Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. AGUST 1989 Siglingamálastoftiun: Sótt um 3 milljónir til að athuga smábáta Siglingamálastofnun hefur sótt um þrjár milljónir af Qárlögum næsta árs til að halda áfram athugunum á stöðugleika þilfarsbáta. Aætlað er að skoða milli 200 og 250 báta á næstu þremur árum. Niðurstöður liggja þegar fyrir um 26 rækjuveiðibáta af VestQörðum en af þeim komu 8 bátar mjög slaklega út að sögn siglingamála- stjóra. Hann segir að verið sé að skoða hvert tilvik nánar og kanna hvaða breytingar þyrfti að gera til að auka stöðugleikann. Könnun Siglingamálastofnunar á þilfarsbátum hófst fyrir hálfu öðru ári og athugaðir hafa verið 40 bát- ar af ísafjarðardjúpi, Amarfirði og Húnaflóa. Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri segir að erfitt sé að fullyrða um smábátaflotann út frá þeim niðurstöðum sem þegar liggi fyrir, bátarnir séu notaðir mis- jafnlega. „Togveiðar sem stundaðar eru á bátunum fyrir vestan auka þunga þeirra og hafa áhrif á stöðug- leikann,“ segir Magnús. „Það sem þróast hefur á verri veg er að menn freistast til að hafa allan aflann á þilfari. Þessi athugun á þilfarsbátum er að sögn Magnúsar liður í aðgerðum Siglingamálastofnunar til að bæta stöðugleika fiskiskipa og öryggi þeirra almennt. Aðrar aðgerðir í þessu skyni snúa að fræðslu til skipstjórnarmanna. Siglingamála- stofnun gaf í fyrra út kynning- arbækling um stöðugleika. Magnús kveðst óttast að ritið hafi sums staðar ekki komist út af útgerðar- skrifstofum til skipstjórnarmanna. Þá var namskeið í stöðugleika aug- lýst í fyrra en fáir skráðu sig til þátttöku. Magnús segir að breytingar til að auka stöðugleika bátanna geti verið kostnaðarsamar. Nýlega hafi verið rætt við sjávarútvegsráðherra um fjárstuðning við bátseigendur vegna þessa, málið sé nú í athugun. Morgunblaðið/Einar Falur Stærsta límtrésbygging á íshindi Byggingu íþróttahúss FH í Kaplakrika miðar vel áfram og var lokið við að reisa húsið, sem verður stærsta límtrésbygging á Islandi, í síðustu viku. íþróttasalurinn veðrur 44x44 metrar að flatarmáli og er áætlað að taka hann í notkun í febrúar á næsta ári. Svo bjartsýnir eru FH- ingar á að verkið standist áætlun, að þeir hafa sett fyrsta handboltaleikinn á i húsinu 16. febrú- ar. Hagvirki annast framkvæmdirnar. VEÐURHORFUR í DAG, 5. ÁGÚST YFIRLIT í GÆR: Yfir norðanverðu landinu er 1011 mb. smálægð sem þokast austur en um 700 km suð-suðvestur af landinu er 1000 mb. lægð á hægri hreyfingu austur. Hiti breytist lítið. SPÁ: Hæg breytileg átt og víðast þurrt. Skýjað við sjóinn, en bjart veður inn til landsins. Sem sagt ágætis útileguveður. Hiti 10 til 18 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Hæg breytileg átt um allt land. Léttskýj- að til landsins en víða þokuloft við strendur. Hiti 10—18 stig. HORFUR Á MÁNUDAG: Þykknar upp með vaxandi suðaustanátt fyrst vestan til. Rigning um sunnan- og vestanvert iandið um kvöld- ið en sennilega þurrt norðanlands og austan. Hiti 9—13 stig vestan- lands en 11—16 norðaustanlands VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti vedur Akureyri 13 skýjað Reykjavík 12 skýjað Bergen 12 skýjaö Helsinki 17 skýjað Kaupmannah. 17 skýjað Narssarssuaq 9 skýjað Nuuk 7 skýjað Osló 13 alskýjað Stokkhólmur 15 skúr Pórshöfn 11 hálfskýjað Algarve 24 skýjað Amsterdam 19 hálfskýjað Barcelona 26 skýjað Berlín 15 skúr Chicago 24 alskýjað Feneyjar 15 hálfskýjað Frankfurt 20 skýjað Glasgow 16 skýjað Hamborg 16 skúr Las Palmas 26 léttskýjað London 22 heiðskírt Los Angeles 17 léttskýjað Lúxemborg 20 skýjað Madríd 27 léttskýjað Malaga 31 léttskýjað Mallorca 29 léttskýjað Montreal 25 þokumóöa New York 27 mistur Orlando 25 þokumóða Paris 25 léttskýjað Róm 27 léttskýjað Vín 15 rigníng Washington 24 mistur Winnipeg 17 léttskýjað Keflavíkurflugvöllur: Lögreg’lumönnum verður fækkað um tíu Lögreglumönnum og tollvörðum á Keflavíkurflugvelli voru ný- lega kynntar áætlanir utanríkisráðuneytisins um fækkun starfs- manna hjá lögreglustjóraembættinu á Keflavíkurflugvelli. Áætlað er að fækka stöðugildum um þrettán, 10 lögregluþjóna og þriggja tollvarða, auk þess sem reynt verður að ná fram hagræðingu sem svarar til þriggja stöðugilda hjá hvorri deild. Uppsagnirnar munu taka gildi um áramót, að sögn Unnsteins Jóhannssonar aðstoðar- yfirlögregluþjóns. Lögreglumenn á Keflavíkur- flugvelli eru um 50 og tollverðir um það bil 35. Að sögn Unnsteins er gert ráð fyrir að fjórtán manna vopnuð varðsveit lögreglunnar verði lögð niður, sex af þeim stöðu- gildum verði lögð niður en átta taki að sér vopnaleit í handfar- angri, sem lögreglan annist ein- göngu. Áður var leitin á höndum tollgæslu og lögreglfl. Unnsteinn sagði að áður en tilkynnt var um niðurskurðinn hefðu tveir lög- reglumenn þegar sagt upp störfum en segja þyrfti upp átta og bitnaði sá niðurskurður sennilega á þeim lögreglumönnum sem hafa hlotið fastráðningu án þess að hafa lokið námi við lögregluskólann. Mun meiri ásókn í sigl- ingaleyfi en ætlað var Leyfunum úthlutað 1 næstu viku Landssamband íslenskra út- vegsmanna mun á næstunni út- hluta siglingaleyfum fyrir fiski- Hvaleyrarholt: Sarniö við JVJ um gatnagerð BÆJARRÁÐ Hafhaifyarðar hefiir samþykkt að ganga til samninga við verktakafyrirtækið J.V.J. hf., sem bauð 27.231 milljónir króna í gatnagerð og lagnir á Hvaleyr- arholti. Tilboðið er 51,7% al kostnaðaráætlun, sem er rúmar 52,6 milljónir. Sex önnur tilboð bárust; frá Berg- ás hf. sem bauð rúmar 34,2 millj. eða 65,01% af kostnaðaráætlun, Jó- hanni Bjamasyni, sem bauð rúmar 35,3 millj. eða 67,07% af kostnað- aráætlun og Rúnari Smárasyni og Víði Guðmundssyni, rúmar 35,4 millj. eða 67,27% af kostnaðaráætl- un. Loftorka hf. bauð rúmar 39,2 millj. eða 74,42% af kostnaðaráætl- un, Hagvirki hf. rúmar 39,8 millj. eða 75,69% af kostnaðaráætlun og Halldór og Guðmundur buðu rúmar 49 millj. eða 93,14% af kostnaðará- ætlun. skip sem hyggjast sigla með afl- ann á markaði í Þýskalandi og Bretlandi seinni hluta ársins. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mun ásókn í leyfin vera mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Til dæmis eru umsóknir um siglingaleyfi á Þýskalandsmarkað allt að helm- ingi fleiri en þau leyfi sem ætlun- in var að úthluta, og ásókn í sigl- ingaleyfi á Bretlandsmarkað er einnig meiri en starfsmenn LÍÚ reikna með að geta sinnt. Þessi mikla eftirspurn eftir sigl- ingaleyfum kemur ekki síst á óvart þar sem spáð hefur verið kvótaleysi á haustmánuðum, sem ætti að öllu jöfnu að hafa í för með sér fækkun umsókna um siglingar. Hins vegar mun verða úthlutað leyfum til sigl- inga með fleiri tegundir en þorsk, og kann þar að vera kominn hluti skýringarinnar. Ekki fengust upplýsingar hjá LÍÚ um fjölda umsókna, né heldur ijölda þeirra siglingaleyfa sem veitt verða. Að sögn Sveins Hjartar Hjartarsonar hagfræðings hjá LÍÚ mun úthlutunin að líkindum verða kunngerð í næstu viku, en ekki lægju enn fyrir endanlegar upplýs- ingar varðandi leyfaveitinguna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.