Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 15
t- I MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989 15 1911, Bræðraminni, Bíldudal. Hann lést 1. mars 1962. Anna gift- ist aftur Valgeiri Vilhjálmssyni, f. 13 september 1923, Hátúni, Nes- kaupstað. Guðrún Lovísa f. 18. desember 1922, Halldórsstöðum. Gift Guðmundi Björgvin Jónssyni f. 1. október 1913, Brunnastöðum, Vatnsleysustrandarhreppi. Guð- laug f. 20. september 1924, Hall- dórsstöðum. Dó 29. júlí 1943. Sig- urveig f. 22. janúar 1928, Sjónar- hóli. Giftist Leifi Kristjánssyni, f. 13. júlí 1923, Bárðarbúð, Breiðavíkurhreppi. Sesselja f. 22. desember 1932, Sjónarhóli. Dó 2. júlí 1934. Sem fyrr segir var Magnús Er- lendsínu harðduglegur maður og mun fátt hafa skort til heimilisins þótt oft væri mannmargt á þeirra búskaparárum. Börnin fóru að vinna jafnharðan og þau uxu úr grasi, heima og heiman, eins og þá gerðist og léttu á þann hátt undir með foreldrum sínum. Og ekki mun hún Erlendsína hafa leg- ið á liði sínu við heimilisreksturinn. Það var mikið starf sem inna þurfti af hendi við uppeldi á 8 börnum, reka mannmargt heimili, annast oft á tíðum skepnuhirðingu þar sem húsbóndinn var oft fjarverandi vegna ýmiskonar annarra starfa. Eftir að þau hjón fluttu í Vogana vann Erlendsína oft við fiskverkun og það allt til áttræðisaldurs en þá hafði hún á orði að hún kynni bara ekki við að taka við þessum aurum frá fiskverkuninni komin á þennan aldur. Henni féll aldrei verk úr hendi. Hún hafði sínar gömiu að- ferðir við þvott og önnur heimilis- störf á meðan hún bjó að sínu. Hún þvoði sinn þvott í blikkbala á þvottabretti og annað eftir því. Hún var ekki neitt komin uppá þessi nýmóðins tæki. Allt framá þennan dag er hún sípijónandi, alla daga, flíkur á barnabörnin og aðra ætt- ingja og vini og í seinni tíð hefur hún einnig pijónað mikið af ullar- teppum. Þetta og annað hefur hún gefið til ýmissa hjálparstofnana, Rauða krossins, fatlaðra, alheims- fangahjálparinnar, kirkna o.fl. að- ila. Ekki mun það vel séð af Er- lendsínu að ég hafi fleiri orð hér um, en eins vil ég þó geta í þessu sambandi, en það er hve ótrúlega hún fýlgist með því hvernig þessum samtökum og félögum vegnar í baráttunni við bágindin í heimin- um. Með því að hún hefur búið í „horninu“ hjá dóttur sinni og tengdasyni sl. 11 ár og lítið þurft að greiða fyrir veru sína þar, hefur hún haft nokkra aura til ráðstöfun- ar og hafa þeir að mestu runnið beint eða óbeint til þeirra sem á einhvern hátt hafa þurft aðstoðar við, sem að framan getur. Hér hef- ur hún átt einstaklega góða daga að segja má í „faðmi“ afkomenda sinna, því auk einstakrar nærgætni þeirra hjóna í öllum samskiptum við gömlu konuna er mjög gest- kvæmt á heimili þeirra, skyldir sem óskyldir sækja það heimili heim og allir gera sér far um að ræða við hina öldnu en síhressu Erlendsínu. Hun á því láni að fagna að hafa góða sjón og góða heyrn þegar skýrt er talað (síbyljuna nemur hún ekki frekar en margir aðrir sem betri heym hafa). Eins og nærri má geta hefur þessi langa lífsbarátta í tiu áratugi- ekki verið eintómur „dans á rós- um“. Það hafa skipst á skin og skúrir eins og að jafnaði gerist í lífsins baráttu. En það er ekki öllum gefin sú skapgerð og að þroska þann eiginleika með sér að horfa ávallt til hinna björtu hliða, sem lífið hefur haft uppá að bjóða en gleyma gjarnan hinum dekkri hlið- um í tilveranni eða a.m.k. að færa alla hluti til betri vegar, en þetta hefur verið ríkjandi viðhorf í lífi Erlendsínu. Afkomendur Erlendsínu eru nú orðnir 156 að tölu á þessum 79 árum síðan fyrsta bamið fæddist, Helgi, að Þverfelli í Lundarreykja- dal. I tilefni af eitt hundrað ára afmæli hennar verður endurútgefið Niðjatal foreldra hennar á hausti komanda en bróðir hennar, Jón, sem nú er látinn, handritaði og gaf út þessar niðjaskrár árin 1969 og 1979 á áttræðis- og níræðisaldurs- árum hennar. Eg held að vel fari á því að enda þetta afmælisspjall um Erlendsínu Helgadóttur á orðum hennar sjálfr- ar í stuttu spjalli sem ég átti við hana nýlega: „Ég hef aldrei látið mér um munn fara nokkurt skammaryrði til nokkurrar mann- eskju á ævi minni.“ Mætti okkar skömmótta kynslóð veita þessum orðum hinnar öldnu heiðurskonu athygli. Ég og fjölskylda mín ósk- um þér innilega til hamingju á þess- um sérstæða afmælisdegi og megi ókomnar ævistundir verða þér til ánægju og Guðsblessunar. Guðjón Guðmundsson systursonur þinn Afmælisbarnið ætlar að taka á móti gestum í félagsheimilinu í Vogum, Glaðheimum, á afmælis- daginn, þ.e.a.s. nk. þriðjudag milli kl. 15 og 19 og bað að taka það fram að hún frábiðji sér allar gjafír í tilefni afmælisins. Afinæliskveðja: Björg S. Jóhannes- dóttir fyrrv. kennari fi*á Móbergi 90 ára er á morgun, sunnudag 6. ágúst, heiðurskonan Björg S. Jóhannesdóttir fyrrverandi kennari frá Móbergi í Langadal. Björg er fædd á Höllustöðum í Húnavatnssýslu hinn 6. ágúst 1899 en ólst upp á Móbergi og við þann bæ hefur hún kennt sig síðan. For- eldrar hennar voru Elísabet Þor- leifsdóttir og Jóhannes Halldórsson. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar ég kom sem nemandi á Hús- mæðraskólann á Staðarfelli haustið 1941 en þangað hafði hún skömmu áðui* ráðið sig sem handavinnu- kennari. Þar mun Björg hafa stigið eitt af sínum stærstu gæfusporum, svo vel sem hún hafði undirbúið lífsstarf sitt sem handavinnukenn- ari, með námi í fatasaum og hann- yrðum, ásamt meðfæddum- 'kenn- arahæfileikum og óvenjulega næmu fegurðarskyni. Þess fengum við nemendur hennar að njóta í ríkum mæli. Og leiðsagnar hennar gætti löngu eftir að hún hafði sleppt af okkur hendinni, því að oft hefur okkur orðið hugsað til þess, hvort henni Björgu okkar þætti þetta eða hitt handverkið nógu vel unnið. Á þessum tíma var skólastjóri Húsmæðraskólans á Staðarfelli Ingibjörg Jóhannsdóttir frá Löngu- mýri í Skagafirði. Leiðir þeirra hafa nú legið saman í 50 ár og því verð- ur nafn annarrar þeirra varla nefnt án þess að beggja sé getið. Haustið 1944 stofnaði Ingibjörg húsmæðraskóla á föðurleifð sinni Löngumýri í Skagafirði. Og þó að hugsjónakonan Ingibjörg á Löngu- mýri framkvæmdi á þessum tíma hluti sem öðram virtust hreinar skýjaborgir, þá hefði það heldur ekki orðið henni mögulegt án styrkrar aðstoðar og takmarka- lausrar fórniysi Bjargar vinkonu hennar, sem -fluttist með henni að Löngumýri. Einnig hún lagði aleigu sína undir að vel mætti til takast. Um það get ég borið vitni sem sam- kennari þeirra um margra ára skeið. Árið 1967 fluttust þær til Reykjavíkur og stofnuðu heimili á Reynimel 22, þar sem þær hafa búið síðan og fengið að njóta þeirr- ar friðsældar, sem fallegt heimili og gott sambýli getur gefið og fyr- ir það eru þær þakklátar forsjón- inni. Þó að starfsorka þeirra fari nú þverrandi fá þær enn að halda góðri andlegri heilsu og þeirri sál- arró sem trúnaðartraust þeirra eitt getur gefið þeim. Þess vegna eiga þær svo mikið til að gefa að við vinir þeirra förum ávallt ríkari af þeirra fundi. Kæra vinkona. Þessi fáu orð eiga aðeins að tjá þér þakkir mínar og blessunaróskir um alla ókomna daga. Guðrún Bergþórsdóttir AUSTURBÆR Kleifarvegur MIÐBÆR Lindargata 39-63 o.fl. Símar 35408 og 83033 IMwgtiiiMjifcifr ú lætur bkkur framkalla filmuna þína og færð til baka OKEYPIS ^GÆÐAFILMU UMBOÐSMENN: Reykjavík Neskjör, Ægissíðu 123 Videobjörninn, B”n9braut 119b Bókaverslun Isafoldar, Austurstræti 10 Gleraugnadeildin, Austurstræti 20 Sjónvarpsmiðstöðin, Laugavegi 80 Sportval, Laugavegi 116 Steinar, Rauðarárstíg 16 Vesturröst, Laugavegi 178 Donald, Hrísateigi 19 Allrabest, Stigahlíð 45 Nesco Kringlan, Kringlunni Hugborg, Efstalandi 26 Lukku-Láki, Langholtsvegi 126 Innrömmun & hannyrðir, Leirubakka 36 Videosýn, Arnarbakka 2 Söluturninn, Seljabraut 54 Straumnes, Vesturbergi 76 Hólasport, Hólagarði, Lóuhólum 2-6 Rökrás, Bíldshöfða 18 Ðitahöllin, Stórhöfða 15 Sportbær, Hraunbæ 102 Skalli, Hraunbæ 102 Versl. Nóatún, Rofabæ 39 Seltjarnarnes: Nesval, Melabraut 57 Hugföng, Eiðistorgi Kópavogur: Tónborg, Hamraborg 7 Söluturninn, Engihjaila Garðabær: Sælgætis- og Videohöllin, Garðatorgi Spesían, Iðnbúð 4 Hafnafjörður: Hestasport, Bæjarhrauni 4 Skalli, Revkjavíkurvegi Versl. Þ. Porðarsonar Suðurgötu Söluturninn, Miðvangi Steinar, Strandgötu 37 Mosfellssveit: Alnabúðin, Þverholti 5 Akranes: Bókaskemman, Stekkjarholti 8-10 . Borgarnes: Versl. Isbjörninn Hellissandur: Virkið Stykkishólmur: Versl. Húsið Grundarfjörður: Versl. Fell Hvammstangi: Vöruhúsið Tálknafjörður: Versl. Tían Bíldudalur: Veitingast. Vegamót Bolungavík: Versl. B. Eiríksson Sauðárkrókur: Versl. Hrund Dalvík: Versl. Dröfn sf. Akureyri: Radíónaust, Glerárgötu 26 Neskaupstaður: Nesbær Hella: Videoleigan Flúðir: Ferðamiöstöðin Selfoss: Versl. Osp, Eyrarvegi 1 Garður: Bensínstöð ESSO Keflavík: Frístund, Hólmgarði 2 Njarðvík: Frístund, Holtsgötu 26 PÓSTSENDUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.