefur
nú flúið land og hyggst stjórna
baráttu stjórnarandstæðinga gegn
kínverskum valdhöfum erlendis frá.
Þá hefur þekktasti andófsmaður
Kína, vísindamaðurinn Fang Lizhi,
þráfaldlega verið fordæmdur í for-
ystugreinum blaða en hann dvelst
nú í sendiráði Bandaríkjamanna í
Peking.
Erlendir stjórnarerindrekar í
Peking sögðu í samtali við fréttarit-
ara Reuters-fréttastofunnar í gær
að svo virtist sem stjómvöld vildu
nú leitast við að vinna menntamenn
á sitt band. Margir þeirra hefðu
stutt baráttu kínverskra lýðræðis-
sinna og væru því uggandi um sinn
hag.
Sovétríkin:
Framleiðsla á neyslu-
varningi verður aukin
Moskvu. Reuter.
JÚRÍJ Masljúkov, forstjóri áætl-
unarstofiiunar Sovétríkjanna,
greindi frá því í gær að afráðið
hefði verið að auka stórlega
framboð á neysluvamingi i Sov-
étríkjunum á næsta ári.
Fram til þessa hafa yfirvöld í
Sovétríkjunum einkum lagt
áherslu á þungaiðnað en að sögn
Masljúkovs hefur nú verið ákveðið
að auka framleiðslu á neysluvörum
t.a.m. sjónvarpstækjum um 12
prósent á næsta ári. Hann tók
fram að ekki væru uppi áform um
að auka innflutning á slíkum varn-
ingi erlendis frá heldur yrði innan-
landsframleiðslan aukin. Áætlun
þessi var kynnt á fundi Æðsta
ráðs Sovétríkjanna á fimmtudag
og kváðust vestrænir sérfræðingar
efast um að þessu marki yrði náð.
í máli forstjórans kom fram að
stjórnvöld hygðust draga úr fjár-
festingum í þungaiðnaði um heii
30 prósnet á næsta ári og veita
þeim fjármunum til framleiðslu á
neysluvörum.
„Áætlun þessi mun verða til
þess að draga úr þjóðfélagsspennu
í Sovétríkjunum," sagði Masijúkov
en Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleið-
togi hefur margoft rætt um nauð-
syn þess að vöruframboð verði
aukið þar eystra.
Sovétríkin:
Óflokks-
bundinn
ráðherra
Moskvu. Reuter.
ÆÐSTARÁÐ Sovétríkjanna sam-
þykkti í gær útnefúingu Níkolajs
Vorontsovs í starf umhverfis-
málaráðherra. Er hann fyrsti
óflokksbundni maðurinn sem
gegnir ráðherrastarfí í Svoétríkj-
unum, að sögn TASS-fréttastof-
unnar.
Vorontsov hefur starfað undan-
farið sem líffræðingur hjá sovésku
vísindaakademíunni og við honum
blasa mörg viðamikil verkefni, því
ástandið í sovéskum umhverfismál-
um er sagt hörmulegt. Er hann sat
fyrir svörum hjá æðstaráðinu sagði
Vorontsov að gera þyrfti grundvall-
ar breytingar í landbúnaði og at-
vinnulífi.