Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989 19 SELFOSS: „Þetta erjjölbreytt og skemmtilegt starf'* Selfossi. „Það koma hér margir og ég hef gaman af þessu. Maður kemst í gott samband við fólk og það er mikils virði. Það koma líka margir aftur og það þykir mér benda til þess að þeim líki eitthvað af því sem ég geri,“ segir Ósk Gísladóttir sem rekur söðlasmíðastofuna Baldvin og Þorvaldur og verslun með vörur fyrir hestamenn og fleiri. Verslunin er við Austurveginn á Selfossi í kjallara gamla banka- hússins. Mér datt nú aldrei í hug að ég færi í þetta, búin að vera í fiski í Þorlákshöfn. Það datt í okkur að kaupa þetta í maí 1984 en þá hafði ég farið á námskeið í fjóra daga í Þorlákshöfn hjá tveim- ur konum ofan úr Hreppum,“ segir Ósk. Ósk og hennar vinnufólk annast viðgerðir á reiðtygjum ásamt því að smíða öll höfuðleður, útbúa tauma, gjarðir, sauma hnakktöskur og veita hestamönnum alla þá þjón- ustu sem mögulegt er. „Það er ýmislegt sem kemur inn úr dyrun- um sem fólk þarf að fá gert og ef ég get það þá geri ég það,“ segir hún. Og í þeim töluðum orðum snar- ast Bjarni Sigurðsson hjá Eldhest- um inn með fullan poka af beislum til að laga og reiðbuxur úr leðri sem á var saumspretta. Buxurnar fengu sína viðgerð strax og Bjarni vippaði sér út léttstígur. Ósk sagði að það færi vaxandi að fólk gerði sér grein fyrir því að hugsa þyrfti vel um reiðtygin og að það fylgdi því ánægja að vera í hreinum hnakk og með hreint beisli. Það væri hins vegar of lítið um að menn kæmu með reiðtygin til við- gerðar á dauða tímanum frá sept- ember til desember. „í þessu starfi kemst maður í tengsl við fólk alls staðar að af Suðurlandi og maður verður ánægðari því oftar sem fólkið kem- ur. Þetta byggist á því að þóknast fólkinu. Verslunin er alltaf að auk- ast hjá mér hérna, jókst um helm- Í: issili ■ii' mim Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Þórhildur Helgadóttir aðstoðarmaður og Ósk Gísladóttir í smiðjunni. ing í fyrra frá árinu áður,“ sagði Ósk. í versluninni og á verkstæðinu vinna auk hennar tvær konur. Stöð- ugt er unnið að því að framleiða það sem mögulegt er annað en að smíða hnakka sem Ósk sagðist ekki fást við. í versluninni hanga svo vörurnar, þar má auk ólanna sjá járningasvuntur, beislisstangir, mél, hreinlætisvörur fyrir hross og reiðtygi og fatnað. „Við reynum að bregðast fljótt við óskum fólks og mér finnst reglu- lega gaman að vinna úr leðri, þetta er fjölbreytt og skemmtilegt starf. Maður fær ýmislegt að glíma við og verður bara að koma í ljós hvort maður getur eða getur ekki,“ sagði Ósk Gísladóttir. — Sig. Jóns. „Það skemmtilegasta við starfið eru samskiptin við fólkið“ Rætt við Harald í Geysi með 48 ára starfsaldur Eg er búinn að vinna hér síðan 13. september 1941, nær hálfa öld,“ sagði Haraldur Theodórsson verslunarmaður í Geysi í samtali við Morgunblaðið í tilefni Verslun- armannahelgarinnar. „Ég var þá sautján ára Reykvíkingur, hafði flækst á milli í ýmiskonar vinnu eins og gengur með unglinga, en ég hef ekki séð ástæðu til þess að hreyfa mig úr Geysi, enda er mitt sjónarmið það að ef maður kann vel við sig á einum stað, er engin ástæða til þess að vera að leita að því sem maður veit ekki hvað er. Þú spyrð um starf verslunar- manns í hálfa öld? Breytingarnar eru miklar eins og gefur að skilja. Þjóðfélagið hefur breyst frá toppi til táar tæknilega en mannlega eð- lið er samt við sig. Við í Geysi höf- um til dæmis alltaf byggt á því að hafa persónuleg samskipti við kúnnana. Líklega hafa þessi sam- skipti ekki verið eins persónuleg í matvöruversluninni, enda meiri hraði á þeim vettvangi, en í þessari verslun hefur þessi þáttur verið grundvöllurinn. Eg vann sem sendill áður en ég byrjaði í Geysi, var sendill í matvörubúð og þá fór maður stundum tvær til þljár sendi- ferðir á dag á sama heimilið og auðvitað þýddi það persónuleg tengsl. Fólk leitar mikið til okkar, Spáð í spilin með kúnnanum. jafnvel þótt það ætli ekki að versla, leitar upplýsinga og það er svo oft eins og fólk vanti persónuleg sam- skipti í viðskiptin. Ég tel að það þurfi mun meira gagnkvæmt traust milli kúnnans og verslunarmanns- ins. Það sem mér finnst skemmti- legast við þetta starf eru samskipt- in við fólkið, spjallið og vangavel- turnar. Örsjaldan koma erfiðir kúnnar og þá tekur maður þeim bara á léttu nótunum og þakkar Guði fyrir að vera ekki eins. Það er mjög góður andi í þessu húsi og hefur alla tíð verið og ann- að sem hefur fundið farsælan far- veg hér er hár starfsaldur. 53 ár Haraldur Theodórsson í Geysi. er hæst, þá 48 ár, 35 ár og al- mennt eru þetta 10-20 ár. Mér finnst einnig augljóst að fólki sem verslar hjá okkur líður vel hér. Það er rúmgott, bjart og meira að segja á gangstéttinni þar sem við sýnum garðvörur á sumrin fær fólk sér oft sæti og slappar af. Það hefur jafn- vel borið við að gestir í Nausti hafa komið með glösin að borðunum hjá okkur og tekið það náðugt. Jú, víst getur fjöldi þeirra sem koma í verslunina á einum degi komist upp í nokkur hundruð, en Morgunblaöiö/Kagnar Axelsson umferðin í miðbænum er orðin minni en áður. Að mínu mati er þetta mikið til bönkunum að kenna, þeir hafa búið til svo mikinn þrö- skuld með því að leggja svo margar byggingar í miðbænum undir bankaafgreiðslur á fýrstu hæð hú- sanna. Auðvitað gætu þeir alveg eins haft almenna bankaafgreiðslu á annarri hæð og gefið verslunar- rekstri kost á götuhæðunum. Það myndi breyta miðbænum aftur til góðs fyrir líflegt mannlíf.“ - á.j. Það er oftast afslappað andrúmsloftið utan dyra sem innan á Geysi. KLAUSTURHOLAR Laugavegi 8 verða opnir í dag, laugardag og sunnudag frá kl. 14-18. Til sýnis og sölu verk eftir flesta af okkar fremstu málurum. Olíumálverk: Jón Stefánsson Jóh. S. Kjarval Brynjólfur Þórðarson Gunnlaugur Scheving Snorri Arinbjarnar Gunnlaugur Blöndal Jóhann Briem Jón Engilberts Sveinn Þórarinsson Jón Þorleifsson Kári Eiríksson Svavar Guðnason Vatnslitamyndir: Gunnlaugur Scheving __________________Sölvi Helgason________ Jón Jónsson Eiríkur Smith

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.