Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 17
4- MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. ÁGÚST 1989 17 ' ' ■ Leysum málin á heimavelli ReyðarQörður. REYÐARFJÖRÐUR er gamalgróinn verslunarstaður. Þar hefur á seinustu árum orðið miðstöð viðskipta með nýja bíla á Austurlandi. Þetta hófst 1982 er Lykill hf. hóf að selja nýja bíla frá umboðunum fyrir sunnan. Viðskiptin fóru hægt af stað en hafa síðan vaxið ár frá ári. Fyrsta árið voru seldir hjá Lykli 20 nýir bílar en á síðasta ári var fjöldinn kominn í um 300. Maðurinn á bak við þessa þróun hjá Lykli er Benedikt Brunsted sölusljóri í bifreiðadeild. Bjami Haraldsson í verslun sinni að Aðalgötu 22. ,yillt ístíl hjá BP“ Sauðárkrókur. Norðarlega í gamla bænum á Sauðárkróki er lítil verslun, sem heitir því yfirlætislausa nafni Verslun Haraldar Júlíussonar. Kaup- maðurinn sem stendur innan við borð- ið og afgreiðir jafnt vestfirskan harð- fisk, smurolíur og fatnað, eins og niðursuðuvörur, karamellur og vasa- Ijós, heitir Bjarni Haraldsson. Hann tók við rekstri verslunarinnar er fað- ir hans, Haraldur Júlíusson, lést árið 1974, þá 88 ára gamall, en Haraldur stofnaði verslunina árið 1919 og rak hana til dauðadags. Bjarni snéri sér að verslunarrekstrinum með föður sínum árið 1959, en nokkru áður hóf hann akstur vöruflutningabifreiðar milli Sauðárkróks og Reykjavíkur, og er hann enn í þeirri útgerð ásamt verslunarrekstrinum. „Þessi búð hefur verið óbreytt lengi, og ég býst við því að hún verði það eitthvað áfram,“ segir Bjarni, „reksturinn hefur verið óbreyttur frá fyrstu tíð, auðvitað er vöruúrvalið dálítið meira en var hér á árunum, en það er nú líka auðveldara að ná í vörurnar núna heldur en þá.“ Og sannarlega er vöruúrvalið nóg hjá Bjarna, því hér finna menn flest það sem þá vanhagar um, hvort sem það er matvara eða fatnaður, eða þá eitt- hvað annað, því hér kennir margra grasa, en það sem viðskiptavinirnir kunna hvað best að meta er, að hjá Bjarna tíðkast lægra verð á hlutunum en almennt gerist, jafnvel lægra en í stórmörkuðunum á suðvesturhorn- inu. Þetta vita kúnnarnir og leggja því gjarnan leið sina til Bjarna Hat\, bæði til þess að gera góða verslun, og einnig til þess að eiga orð um lífið og tilveruna, eða þá um ástandið í bæjarmálunum, við. kaupmanninn, sem stundum hefur í gamni verið nefndur bæjarstjóri Sauðárkróks, „norðan við kirkju". Og Bjarni heldur áfram: „Hér hefur allt frá því um 1930 verið umboð fyrir vörur frá Oiíuverslun íslands og afgreiðsla fyr- ir áætlunarbifreiðir sem ganga á milli Reykjavíkur og Akureyrar frá sama tíma. — Þetta var auðvitað öðruvísi í þá daga, vegirnir lélegri og bílamir kannski líka, en Öxnadals- heiðin var líka oftar ófær þá heldur en nú, og þá var komið með far- þegana í rútunum hingað, þegar ófærð var, og þeir fluttir með póst- bátnum Drangi til Akureyrar, og svo kom næsti hópur með Drangi til baka og fór héðan suður. Þetta gekk ágæt- lega upp, enda kom Drangur hingað tvisvar í viku.“ Eins og áður var nefnt er umboð fyrir vörur Olíuverslunar íslands hjá Bjama Har, og þar fengust fyrr á árum allar vörar BP og nú allar vör- ur Olís. Á lóð verslunarinnar var á þeim árunum bílaþvottaplan, og þar stóð stórum stöfum: Fyrir viðskipta- vini BP. — Sagan segir að eitt sinn hafi Árni Blöndal bóksali með meira verið að þvo bíl sinn á planinu að morgni dags, þegar Bjarni birtist á tröppunum. Spurði Árni með nokkr- um þunga hverslags þjónusta þetta væri að bjóða viðskiptavinum upp á hárlausa kústa til bílaþvottanna. Bjarni mun hæversklega hafa lyft ensku húfunni og sýnt ennið, sem farið var að ná nokkuð aftur á hnakk- ann, og svarað af bragði: „Allt í stíl hjá BP.“ — „Jú, jú, þetta er alveg satt, en svo lét ég Árna hafa nýjan kúst, auðvitað, og við voram báðir ánægðir," segir Bjarni. í annað sinn mun það hafa gerst, að kona ein kom í búðina til Bjarna, fáum dögum fyrir jól, og vék sér að honum og spurði hvort hann hefði ekki englahár. „Nei, því miður — eins og þú sérð, er það alveg búið,“ sagði Bjarni og strauk létt um skallann, og var ekki frekar rætt um þetta jólaskraut. Og orðheppnin bregst ekki Bjarna. „Ég hef alltaf haft gaman af því að umgangast fólk, því það er lífið sjálft. Hingað koma margir, og hér hitti ég vini mína og kunningja og við höfum að minnsta kosti oftast tíma til þess að ræða allt milli himins og jarðar." En hvernig skyldi Bjarna Har. ganga að reka verslun á þessum síðustu og verstu tímum? „Það er ekki svo slæmt, auðvitað er margt sem gerir manni erfiðara fyrir, en þetta er gömul og gróin búð, og þó að margt reytist nú af því sem inn kemur, þá er þetta ekki svo slæmt. Hitt er svo annað mál, að ég vildi ekki vera að byija núna, að þurfa til dæmis að standa i því að byggja yfir þetta, eða fjármagna húsakaup af rekstrinum. — Nei, ætli það gæti gengið.“ En þó að verslanir komi og fari, og þó að byggðin á Sauðárkróki hafi tilhneigingu til þess að færast sunnar og sunnar, eins og ýmislegt sem í þá átt leitar, þá mun þó enn um sinn allt vera í stíl hjá BP, og verslun Haraldar Júlíussonar, með Bjarna Har. innan við diskinn, verða einn af föstu punktunum í bæjarlífinu á Sauðárkróki. - BB Benedikt er bifvélavirki og var áður verkstjóri hja'bifreiða- verkstæði Lykils hf. en flutti sig um set þegar fyrirtækið hóf að selja bíla 1982, Með þessum flutningi langaði hann til að prófa að selja bílana í stað þess að gera við þá. í þessu starfi er hann í meira sam- bandi við fólk ■ en í viðgerðunum. Reynslan úr bifvélavirkjuninni nýt- ist hinsvegar mjög vel í þessu starfi. Það er líka ánægjulegt hvað Aust- firðingar hafi tekið þessari þjónustu vel. Fyrsta árið seldu þeir 20 bíla og margir voru vantrúaðir á að þessi rekstur gæti gengið. En reynslan sýndi annað. A síðasta ári seldi fyrirtækið um 300 nýja bíla auk gífurlegs fjölda notaðra bíla. Benedikt segir viðskiptavini fyrir- tækisins einkum af Austurlandi en þó hafi hann selt bíla bæði suður til Reykjavíkur og vestur á firði. Það er líka eðlilegt að Austfirðingar nýti sér þessfijjjónustu. Nú bjóðast þeim bílar á heimaslóðum á sama verði og í Reykjavík en sleppa við kostnaðinn við að fara suður og sækja bílinn. Þjónustan sé alveg sú sama og hjá umboðunum í Reykjavík og fyrirgreiðslan oft á tíðum betri. Enda er stefna fyrir- tækisins sú að leysa málin á heima- velli. Sú stefna hafi gefist vel því menn komi aftur og aftur og kaupi bíl hjá sér. Benedikt segir að nú sé veruleg- ur samdráttur í sölu á nýjum bílum en notaðir bílar seljast þokkalega. Greinilegt sér að fólk hafi miklu minna fé til ráðstöfunar nú en fyrir einu tii tveimur árum. Oft eigi fólk líka í miklum erfiðleikum með að standa í skilum en ævinlega leysist Það skiptir miklu máli að kaupin fari vel og skemmtilega fram Rætt við Báru Sigurjónsdóttur Hjá Báru Hjá Báru, er ein af þessum rótgrónu verslunum í Reykjavík', tísku- verslun kvenna með stíl sem er í sjálfu sér jafii sjálfstæður og stíll sjálfrar Esjunnar. Bára Sigurjónsdóttir er sú Bára sem búðin bygg- ist á. Hún hefur rekið verslun í 38 ár, fyrst í Austurstræti þar sem hún vann reyndar lengi í Hattaverslun ísafoldar, en þá verslun keypti hún og úr varð verslunin Hjá Báru. I byrjun verslaði Bára með hatta, blússur, pils og fleira, en smátt og smátt jukust umsvif- in og Bára sérhæfði sig í betri fatnaði og samkvæmisfatnaði. Eg er búin að hafa sama mann- skapinn við afgreiðslu í 25 ár,“ sagði Bára með stoltri rödd, „og við höfum alltaf lagt mikið upp úr góðri þjónustu, haft stóra mát- unarklefa og allan þann tíma sem kúnninn þarf. í þrjátíu ár höfum við aldrei fengið annað en góð ummæli fyrir þjónustuna, konurnar mínar í afgreiðslunni hafa aldrei fengið gagnrýnisrödd. Það finnst mér segja mikla sögu um vandað starfsfólk sem er vanda sínum vax- ið. Hjá okkur er engin sjálfsaf- greiðsla þótt verslunarmátinn hafi vissulega breyst gífurlega í gegn um árin. Hjá Báru er hins vegar gróin verslun sem byggist veralega á gömlum viðskiptavinum, en auð- vitað stendur eða fellur verslun sem þessi á góðu vöruúrvali og starfs- fólkinu. En í öllum breytingunum sem hafa orðið í verslun finnst mér eitt mikilvægt atriði hafa setið á hakanum, gæðamatið. Gæðamatið ætti að koma mun betur fram í verðkönnunum og það er langt í frá að því hafi verið gerð góð skil, hvorki í matvöru né öðrum þáttum verslunarinnar. Ég hef alltaf lagt mikið upp úr því að gefa góðar upplýsingar um efni og gæði vö- runnar. Ég kaupi mest inn frá Bandaríkjunum. Þar er hægt að fá alla verðflokka, en þájjetur maður líka valið um gæðin. í Evrópu eru mun minni möguleikar á því. í Bandaríkjunum kappkosta fram- leiðendur einnig að spanna allt sviðið, feita og granna, hávaxna og lágvaxna. Jú, tískan spilar mikið inn í, enn meira á seinni áram, finnst mér. Konur vilja í æ ríkari mæli fylgjast með, vera í tískunni, en þó eru ís- lenskar konur ákaflega fastheldnar þegar þær eru komnar á ákveðinn aldur, þótt það sé að sjálfsögðu einstaklingsbundið. Sjálfstæði í smekk og klæðaburði er ríkjandi. Skemmtilegast? Mér finnst ofsa- lega gaman að máta á konu þótt hún kaupi ekki. Það að sjá konuna fallegri og glæsilegri, sjá hana létt- ari í lund er mjög gefandi. Auk þess hef ég gaman af að hitta fólk, hrærast í þessu og maður er alltaf að skapa eitthvað, stilla út, gefa konunum nýjan svip. Þetta er eilífð- ar sköpun. Eg elska fólk og versl- unin gefur beint samband við fólk, ég gæti ekki hugsað mér að hætta í verslun að svo stöddu, það er allt- af eitthvað við að vera. Annars finnst mér víða vanta mikið á fram- komu verslunarfólks, þjónustu og viðmót sem myndi skapa skemmti- legra andrúmsloft og betri verslun. Kaup og sala eru það snar þáttur í mannlífinu að það skiptir miklu máli að það fari vel og skemmti- lega fram, að innpökkunin sé vön- duð svo eitt lítið atriði sé nefnt, að öll atriði fari vel úr hendi og auðvitað þarf að skóla fólk til í þessu eins og öðru, það má bara ekki gleymast eins og víða virðist Morgunbladið/RAX Bára Sigurjónsdóttir vera. Það er líka svo margt farið úr böndunum í viðmiðun. Hjá mér er hægt að fá vandaða samkvæmi- skjóla á undir 10 þúsund krónur, en í öðrum búðum hef ég séð regnkápur á 2 ára börn verðalagð- ar á 7.000 krónur og mér er sagt að þær renni út. Er nema von að blessað fólkið þurfi há laun. Ég er nú svo gamaldags að mér finnst þúsundkall skipta máli og það er kannski þess vegna sem við erum að reyna að halda þessari gömlu rótgrónu verslun í sama horfinu. - á.j. Benedikt Brunsted úr þessum málum enda séu Aust- firðingar miklir skilamenn. Einnig sé áberandi að fólk velti málunum betur fyrir sér nú en áður og hugsi meir um þær skuldbindingar sem það er að gangast undir þegar það skrifar undir skuldabréf eða sam- þykkir víxil. Þetta er öðruvísi en 1987 þegar bílarnir hafi varla verið skoðaðir bara borgaðir. Um launakjör verslunarmanna segir Benedikt að allir viti hvernig samningarnir séu. Yfirborganir hafi ekki tíðakst úti á landi eins og á höfuðborgarsvæðinu. Fólk hafi því fleytt sér á yfirvinnu en nú hafi stórlega dregið úr henni og það viti allir hvernig lífsafkoman sé. Björn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.