Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.08.1989, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 5. AGUST 1989 37 Minning: Teitur Eiríksson frá Laugarvatni Fæddur 22. febrúar 1944 Dáinn 31. júlí 1989 Fyrsta ágúst síðastlíðinn var ég að vanda að hlusta á ríkisútvarpið, meðal annars dánartilkynningar. Þá heyrði ég að vinir mínir á Laug- arvatni, Ásgerður Teitsdóttir og Eiríkur Eyvindsson, tilkynntu Iát sonar síns, Teits Eiríkssonar, en hann var giftur danskri konu og búsettur í Danmörku. Djúp samúð flaug um huga minn og þótt einhver hefði verið hjá mér, hefði mér orðið tregt tungu að hræra. Mikið leggur forsjónin á sumt fólk. Fyrir rúmlega einu og hálfu ári misstu þau Ásgerður og Eiríkur einkadóttur sína, Sigríði Erlu hússtjórnarkennara, á besta aldri. Teitur Eiríksson fæddist 22. febr- úar 1944 og ólst upp á Laugar- vatni hjá foreldrum sínum, Ásgerði Teitsdóttur frá Eyvindartungu og Eiríki Eyvindssyni rafvirkjameist- ara frá Utey í Laugardal, en Eirík- ur hefur verið forstjóri sameigna skólanna á Laugarvatni frá stofnun þeirra. Ég kynntist Teiti Eiríkssyni ung- um að aldri hlaupandi um hlöðin á Laugarvatni. Hann var hlýr dreng- ur og auðsjáanlega vinsæll meðal leikfélaganna. Þótt erfitt geti verið að alast upp á skólastað sem Laug- arvatni, steig Teitur léttum skrefum yfir þann vanda og átti sem barn og unglingur vini í öllum skólunum, hvort sem nemendur voru jafnaldr- ar hans, eldri eða yngri að árum. Úr Barnaskólanum á Laugar- vatni lá menntaleið Teits í Héraðs- skólann eins og flestra barna sem alin eru upp á Laguarvatni. Eftir dvölina í Héraðsskólanum fór Teitur til Reykjavíkur og hóf nám í raf-_ virkjun hjá Bræðrunum Ormsson hf. og útskrifaðist frá því fyrirtæki sem löggiltur rafvirki. Eftir námið réðst hann að Búrfellsvirkjun og vann þar hjá dönskum verktökum undir stjórn rafmagnsverkfræðings sem átti mestan þátt í því að hann fluttist til Danmerkur. Á æskuárum sínum kynntist Teitur ungri og fallegri stúlku í Reykjavík og gekk með henni í hjónaband. Þau eignuðust saman dreng sem skírður var Eiríkur í höfðið á föður Teits. Ýmsar aðstæð- ur orsökuðu að Teitur og unga kon- an hans slitu samvistir. Teitur sigldi þá til Danmerkur í atvinnuleit. Þar var þá mikið atvinnuleysi. Þegar Teitur fór til Danmerkur varð litli Eiríkur eftir á íslandi í umsjá móður sinnar, en vegna sér- staks starfs hennar, dvaldi Eiríkur oft langdvölum til skiptis hjá móð- ur, og föðurforeldrum sínum. Eftir að hann varð skólaskyldur bjó hann oftast á vetrum hjá föðurforeldrum sínum og gekk í Barnaskólann á Laugarvatni. Þegar Eiríkur var 12 Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birt- ur. Meginregla er sú, að minn- ingargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. ára breyttust ýmsar aðstæður heima fyrir og til að búa honum meira öryggi á uppvaxtarárunum var ákveðið að hann færi til föður síns og stjúpu í Danmörku. Eftir kornuna til Danmerkur kynntist Teitur fljótlega ungri stúlku sem heitir Jana og hóf með henni sambýli. Jana er komin af myndarlegu fólki og traustu. Teitur naut trausts og virðingar hjá fólki hennar alla tíð. Með Jönu eignaðist hann tvö börn, stúlku sem nú er átján ára og varð stúdent síðastlið- ið vor og dreng sem nú er þrettán ára. Þótt erfitt væri með atvinnu í Danmörku þegar Teitur kom þang- að, fékk hann strax góða vinnu hjá stóru fyrirtæki, sem sér um dreif- ingu á rafmagni sem leitt er frá Svíþjóð til Danmerkur og varð þar línumaður yfir mörgum vinnuflokk- um. Fyrir utan góð laun hlotnuðust honum ýmis hlunnindi hjá fyrirtæk- inu. Verkfræðingurinn sem hann vann hjá í Búrfelli réð hann í stöð- una, sem Teitur hefur unað glaður við alla tíð. Teitur og Jana hafa á sínum búskaparárum byggt yfir sig þrisv- ar, alltaf verið að stækka við sig og færa bústaðinn nær vinnustaðn- um. Síðast byggðu þau einbýlishús á Karolinevej 9 í Middelfart, rækt- uðu sjálf garðinn sinn og skipu- lögðu. í garðinum voru meðal ann- ars gróðursettar íslenskar jurtir því Teitur var mikill íslendingur þótt hann byggi í Danmörku meiri hluta ævi sinnar og kynni þar vel við sig og sitt starf. Teitur hafði stöðugt samband við ástvini sína á íslandi, kom í heim- sókn á hvetju ári og hafði þá gjarn- an með sér út íslenskar jurtir til skrauts í garðinn sinn. Tvisvar kom Teitur til íslands með alla fjölskylduna en Jana kona hans felldi sig illa við kalda veðr- áttu og hrjóstrugt landslag. Með eindæma dugnaði talar Jana íslensku og það eru fá orð sem hún ekki skilur, segir tengdamóðir hennar. Síðast kom Teitur til ís- lands í vor til að vera viðstaddur fermingu eldri systursonar síns, Ólafs Hreggviðssonar. Andlát Teits kom öllum mjög á óvart, því hann var hraustur maður og vel á sig kominn. Fyrir rúmri viku veiktist hann og lá heima. Tveir læknar voru kallaðir til að skoða hann og töldu báðir að hann væri með umgangsveiki. Daginn sem hann dó var heilsan betri og var hann ákveðinn að mæta í vinnu næsta dag. Sonur hans, 13 ára, var einn heima hjá honum. Teitur hafði símasamband við konu sína í vinn- una og einnig við tengdamömmu þennan dag og virtist heilsan í lagi. Þegar líða tók á daginn sagði hann við son sinn: „Ég ætla að leggja mig“ og gekk áleiðis í rúmið sitt. Þegar konan hans kom heim úr vinnunni lá hann andvana og engin hjálp til bjargar lífi hans. Aðstandendur eiga um sárt. að binda við hið snögga fráfall Teits Eiríkssonar. Hann var mikill og duglegur heimilisfaðir, aflaði vel og var kærleiksríkur. Hann verður jarðsettur i dag, laugardag, í danskri moldu. Frá íslandi fylgja honum til grafar for- eldrar hans, bróðir og mágur, einn- ig Eiríkur sonur hans sem unnið hefur á íslandi í sumar og er mat- reiðslumeistari við sumarhótelið í Bjarkarlundi. Guð gefur oftast styrk í stórum raunum og það veit ég hann gefur fjölskyldu Teits Eiríkssonar og leggur líknarhendi á sárið. Með djúpri virðingu. Jensína Halldórsdóttir, fyrrv. skólastjóri á Laugarvatni. POTT- ÞETTAR PERUR AGOÐU Allar RING bílaperur bera merkið (|) sem þýðir að þœr uppfylla ýtrustu gœðakröfur E.B.E. RING bilaperurnar fást á bensínstöðvum Skeljungs Dreifing: Ilma hf'., sími 23738

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.